Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1998, Page 12
★ K
30
*
*
★ *
tyndbönd
4
M JfF &1
breáhðnwnl
Mannrán á þjóðveginum ★★★
Bíll bilar á þjóðveginum í miðri eyðimörkinni. Far-
síminn er utan þjónustusvæðis og óravegur að næstu
byggð. Ferðalangamir, hjón á leið til vesturstrandar-
innar, gripa því tækifærið þegar flutningabílstjóri
býður þeim far. Konan fer með honum til næsta án-
ingarstaðar meðan eiginmaðurinn passar bílinn.
Nokkru síðar kemst bílinn í gang og hann keyrir því
af stað á eftir flutningabílnum. Konan virðist hins vegar hafa gufað upp
og bílstjórinn kannast ekki einu sinni við að hafa nokkum tíma séð hann
fyrr. Þessi mynd er framan af fyrirtaks spennumynd. Uppbygging sögunn-
ar er vel heppnuð. Hún setur upp mjög dularfullar aðstæður og skoðar
hvernig venjulegur maður tekst á við þær á nokkuð trúverðugan hátt.
Helsti gallinn er að hún útskýrir ráðgátuna of snemma, þannig að síðasta
þriðjunginn hættir hún að vera dularfull og spennandi og umbreytist í
hefðbundna hasarmynd. Persónurnar missa þá trúverðugleika sinn og
þótt hasarinn sé ágætur sem slíkur er hann ekki mjög áhugaverður. Skella
má upp úr þegar dellan verður yfirgengileg í lokin. Kurt Russel leikur sér
að svona hlutverkum og sömuleiðis J.T. Walsh í bílstjórahlutverkinu. Þá
var M.C. Gainey fyrirtaks kúrekafól.
Útgefandi: Sam-myndbönd. Leikstjóri: Jonathan Mostow. Aðalhlutverk:
Kurt Russel og J.T. Walsh. Bandarísk, 1997. Lengd: 90 mín. Bönnuð innan
16 ára. -PJ
Krókodíla-Dundee:
KaHmennskan holdi klædd ★★★
Krókódíla-Dundee er karl í krapinu. Hann er ástr-
alskt hörkutól sem þvælist um óbyggðir Ástralíu og
berst við krókódila og snáka og alls kyns skaðræðis-
skepnur. Blaðakonan Sue Charlton ferðast með hon-
um í nokkra daga eftir að hafa frétt af viðureign
hans við krókódíl og býður honum síðan til New
York þegar hún fær að heyra að hann hafi aldrei í
borg komið. Hann er jafnáttavilltur í stórborginni og
hún var í ástralska kjarrlendinu en bjargar sér þó á
sinn eigin hátt og tekst í leiðinni að heilla ýmsa
borgarbúa, þ.á m. Sue Charlton, með sínum
sveitasjarma. Paul Hogan rambaði hér heldur betur á rétta hlutverkið
og túlkar þessa góðlátlegu karlrembu skemmtilega en hann hefur aldrei
náð sér á strik síðan. Aðrir leikarar eru meira til uppfyllingar. Húmor-
inn gengur að mestu leiti út á árekstra Krókódíla-Dundees við ókunnug-
lega siðmenninguna og brandararnir ganga ágætlega upp. Myndin er þó
ekki alveg jafnskemmtileg og hún var í minningunni. Fjarlægðin gerir
víst fjöllin blá.
Útgefandi: ClC-myndbönd. Leikstjóri: Peter Faiman. Aöalhlutverk: Paul
Hogan og Linda Kozlowski. Bandarísk, 1986. Lengd: 94 mín. Öllum leyfð.
-PJ
Marvin's Room:
★★★ Fjölskyldubönd
Systumar Bessie og Lee hafa ekki talast við í 20
ár eða frá því að Lee flutti til Ohio og skildi Bessie
eftir í Florida þar sem hún hefur siðan annast hjúkr-
un föður þeirra og frænku. Þegar Bessie greinist
með hvítblæði kemur Lee loksins í heimsókn með
tvo syni sína til að láta athuga hvort þau hafi rétta
gerð af beinmerg til að gefa Bessie. Það er fremur
kalt á milli þeirra í fyrstu en eldri sonur Lee, vand-
ræðaunglingurinn Hank, hristir upp í samskiptum
þeirra. Átakanleg örlög Scott McPherson, sem samdi
leikritið og einnig kvikmyndahandritið, hafa sjálf-
sagt hjálpað til að vekja athygli á þessari mynd en
hann dó sjálfur úr eyðni eftir að hafa hjúkrað eyðnismituðum elskhuga
sínum til dauðadags. Myndin er að mínum dómi ekki það meistaraverk
sem margir vilja vera láta en engu að síður tilfinningarík, falleg og
sannleiksrík lítil mynd um gildi þess að elska. Það eru líka engir
aukvisar í aðalhlutverkunum, m.a. Meryl Streep og Leonardo DiCaprio,
en Diane Keaton er þó eftirminnilegust og túlkar hina ástríku Bessie af
mikilli tilfinningu.
