Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1998, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1998, Page 10
io mennmg FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 1998 DV Að spila ...eða ekki Ólafur Jóhann Ólafsson er enginn nýgræðing- ur sem rithöfundur en leikritið Fjögur hjörtu sýnir að honum lætur ekkert síður að semja fyr- ir leiksvið. Samtölin eru lipurlega samin og tal- málið eðlilegt, efni verksins er á mannlegum nót- um og persónurnar ná vel til áhorfandans. Og síð- ast en ekki síst: Kímnin gleymist ekki, þó að und- ir niðri liggi alvaran. Leiklist Auður Eydal Það er helst að Ólafi bregðist bogalistin þegar kemur að því að reka endahnútinn á verkið. Blá- botninn var heldur vandræðalegur og er það reyndar ekki í fyrsta skipti sem erfitt reynist að loka verki svo vel sé. Fjórir aldraðir vinir og spilafélagar hittast eina kvöldstund eins og þeir hafa gert undanfarin 55 ár eða allt frá því á menntaskólaárunum. Sá fimmti, Logi, mætir ekki, en húsráð- andi sér til þess að auður stóll- inn hans stendur á sínum stað, rétt eins og þegar húsmæður hér áður fyrr lögðu aukabolla á borð, „bolla Guðs“, fyrir fjar- staddan gest. Þetta atriði gerir nærveru Loga allt að því áþreifanlega en á meðan vinirnir karpa og þrefa á sinn hefðbundna hátt tekur hann síðustu rúbertuna við allt annað spilaborð. Manngerðimar eru skýrar án þess að verða staðlaðar týpur. Þó er prestur- inn, séra Kristján, ansi klisjukennd persóna frá höfundarins hendi. Bessi Bjarnason leikur hlut- verkið kunnáttusamlega af hógværri kímni þannig að þetta sleppur en persónan er óttaleg geðluðra og nær ekki þeirri tragísku dýpt sem sagan vissulega gefur tilefni til. Hin hlutverkin hafa meiri hljómbotn og leikur hver sína rullu í samskiptum vinanna. Loftið er óvenjulega spennuþrungið þetta kvöld, bæði vegna fjarveru Loga og eins vegna persónulegra mála sem upp koma, og áður en varir er farið að viðra út úr pokahornunum. Þó að það sé ekki sársaukalaust þá skýrast þama ýmis gömul mál, og verkið verður skemmtileg stúdía á því hvern- ig vináttan þróast og liflr af þrátt fyrir hremm- útrás með því að ráðast sem einn maður á Pétur, hinn eina í hópnum sem ekki náði að fara í fram- haldsnám og varð „bara“ barnakennari. Rúrik Haraldsson, Gestur, færðist allur í auk- ana eftir þvi sem leið á verkið og vann á sterkan hátt úr persónulýsingunni. Gunnari Eyjólfssyni brást heldur ekki bogalistin í hlutverki læknisins og samleikur þeirra tveggja var mergurinn og þungamiðjan í átökum leikritsins. En Árni Tryggvason í hlutverki Péturs skapaði engu að síður eftirminnilegustu persónu verksins með einlægri og heilsteyptri túlkun sem snart áhorf- andann verulega. Verkið tekur sig vel út í Loftkastalanum þar sem Sigurjón Jóhannsson hefur mótað því um- gjörð við hæfi og Hallur Helgason leikstjóri legg- ur áherslu á að láta kunnáttu og hæfni þessara klassapilta, sem leika hlutverkin fjögur, njóta sín sem best. Það er gaman að bera Fjögur hjörtu saman við Listaverkið sem notið hefur mikilla vinsælda frá því í vor. Þar er fjallað um vináttusamband þriggja manna sem á að giska 45 árum yngri en karlarnir fjórir. í báðum verkunum, þó ólík séu, er lögð áhersla á gildi vináttunnar, en hún er alls ekki sykurhúðuð eða átakcdaus. Eftir að hafa séð Fjögur hjörtu er alveg óhætt að vænta fleiri verka fyrir leiksvið frá hendi Ólafs Jóhanns Ólafssonar. Þetta leik- rit, svo mcmnlegt og satt sem það er, á áreið- anlega eftir að lifa og sjást oftar á sviði. Loftkastalinn sýnir: Fjögur hjörtu Höfundur: Ólafur Jóhann Ólafsson Leikstjóri: Hallur Helgason Leikmynd: Sigurjón Jóhannsson Lýsing: Björn B. Guðmundsson Förðun: Kristín Thors Kristnihaldið í heild Aðalstöðin og Sígilt FM ætla> að flytja Kristnihald undir jökli í heild sinni á sunnudaginn kl. 16. Leikritiö var flutt í tvennu lagi yfir há- tíðarnar eins og áhuga- menn hafa ekki látið fara fram hjá sér, en þeir sem misstu af geta náð