Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1998, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1998, Blaðsíða 4
FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1998 13 "V , m helgina --------- Nemendaleikhúsið: Ástardrykkurinn er sunginn á ítölsku en íslenskur texti birtist á skjá fyrir ofan sviöið. Nemendaleikhúsið sýnir á sunndaginn verkið Börn sólarinn- ar eftir rússneska ritsnillinginn Maxim Gorki. Leikendur í verkinu eru útskriftarnemar Leikiistar- skóla íslands. Þeir heita: Agnar Jón Egilsson, Edda Björg Eyjólfs- dóttir, Friðrik Friðriksson, Guð- mundur Ingi Þorvaldsson, Helga Vala Helgadóttir, Linda Ásgeirs- dóttir, Ólafur Darri Ólafsson og Sjöfn Everts. Fáar sýningar eru eftir á Börn- um sólarinnar. Næsta verkefni Nemendaleikhússins verður verk- ið Uppstoppaður hundur eftir Staffan Göthe í þýðingu Hallgríms H. Helgasonar og leikstjórn Hilm- ars Jónssonar. Sýningar á Börnum sólarinnar eru i Lindarbæ. Þaö fer hver aö veröa síöastur aö sjá Börn sólarinnar. Ástardrykkurinn er létt og fjörug saga sem gerist í feröamannaþorpi viö Gar- davatniö. \ í kvöld mun íslenska óperan frumsýna óperuna Ástardrykkinn éftir ítalska tónskáldið G. Donizetti. Óperan er létt og fjörug saga sem er látin gerast í ferðamannaþorpi við Gardavatnið á Ítalíu. Hin glæsilega Adina stýrir hóteli foður síns en Nemorino er fátækur listmálari sem verður að hafa ofan af fyrir sér með húsamálun. Gianetta er þjónustustúlka á hóteli Adinu. Fjöldi ferðamanna frá ýmsum heimshornum kemur við sögu. Þeirra á meðal er liðsforinginn og lúðraþeytarinn Belcore og Dulcamare sem er einstaklega lag- inn sölumaður. Dulcamare býður allra handa meðul til að auka hamingju og heppni í lífinu. Hann selur Nemorino ástardrykkinn sem á að ávinna honum ást Ad- inu. Söngvarar í sýn- ingunni eru Sig- rún Hjálmtýs- dóttir, Bergþór Pálsson, Ces- are Zamparino, Loftur Erlingsson og Hrafnhildur Björns- dóttir. Stjórnandi er Robin Stapleton. Börn sólarinnar Sigríöur, Jóhann og Ðirgir opna sýningu á verkum sínum á Akureyri á morg- un. Listhúsið Þing: Bernskan og umhverfi íslendings Myndlistarmennirnir Birgir Snæ- bjöm Birgisson, Jóhann Torfason og Sigríður Ólafsdóttir opna sýn- ingu á verkum sínum á morgun kl. 16 í Listhúsinu Þingi að Hólabraut 13 á Akureyri. Þremenningarnir, sem eru búsett- ir í Reykjavík, hafa fylgst að í gegn- um árin og alloft sýnt saman. Þau útskrifuðust frá Myndlista- og hand- íðaskóla íslands vorið 1989 og til- heyra því yngstu kynslóð íslenskra myndlistarmanna. A sýningunni gefur að líta mál- verk og teikningar sem unnin em á síðasta ári. Flest verkin á sýning- unni eru „flgúratíf1. Jóhann og Sig- riður sækja í hefðina og fást við um- hverfi íslendingsins séð með augum nýmar kynslóðar. Verk Birgis fjalla að hluta til um sakleysi bernskunn- ar sem gjarnan birtist á tviræðinn hátt i verkum hans. Sýningin stendur til 15. febrúar. Hún er opin alla daga milli kl. 14 og 18.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.