Útgefandi Skífan. Leikstjóri Jerry Zaks. Aðalhlutverk: Diane Keaton,
Meryl Streep og Leonardo DiCaprio. Bandarisk. 1997. Lengd 94 mín. Öll-
um leyfð. -PJ
Night Falls on Manhattan:
Spilling innan lögreglunnar ★★★
Þegar handtaka á umsvifamikinn dópsala snýst
hann til vamar, drepur þrjá lögreglumenn og særir
þann fjórða lífshættidega. Dópsalinn kemst undan en
öllum að óvörum gefur hann sig fram stuttu síðar.
Réttað er yfir honum og saksóknarinn er sonur lög-
reglumannsins sem særðist. Vöm dópsalans gengur
út á lögregluspillingu og hann heldur þvi fram að
árás lögreglunnar hafi verið hrein morðtilraun
vegna þess að hann vildi ekki hækka mútugreiðsl-
urnar til þeirra. Hann hafi neyðst til að verja líf sitt.
Saksóknarinn kemst fljótt að raun um að ekki er
hægt að skipa öllu í svart og hvitt, hann þarf að velja
og hafna og géra málamiðlanir. Sidney Lumet hefur gert margar afar
vitrænar myndir og þessi er engin undantekning. Hann forðast ódýrar
lausnir og setur upp umhugsunarvert drama sem er kryddað með góð-
um leikhóp, þótt gjarnan hefði mátt vera sterkari leikari en Andy
Garcia í aðalhlutverkinu. Ian Holm er frábær eins og endranær, Ric-
hard Dreyfuss er önnur skrautfjöður og loks er afar gaman að sjá James
Gandolfmi í veigamiklu aukahlutverki.
Útgefandi Sam-myndbönd. Leikstjóri Sidney Lumet. Aðalhlutverk: Andy
Garcia, lan Hoim, Richard Dreyfuss og Lena Olin. Bandarísk. 1997. Lengd
109 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ
FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1998
Myndbandalisti vikunnar
'7 SÆTI j ■HH FYRRI VIKA i VIKUR i A LISTA > j ) _________ __ TITILL \ 1 _ _ _ _ ÚTGEF. j fí TEG.
i ; Ný J i > Breakdown Sam-myndbönd ; Spenna
i 2 i i 6 i J ) 2 > )- > J Double Team j j ) Skífan ) ) Spenna
3 i 2 j . > j 4 > Murder at 1600 Warner-myndir j Spenna
i 4 1 i 1 j > i 4 i Men in Black ' j: ’ > ■_ 1 Skífan | j Gaman
i 5 ) 4 i 3 i Grosse Point Blank j Sam-myndbönd J Gaman
j 6 i 3 j J i 3 i j The Chamber i .) ClC-myndbönd • 1 Spenna
7 i 5 J J 1 6 i j ‘ 7 . 1 J Devils Own J Skrfan 1 Spenna
8 i 7 Absolute Power J J Skífan ) ) Spenna
9 J Ný í ! > i 1 ) Marvins Room Skífan j ClC-myndbönd Drama
10 > ) Ný i ) i 1 > j. J J McHale’s Navy Gaman
11 i Ný j 1 ) Night Falls On Manhattan i 7 Sam-myndbönd j Spenna
12 | 11 j ) ! 2 ) Twin Town j Háskólabíó Gaman
13 i 14 ' 9 i ) 2 ) i Head Above Water j J Myndform > Spenna
14 i ■ •••-. ■ 1 9 i J J 5 i i 3 ) i 1 Batman And Robin ) Warner-myndir | Gaman
15 i 16 i 12 > 10 j One Fine Day J Skífan i Gaman
10 t J i! 9 i j j J Con Air ) - ..1. J J Sam-myndbönd • ■ 1 Spenna
17 i 15 i a ) Everyone Says 1 Love You i Skífan Gaman
) 18 > i 17 j ) ) 8 > j ) The 6th Man J Sam-myndbönd Gaman
19 i 8 i 9 i Fierce Creatures 7 ClC-myndbönd j Gaman
20 ! 13 j j ; 5 ! i Blossi i J Sam-myndbönd ; Spenna
mm
n
Spennumyndin Breakdown, þar sem Kurt Ftussell leik-
ur eiginmann sem missir sjónar á eiginkonu sinni f
orðsins fyllstu merkingu, fer beint í efsta sæti mynd-
bandalistans og eftir þrjár vikur á toppnum dettur Men
in Black niður í fjórða sæti. Þrjár aðrar nýjar myndir
koma inn á listann og þær raða sér í 9.-11. sæti. Tvær
þeirra, Marvin’s Room og Night Falls on Manhattan,
eru dramatískar úrvalsmyndir, ólíkar, sem þó eiga það
sameiginlegt að sterk fjölskyldubönd hafa áhrif á at-
burðarásina. Þetta eru myndir sem óhætt er að mæla
með. Þriðja myndin er McHale’s Navy, dýr endurgerð
gamaila sjónvarpsþátta sem náði litlum vinsældum í
Bandaríkjunum og fór beint á myndbandamarkaðinn
hér á landi.