því núna. Leikgerðina af skáldsögu Hafldórs Laxness samdi Sveinn Einarsson sem einnig leikstýrir verkinu. í hlutverki Umba er Hilmir Snær Guðnason sem sló eftirminnilega í gegn í hlut- verki Hamlets Danaprins í Þjóðleikhúsinu um jólin, og hlutverk Jóns prímusar leikur Gísli Halldórsson eins og á svið- inu í Iðnó forðum. Skýrsla Kronstadts Á rás 1 verður líka flutt leik- rit á sunnudaginn kl. 14. Það heitir Skýrsla Kronstadts, felu- leikur fyrir raddir, og er eftir Woifgang Schiffer sem hefur verið duglegur að kynna ís- lenskar bókmenntir í Þýska- landi á undanfömum árum. Sigrún Valbergsdóttir þýddi leikinn og leikstýrir honum, en aðaihlutverkið - Kronstadt sem les sína undarlegu skýrslu inn á segulband - leikur Sigurður Skúlason. Ágæt heildaráhrif Söngkvartettar hafa notið mikilla vinsælda í gegnum árin, sér í lagi karlakvartettar. Eftir nokkra lægð i kvartettsöng hefur hagur hans vænkast nú á síðustu árum. Nýir kvartettar hafa kveðið sér hljóðs og nokkrir þeirra náð tryggum sessi í tónlistarlífi okkar. Þar gildir hið sama og í öðrum greinum: Leiðandi einstaklingar og hóp- ar koma fram á sjónarsviðið með árangri sem sker sig úr og hvetur aðra til að láta til skarar skríða og feta eða hlaupa braut þess og þeirra sem áhugann vekja. Slíkt afreksfólk og leiðarljós I flokki kvartettsöngvara er að finna á Tjöm í Svarfaðardal. Sá bær er reyndar orðinn býsna vanur að ábúendur hans veiti leiðarljósum inn í íslenskt þjóðlíf. Tjamarkvartettinn er fyrirbæri sem ekki á að geta verið til samkvæmt líkindareikningum. Því það er með ólíkindum að við bræðrabrúðkaup verði til efni i mjög góðan kvartett, án þess að Tónlist Jón Hlöðver Áskelsson stofnað hafi beinlínis verið til hjúskaparins með kvartett að markmiði, sem yrði trúlega frekar ótrygg hjúskaparleið! Samstilling, hreinn söngur og fallegur radd- blær hrifu mann strax í upphafi tónleikanna í Akureyrarkirkju á þriðjudagskvöldið í flutningi tvísöngslags við íslenska helgikvæðið „María meyjan skæra". Kvartettinn skipa þau: Rósa Kristín Baldursdóttir, Kristjana Arngrimsdóttir, Hjörleifur Hjartarson og Kristján Hjartarson. Efnisskrá þessarar hátíðartónleika var skipt í þrennt. í fyrsta efnisflokki vom ljóð og lög um Maríu guðsmóður. í öðrum voru ljóð og sálmar tengdir iðrun og yfirbót. En eftir hlé flutti kvart- ettinn svo innlend og erlend jólalög. Niðurröðun og val laga og ljóða var gert af smekkvísi og til- fmningu fyrir ágætum heildaráhrifum tónleik- anna. „Bið ég María“ er íslenskt þjóðlag í vanda- samri en fallegri útsetningu Marteins H. Friö- rikssonar, sem hefði þrátt fyrir fallegan flutning þarfnast meiri slípunar af hálfu kvartettsins. Það er von mín að þessi útsetning eigi eftir að hljóma oft. Tvö næstu lög eru nýleg, eftir Atla Heimi Sveinsson: „Maríukvæði“ við samnefnt ljóð Hall- dórs Laxness og „Haustvísur Máríu" við ljóð Ein- ars Ólafs Sveinssonar, bæði runnin úr þeirri lag- línuuppsprettu Atla Heimis sem virðist svo gjöf- ul á fallega söngva. Næmur flutningur Tjarnar- kvartettsins á þessum lögum var hrífandi. Eitt einlægasta, einfaldasta og um leið falleg- asta jólalag að mínu mati er pólskt og nefnist í þýðingu Helga Hálfdanarsonar „María kveður við Jesúbarnið". Söngur kvartettsins á þessu lagi var sannfærandi og trúr stemningu ljóös og lags. Þagnir eftir hverjum tveimur ljóðlínum juku á áhrifamátt túlkunarinnar. Hins vegar voru þagn- ir milli erinda og ljóðlína ofnotuð í sumum lag- anna og bitnaði það stundum á eðlilegri fram- vindu og merkingarlegu samhengi orða i setning- um. Lag eftir Bemhardt Lewkovitch, „Maríuvisa", í ljóðaþýðingu Hjörleifs Hjartarsonar var áhrifa- mikið með sínum vandsungnu og striðu hljóm- um. Tvö næstu lögin tilheyra gersemum okkar íslensku helgisöngva: „Jesú mín morgunstjarna" og „Grátandi kem ég nú Guð minn til þín“ í sérlega góðum og fagur- hljómandi útsetningum Hallgríms Helga- sonar. Flutningur á þessum lögum var ljóm- andi góður og maður spyr