Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1998, Blaðsíða 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1998
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfusflóri: EVJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON OG ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK,
SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíöa: http://www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverö á mánuði 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverð 160 kr. m. vsk., Helgarblað 220 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Miðlungsveldi og minni veldi
Heimsmálin voru einfaldari, þegar risaveldin voru
tvö, annað betra og sterkara, en hitt verra og veikara.
Eftir andlát Sovétríkjanna eru valdahlutföll í heiminum
óskýrari en áður. Einkum hefur daprazt aginn, sem risa-
veldin höfðu áður á óstýrilátum smáríkjum.
Svæðisbundnir vandræðaseggir ráða meiru en á
tveggja póla tímanum. Milosevits Serbíuforseta hefur
tekizt að framleiða mikil vandræði á Balkanskaga og
Saddam Hussein íraksforseta hefur hvað eftir annað tek-
izt að standa uppi í hárinu á samfélagi ríkja.
Áður voru slíkir í skjóli annars hvors risaveldisins og
lutu aga, þegar í harðbakka sló. Nú hefúr Bandaríkjun-
um, sem sitja eitt eftir risaveldanna, ekki tekizt að verða
heimslögregla. Dæmin sýna raunar, að völd Bandaríkj-
anna hafa minnkað við andlát Sovétríkjanna.
Sumpart stafar það af víðtækri og gamalgróinni óbeit
í Bandaríkjunum á afskiptum af umheiminum. Margir
líta svo á, að heimsvandamál séu eitthvað, sem innflytj-
endur til Bandaríkjanna hafi viljað skilja eftir, þegar
þeir fluttu yfir hafið til fyrirheitna landsins.
Að nokkru stafar það af tregðu innan pólitíska geirans
í Bandaríkjunum að taka afleiðingunum af stöðu heims-
veldis í umheiminum. Bandaríkin borga til dæmis ekki
skuldir sínar við Sameinuðu þjóðimar og geta því ekki
lengur farið sínu fram á þeim vettvangi.
í þriðja lagi þolir bandarískt almenningsálit ekki leng-
ur mannfall. Þess vegna flúði bandaríski herinn frá Lí-
banon og Sómalíu og einkum þó frá Víetnam. Þess vegna
hætti herinn við ólokið verk í Persaflóastríðinu. Heims-
veldi, sem ekki þolir mannfall, er ekki heimsveldi.
Bandaríkin hafa lyppazt niður í að verða miðlungs-
veldi, áhrifamest ríkja heims, en samt ófært um að blása
vinveittum ríkjum til sameinaðra lögregluaðgerða og
ófært um að hafa sitt fram í fjölþjóðlegum samskiptum.
Smákóngar standa uppi í hári stóra kóngsins.
Ekkert vald hefur fýllt skarð Sovétríkjanna eða tekið
upp slakann í valdi Bandaríkjanna. Rússland er rúst af
ríki, með takmarkaða getu til að hafa hemil á fyrri skjól-
stæðingum Sovétríkjanna, til dæmis í Serbíu og írak. Og
herinn réð alls ekki við uppreisn Tsétsjena.
Evrópusambandið hefúr styrkt stöðu sína sem efna-
hags- og fjármálaveldi og mun gera það enn frekar með
innreið evrunnar sem gjaldmiðils. Þetta vald hefur ekki
færzt yfir í pólitíkina, þar sem Evrópa rambar enn út
suður, þegar eitthvað bjátar á, til dæmis í Bosníu.
Evrópusambandið getur hins vegar eins og Bandarík-
in, Alþjóðabankinn og Alþjóða gjaldeyrisstofnunin í
krafti peninga sinna haft góð áhrif til að draga úr sveifl-
um og kreppum í öðrum heimshlutum, þar sem ekkert
heimaríki hefúr reynzt geta tekið að sér forustu.
Japan hefur sett niður sem miðlungsveldi við krepp-
una í Suðaustur-Asíu. Þótt japanskir bankar séu helztu
lánardrottnar gjaldþrotanna í Suður-Kóreu, Indónesíu og
víðar, horfa japönsk stjómvöld máttvana á þróun mála
og láta Vesturlönd um skipulag gagnaðgerða.
Komið hefur í ljós, að embættismenn stjóma Japan
upp að vissu marki, en þar fyrir ofan stjórnar enginn og
allra sízt hinir formlegu landsfeður stjómmálanna.