Breakdown
Kurt Russell og
Kathleen Quinlan
Hjónin Jeff og Amy
Taylor eru á leið um
eyðimörk til nýrra
heimkynna þegar bíll-
inn þeirra bilar. Flutn-
ingabíll birtist þeim
stuttu síðar og eftir
smáhik ákveða þau að
taka boði bilstjórans um
að Amy fari með honum
til söluskála í nágrenn-
inu og útvegi viðgerðar-
mann á meðan Jeff bíð-
ur hjá bílnum. Það líður
ekki langur timi frá því
flutningabillmn er kom-
inn úr augsýn þar til
Jeff uppgötvar hvað er
að bílnum. Hann ekur
að söluskálanum til að
ná i Amy en hún er
ekki þar og engirrn þar
þykist hafa orðið þeirra
var...
Double Team
Jean Claude Van
Damme og Dennis
Rodman
Jack er einn færasti
gagnnjósnari heims og
þekktur fyrir að fara
eigin leiðir. Þetta hefur
skilað honum virðingu
yfirmanna en um leið
aflað honum hættulegra
óvina. Jack er líka bú-
inn að fá nóg af hinu
hættulega starfl sínu og
hyggst nú draga sig i
hlé eftir að hann hefur
leyst af hendi eitt verk-
efni i viðbót. En það er
einmitt þá sem hlutim-
ir fara úrskeiðis og sá
sem aðgerðin beindist
að, hryðjuverkamaður-
inn Stavros, kemst und-
an.
Murder at 1600
Wesley Snipes og
Diane Lane
í Murder at 1600 er
framið morð í Hvíta
húsinu, aðeins nokkra
metra frá skrifstofu for-
setans. Sá sem fær mál-
ið til rannsóknar er
Harlan Regis, gamal-
reyndur lögreglumaður
sem vanur er að ná ár-
angri í starfí. Regis
verður að fara varlega í
rannsókn málsins enda
er hann með lífvarðar-
foringja forsetans yfir
sér. Máhð verður samt
fyrst erfítt þegar grunur
beinist að syni forsetans
og ekki batnar ástandið
þegar sönnunargögn
hverfa. Regis verður því
ljóst að eigi hann að
leysa málið verði hann
að finna aðstoðarmann.
Men in Black
Tommy Lee Jones
og Will Smith
Svartklæddu menn-
imir K (Tommy Lee Jo-
nes) og J (Will Smith)
vinna fyrir leynilegustu
leyniþjónustuna i
Bandaríkjunum. Þeirra
hlutverk er að fylgjast
með ferðum geimvera
og halda þeim í skefj-
um. K er gamall í hett-
unni og reyndur í starfi
en J er ungur ofurhugi,
nýkominn til starfa.
Þeir þurfa að taka á öllu
sem þeir eiga þegar ill-
víg geimpadda smeygir
sér fram hjá tollyfir-
völdum og hefst handa
við að gera allt vitiaust
og víst er að þeir þurfa
á allri sinni kunnáttu
að halda til að halda
velli.
Grosse Point
Blank
John Cusack og
Minnie Driver
Hinn geðþekki Mart-
in Q. Blank ákvað ung-
ur að hasla sér völl í
hinum vafasama heimi
leigiunorðingjans. Nú
heldur hann aftur á
heimaslóðimar, Grosse
Point, til að taka þátt í
tíu ára útskriftarafmæli
bekkjar síns. Það hent-
ar líka vel fyrir verk
sem hann hefur tekið að
sér. 1 leiðinni ráðgerir
hann að taka aftur upp
samband við gömlu
kærastuna. Allt gengur
vel þar til gamall and-
stæðingur skýtur upp
kollinum og hlutirnir
taka heldur betur
óvænta stefnu.