sig hvers vegna em þessar útsetningar ekki fastur liður í söng okkar kirkjukóra? Næsti söngur, „Fyr- irlátið mér“, lag Jóns Ásgeirssonar við er- indi úr Lflju er úr óperu Jóns, Galdra-Lofti. Þar finnst mér gæta viss ósamræmis milli hins foma orðfæris ljóðsins og rómantísks tóntaks höfundar lagsins. í síðari hluta tónleikanna voru aðallega flutt vel þekkt jólalög og mun ég ekki gera hverju og einu skil. Mér þykir þó vert að minna á þá perlu sem við eigum í útsetn- ingu Jóns Þórarinssonar á gamla íslenska jólalaginu, „Oss bam er fætt í Betlehem", sem mér flnnst að sérhver blandaður kór ætti að flytja um hver jól. Umgjörð tónleikanna, hin fallega prýdda kirkja, jók á stemningu og hátíöarbrag. Þaul- reynd og þjálfuð sviðsframkoma ásamt skemmti- legum kynningum kemur áheyrendum í beint samband við kvartettinn og þannig verða áflir virkir þátttakendur í tónleikunum. Tjarnarkvar- tettinn er menningarlegur og listrænn íjársjóöur sem fólk þyrfti að fá að njóta í enn ríkari mæli. Heimasíða Listahátíðar Listahátíð i Reykjavík hefur komið sér upp vefsíðu fyrir hina nettengdu. Sé flett upp á henni eftir slóðinni www.art- fest.is er hægt að skoöa afla dagskrá Listahá- tíðar á sumiá komanda og lesa sér til um há- tíðina al- mennt. Einnig er hægt að smella á ákveðin atriði á dag- skránni, einkum þau stærstu og frægustu eins og Afríkuballettinn (Les Ballets Africains) og Nederlands Dans Theater, og komast beint inn á heimasíður þeirra með öllum upplýsingum, listrænum og praktískum. Á heimasíðu Hol- lendinganna má meðal annars sjá að Reykjavík er komin inn á planið hjá þeim fyrir 1998. Alltaf er ákveðin stemning í kringum Ára- mótaskaup Sjónvarpsins. Áhuginn á því er gríðar- mikill, fólk flýtir sér heim af brennum og götumar nánast tæmast á meðan sýning stendur yfir. Um slíkan þátt veröa auðvitað alltaf skiptar skoðanir og fólk á örugglega eftir að láta ljós sitt skína á mannamótum og í „þjóðarsál" á næstu dögum eins og undangengin ár. Sumir skammast yfir skaup- inu, aðrir dásama það. Og allt þar á milli. Áramótaskaup byggist vitaskuld mjög á því sem borið hefur hátt í fréttum ársins sem er að líða og Hinar upprunalegu Krydd- stúlkur voru sterkt og bragðmikið krydd í Ára- mótaskaupið 1997. Skaup það er annað en auðvelt að velja efnið. Sumt eldist vel, annað illa. Þannig getur „heitt“ efni orðið dá- lítið hallærislegt eða þreytt í lok árs. Og fréttavit- und fólks er afar misjöfn. Þá skiptir jafnvel sköp- um um afstöðuna til skaupsins hversu vel það þekkir til einstakra viðburða, manna og málefna, en stundum eru atriði svo fyndin að ekki þarf fyr- ir fram þekkingu til að hlæja dátt. Skaupið á gamlaárskvöld, í leikstjórn Viðars Víkingssonar, byrjaði vel og hélt góðum dampi. Atriði voru yfirleitt fremur stutt og snörp og oft skellti maður hressilega upp úr. Þegar leið á teygðist þó dálítið úr sumum atriðum. En auðvit- að er smekkur fólks misjafn og sumir þurfa að hvíla sig á hlátrinum. Handritshöfundarnir tíu lögðu margar bráð- snjallar og skemmtilegar hugmyndir í púkkið, sem dæmi má nefna „innanbæjarsímtalið", um- ræðuþáttinn um unga fólkið, knattspyrnuæfing- una fyrir dvergríkið, „árás“ unglingsins í mið- bænum, „Intemetsjónalinn", lyftusenuna, sem Fjölmiðlar Eggert Þór Bernharðsson vann verulega á, og rúsínan í pylsuendanum vom eftirhermur Pálma Gestssonar í lokin. „Upp- runalegu kryddkonurnar" römmuðu gamanið inn og voru eins konar bindiefni. Fjölmargir leikarar komu við sögu, flestir landsþekktir, og stóðu sig vel. Hópurinn var ferskur og hafði augljóslega gaman af því sem hann var að gera. Öll umgjörð var fagmannleg og i heild var áramótaskaupið 1997 prýðflega heppn- uð skemmtun. Krossgátubókin Krossgátufíklar geta glaðst yflr því að Krossgátu- bók ársins ■ 1998erkom- in út, full af ffeistandi krossgátum og talnagát- | um. Ár- byrgðar- maður er Ólafur Páls- son og út- 8 gefandi er Ó.P. Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.