Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1998, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1998, Síða 8
.S4MBI ROBIN WILLIAMS HRINGDU A3. "■’Æ' '■'"•íwlffr"™ DISNEY’S FIUBBER SÍMA I vinninga eru ..FLUBBER" töskur. troðfullar af ..FLUBBER" dóti. tölvuleikjum, bíómiðum. húfum. ..FLUBBER" slími o.fl. Bill Clinton Bandaríkjaforseti ávarpaði þjóö sína úr skrifstofu sinni í Hvíta húsinu í gærkvöld og lagði blessun sína yfir samkomuiagið sem Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ, gerði i Bagdad um helgina. Lögþing Færeyja: Með í olíuævintýri Færeyska lögþingið krefst nú auk- inna áhrifa á mögulegt olíuævintýri sem búist er við að hefjist fyrir al- vöru þegar á næsta ári eða árið 2000. Við umræðu um brautryðjandi ol- íulög á færeyska lögþinginu sam- þykktu allir þingmenn óskir um að þeir fengju meiri áhrif þegar olíu- iðnaðurinn hefst. Lögþingið hefur þar með ákveðið að ýmsar tillögur um breytingar á víðtækum olíulög- um skuli gilda jafnvel þó að lögmað- ur Færeyja, Edmund Joensen, sé mótfailinn þeim. Lögmaðurinn er þeirrar skoðun- ar að lögþingið krefjist meiri áhrifa á sérstök verkefhi sem einungis ættu að falla undir landsstjómina, að því er fram kemur í danska blað- inu Politiken í dag. ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1998 Stuttar fréttir r»v Nauðungarsala á lausafé Eftir kröfu Hestamannafélagsins Fáks verða eftirtalin hross seld nauðungarsölu sem verður haldin miðvikudaginn 4. mars 1998, kl. 14.00, að Víðivöllum í Víðidal: Rauður hestur, tveggja vetra, brún meri, tveggja vetra, rauð meri, þriggja til fjögurra vetra. Greiðsla við hamarshögg. SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK Ný skoðanakönnun í Danmörku: Ekki ákærðir Meimirnir tveir, sem taldir voru hafa miltisbrandsbakteríu í fórum sínum, verða ekki ákærðir. Efhið, sem þeir voru gripnir með, reyndist skaðlaust. Einræktuðu kálf Vísindamennirnir, sem einrækt- uðu kindina Dolly, hafa aðstoðað við einræktun kálfs. Samningaviðræður Edvard Sévardnadze, forseti Ge- orgíu, kvaðst í gær reiðubúinn að semja við stjórnar- andstæðinga um lausn þriggja starfs- manna Sameinuðu þjóðanna sem eru í haldi mannræn- ingja. Hafa mannræningjar krafist að rætt verði við stuðningsmenn fyrrverandi forseta landsins, Gamsakhurdia, sem er látinn. 13 ára myrti kennara 13 ára japanskur skólapiltur hef- ur verið dæmdur til vistar á uppeld- isstofnun fyrir að stinga kennslu- konu sína til bana. Hún hafði refsaö honum fyrir að koma of seint. Sprengdu herskip Að minnsta kosti 51 hermanns og sjómanns á Sri Lanka er saknað eft- ir að skæruliðar tamíltígra sigldu sprengjuhlöðnum bátum á tvö her- skip. Engin eftirgjöf Indónesar halda fast við um- deilda áætlun sina um fastgengis- stefnu þrátt fyrir harða andstöðu er- lendra fjármálastofnana. Faðir Hinriks látinn Monpezat greifi, faðir Hinriks prins af Danmörku, eiginmanns Mar- grétar Danadrottn- ingar, lést í gær- kvöld. Henrik var í París er faðir hann lést en hélt strax til kastala föður síns. Margrét Danadrottning er í vetrar- fríi í Noregi. Samþykkja skilyrði Kínversk yfirvöld gáfu í skyn í morgun að þau kynnu að sam- þykkja skilyrði Taívans fyrir við- ræðum. Taívanar vilja byggja upp traust með því að hefja viöræður um tæknimál áður en pólitískar viðræður hefjast. Flugskeytaárás ísraelar skutu í morgun tveimur flugskeytum að meintum bæki- stöðvmn Hizbollahsamtakanna í Lí- banon. Sprengt í Kólumbíu Að minnsta kosti fjórir týndu lífi og tugir slösuöust þegar öflug sprengja sprakk í suðurhluta Kól- umbíu í gær. Talið er að vinstri- sinnaðir skæruliöar hafio komið sprengjunni fyrir. Mondale til Indónesíu Walter Mondale, fyrrum varafor- seti Bandaríkjanna, fer til Indónesíu á vegum Clintons for- seta til viðræðna við Suharto Indónesíuforseta um fjármálakrögg- ur Indónesa. Mondale heldur af stað þann 28. febrúar. Franjo skammaður Háttsettur bandarískur sendi- maöur veitti Franjo Tudjman Króa- tíuforseta ákúrur í gær fyrir þjóð- rembingsræðu sem hann flutti á flokksþingi fyrir rúmri viku. Sendi- maðurinn sagði ræðuna hafa verið brot á samkomulagi um frið og mannréttindi. Ráðist á fatlaða Fiórir unglingar úr röðum þýskra nýnasista veittust að tveim- ur