Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1998, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1998, Page 13
FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 1998 13 I>V Fréttir Hólmavík: Fiskiskip stækkað DV, Hólmavík: Ásdís ST 37 kom nokkrum dögum fyrir jól til heimahafhar á Hólmavík eflir miklar breytingar sem gerðar voru á skipinu. Þær tóku hátt í fjóra mánuði. Um er að ræða 20 ára stálskip sem var fyrir breytinguna 27 tonn að stærð en mælist nú 73 tonn. Nánast er um nýtt skip að ræða, svo mikl- um hreytingum hefur það tekið. Það var bæði lengt og breikk- að, ný brú smíð- uð og nýjar vist- arverur áhafnar gerðar sem stað- settar eru rrndir brúnni. Dekk skipsins var hækkað um 50 senti- metra og settur nýr kælibúnaður í lestina sem var í öllu bætt og breytt - klædd ryðfríu stáli sem bætir til muna alla meðferð afla. Möguleikar til að halda henni hreinni eru með þvi besta sem gerist. „Breytingar á skipinu auka fjölþætt- ari veiðiskap en verið hefur, svo sem veiðar með snurvoð," sagði Benedikt S. Pétursson, skipstjóri og einn eig- enda að Bassa ehf. sem gerir út Ásdísi og Ásbjörgu ST 7. Nokkrar fjölskyldur á Hólmavík eiga hlut í fyrirtækinu. Ósey hf. í Hafiiarfirði og fyrirtæki því tengd sáu um aila verkþættina. Benedikt segir eigendur skipsins vera mjög ánægða með öll samskipti við þá aðila sem tóku að sér breyting- amar. Vélin er 400 hestöfl, sett niður á síðasta ári. Hún ásamt skrúfubún- aði og perustefhi var nánast það eina sem ekki var hróflað við nú. Skipið hefur nokkuð rúmar veiðiheimildir og fer til rækjuveiða fljótt eftir ára- mótin. Skipstjóri er Ingvár Pétursson. -GF Áhöfn og eigendur við skipshlið. Frá vinstri: Bjarki Guö- iaugsson vélstjóri, Ingvar skipstjóri, Birgir Pétursson stýri- maöur, Daði Guðjónsson, skipstjóri og eigandi, og Benedikt S. Pétursson, skipstjóri og eigandi. DV-mynd Guöfinnur Borgarnes: Jafnréttislög brotin DV, Vesturlandi: Lög um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna voru brotin þegar ráðið var í stöðu aðstoðarskólastjóra við Grunnskólann í Borgamesi, sam- kvæmt niðurstöðu kærunefndar jafn- réttismála. Eins og greint hefur verið frá í DV kærði kona, sem sótti um stöðuna ásamt 2 körlum úr Borgamesi, til jafnréttisráðs. Hún taldi að á sér hefði verið brotið því hún hefði meiri menntun en sá sem var ráðinn. Hann fékk 5 atkvæði við skriflega atkvæða- greiðslu í bæjarstjóm Borgarbyggðar en hún fjögur. Konan er með talsvert meiri menntun en karlinn. Með 225 náms- matsstig samkvæmt stigatöflu menntamálaráðuneytis en hann með 182,5. Hún er menntaður sérkennari. Skólastjóri Grunnskólans í Borgar- nesi mælti með að annar tveggja karlumsækjendanna yrði valinn enda höfðu þeir verið nánir samstarfsmenn í áratug. Það mun og hafa ráðið vali skólastjórans að sá sem varð fyrir val- inu er heimamaður með víðtæka reynslu í stjómunarstörfum og hann talinn myndi ílengjast mun lengur í starfi en konan. Hún er úr Reykjavík. Kærunefnd jafnréttismála telur að bæði séu hæf til að gegna stöðunni. Konan sé þó hæfari vegna menntunar og starfsreynslu. Rök varðandi sér- staka hæfhi karlmannsins væm byggð á huglægu mati. Með því að fallast á þau rök væri að engu gert ákvæði jafnréttislaga sem skylda at- vinnurekendur til að jafiia stöðu kynja og tryggja að störf flokkist ekki í kvenna- og karlastörf. Þeim tilmælum hefur verið beint til bæjarstjómar Borgarbyggðar að fund- in verði viðunandi lausn á málinu sem kærandinn geti sætt sig við. -DVÓ UTSALA r>0 9^ 'o 3q~ byrjar 3. janúar oo°lo ''C Opnunartímar: Alla virka daga 10-18.30, laugard.10-16. Sími/fax 567 6511 Láttu senða þér heim! Komdu og sæktu! IO \)i££d m/3 áleggsteg 12“ hvítlauksbrauð eða Margarita, 2L Coke og hvítlauksolía Aðeins 1.790 kr. l\££d m/2 áleggsteg flðeins 890 kr. ilÍLd m/2 áleggsteg Aðeins 990 kr. HLUTUM VÍSUM Egla bréfabindin fást í 5 mismunandi stærðum og litaúrvalið eykur enn á fjölbreytnina. Sem dæmi um hagkvæmnina má benda á að þau stærstu taka 20% meira en áður — en eru samt á sama verði! Þessi vinsælu bréfabindi fást í öllum helstu bókaverslunum landsins. ROÐ OC RECLA Múlalundur Vinnustofa SÍBS Sími: 562 8500 Símbréf: 552 8819 Netfang: mulalundur@centrum.is ...GENGUR ÞU TÍ/AASPARNAÐUR ÖRY6CI FUNDIÐ FÉ Á RÉTTRI HILLU MEÐ EGLU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.