Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1998, Qupperneq 18
26
FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 1998
íþróttir
Denis Irwin leikur væntanlega sinn
fyrsta leik meö Manchester United í 8
vikur þegar United sækir Chelsea
heim í bikarkeppninni á sunnudag-
inn. Irwin hefur verið frá síðan í Evr-
ópuleik United gegn Feyenoord i
haust en þá var brotið illa á honum.
Leiks Chelsea og Manchester United
er beðið með mikilli óþreyju enda eru
þetta liðin sem talið er að muni berj-
ast um sigurinn í úrvalsdeildinni i
vetur, svo og bikarkeppninni. Liöin
hafa mæst tvívegis á timabilinu. í
leik um góðgeröarskjöldinn skildu
liðin jöfn, 1-1, en United fagnaði sigri
í vítakeppni og í deildinni skildu lið-
in jöfn á Old Trafford, 2-2.
Middlesbrough er búið að setja
Brasiliumanninn Emerson á sölulista
og vill fá 4 milljónir punda fyrir hann
eða sömu upphæð og félagið keypti
hann á i fyrra.
Howard Kendall, stjóri Everton, hef-
ur hafnað tveimur tilboðum í Gary
Speed, fyrirliða liðsins. Liðin sem
buðu í hann voru Newcastle og
ShefHeld Wednesday. Newcastle bauð
4 milljónir punda og að auki vamar-
manninn Darren Peacock og boð
Wednesday hljóðaði upp á 5 milljónir
punda og miðjumanninn Jim
Magilton.
Hearts og Hibernian skildu jöfn,
2-2, í leik Edinborgarliðanna í
skosku úrvalsdeildinni i gær. Hearts
komst í 2-0 eftir 10 mínútna leik og
skoraði Steve Fulton bæði mörkin en
þeir Andy Walker og Pat McGinley
jöfnuðu fyrir Hibemian í upphafi síð-
ari hálfleiks.
Ólafur Gottskálksson og Bjarnólfur
Lámsson vora ekki í leikmannahópi
Hibemian frekar en í síöustu leikj-
um. Hibemian er i neösta sætinu
með 15 stig en Hearts er í öðra sæti
með 41 stig. í kvöld er stórieikur í
deildinni en þá eigast við Glasgowlið-
in Celtic og Rangers. Rangers er í
toppsætinu með 42 stig en Celtic í
þriðja sætinu með 38 stig.
Ally McCoist, markahrókurinn
mikli sem leikið hefur með Glasgow
Rangers, gæti verið á leiö í ensku
knattspyrnuna. Newcastle, Sunder-
land, Fulham og Birmingham hafa öll
borið víumar í þennan 35 ára gamla
leikmann sem ekki hefur átt fast sæti
i liði Rangers á tímabilinu.
Tottenham hefur leitað til Alþjóða
knattspyrnusambandsins og beðið
það að hjálpa félaginu að útvega at-
vinnuleyfl fyrir Svisslendinginn Fritz
Schmidt en bresk yfirvöld hafa ekki
gefið grænt ljós á leyfið. Hann er að-
stoðarmaður landa síns, Christians
Gross, og sér um þrekæfingamar hjá
Tottenham.
Gross hefur undanfarna daga veriö
orðaður við stöðu landsliðsþjálfara
Sviss en hann hefur látið hafa eftir
sér að komi atvinnuleyfið ekki fyrir
Schmidt innan tiðar sjá hann þann
kost vænstan að hætta störfum hjá
Tottenham og róa á önnur mið.
-GH
Kristinn
til liös
við ÍBV?
Flest bendir til að Kristinn
Lárusson, knattspyrnumaður, sé
á leið til íslandsmeistara ÍBV og
leiki með þeim á næstu leiktíð.
Kristinn lék með Stjörnunni á
síðustu leiktið en liðið féll sem
kunnugt niður í 1. deild.
Kristinn er 25 ára gamall
miðju- og sóknarmaður. Hann
hefur leikið lengst af sínum ferli
með Stjömunni en lék í tvö ár
með Valsmönnum. AIls hefur
hann leikið 83 leiki í efstu deild
og skorað 9 mörk í þeim leikjum.