fötluðmn einstaklingmn á garð- bekk í Berlín og reyndu að kveikja í hári þeirra. Reuter Útlönd Jafnaðarmenn bæta Kofi Annan gerir Öryggisráðinu grein fyrir samkomulaginu við Saddam: Clinton varfærinn enn við Stuðningurinn við jafnaðar- mannaflokk Pouls Nyrups Rasmus- sens, forsætisráðherra Danmerkur, hefur aukist frá þvi hann boðaði til þingkosninga þann 11. mars næst- komandi, að þvi er nýjar skoðana- kannanir benda til. í könnun sem Gallup gerði dag- ana 19. til 21. febrúar reyndist stuðningurinn við jafnaðarmenn vera 34,8 prósent. í næstu könnun á undan, aðeins nokkrum dögum fyrr, var stuðningurinn við flokk- inn 31,5 prósent. Þetta kom fram í blaðinu Berlingske Tidende í gær. Samkvæmt könnun sem blaðið BT birti um helgina njóta jafnaðar- menn stuönings 33,4 prósenta kjós- enda. Helsti stjómarandstöðuflokkur- inn, Venstre, flokkur Uffes Ellemanns-Jensens, fyrrum utan- ríkisráðherra, fékk 26 prósent í könnun Gallups, aðeins meira en síðast. Kofi Annan, aðalframkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna, kynnir Öryggisráðinu í dag samninginn sem hann gerði við írösk stjómvöld um helgina þar sem kveðið er á um óheftan aðgang vopnaeftirlitsmanna SÞ að öllum meintum vopnabúrum. Bandarísk stjómvöld vom afar varfærin í gær þegar þau lýstu yfir stuðningi sínum við samkomulagið sem gert var í Bagdad. Þau sögðust þó ætla að hafa hersveitir sínar áfram í Persaflóa þar til sýnt þætti að Saddam Hussein íraksforseti mundi standa við samkomulagið. „Ef írakar fara ekki að samkomu- laginu í þetta skipti, það er að heim- ila vopnaeftirlitsmönnunum óheft- an aðgang þegar í stað, hefur það mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér,“ sagði Bill Clinton Banda- ríkjaforseti í sjónvarpsávarpi til bandarísku þjóðarinnar í gærkvöld. „Það sem máli skiptir er að írak- ar fari að samkomulaginu, ekki yfir- lýsingar þefrra, ekki hvað þeir segja heldur hvað þeir gera.“ Kofi Annan hafði viðdvöl í París í gærkvöld á leiðinni vestur um haf. Þar sagði hann franska sjónvarpinu að samkomulagið væri gott. Tals- maður hans sagði að í því væri ekki óljóst orðalag sem gerði írökum kleift að fara í kringum það. Bandaríkjamenn höfðu í fyrstu áhyggjur af því að Annan kynni að hafa veitt írökum tilslakanir til að Saddam Hussein félli frá banni sínu við því að vopnaeftirlitsmenn fengju aðgang að átta forsetahöllum. Svo virðist hins vegar sem þær áhyggjur séu horfnar eftir að Clint- on lagði blessun sína yfir samkomu- lagið, þótt hann hafi verið varfær- inn. Samkomulagið gerir ráð fyrir að sérstakur hópur vopnaeftirlits- manna og háttsettra diplómata skoði forsetahallirnar. Bandaríkjaforseti ákvað að leggja blessun sína yfir samkomulagið eft- ir að hann hafði ráðfært sig við Tony Blair, forsætisráðherra Bret- lands, Jacques Chirac Frakklands- forseta og Borís Jeltsín Rússlands- forseta. Stjómir þeirra þriggja sið- amefndu höfðu allar farið lofsam- legum orðum um samkomulagið sem Annan gerði við íraska ráða- menn eftir langa og stranga samn- ingafundi svo koma mætti í veg fyr- ir loftárásir Bandarikjamanna. Rússar og Frakkar höfðu lýst yffr andstöðu við hemaðaraðgerðir. Stjómvöld í Bagdad lýstu sam- komulaginu sem sigri „yfir hinu illa“. Reuter sig fýlgi Poul Nyrup Rasmussen má vera ánægður með fylgi jafnaðarmanna. IRA neitar að hafa sprengt írski lýðveldisherinn, IRA, neitaði því i gærkvöld að bera ábyrgð á bílasprengjunni sem sprakk fyrr um daginn í bænum Portadown á N-írlandi. Enginn særðist við sprengjuárásina sem var gerð nálægt lögreglustöð. Miklar skemmdir urðu hins veg- ar er sprengjan sprakk. Bíla- sprengjan í gær var þriðja sprengjutilræöið á N-írlandi frá því á föstudaginn er pólítískum væng IRA, Sinn Fein, var vikið frá viðræðum um frið á N-írlandi. Móðir Monicu líður vítiskvalir Lögmaður Marciu Lewis, móð- ur Monicu Lewinsky, segir að hún líði vítiskvalir. Vill hann láta fresta yfirheyrslum yfir móöur- inni. Hún er talin geta orðið lyk- ilvitni í rannsókninni á því hvort Monica hafi átt í ástarsambandi við Clinton Bandaríkjaforseta og hvort hann hafi beðið hana um að fremja meinsæri. Monica er sögð hafa trúað móður sinni fyrir öllu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.