Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1998, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1998
#» helgina „
■ **
Orgelspuni
Sænski orgelleikarinn Mattias Wa-
ger leikur á orgeltónleikum í Hail-
grímskirkju á sunnudaginn kl. 17.
Tónleikamir eru á vegum Listvinafé-
lags Hallgrímskirkju. Wager er þekkt-
ur fyrir spuna í orgelleik sínum og
hefur unnið til nokkurra alþjóðlegra
verðlauna fyrir spuna. Á efnis-
skránni á sunnudaginn er fjölbreytt
orgeltónlist eftir J.S.Bach, Franz Liszt
auk þess sem Wager mun leika glæ-
Robert Melling.
nýtt orgelverk eftir Anders Nilson
sem nefnist Dómkirkjan á fjallinu.
Wager er staddur hér á landi á veg-
um sænska útgáfufyrirtækisins Opus
3 Records við upptökur í Hallgríms-
kirkju fyrir hljómdisk. Þar leikur
hann tónlist fyrir orgel og slagverk
ásamt slagverksleikaranum Anders
Astrand, en þeir voru gestir kirkju-
listahátíðar í Hallgrímskirkju síðast-
liðið vor.
Emma Roche.
Tónleikar í Garðabæ:
Verðlaunanemar
Tónlistarskóli Garðabæjar stendur
fyrir spennandi tónleikum í Kirkju-
hvoli á laugardaginn klukkan 17. Þar
munu koma fram margverðlaunaðir
tónlistamemar frá Royal Scottish
Academy of Music í Glasgow.
Á eöiisskrá þeirra em m.a. píanó-
verk eftir Chopin, Liszt og Brahms,
verk fyrir flautu eftir Widor, Enesco
og Richard Rodney Bennet, ljóðasöng-
ur eftir Schumann, Schubert og
Brahms og verk fyrir flautu, mezzó-
sópran og píanó eftir Saint Saens.
Flytjendumir eru Emma Roche,
flautuleikari frá írlandi, Allison Co-
ok, söngkona af skoskum uppruna,
Robert Melling, meðleikari frá York,
og Evgeny Morozov, píanóleikari frá
Úkraínu sem er í framhaldsnámi hjá
Philip Jenkins en hann er okkur ís-
lendingum að góðu kunnur. Öll hafa
þau komið fram á opinberum tónleik-
um í ýmsum löndum og þegar unnið
til margra verölauna hvert á sínu
sviði. Þetta em síðustu tónleikar
þeirra hér á landi.
Allison Cook.
Evgeny Morozov. Mattias Wager leikur fjölbreytta orgeltónlist ásamt spuna í Hallgrímskirkju á sunnudag.
Þær Anna Júlí-
ana Sveins-
dóttir og Sól-
veig Anna
Jónsdóttir
ætla aö leika
og syngja fyrir
Akureyringa á
laugardag.
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju:
Anna Júlíana Sveinsdóttir messósópran
og Sólveig Anna Jónsdóttir píanóleikari
halda tónleika í Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju á morgun klukkan 17. Á efnisskrá
tónleikanna er m.a. Ijóðaflokkur eftir
Schumann við ljóð Maríu Stúart Skota-
drottningar, nýleg sönglög Jónasar Tómas-
sonar við Andalúsíuljóö í þýðingu Daníels
Á. Daníelssonar, ljóðlög eftir Richardt
Strauss, sönglög eftir Sigvalda Kaldalóns,
þekktar ópemaríur og Vínartónlist.
Anna Júlíana hefur oft komið fram á
ljóðatónleikum hérlendis og erlendis. Hún
hefur m.a. sungið á tónlistarhátíðum í Kaup-
mannahöfn og Bergen auk þess að hafa
sungið fiölmörg óperuhlutverk við Ríkis-
ópemna í Aachen í Þýskalandi og í óperu-
uppfærslum hér heima. Hún starfar nú við
tónlistarkennslu í Reykjavík og Kópavogi.
Sólveig Anna Jónsdóttir er fædd og uppal-
in á Akureyri og stundaði píanónám frá átta
ára aldri, fyrst á ísafirði en síðan á Akur-
eyri, Reykjavík og Texas í Bandaríkjunum.
Helstu kennarar hennar vora Ragnar H.
Ragnar, Philip Jenkins, Halldór Haraldsson
og Nancy Weems. Sólveig starfar viö tónlist-
arkennslu og pianóleik í Reykjavík og
Garðabæ og hefur m.a. leikið með SÍ, Kamm-
ersveit Reykjavíkur og ýmsum smærri
kammermúsíkhópum.
Andalúsíulióð