Þegar kemur að viðkvæmum utanríkismálum, segir
Japan ævinlega pass. Japan fyllir engin skörð.
Við búum þannig við nokkur minni háttar veldi og eitt
miðlungsveldi í heiminum, en risaveldi hafa lagzt af með
brotthvarfi Sovétríkja og afturhvarfi Bandaríkja.
Jónas Kristjánsson
Árni Sigfússon, oddviti sjálfstæöismanna í borgarstjórn. - Barátta hans skilaói ávinningi til allra landsmanna,
ekki aöeins til félaga í FÍB, segir m.a. í greininni.
Hættan við
Árna Sigfússon
Þeir sem stýra áróðursmálum
R-listans hafa fyrir löngu áttað sig
á því hvað er listanum hættuleg-
ast í komandi borgarstjómarkosn-
ingum. Það er hin skelegga fram-
ganga Árna Sigfússonar sem for-
manns FÍB og sá góði árangur sem
FÍB hefur náð.
Að sönnu hefur formennska
Áma í FÍB ekkert með borgarmál-
in að gera. En frammistaða hans
sem formanns FÍB getur skilið eft-
ir sig hættulegar hugsanir hjá
kjósendum í Reykjavík, að mati R-
listamanna. Kjósendur geta
ályktað sem svo að maður sem
leggur sig fram af slíkum krafti í
þágu alls almennings hljóti ekki
síður að geta staðið sig sem borg-
arstjóri. Ekki er síðra að margir
töldu að Ámi væri að storka sterk-
um aðilum í Sjálfstæðisflokknum
með því að leggja til atlögu við fá-
okun tryggingafélaganna. Hann
lagði sjálfan sig því í pólitíska
hættu með þessu. Þetta þykir R-
listafólki hin
verstu tíðindi.
Loksins kom
tækifærið
Lengst af hafa
undirróöursmenn
R-listans þurft að
sitja á sér gagnvart
formennsku Áma
Sigfússonar í FÍB.
Barátta hans skil-
aði neöiilega
ávinningi til allra
landsmanna, ekki aðeins til félaga
í FÍB.
En loksins kom tækifærið.
Kosningar verða eftir fjóra mán-
uði og Ámi kom fram í auglýsingu
fyrir FÍB til að minna á FÍB-Trygg-
ingu. Nú töldu undirróðursmenn-
imir að tíminn væri kominn. Þeir
sáu að þeir gætu tengt framkomu
Árna í auglýsingunni komandi
kosningum.
Sérlegur sólbaðsvinur Ingibjarg-
ar Sólrúnar, borgar-
stjóra R-listans, Karl
Öm Karlsson, fékk
viðhafnarpláss í Vík-
verja Morgunblaðsins
til að ausa fúkyrðum
yfir Áma. Þar þóttist
Karl Öm vera aö gæta
hagsmuna FÍB-félaga
en lét í engu getið ná-
ins vinskapar við
borgarstjórann. Kona
nokkur skrifaði
ámóta lesendabréf í
Morgunblaðið, einnig
í þágu FÍB-félaga -
eða þannig.
Össur Skarphéðins-
son, ritstjóri DV, þing-
maður Alþýðuflokks-
ins og svili Ingibjarg-
ar Sólrúnar, sá sér
einnig leik á borði.
Þegar hann var húinn að flagga út-
komu úr skoðanakönnun DV á
fylgi R- og D-lista lét hann Loka,
sem er meinfýsnidálkur blaðsins,
spyrja hvort ekki þyrfti að birta
fleiri FÍB-auglýsingar (væntanlega
til að auka fylgi við D-listaim).
Spaugstofan er líka meö
Seint verður Spaugstofan sökuð
um að ganga erinda ákveðinna
stjómmálamanna. Þó er alveg
furðulegt aö þessi vaska sveit grín-
ara hefur aldrei skopast að Ingi-
björgu Sólrúnu. Ekki virðist vanta
tilefnin. Hún er í
fféttum Sjónvarpsins
annan hvem dag. í
þætti Spaugstofúnn-
ar laugardaginn 7.
febrúar fékk Ámi
Sigfússon hins vegar
væna gusu í tengsl-
um við FÍB-auglýs-
inguna. Það var
reyndar góðlátlegt
grín og tilefnið var
fyrir hendi. Samt var
útgangspunkturinn
sá að auglýsingamar
fyrir FÍB tengdust
pólitíkinni.