Kristinn er enn einn
leikmaðurinn sem Stjömumenn
þurfa að sjá á eftir. Ámi Gautur
Arason, markvörður, samdi á
dögunum við norska liðið
Rosenborg, Birkir Sigfusson er
kominn til KR, Ingólfur
Ingólfsson hefur skipt yfir til
Vals og Mihajlo Bibercic er
kominn á ný til ÍA. -GH
Birkir semur
Birkir Kristinsson, fyrrum morgun) og geng frá samningi við
landsliðsmarkvöröur í knatt- liðið út árið. Mér finnst gott að
spymu, hefur ákveöið að ganga tU binda mig ekkert lengur en þetta.
liðs við sænska úrvalsdeildarliðið ár. Mér list vel á þjálfarann og lið-
Norrköping en hann hefur verið á ið sem er ungt að árum og von-
mála hjá Brann í Noregi tvö síð- andi verður þetta bara skemmti-
ustu árin. legt tímabil," sagði Birkir við DV
„Ég held utan á laugardaginn (á í gær. -GH
Micheal Jordan bætti enn einni skrautfjöðrinni í hatt sinn í NBA-deildinni í körfuknattleik þegar honum tókst að slá
met Kareems Abduls Jabbars með því að skora yfir 10 stig í 788. leik sínum í röð. Reuter
Bandaríski körfuboltinn:
Jordan sló metiö
- en það dugði Chicago skammt gegn Minnesota
Bland f
Andreas Schifferer frá Austurríki
sigraði 1 bruni karla í heimsbikar-
keppninni á skíðum á gamlársdag.
Werner Franz, Austurríki, varð ann-
ar og Norðmaðurinn Lasse Kjus
þriðji.
Michael Jordan
var í gær útnefhd-
ur leikmaður des-
embermánaðar í
NBA-deildinni.
Þessi snillingur
leiddi menn sína
til sigurs í 11 leikj-
um af 14 í mánuð-
inum. Hann skor-
aði að jafnaði 28,4
stig i þessum leikj-
um, tók 6,9 fráköst og átti 3,2
stoðsendingar. Jordan er eins og áður
stigahæstur i deildinni með 28 stig að
meðaltali i leik.
Christian Karembeu, landsliðsmað-
ur Frakka í knattspymu, er genginn
i raðir spænska stórliðsins Real Ma-
drid frá Sampdoria. Kappinn hafði
fyrir löngu tekið ákvörðun um að
fara til Real Madrid en Sampdoria
vildi ekki selja hann þangað þar sem
Barcelona hafði boðið mun hærri
upphæð i hann. Félagaskiptin runnu
svo loks í gegn á gamlársdag.
Kiel er komið á
topp þýsku 1. deild-
arinnar í hand-
knattleik eftir sig-
ur á tslendingalið-
inu Dormagen,
25-16, í fyrradag.
Sænski landsliðs-
maðurinn Magnus
Wislander og
júgóslavneski
landsliðsmaðurinn
Perunicic skoraðu 5 mörk hvor fyrir
Kiel. Danski landsliðamaðurinn
Claus Jacob Jensen skoraði 6 mörk
fyrir Dormagen. Róbert Sighvatsson
skoraði 3 mörk en Héðinn Gilsson
komst ekki á blað enda nýstiginn upp
úr flensu.
Raj Bonifacius, Fjölni, tryggði sér
sigur í meistarakeppni Tennissam-
bands íslands þegar hann sigraði ts-
landsmeistarann Arnar Sigurðsson,
TFK, i úrslitaleik, 6-3 og 6-4. í undan-
úrslitunum sigraði Bonifacius Gunn-
ar Einarsson, TFK, 6-4 og 6-4, og
Amar lagði Einar Sigurgeirsson,
TFK, 7-5 og 6-1.
Austrió lagöi vestrið, 129-107, í hin-
um árlega leik þar sem aðalstjömur
Evrópu í körfuknattleik leiddu sam-
an hesta sina. Aleksandr Djorjevic
skoraði 23 stig fyrir vesturliðið en
Arturas Kamishovas 19 fyrir austur-
liðið.
Goerge Weah, Li-
beriumaðurinn
snjalli sem leikur
með AC Milan,
verður frá knatt-
spymuiðkun
næstu 2 mánuðina
en kappinn þarf að
gangast imdir að-
gerð vegna þrá-
látra ökklameiðsla.
Weah hefur ekki
náð sér á strik á þessu tímabili og
hefur aðeins skorað 3 mörk i 13 leikj-
um Mílanóliðsins.
