Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1998, Blaðsíða 29
FÖSTUDAGUR. 2 JANÚAR 1998
37
Fréttir
varf i skjóli nætuv
,eir Búriiinlimeiii1
l’ppnámið i tw j.u ji’.Himi t
Formaður jafnaðar-
manna sagði af sér
Hræðilegt áfall
íomið i umfer
'eningafausir
Kosning í for
eldraráð kærí.
tíl ráðuneyth]
^ „ Morðhótanír
rwí mui upji Morn»m
rnir fjúka >g ikveikjur
turnins uni kHtnuMt «**nir Friðioo CiunnAirwm <.ý>.lamaCur
r
%
■r
Fréttaskot DV, sími 550-55-55:
í hverri viku greiðir DV tugi
þúsunda fyrir fréttaskot
- sjö þúsund krónur greiddar fyrir besta fréttaskot vikunnar
Lesendur DV hafa verið mjög
ötulir við að senda ábendingar um
fréttir til blaðsins frá því að Frétta-
skotið, sími 550-55-55, hóf göngu
sína 29. mars 1984. Rúmlega 18.000
fréttaskot hafa verið skráð á þess-
um tíma sem þýðir að þau hafa far-
ið í vinnslu á ritstjóm blaðsins.
Fjöldi þessara ábendinga hefur síð-
an birst sem fréttir á síðum DV.
Nokkuð hefur borið á þeim mis-
skilningi þeirra sem senda frétta-
skot til blaðsins að þau séu tekin
hrá og sett í blaðið. Málið er flókn-
ara en svo. Þegar fréttaskot berst er
það skráö og fer síðan til frétta-
stjóra. Hann úthlutar þvl til blaða-
manns sem gengur úr skugga um
sannleiksgildi þess og fær upplýs-
ingar um allar hliðar málsins. Þá
fyrst er fréttin tilbúin til birtingar í
DV.
Rétt er að taka fram að ekki er
tekið við fréttatilkynningum, smá-
auglýsingum eða lesendabréfum í
síma Fréttaskotsins. Heldur ekki
kvörtunum um að blaðið hafi ekki
borist til áskrifenda og hringjendur
eru beðnir að hafa ekki útvarp eða
sjónvarp hátt stillt þegar hringt er.
Eins og sjá má hafa margvíslegar
fréttir borist DV í gegnum símann
sem aldrei sefur, 550-55-55, á síðustu
vikum. Má þar nefna frétt um að
Friðrik Þór Friðriksson kvikmynda-
gerðarmaður höfuðkúpubrotnaði
þegar hann féll á marmaragólf í
Grikklandi; fiðluleikari í sinfóníu-
hljómsveitinni yflrgaf æflngu í Há-
skólabíói vegna kulda í húsinu; for-
maöur jafnaðarmanna á ísafirði
sagði af sér þegar uppnámið í bæj-
armálum þar stóð sem hæst; í útfar-
arstofnun kirkjugarðanna í Foss-
vogskirkjugarði var kistum víxlað
og frétt var um að vegabréfslausir
laumufarþegar fundust í egypsku
flutningaskipi í Straumsvík og sögð-
ust vera frá Búrúndi. Þeim var synj-
að um landvistarleyfi hér á landi
því ekkert benti til að þeir væru
pólitiskir flóttamenn.
Frétt var um sjómenn á rússnesk-
um togara við bryggju á Akureyri
sem höfðu verið peningalausir í
þrjá mánuði. Áttu þeir að fá útborg-
að eftir viðgerð sem ósamið var um;
kosning í foreldraráð i gnmnskól-
anum í Skógum var kærð til ráöu-
neytis og var kæran tekin til greina
og frétt var um 73 ára mann í
Garðabæ sem slapp naumlega úr
brennandi íbúð þegar kviknaði í
sjónvarpi hans. Hræðilegt áfall fyrir
gamla manninn sem missti allar
eigur sínar og persónulega hluti
sem hann hafði safnað á langri ævi.
Frétt var um sviðsett vopnað rán
í Kringlunni sem gekk einum of
langt því öryggisvöröur þar slasað-
ist. Fékk hann púðurskot i andlitið
úr byssu lögreglumanns; ungur pilt-
' il lí.íl; 'A \\ U
ur brenndist illa á andliti og hand-
legg eftir að ruslapoki sprakk á
Fylkisvellinum í Árbæ í Reykjavík.
Frétt var um að 200 tonna bátur á
Tálknafirði hvarf í skjóli nætur.
Fannst hann sokkinn nokkrum dög-
um síðar; um fljótandi e-efni sem
komið er í umferð og er stórhættu-
legt neytendum; um að Ólafúr Ragn-
ar Grímsson forseti var gerður að
heiðursdoktor Landbúnaðarháskól-
ans i Ási í Noregi; um morðhótanir
og íkveikjur í íbúðarblokk í Breið-
holtinu; um að yfir 200 hreppstjór-
um um allt land var sagt upp störf-
um og spuming var um lögmæti
þess. Þá var frétt um að ung kona á
bíl sínum lenti í árekstri við leigu-
bíl. Leigubfistjórinn gaf upp rangt
nafn og síma eftir áreksturinn en
upp komust svik um síðir. Sú frétt
var raunar valin fréttaskot vikunn-
ar sem þýðir að sendandi varð 7000
krónum ríkari.
ft*..-..líUísjinuui
Það er rétt að rifja aðeins upp
leikreglur. Hafi einhver ábendingu
um frétt, sem hann óskar eftir að
koma á framfæri við DV, hringir
hann í síma Fréttaskotsins, 550-55-
55. Þar er tekið við fréttum allan
sólarhringinn, alla daga vikunnar.
Hringjandi gefur strax - í byrjun
fréttaskotsins - upp nafn, heimilis-
fang, póstnúmer og síma, óski hann
eftir að fá greiðslu fyrir fréttaskotið.
Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist í
blaðinu, eru greiddar 3000 krónur. .
Ef margir hcifa hringt í síma frétta-
skotsins vegna sama efhis fær sá
greiðslu sem á fyrstu hringinguna.
Fyrir besta fréttaskotið í viku
hverri eru greiddar 7000 krónur. DV
greiðir í hverri viku tugi þúsunda
króna fyrir fréttaskot.
DV heitir þeim sem senda inn
ábendingar um fréttir fullum trún-
aði og fullrar nafnleyndar er gætt.
>io«4Úw>|<c. r-iö i.io l