Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1998, Blaðsíða 3
L>V FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1998
kvikmyndir 2.
Unga fólkið felmtri slegið eftir bflslysið.
Eg veit hvað þu gerðir
siðastliðið sumar
Ryan
Phlllippe leik-
ur hinn ríka
og spillta
Barry Cox.
Stjörnubíó og Sam-bíóin hefja
sýningar í dag á unglingatryllinum
I Know What You Did Last Sum-
mer, sem kemur í kjölfar vinsælda
Scream. Það var spá margra eftir
að Scream sló hressilega í gegn að
nú væri runninn upp tími hryll-
ingsmynda þar sem markhópurinn
væru unglingar og það virðist hafa
gengið eftir. I Know What You did
Last Summer náði miklum vin-
sældum í Bandaríkjunum og und-
anfariö hefur Scream 2 verið að
gera það gott. Það sem er sameigin-
legt með þessum myndrnn er að
sami maðurinn, Kevin Williams-
son, skrifar handritið að þeim öll-
um. /
í I Know What You Did Last
Summer segir frá fjórum ungmenn-
um sem eru i góðu skapi enda er
síðasti skóladagurinn og sumarið
er fram undan. Þau setjast upp í bíl
eins þeirra og keyra út úr borginni,
enginn sér manneskju sem virðist
ekki koma neins staðar frá en verð-
ur fyrir bíinum. Þau standa því
frammi fyrir því að fyrir framan
bílinn er að því er virðist dauður
maður sem enginn þeirra þekkir
en getur haft afdrifaríkar afleiðing-
ar fyrir þau. Þau ákveða því að losa
sig við líkiö og henda því fram af
háum björgum og halda að þar með
sé málinu lokið. Svo er nú ekki,
martröðin er rétt að byrja.
Ólíkt Scream þá eru í aðaMut-
verkum allt óþekktir leikarar sem
varla hafa sést í kvikmyndum en
hafa nokkra reynslu í sjónvarpi.
Jennifer Loe Hewitt, sem leikur
Julie James, leikur í sjónvarpsserí-
unni Party of Five og fékk nýlega
tilnefningu frá stórblaðinu
Hollywood Reporter, sem besta
unga leikkonan í sjónvarpsseríu.
Auk þess að vera virkur leikari, þá
er hún söngkona og hefur gefið út
þrjár geislaplötur.
Sarah Michelle Geller leikur
Helen Shivers. Hún hefur sína
reynslu úr leikhúsi og sjónvarpi,
leikur hún aðalhlutverkið í sjón-
varpsseríunni Buffy the Vampire
Slayer, sem gerð var upp úr kvik-
mynd sem bar sama nafn. Aðeins
sautján ára gömul árið 1994 fékk
hún Emmy-verðlaun fyrir leik sinn
í sápuóperunni All My Children.
Sarah Michelle Geller leikur í
Scream 2.
Ryan Phillippe leikur Barry Cox.
Hann hefur leikiö lítið hlutverk í
nokkrum kvikmyndum. Var hann
einn af strákunum lun borð í skút-
unni í White Squelle, þar sem hann
lék á móti Jeff
Bridges. Leikur
Phillippe
þremur kvik-
myndum sem
enn hafa
ekki verið
sýndar,
Home-
grown, þar
sem mót-
leikari hans
er Billy Bob
Thorton,
Little Boy
Blue þar
sem hann
leikur á
móti
Nastassja
Kinski og
Studio 54,
sem byggð er utan um frægasta
diskótek New York-borgar.
Freddie Prinze jr., sem leikur
Ray Bronson, hefur leikið í sjón-
varpsþáttunum Too Soon for Jeff
auk þess sem hann hefúr leikið í
nokkrum sjónvarpsmyndum.
Tveimur kvikmyndum hefur hann
leikið í, Gillian On Her 37th Birth-
day og The House of Yes.
-HK
tíðinni í ár mun franska
leikkonan Catherine
Deneuve fá sérstök heið-
ursverðlaun fyrir fram-
lag sitt til kvikmynda.
The Boxer, sem telst
framlag Bandaríkjanna
á hátíðinni, er ein sex
bandarískra kvikmynda
sem keppa um Gull-
björnin, meðal hinna
eru Wag the Dog, leik-
stjóri Barry Levenson,
Jackie Brown, leikstjóri
Quentin Tarantino og
The Big Lebowski frá
Coen-bræðrum. Af öðr-
um myndum sem keppa
um Gullbjöminn má
nefna Barböru, dönsku
kvikmyndina, sem sýnd
var i Háskólabíói, The
Butcher Boy, nýjustu
kvikmynd Neils Jor-
dans, og On connait la
chanson, franska kvik-
mynd, sem ein af hetj-
um franskrar kvik-
.„myndagerðar, Alain
j.Resnais, leikstýrir.