Michael Jordan bætti met
Kareems Abduls Jabbars þegar
hann skoraði yfir tíu stig í 788. leik
sínum í röð með Chicago í viður-
eigninni gegn Minnesota um ára-
mótin. Alls skoraði Jordan 33 stig i
leiknum en það dugði þó skammt
þvi Minnesota hrósaði sigri og kom
það mjög á óvart
Úrslit í leikjunum um áramótin.
Indiana-New Jersey 109-91
Cleveland-Miami ..............78-90
Detroit-Toronto..............100-95
Minnesota-Chicago.............99-95
Orlando-New York..............79-84
Milwaukee-Dallas.............105-98
Denver-Utah Jazz.............99-132
Phoenix-Boston...............100-90
Portland-Philadelphia.........96-86
Vancouver-San Antonio ......115-124
Golden State-Seattle...........87-101
LA Lakers-Sacramento...........93-80
Sigur Minnesota var fyrir margra
hluta sakir sögulegur en síðan
Minnesota hóf að leika í NBA 1989
hafði liðinu aldrei tekist að vinna
Chicago. Stephan Marbury og Tom
Gugliotta skoruðu 23 stig hvor í
leiknum fyrir Minnesota.
Tim Hardaway skoraði 29 stig fyr-
ir Miami þegar liðið lagði Cleveland
á útivelli. Varnarleikur Miami var
frábær en til marks um það skoraði
Cleveland aðeins fjögur stig á fyrstu
tíu minútum fjórða leikhluta
Elden Campbell gerði 23 stig og tók
níu fráköst fýrir Lakers gegn Sacra-
mento. Þetta var fimmti sigur liðsins
í síðustu sex leikjum og kemur í
humátt á eftir Seattle í Kyrrahafsriðl-
inum. Vömin hjá New York var líka
í lagi gegn Orlando en Orlando skor-
aði aðeins ellefú stig í þriðja leik-
hluta sem er að sjálfsögðu lægsta
skor liðsins í einum leikhluta í vetur.
Utah Jazz lék Denver sundur og
saman en þar á bæ stendur ekki
steinn yfir steini. Denver hefur nú
tapað ellefú leikjum í röð. Greg
Ostertag skoraði 21 stig fyrir Utah.
Damon Stoudamire hjá Toronto
sló persónulegt stigamet gegn
Detroit. Hann skoraði 36 stig en alls
hitti hann úr sjö þriggja stiga skotum
í leiknum.
Dallas hefur tapað 13 leikjum í röð.
í leiknum gegn Milwaukee hafði lið-
ið alls möguleika að ná langþráðum
sigri en varð undir eftir framlengdan
leik. -JKS
Japanir vora sigursælir á heimsbik-
armóti í skíðastökki á 115 metra palli
í gær sem fram fór í Þýskalandi.
Kazuyoshi varð hlutskarpastur,
Masahiko Harada varð annar og
Hiroya Saitoh þriðji. Tveir Finnar
vora I næstu sætum, Janne Ahonen
og Jani Soininen.
Hálfdán Þóröarson var útnefndur
íþróttamaður FH 1 á gamlársdag en
hefð hefur verið hjá FH-ingum að
útnefna íþróttamann ársins hjá
félaginu á þessum degi. Hálfdán hef-
ur um árabil verið ein styrkasta
stoðin I handknattleiksliði FH.
Stefan Reuter, fyrirliði Dortmund,
hefur verið úrskurðaður í eins leiks
bann af aganefnd UEFA. Hann missir
þvi af fyrri leik Dortmund gegn
Barcelona í Supe-cup.
-GH
Gamlárshlaup ÍR:
Daníel og Bryndís unnu
Mikil þátttaka var í hinu árlega gamlárshlaupi ÍR sem þreytt var í
höfuðborginni á síðasta degi ársins. f karlaflokki sigraði Ármenningurinn
Daníel Smári Guðmundsson á 31,52 mínútum. Finnbogi Gylfason, FH, varð
annar á 32,28 mínútum og Smári Bjöm Guðmundsson, FH, varð þriðji.
Hjá konunmn sigraði Bryndls Emstdóttir, ÍR, á 37,11 minútum. Laufey
Stefánsdóttir, FH, varð önnur á 38,03 mínútum og Erla Gunnarsdóttir,
Ejölni, hafnaði í þriðja sæti á 40,16 mínútum. Á myndinni má sjá hluta af
keppendum leggja í hlaupið -GH