Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1998, Page 9
FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 1998
9
I>V
Ráðherra vill
ólmur ræða um
dópsölu sonar
Ráðherra í bresku stjóminni
vill ólmur ræða um meinta fíkni-
efhasölu sautján ára gamals son-
ar síns en lögin meina honum að
gera það.
Máj þetta hefur verið hið vand-
ræðalegasta fyrir bresk stjórnvöld
sem hafa tekið mjög harða afstöðu
gegn fíkniefnum hvers konar.
Ráðherrasonurinn ku hafa selt
blaðamanni Mirror lítils háttar
hass. Blaðamaðurinn var svo
handtekinn þegar hann skilaði
dópinu til lögreglu.
Æsiblaðið Sun ætlaði að birta
nafíi ráðherrans umrædda og
sonar hans en var bannað það.
Bæði blöðin birtu hins vegar
löng viðtöl við foðurinn í gær þar
sem hann sagðist vilja greina frá
nafni sínu en mætti það ekki.
Faðirinn neitaði að hafa reynt að
hafa áhrif á framgang málsins.
Angelsen gefur
trillum frjálsan
aðgang að fiskl
Peter Angelsen, sjávarútvegs-
ráðherra Noregs, hefur ákveðið
að skipta þorskkvótanum fyrir
nýbyrjað ár þannig að bátar und-
ir tíu metrum fá frjálsan aðgang
að miðunum í ár. Hann hefur enn
fremm- ákveöið að geyma úthlut-
un 20 þúsund tonna af síldarkvót-
anum þar til eftir 1. október í
haust. Útgerðarmenn eru siður en
svo hressir með þessar aðgerðir
ráðherrans, einkum þó þeir sem
gera út hafskipin. Ráðherrann
hefúr verið gagnrýndur fyrir að
fylgja ekki ráðleggingum Norges
Fiskarlag, heildarsamtaka sjávar-
útvegsins, og ráðgjafarnefndar
sjávarútvegsráðuneytisins. Sjáv-
arútvegsráðimeytið vill hefja við-
ræður við Norges Fiskarlag um
hvemig hægt sé að stöðva kaup
hafskipaflotans á trillukvótum.
Gíslar frelsaðir
Brasilíska lögreglan frelsaði um
650 gísla sem fangar í Sorocara
höfðu haft á valdi sínu nokkra
daga. Ekki var hleypt af einu ein-
asta skoti í aðgerðunum. Lögreglan
hefur fengið mikið lof fyrir óvenju-
lega framkomu sina. Reuter
Útlönd
ítalska leikkonan Sophia Loren gerði sér glaðan dag um áramótin, eins og við hin. Hún var í hópi þeirri stálheppnu
sem fengu miða á nýárstónleika Vínarfílharmóníunnar f Vínarborg í Austurríki í gær. Eftir tónleikana brá hún á smá-
leik með eínum piltanna úr hinum fræga Vínardrengjakór. símamynd Reuter
Aukin spenna
eftir morð á
NorðuMrlandi
Spenna er nú á Norður-írlandi
í kjölfar skotárásar á krá í hverfi
kaþólikka í Belfast á gamlárs-
kvöld þar sem einn maður lét líf-
ið. Grunur leikur á að öfgamenn
úr röðum mótmælenda hafi stað-
ið fyrir árásinni.
Fjórir til viðbótar hlutu
skotsár, að sögn lögreglunnar.
Maðurinn sem lést í árásinni var
31 árs. Hann lést aðeins nokkrum
mínútum fyrir miönætti.
Að sögn heimildarmanna inn-
an öryggissveitanna voru árásar-
mennimir tveir vopnaðir riffli og
skammbyssu. Þetta var þriðja
morðið á Norður-írlandi á aöeins
fimm dögum.
Ekki sameining
í Færeyjum
Ekki verður af fyrirhugaðri
sameiningu Þórshafnar í Færeyj-
um og Kollafjarðar í bráð þar
sem Kollfirðingar hafa beðið um
þriggja ára umþóttunarfrest. Ætl-
unin var aö ein fjárlög giltu fyrir
bæjarfélögin frá áramótum, að
ögn blaðsins Sosialurin.
Hvenær skiptir þú um síur í oílnum þínum ?
v
I '
ÍFMM
FRAM ábyrgö
r ( 'JÝBARÐI ehf. Soöatún 4-6, Garðabæ Sími 565 6111
WWW. FRAMEUROPENL
Enn einn harmleikurinn í KennedyQölskyldunni:
Sonur Roberts
skíðaslysi
lést í
Enn einu sinni er mikill harmur
kveðinn að Kennedyfjölskyldunni.
Michael Kennedy, 39 ára sonur Ro-
berts heitins öldungadeildarþing-
manns, fórst á gamlársdag þegar
hann rakst á tré í skíðabrekku í
Aspen í Kólóradó. Michael var þar í
skíðafríi með nokkrum úr fjölskyld-
unni.
Sveit björgunarsveitarmanna fann
Kennedy aðeins nokkrum mínútum
eftir að tilkynning hafði borist um
meðvitundarlausan skíðamann.
Björgunarsveitarmenn veittu honum
umfangsmikla fyrstu hjálp á staðn-
um og fluttu á sjúkrahús þar sem
hann var úrskurðaður látinn laust
fyrir klukkan 18 að staðartíma.
Michael Kennedy er annað af ell-
efú börnum Roberts heitins og Ethel
konu hans sem lætur lífið með vo-
veiflegum hætti. Eldri bróðir hans,
David, lést í Palm Beach í Flórída ár-
ið 1984 af völdxnn of stórs skammts af
kókaíni og öðrum lyfjum.
Ethel Kennedy sagði í yfirlýsingu,
sem hún sendi frá sér, að fjölskyldan
syrgði Michael. Bróðirinn Joseph
kallaði slysið hræðilegan harmleik
fyrir börn Michaels, eiginkonuna
Vicki og alla fjölskylduna. „Við mun-
um sakna hans sárt,“ sagði Joseph.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
frétti af láti Kennedys í nýársfagn-
aði í Suður-Karólínu. Hann hringdi
þegar í Kennedyfjölskylduna í
Aspen og vottaði henni samúð sína.
Kennedy komst í fréttir fyrr á ár-
inu þegar upp komst um ástarævin-
týri hans við hamfóstruna. Stúlkan
var yngri en 16 ára þegar það hófst
og því undir lögaldri. Reuter
NA LENGRA
FYRST KEM ÉG
SVO BILLINN MINN
GUNNAR BERNHARD EHF.
VATNAGARÐAR24
SÍMI: 520 1100