-HK
Daniel Day-Lewis leikurfyrrum hnefaleikakappa íThe Boxer, sem er opnunarmynd hátíð-
arinnar.
Kevin Williamson
Kevin Williamson skrifaði
handrit að Scream, I Know What
You Did Last Summer og Scream
2, allt metaðsóknarmyndir. Er
hann í dag sá handritshöfundur
sem allir viija hafa meö sér. Ný-
lega gerði hann risasamning við
Miramax Films um handritsgerð
og leikstjóm kvikmynda, sem
gefúr honum milljónir dollara í
aöra hönd auk prósentuhagnað.
Auk þess gerði hann samning við
Columbia um að framleiöa sjón-
varpsseríur og byrjar sú fyrsta,
Dawson’s Creek í haust. Fyrsta
kvikmyndin sem hann mun bæði
skrifa handrit að og leikstýra er
framtíðarmyndin, The Faculty.
Kevin Williamson fæddist í
Norður-Karólinu og stundaði há-
skólanám í leiklistardeild við
East Carolina University. Að
námi loknu fór hann til New
York og var ætlun hans að reyna
fyrir sér sem leikari. Það gekk
hálf brösuglega, fékk hann að
vísu smáhlutverk í sjónvarpi og
leikhúsi en vinnan var þaö stop-
ul að hann gat ekki lifaö af
henni. Williamson fór þvi til Los
Angeles og fór að vinna sem að-
stoðarmaður hjá leikstjóra sem
stjórnaði tónlistarmyndböndum.
í frítíma sínum hóf hann að
skrifa handrit. Fyrsta handrit
hans var Killing Mrs. Tingle,
svört kómedía sem verður kvik-
mynduð á þessu ári. Scream var
næsta handrit hans og það fyrsta
sem hann seldi.
-HK
Tomorrow Never Dies ★ ★★★
Bond þarf hér að fást við athyglissjúkan flöl-
mtðlamógú! með hjálp kínverskrar súperpíu.
Brosnan er snillingur í því aö halda hárflnu
jafnvægi milli sjálfsháðs og alvöru og það er
að stórum hluta honum að þakka hve
Tomorrow gengur vel upp, bæði sem grín og
hágæðahasar. Myndin er ómissandi
skemmtun í skammdeglnu og Brosnan hér
með yfirlýstur besti Bondinn. -úd
L.A. Confidental
Skuggahliöar Los Angeles sjötta áratugar-
ins eru sögusviölö í övenju innihaldsríkri og
spennandi sakamálamynd sem enginn ætti
að missa af. Spilltar löggur, ósvífnlr
æsifréttamenn, melludólgar og glæsilegar
vændiskonur eru á hverju strái. -HK
Titanic ★★★★
Stórbrotin og ákaflega gefandi kvikmynd. Af
miklum fítonskrafti tókst James Cameron
að koma heilli f höfn dýrustu kvikmynd sem
gerð hefur verið. Fullkomnunarárátta
Camerons skilar sér f eðlilegri sviösetningu
sem hefur á sér mikinn raunsæisblæ. Leo-
nardo DiCaprio og Kate Wlnslet eru eftlr-
mlnnileg f hlutverkum elskendanna. -HK
Alien: Resurrection ★★>,
Myndin er langt i frá gallalaus, en aö mlnu
mati nær myndin að hefja sig upp yfir galF
ana. Handritshöfundurinn Joss Whedon ger-
ir góöa hluti, en það er fyrst og fremst hinn
myndræni samruni Borgar týndu bamanna
og Alien sem gerlr þessa mynd að sannri
ánægju. Eins og alltaf er það Sigourney
Weaver sjálf, drottning geimveranna, sem
stendur upp úr. -úd
Barbara ★★★★
Vel upp byggð og vel leikin mynd f alla staði,
sérstaklega vakti það ánægju hversu allar
aukapersðnur og smáatvik voru vel og flm-
lega útfærð. Myndatakan er áferðarfalleg
og aldrei of uppskrúfuð i landslagsyfirliti og
dramatískum veöurlýsingum en nýtti jafn-
framt vel náttúrufegurð eyjanna. -úd
Taxi ★★★
Nokkur ár eru frá þvf kvikmynd eftir Carlos
Saura hefur rekið á fjörur okkar og Taxi veldur
flölmörgum aðdáendum hans engum vorv
brigðum. Tilflnningaþrungin kvikmynd þar sem
fram fer eins konar uppgjör viö fasismann og
þjóöerniskenndin sýnd i sinni verstu mynd. Aö-
alpersónurnar eru tvö ungmenni sem sjá lifið
í öðru Ijósi en foreldrarnir. -HK
Lína langsokkur ★★★
Lína langsokkur er löngu orðin klassfsk og
það vill stundum gleymast að hún er ekki
erfð með genunum heldur lesin á bðkum.
