Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1998, Blaðsíða 14
MAGENTA
14
ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1998
+Jh
» . *
UJJ
Sigríður Halla Guðmundsdóttir
með svokallaðan brons-glans-
farða. Augun eru í dökkum litum
og gætir hér áhrifa frá svoköll-
uðu heróínútliti sem hefur verið
í tísku um nokkurt skeið.
Vorar
Prátt fyrir að úti sé vetrarlegt er víða
vorlegt um að litast á snyrti- og hár-
greiðslustofum landsins. Tilveran
tókforskot á sæluna ogfékk tvær
valinkunnar konur úr tísku-
heiminum til kynna vortískuna
í hári og förðun.
Ivor verður mikið um breytingar og það koma inn nýir lit-
ir sem þó eru í takt við það sem hefur verið vinsælt í vet-
ur. Áherslumar eru aðrar og í raun má segja að það sé bylt-
ing í uppsiglingu sem endar með algjörum umskiptum í sumar.
Einkennislitir vortískunnar eru muskulitir á borð við gráa, ljós-
bláa, silfur og brons. Bronsliturinn kemur í staðinn fyrir gulllit-
inn sem hefur verið i tísku í vetur. Förðun í kringum augu tek-
m- einnig breytingum og verða skarpar línur, sérstaklega undir
augum, þar sem annaðhvort eru notaðir ljósir eða dökkir litir.
Hvað sjáifan farðann snertir þá er áherslan áfram á eðlilegt út-
lit,“ segir Hanna Kristín Didriksen, einn fremsti
förðunarmeistari landsins.
Glimmer hefur verið í tísku um hríð og segir Hanna Kristín
það halda velli fram á sumarið. Sama gildir um gloss á varir
sem er eitt af höfuðeinkennum vortískunnar ásamt miklum
maskara á augnhár. Glossið gefur gljáa sem mjög er í tísku og
ríkir ákveðið samspil þar við hárgel sem lætur hárið líta út
fyrir að vera blautt eða jafnvel feitt.
verður bleikur og þar af leiðandi farðinn líka. Við megum búast
við bleikum varalitum, augnskuggum, kinnalitum o.s.frv. Bleiki
liturinn verður gríðarleg tilbreyting og ég er handviss um að kon-
um á eftir að falla þessi tíska vel í geð.
Að lokum er Hanna Kristin spurð hvort tískustraumar sem
þessir eigi nokkurt erindi við venjulegar konur. Er þetta ekki
bara fyrir unglingsstúlkur? „Það er öðru nær því íslenskar
konur á öllum aldri eru alltaf að verða sér meira meðvitaðar
um tískuna og ekki síst þegar kemur að förðun. Konur verða
þreyttar á að mála sig alltaf eins og vilja tilbreytingu. Þess
vegna taka þær vel í ráðgjöf um það nýjasta
í tískunni og eru yfírleitt hæstá-
nægðar með að breyta til
og prófa eitthvað
-aþ
Sólgylltir tónar og
kvenlegar línur
- er boðskapur vortískunnar í hári
Það hljómar
kannski eins og
gömul lumma
en það er allt leyfilegt í
hári. Það hefur verið
ríkjandi frjálsræði í hár-
tískunni undanfarin ár
en þetta byggist auðvitað
á því að finna stíl hvers
og eins. Það er svo undir
hárgreiðslumeistaranum
komið hvemig til tekst,“
segir Bára Kemp hár-
greiðslumeistari.
Hártískan í vor mun
að sögn Bám fela í sér
nokkrar nýjungar. Nýir
hárlitir og nýjar línur í
klippingu eru væntan-
legar.
„Hárlitir fylgja alltaf
litum í fötum og viö munum sjá mikið af
fallega gylltum, jafnvel sólgylltum, og
brúnum litum í hári. Það verður sjálfsagt
minna um stripur en meira um hárlitun
en verið hefur. Það er í tisku að hafa mik-
inn gljáa í hárinu og það er auðveldar að
ná slíkri áferð með litun. Þá verður
einnig áberandi svokallað „wet look“ en
þá lítur hárið út fyrir að vera blautt og
jafnvel feitt án þess að vera það.
Annars á hárið að vera laust í sér og
Bára Kemp setur þrjár tegundir af rúllum í Ásdísi.
fremur eðlilegt í útliti og almennt má
segja að allur blær er á mjög kvenlegum
nótum. Ég er mjög ánægð með þessa tísku
og held að þetta eigi eftir að falla flestum
íslenskum konum vel í geð,“ segir Bára.
En það eru ekki einungis litir hársins
sem breytast með vorinu heldur er tals-
verðra nýjunga að vænta í hárlínunni.
„Styttumar minnka eða hverfa en krullur
i alls kyns formi verða áberandi.
Permanent hefur einnig verið að sækja á
Naglalakk með málmáferð
Asdís
Rán
Gunn-
arsdóttir
meö
dæmigerða
förðun sam-
kvæmt vortísk-
unni. Aðalliturinn er bleik-
fjólublár, hvítur blýantur er
notaður á augnlokin en bleikur
undir augun ásamt hvítum glans.
DV-myndir Pjetur
Það er ljóst að Hanna Kristín er mjög ánægð með nýjar lín-
ur tískunnar enda segir hún alltaf gaman þegar miklar breyt-
ingar eiga sér stað. „Það gefur starfinu gildi að hlutirnir skuli
þróast og taka breytingum. En það er fleira nýtt á döfinni en
það sem ég nefndi áðan. Til dæmis eru naglalökkin að breyt-
ast frá því að vera sanseruð í svokölluð „metallic“ lökk. Litim-
ir verða í sömu tónum og augnskuggamir. Auk þess verða
pastellitir einnig áberandi og þá helst í bleikfjólubláum tónum.
Bleikfjólublátt sumar
í tískuheiminum eru línurnar lagðar langt fram í
tímann eins og allir þekkja. Þannig uppfræðir
Hanna Kristín blaðamann um að sumarlitimir
í förðun séu þegar á hreinu. „Bleikt og meira
bleikt, þannig verður sumartískan. Fatnaður
og verður áberandi í vor- og
sumartískunni. Permanentið í
dag er ekki hallærislegt eins og
margir halda og ég er viss um
að það verður búið að vinna
sér sess fljótlega," segir Bára
Kemp að lokum. -aþ