Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1998, Blaðsíða 9
UV FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1998
HLJÓMPLjÍTU
1 ii \ m jIJ
Mark Eitzel/Caught in a trap and I can'L..:
Drama ***
„Caught in a trap and I
can’t back out because I love
you too much, baby“ er eitt
íengsta plötuheiti sem ég man
eftir. Enda kemst það ekki
fyrir hér fyrir ofan.
Þetta er þriðja sólóplata
Mark Eitzel og lögin á plöt-
unni eru með því þunglyndis-
legra sem ég hef heyrt í lang-
an tíma. Það má þó ekki
leggja út frá að öll tónlistarleg
tjáning eigi að vera á léttu
nótunum. Eitzel er að gera
akkúrat það sem hann vill og
hann gerir það mjög vel.
Sex af eliefu lögum plötunnar eru eingöngu leikin af Eitzel á
kassagítar. í hinum lögunum eru honum til aðstoðar þeir James
McNew úr Yo La Tengo, Steve Shelley úr Sonic Youth og Kid
Congo Powers sem leikið hefur með Bad Seeds, Congo Norwell og
Gun Club.
Mark Eitzel er einmana maðurinn við enda barsins sem rétt fyr-
ir klukkan þrjú að nóttu er að útskýra fyrir barþjóninum afhverju
líf þeirra beggja séu ömurleg án þess að þeir viti af því.
Textarnir eru áleitnir og i bland við tregafuUa röddina eru flest
lögin stórgóð en samt af því tagi að þú þarft að vera einn heima
með lokuð augu uppi í sófa þegar þú hlustar á þau.
Platan Caught in a trap ... er hrá en það samsvarar líka öllu
öðru og heildartilfmningin er því nokkuð góð.
Páll Svansson
Jewel/Pieces of You:
Gullmolar inn á milli ***
Þegar hlustað er á Pieces of
you með Jewel kemur fyrst
upp í huga mér söngkonan og
lagasmiðurinn Michelle
Shocked en báðar koma þær
frá Alaska.
Raddbeiting og textar eru
alls ekki ólík hjá stöllunum
þó að auðvitað taki þær á
málefnum samfélagsins með
ólíkum hætti. Jewel semur
texta sína með almennari
skírskotun en á sama per-
sónulega mátann.
Sum laganna á plötimni eru
ekki alveg ný af nálinni eða allt frá 1994 og 1995 og sjálf platan er
ekki að koma út í fyrsta skipti. Vinsældir söngkonunnar hafa þó
aukist það mikið á síðasta misseri að ráðist var i endurútgáfu plöt-
unnar.
Lögin Who Will Save Your Soul, Pieces Of You og You Were
Meant Fot Me eru tvímælalaust bestu lög plötunnar, algjörir gull-
molar.
Tónlist Jewel væri hægt að kalla Country, en áhrif þjóðlagatón-
listar og rokks ásamt beinskeyttum ádeilutextum færa hana strax
yfir á annan bás. Hann skipar hún með Michelle Shocked sem er
ekkert til að skammast sín fyrir.
Páll Svansson
Pearl Jam/Yield:
Ótrúlegir ****
Það hefði vladið mér mik-
ffli sorg ef Pearl Jam fetaði í
fótspor sveita sem reyna að
yngja sig upp og skreyta
rokktónlist sína með dans-
töktum eða hip-hop stælum.
Það er sem betur fer ekki
raunin á Yield sem að mínu
mati er besta plata Pearl Jam
síðan Ten kom út árið 1991.
No Code sem kom út 1996
hlaut ekki góðar viðtökur að-
dáenda sveitarinnar enda í
þyngri kantinum og að
mörgu leyti tilraun sveitar-
innar í lagasmíðum.
Yield er ótrúlega sviphrein plata og státar af ekta Pearl Jam
ballöðum sem eru lögin Faithful og MFC.