Lína er hinn stjórnlausi óskadraumur allra
barna, frjáls, óháö og gersamlega sjálf-
stæð, því hún bæði getur allt og leyfir sér
allt. Þarna tókst vel tii hvað varöaöi telkn-
ingar og útfærslur og það er óhætt að
mæla meö þessum Lfnu-pakka fyrir börn á
öllum aldri. -úd
The Jackal ★★★
Endurgerðir á klassfskum myndum hljóta
oft litla náð f augum kvikmyndagagnrýnenda
og er Sjakalinn þar engin undanteknlng. En
þótt myndlna skorti þá yfirveguðu byggingu
og persónusköpun sem einkenndi fyrir-
rennarann er hún afbragðs skemmtun.
Sjakalinn kemur ekki alltaf á óvart, en sem
spennumynd gengur hún upp. Bygging
hennar er góö og leikurinn til fyrirmyndar. Ég
mæll með hennl. -GE
Starship Troopers ★★★
Starship Troopers fer hægt af stað en í
seinnl hluta myndarinnar er ekkert hlé á
spennunni. Þrátt fyrir aö uppskeran sé innl-
haldslftil og óvenjublóöug mynd sem á
flestallt undir glæsilegum tæknibrellum
mæli ég með henni. Brellumar eru þaö gðö-
ar að flestlr hnökrar gleymast eða skipta
ekki máli. -ga
Stikkfrí ★★★
Gott handrit og góða barnaleikara þarf til að
gera góöa barnamynd og þetta er að fmna f
kvikmynd Ara Kristinssonar sem auk þess ger-
Ir góölátlegt grin að þeim aöstæðum sem
börn fráskilinna foreldra lenda f. Skemmtileg
og Ijúf fýrir alla fjölskylduna. -HK
Með fullri reisn
Eftir að hafa hneykslast upp I héls (og veröa
léttskelkaöir líka) á hinum fturvöxnu fatafell-
um The Chippendales uppgötva þeir félagar
Gaz (Robert Cariyle) og Dave (Mark Addy) að
það að fækka fotum uppl á svlði er hiö arð-
bærasta athæfi. Það er varia hægt aö hugsa
sér betri ávfsun upp á skemmtun en svona
sögu og svo sannarlega skllaöi myndin þvi
gríni sem hún lofaði, með fullri reisn. -úd
A Life Less Ordinary ★★★
Myndin segir frá verkefni tveggja engla til að
endurreisa sanna ást á jöröu. Fyrri hiutinn
er bráöskemmtilegur, ekki sfst vegna hinna
stórfurðulegu engla, sem, blankir og plrrað-
ir á jarðlífinu, beita hinum ýmsu ráöum til
að leysa verkefni sitt. En svo fer aö halla
undan fæti - seinni hlutinn er ekki eins góö-
ur. Með góöum töktum - og góðu handritl -
f fyrri hlutanum tekst McGregor og Diaz að
halda myndinnl á flugl. -úd
The Devil's Advocate ★★★
Leikur þeirra Keanu Reeves og Al Paclno er
ágætur þótt segja megi að Pacino hafi ekkl
þurft að hafa mikið fyrir hlutverki sínu sem
myrkrahöfðinginn. Leikstfll Keanus einkenn-
istvenjulega af hlki sem minnir á óöryggi og
hentar því vel hinum ráðvillta lögfræðlngi
Lomax. Fléttan er að sama skapi skemmti-
leg og þótt hún komi ekkl endilega á óvart
gengur hún upp. -GE
Home Alone 3
Alex D. Llnz skortir nokkuö af þeim krafti
sem einkenndi leik Culkins. Hann er þð
sætur krakki og kemst langt á þvf. Og ef
menn eru ekki orðnir lelðir á þeim fjölbreyti-
legu og síendurteknu limlestingum sem ein-
kenna þennan myndaflokk ætti hún ekki að
valda vonbrigöum.
_____________________________ -9»