Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1998, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1998, Side 12
myndbönd r ■P ■*» MYNDBam YjJJ Carla's Song: Sár á sálinni ★★★★ Carla’sMSong Strætóbílstjórinn George liíir áhyggjulausu og ábyrgðarlausu lífi í Glasgow þangað til hann hittir og verður ástfanginn af konu frá Nikaragúa, þótt honum bregði í brún við að sjá örin á baki hennar. í ljós kemur að hugur hennar er verr farinn en lík- aminn og þau ákveða að fara til Nikaragúa svo hún geti horfst í augu við fortíð sina og fundið einhvem frið. George bregður mikið við það sem hann sér í Nikaragúa og lítur tilveruna alvarlegri augum en áður. Breski leikstjórinn Ken Loach er einn sá virtasti í heimalandi sínu en hann stendur utan við bresku ný- bylgjuna svokölluðu. Hann gerir samfélagslega þenkjandi og raunsæjar myndir. Carla’s Song hefst í nokkuð léttum dúr en þyngist eftir því sem líður á myndina og verður afar átakanleg. Tilgangurinn er að vekja til umhugsunar og það tekst svo sannarlega því erfitt er að vera ósnortinn af óvægnu raunsæinu. Robert Carlyle sannar sig sem einn besti leikari Breta um þessar mundir og Oyanka Cabezas er engu síðri. Bandaríski leikarinn Scott Glenn er eftirminnilegm- í helsta aukahlutverkinu. Myndinni svipar að mörgu leyti til síðustu myndar hans, Land og frelsi, og endar á svipaðan hátt, þar sem brostnir draumar minna áhorfand- ann á þann grimma veruleika sem sumir þmfa að búa við. Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Ken Loach. Aðalhlutverk: Robert Car- lyle, Oyanka Cabezas og Scott Glenn. Bresk, 1996. Lengd: 120 mín. Bönn- uð innan 12 ára. -PJ Grosse Point Blank: Heim í heiðardalinn ★★★★ Leigumorðinginn Martin Q. Blank er í sálarkreppu. Honum finnst líf sitt innantómt, á erfitt með að einbeita sér í vinnunni og fær lítið út úr tímunum hjá sálfræð- ingnum sínum. Hann ákveðm að kikja á tíu ára út- skriftarafmæli í heimabænum sinum og rifja upp kynni sín við gamla kærustu sem hann stakk af frá tíu árum áðm og um leið ætlar hann að vinna þar sitt síðasta verkefni. Um hann sitja hins vegar leigumorðingjar í hefhdarhug og er þar fremstm í flokki helsti keppinaut- m hans, Grocer. Hér er á ferðinni sótsvört gamanmynd sem aðeins hinir allra heilögustu geta ekki brosað að. John Cusack er nánast fullkominn sem háttvísi leigumorðinginn og sálar- flækjm hans, sem eru í raun venjulegar og eðlilegar, virka fáránlegar í koll- inum á atvinnumorðingja. Dan Aykroyd kemst nálægt því að stela senunni í hlutverki hins léttgeggjaða Grocers sem er illmennið í sögunni. Minnie Dri- ver tekst að gera sér mat úr hlutverki heimasætunnar og þá ná bæði Joan Cusack og Alan Arkin að gera mikið úr litlum hlutverkum. Ulyrmisleg kímni og mikil uppfmningasemi í sögunni gera Grosse Point Blank að veru- lega skemmtilegri mynd. Útgefandi: Sam-myndbönd. Leikstjóri: George Armitage. Aðalhlutverk: John Cusack, Minnie Driver, Alan Arkin og Dan Aykroyd. Bandarísk, 1997. Lengd: 103 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ Driftwood: flstsýki Listakonan Sara býr ein í hrörlegu húsi við strönd- ina þar sem hún safnar rekaviði til að nota í viðar- skmð. Þegar meðvitundarlausan mann rekm á fjörur hennar (í bókstaflegri merkingu) þykist hún sjá bót á einmanaleika sínum. Maðurinn er minnislaus og hún telur honum trú um að þau séu ein á