Given To Fly, fysta smáskífulagið af plötunni er ótrúlega mikið
undir Led Zeppelin áhrifum svo meira sé ekki sagt. í heild er plat-
an frábær og satt að segja fer hún langt fram úr væntingum ef mið-
að er við No Code, síðustu plötu Pearl Jam.
Páll Svansson
ífonlist
„Við höfðum æft síðastliðin átta ár á hverjum sunnudegi með þá mestu timburmenn sem hægt var að hugsa sér f
u.þ.b. fimm fermetra herbergi. Sennilega var það hugsjónin að semja lög sem hélt okkur frá þvf að verða snarbilað-
ir,“ segir Kelly.
Stereophonics
- ósköp venjulegir Walesbúar - og þó!
Þeir eru frá Wales! Þorpi í Wales!
Sem er kannski ekkert svo undar-
legt nema fyrir þá ástæðu að aðrir
íbúar Bretlands geta ekki ímyndað
sér að einhver almennileg hljóm-
sveit geti komið þaðan.
Þeir eru reyndar öðruvísi, textar
laganna fjalla allir um lifið og til-
verunna í Welskum smábæ og þeir
sjálfir eru fuiltrúar normsins , alla-
vega að mati bresku pressunnar
sem hefur sniðgengið þá miskunn-
arlaust og veit satt að segja ekki
hvemig hún á að taka á þessum ant-
i-poppstjömum.
Tró á sjálfa sig
Og fyrir þrotlausa vinnu og trú
á sjálfa sig hefur þeim tekist að slá
í gegn og platan Word Gets
Around sem kom út í fyrra seldist
í tuttugu þúsund eintökum fyrstu
vikuna sem er ótrúlegt fyrir jafn
óþekkta sveit. Platan sjálf endaði í
sjötta sæti á lista og menn fóru að
ldóra sér í hausnum og panta ferð
til Cwmaman í Suður-Wales.
Það er ekki síst að þakka enda-
lausu tónleikaflakki að vinsældir
sveitarinnar hafa stóraukist á
einu ári. Enda eru þeir búnir að
halda um hundrað tónleika á
þessu tímabili sem verður að telj-
ast met.
Keliy Jones söngvari, lagasmið-
ur og gítarleikari, Stuart Cable
trommari og Richard Jones (þó
ekki ættingi) segja það reyndar
ótrúlegt að ná þessum áfanga.
„Mamma og pabbi horfðu iðu-
lega dapurlegu augnaráði á mig
þegar ég var að opna bréf með
svörum frá plötuútgefendum. „Þú
ert andskotans ekki nógu góður“,
sögðu þau eða eitthvað álíka.
Æft með timburmenn!
„Við höfðum æft síðastliðin átta
ár á hverjum sunnudegi með þá
mestu timburmenn sem hægt er
að hugsa sér í u.þ.b. fimm fer-
metra herbergi. Sennilega var það
hugsjónin að semja lög sem hélt
okkur frá því að veröa snarbilað-
ir“, segir Kelly.
Þeim hefur verið líkt við Smiths
og sagt er að þeir hafi ástríðu
Manic Street Preachers. En það
hefur verið erfitt að skipa þeim á
bás enda verður að taka til greina
að tónlistarlíf Wales er gjörólíkt
þvi sem annars staðar þekkist á
Bretlandseyjum. Blústónlist í
bland við þjóðlegan arf Walesbúa
ræður ríkjum á þeim pöbbum þar
sem lifandi tónlist fer fram.
„Hotel Califomia með Eagles er
opinber þjóðsöngur þorpsins okk-
ar svo að þið getið ímyndað ykkur
tónlistarlegt öngþveiti æskuár-
anna. Þegar Eagles héldu tónleika
í London tæmdist þorpið í þrjá
heila daga“, segir Kelly.
Um sérstöðu og hæfileika Ster-
eophonics er þó ekki hægt að deila
um, hver svo sem áhrifavaldur
tónlistar þeirra er.
-ps
Danslisti
Islands