En hvers vegna lét
þetta fólk ekkert
heyra í sér fyrir einu
ári, þegar Ámi kom
fram i sams konar
sjónvarpsauglýsingu
og nú? Þá hvatti hann almenning
einnig til að standa vörð um lágu
iðgjöldin í FÍB-Tryggingu. Hvað
hefúr breyst síðan þá?
Auðvitað hefur ekkert breyst,
nema það að áróðursmenn R-list-
ans telja að nú sé rétti tíminn til
atlögu. Þeir telja að nálægðin við
kosningamar veiti þeim rétt til að
virkja vini og vandamenn til að
ráðast á Áma. Vafalítið lætur ein-
hver blekkjast og trúir því að
einmitt núna, þremur árum eftir
aö Ámi varð formaður FÍB, sé
hann að misnota sér FÍB í pólitísk-
um tilgangi. En þeir era auðvitað
margfalt fleiri sem þurfa ekki ann-
að en að líta á iðgjöld bílatrygg-
inga sinna til að vita hversu mik-
ið þeir hafa hagnast á forystu
Áma í FÍB.
Verst er hins vegar að þeir
verða að sætta sig við þá nötur-
legu staðreynd að það sem sparað-
ist í iðgjöldum bílatrygginga hefur
Ingibjörg Sólrún hirt aftur í formi
skattahækkana borgarinnar - og
rúmlega það.
Ólafur R. Jónsson
„Aö sönnu hefur formennska Árná
í FÍB ekkert meö borgarmálin aö
gera. En frammistaöa hans sem
formanns FÍB getur skifíö eftir sig
hættulegar hugsanir hjá kjósend-
um í Reykjavík, aö mati R-físta-
manna.“
Kjallarinn
Ólafur R.
Jónsson
framkvæmdastjóri
Skoðanir annarra
Styrkari menntastofnanir
„Fálæti okkar gagnvart Háskóla íslands og öðrum
mennta- og rannsóknarstofnunum gæti hins vegar
komið í bakið á okkur nú þegar margt bendir til að
íslendingar geti ekki öllu lengur lagt allt sitt traust
á sjávarútveginn. ... Háskóli íslands verður að hafa
bolmagn til að geta lagt grundvöll að frjóu og skap-
andi atvinnulífi í landinu. Þetta hlutverk getur hann
hins vegar ekki rækt sé hann í stöðugu fjársvelti."
Úr forystugrein Mbl. 21. febrúar.
Bankaleynd gagnvart skattinum
„í stað þess að fólk þurfi að vera að telja þetta allt
saman fram, hverja einustu smáupphæð, höfum við
farið fram á að viö fengjum frá bankanum einskon-
ar „launamiða" eða heildarinnistæðu viðkomandi í
bankcmum, hverjir vora vextir á árinu og stað-
greiddur fjármagnstekjuskattur. Fáum við þetta frá
bönkunum, á nöfn og kennitölu, þá þyrfti fólk auð-
vitað ekkert að vera að telja þetta allt fram eins og
nú. En Alþingi vill ekki hleypa okkur í þessar upp-
lýsingar. ... Það er svolítið skrýtin bankaleynd."
Garðar Valdimarsson í Degi 21. febrúar.
Kólnun eða hlýnun veðurfars?
„Það er enginn vafi lengur á því að loftslag jarðar
fer hlýnandi í takt við aukningu svonefhdra gróður-
húsalofttegunda sem mannskepnan losar út í and-
rúmsloftið. ... Þess má geta að til eru þeir sem hafa
sett fram tilgátu um aö hlýnun á jörðinni geti leitt
til mikillar kólnunar nyrst á Atlantshafi, jafnvel ís-
aldar hér á landi. ... Vissulega væri freistandi fyrir
íslendinga að horfa fram á hlýindi meiri en nokkm
sinni fyrr í sögu þjóðarinnar. En það er þó óábyrg
stefna að taka ekki þátt í að hamla á móti þessum
miklu breytingum af manna völdum sem kynnu að
valda mikilli hækkun sjávarborðs og jafhvel leiða
síðar til mikils óstöðugleika í veðurfari."
Páll Bergþórsson t Lesbók Mbl. 21. febrúar.