afskekktri eyju og að margir mánuðir líði áðm en vistaskip kemm. Með þeim tekst ástarsamband en eftir því sem tíminn liðm gerist maðurinn eirðarlausari og Sara örvæntingar- fyllri. Sagan er ekki nógu sterk til að gera þessa mynd að bitastæðu verki. Hún er fremm einfold og fyrirsjá- anleg og merkilega átakalítil miðað við efnið. Myndin líðm áfram í nettri þunglyndisstemningu og gleymfst síðan tiltölulega fljótt. Fallegt landslag, góð persónusköpun og vandaður leikur gera myndina þess virði að sjá hana. James Spader og Anne Brochet lifa sig afar vel inn í aðalhlutverkin og standa vel undir þvi að vera einu persónumar nánast alla myndina. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Ronan O'Leary. Aðalhlutverk: James Spader og Anne Brochet. Bresk, 1997. Lengd: 97 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ Everyone Says I Love You: Söngur og dans ★★ ■"""JJJl Woody Allen er með afkastamestu leikstjórum sem sögm fara af og hefm gert hér um bil tvær myndir á ári undanfarin ár. Það ætti því ekki að ^«1 koina ® óvart að karlinn er farinn að endurtaka sig ansi mikið. Flestar myndir lians núorðið fjalla á gamansaman hátt um taugaveiklað tiifinningalif I fólks í New York, annaðhvort menntafólks eða efn- P aðs fólks, eins og í Everyone Says I Love You. Hann BjH reynir að krydda formúluna sína aðeins með söng- ‘í og dansatriðum sem gleðja ekki augað; eru hvorki i; I skemmtileg né áhugaverð. Mynd þessi á því varla eftir að teljas.t meðal hápunkta á ferli Woody Allens en nær þvi þó að vera fyndin nokkrum sinnum. Skemmtilegast er að fylgjast með leikur- unum en Woody Allen er sannkallaðm meistari í því að ná sem bestri frammistöðu úr leikhópi sínum. Sérstaklega er gaman að Alan Alda, Lukas Haas, Tim Roth og Natalie Portman en aðrir leikarar eru meiri meöaljónar hvað leiklistarhæfileika snertir. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Woody Allen. Aöalhlutverk: Julia Roberts, Woody Allen, Goldie Hawn, Lukas Haas, Drew Barrymore, Tim Roth, Alan Alda og IMatalie Portman. Bandarísk, 1996. Lengd: 97 mín. Öllum leyfð. -PJ FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1998 Tfr’jjr Myndbandalisti vikunnar :/as 27. jaúar til 2. febrúar 1 i i 2 J J Men in Black Skífan ; Gaman 2 2 1 i 2 i J J Murder at 1600 J j Wamer-myndir J ) j Spenna 3 I Ný i 1 Á \ Grosse Point Blank j Sam-myndbönd ! Gaman 4 f v 3 1 4 j i j j Devils Own Skrfan Spenna 5 Ný i i J J The Chamber J i ClC-myndbönd . Spenna ; 6 : 4 j i 5 j j Absolute power j Skifan Spenna 7 1 5 i 3 j Batman and Robin > Wamer-myndir Spenna 8 : ., i£i 8 J j 3 j Blossi i Sam-myndbönd Spenna 9 ; 7 7 J ' l Con Air j Sam-myndbönd Spenna J 10 10 Í 7 J J J J Fierce Creatures i " í J ClC-myndbönd J I 1 J Gaman i - ii i 6 j 4 j j j Horfinn heimur J j ClC-myndbönd Spenna 12 j 9 j i 8 j J J One Fine Day J J J Skrfan J J Gaman 13 i 14 í 6 J J The 6th Man i j j Sam-myndbönd Gaman 14 í 13 i 3 J City of Industy J 1 j Skrfan mm|M Spenna 15 i 16 i 3 j Gridlock'd 1 Háskólabíó > Spenna i. ! J Ný J i 1 J J J Everyone Says 1 Love You J J j Skrfan j . j Gaman 17 i 11 1 8 J J Dante's Peak j ClC-myndbönd Spenna 1S i j Ný i 1 J J Honey We Shrunk Ourselves J J J Sam-myndbönd j j Gaman 19 i 15 i 1° 'T J Liar Liar j ClC-myndbönd ! Gaman j 20 ; Ai í 2 J \ J T \ \ Comandments J J | ClC-myndbönd Drama Pað var eins og viö var að búast að ekki yrði hreyft við Men in Black í efsta sæti listans, enda um að ræða vinsælustu kvikmynd síöastliöins árs. Tvær sakamálamyndir koma inn í efstu sætin, ólíkar þó. Grosse Point Blank er með kolsvört- um húmor en The Chamber er dramatísk, svo að ekki sé meira sagt. Neöar á listanum eru tvær nýjar myndir. Ber fyrsta aö telja kvikmynd Woody Allens, Everyone Says I Love You, einstaklega vel heppnaða kvikmynd þar sem Allen leitar á vit gamalla söngleikjamynda með góðum ár- angri. Fjöldi þekktra leikara er í hlutverkum i myndinni Hon- ey We Shrunk Ourselves. í þessari mynd segir frá sömu per- sónum og voru í Honey I Shrunk the Kid og leikur Rick Mor- anis aöalhlutverkið. Á myndinni er John Cusack í hlutverki atvinnumorðingjans í Grosse Point Blank. Men in Black Tommy Lee Jones og Will Smith Svartklæddu mennirnir K og J vinna fyrir leynileg- ustu leyniþjónust- una í Bandaríkjun- um. Þeirra hlutverk er að fylgjast með ferðum geimvera og halda þeim í skefj- um. K er gamall í hettunni og reyndur í starfi en J er ungur ofurhugi, nýkominn til starfa. Þeir þurfa að taka á öllu sem þeir eiga þegar illvíg geimpadda smeygir sér fram hjá tollyfir- völdum og hefst handa viö að gera allt vitlaust og þeir þurfa á allri sinni kunnáttu að halda. Murder at 1600 Wesley Snipes og Diane Lane í Murder at 1600 er framið morð í Hvíta húsinu, aðeins nokkra metra frá skrifstofu forsetans. Sá sem fær máliö til rannsóknar er Harl- an Regis, gamal- reyndur lögreglumað- ur sem vanur er að ná árangri í starfi. Regis verður að fara varlega í rannsókn málsins enda er hann með lífvarðarforingja forsetans yfir sér. Málið verður samt fyrst erfitt þegar grunur beinist að syni. forsetans og ekki batnar ástandið þegar sönnunargögn hverfa. Grosse Point... John Cusack og Minnie Driver Hinn geðþekki Martin Q. Blank ákvað ungur að hasla sér völl í hinum vafa- sama heimi leigu- morðingjans. Nú heldur hann aftur á heimaslóðimar, Grosse Point, til að taka þátt i tíu ára út- skriftarafmæli bekkj- ar síns. Það hentar líka vel fyrir verk sem hann hefur tekið að sér. í leiðinni ráð- gerir hann að taka aftur upp samband við gömlu kærust- una. Allt gengur vel þar til gamall and- stæðingur skýtur upp kollinum og hlutirnir taka heldur betur óvænta stefnu. Devil's Own Harrison Ford og Brad Pitt Þegar Frankie var ungur drengur horfði hann upp á grímu- klædda menn myrða fóður sirrn. Þessi at- burður markaði drenginn og í dag, tuttugu árum síðar, er hann í fararbroddi IRA-manna. Frankie er sendur til New York og er ætlað að smygla ílugskeytum yfir hafið heim til ír- lands. í gegnum sam- bönd sin tekst honum að komast inn í land- ið og fær húsaskjól hjá hinum írskættaða lögreglumanni O’Me- ara sem grunar fljót- lega að Frankie sé ekki sá sem hann þykist vera. The Chamber Chris O'Donnell og Gene Hackman Adam Hall er ung- ur lögfræðingur sem stefnir hátt. Eitt mál á þó hug hans allan. Fyrir mörgum árum haíði maður einn ver- ið myrtur á skrifstofu sinni með öflugri sprengju og með hon- um fórust einnig tveir ungir synir hans. Þekktur of- stækismaður, Sam Cayháll, var ákærður fyrir morðin og dæmdur tfl dauða. Sam er afi Adams og þeir hafa þó ekki sést áður. Nú ákveður Adam 28 dögum fyrir aftöku að kanna mál- ið ofan í kjölinn og varpar ljósi á ótrúleg- an vef blekkinga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.