Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1998, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1998, Qupperneq 19
18 ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1998 ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1998 23 íþróttir Bland í George Graham, framkvæmdastjóri Leeds, er ævareiöur vegna framkomu Alans Shearers í leik Leeds og Newcastle um síðustu helgi. Graham var mjög ósáttur viö brot Shearers á Floyd Hasselbank og einnig dómgæsluna yfirhöfuð í leikn- um. Graham sagði að Leeds hefði átt að fá 3-4 vítaspymur í leiknum. Aöalfundur Ungmennafélagsins Fjölnis í Grafarvogi veröur haldinn laugardaginn 7. mars. Eftir fundinn halda Fjölnismenn hátið sem hefst kl. 21.00. Steinn Gunnarsson, knattspyrnu- maðurinn ungi sem leikið hefur með KA á Akureyri undanfarin ár, hefur ákveðið að snúa aftur heim í Ólafs- fjörð og mun því spila með Leiftri næsta sumar. Þar með fjölgar Ólafs- flrðingunum í hópi Leiftursmanna úr frnim í sex. Ari Freyr Jónsson var á dögunum útnefndur íþróttamaður ársins 1998 á Raufarhöfn en Ungmennafé- lagið Austri stóð að viður- kenningunni. Um leið vom þeir Kristján Sigurðsson, Páll Þormar og Jóhann R. Gunnlaugs- son heiðraðir fyrir ástundun og fram- farir. Leifur Harðarson veröur fyrsti al- þjóðlegi blakdómari íslands. Staðfest var á fundi dómaranefndar Alþjóða blaksambandsins á dögunum að Leif- ur hefði uppfyllt öll skilyrði og hann fær réttindin formlega í vor. Martin Eyjólfsson, sem bjargaði knattspyrnuliöi ÍBV frá falli á ævin- týralegan hátt árið 1992 og 1993, lék með Eyjamönnum i forföllum í æf- ingaleik gegn Vikingi á dögunum. Martin var samur við sig, fékk að spila í 20 mínútur og skoraði sigur- markið, 2-1. Eyjamenn fóru til Kýpur á laugardag en þar taka þeir þátt í alþjóðlegu knattspyrnumóti sem hefst i dag. Þeir leika þá við rússneska liðið Metall- urg. Á fimmtudag mæta þeir annað- hvort lærisveinum Teits Þðrðarsonar í Flora Tallinn frá Eistlandi eða rúss- neska liöinu Lokomotiv Moskva. Á laugardag leikur síðan ÍBV við lið úr hinum riðli mótsins en i honum eru sænsku íslendingaliðin Elfsborg og Helsingborg ásamt norsku liðunum Bodö/Glimt og Kongsvinger. Dejan Stojic, fyrnrm leikmaður lA, er undir smásjá Eyjamanna i ferð- inni. Hann leikur með Nea Salamina á Kýpur og var í hópi markahæstu leikmanna 1. deildar þar í landi á síð- asta timabili. Bjarni Jóhannsson, þjálfari ÍBV, fylgdist með Stojic í leik á laugardaginn og sér hann aftur i leik á morgun. Zoran Miljkovic meiddist á æfingu i Júgóslavíu á dögunum og getur ekki spilað með ÍBV á Kýpur. Þeir Leifur Geir Hafsteinsson og Rútur Snorra- son eru líka íjarverandi vegna meiösla. Hjalti Jónsson, 18 ára piltur úr ÍBV, hefur staðið sig mjög vel með VfL 93 í þýsku 3. deildinni í vetur. Hann er þar á samningi til vorsins. Siguröur Bjarnason skoraöi 7 mörk og var marka- hæstur hjá Bad Schwartau þeg- ar liöið sigraði Duderstadt, 28-23, í jjýsku 2. deildinni 1 handknattleik um helgina. Bad Schwartau er sem fyrr með yf- irburöastöðu i norðurriðli deildar- innar og aðeins. stórslys getur komið í veg fyrir aö félagið leiki i 1. deild næsta vetur. Þróttur i Reykjavik tryggði sér sæti í úrslitum gegn Stjömunni í bikar- keppni karla í blaki með þvi að bera sigurorð af Þrótti á Neskaupstað, 3-0, í undanúrslitum í gær. Úrslit í hrin- unum urðu 16-14, 15-9 og 15-6. Atletico Madrid sigraði Real Zara- goza, 2-1, í spænsku 1. deildinni í knattspymu í gær. Christian Vieri og Kiko Narvaez gerðu mörkin í siðari hálfleik. Meö sigrinum komst Atlet- ico Madrid upp i þriðja sætið, er með 44 stig en Barcelona er efst með 49 stig og Real Madrid 47. -SK/HJ/GJ/VS/GH íþróttir Enski boltinn: Rauði herinn tapaði dýrmætum stigum - eftir 1-1 jafntefli gegn Everton í gær Liverpool tapaði dýrmætum stigum í toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í gær þegar liðið gerði 1-1 jafntefli á heimavelli gegn grönnum sín- um í Everton. Liverpool er 9 stigum á eft- ir Manchester United eins og Arsenal og mikið þarf að gerast ef rauði herinn ætl- ar að vinna langþráðan bikar. Bæði mörkin voru skoruð í fyrri hálf- leik. Duncan Ferguson kom Everton yfir með laglegu marki en Paul Ince jafnaði fyrir Liverpool 8 mínútum síðar. Rétt áður fékk Mikael Madar sannkallað dauðafæri. Eftir misheppnað úthlaup David James, markvarðar Liverpool, barst knötturinn fyrir fætur Madars en hann skaut fram hjá opnu markinu. Eftir mark Ince sóttu leikmenn Liver- pool nokkuð stift en tókst ekki að bæta við marki. Leikmenn Liverpool gengu því súrir af velli en kollegar þeirra hjá Everton fógnuðu dýrmætu stigi í neðri hluta deildarinnar. Þetta var 150. viðureign Liverpool og Everton á knattspyrnuvellinum. Liver- pool hefur vinninginn í þessum viður- eignum en hin síðari ár hefur Everton haft gott tak á þeim rauðklæddu. Liver- pool hefur ekki unnið Everton í síðustu sjö leikjum liðanna eða frá árinu 1994. Fowler ekki skoraö í átta deild- arleikjum í röð Robbie Fowler lék áttunda deildarleik sinn í röð fyrir Liverpool án þess að skora og það hefur ekki gerst áður hjá honum. Fowler er ekki nema skugginn af sjálfum sér og svo virðist sem tilkoma Michaels Owens í byrjunarlið Liverpool hafi sett hann út af laginu. -GH Tony Adams á förum frá Arsenal? Fréttir frá Highbury herma að Tony Adams, fyrirliöi Arsenal, muni yfirgefa fé- lagið i lok tímabilsins. Nokkur félög eru þegar farin að bera víumar í þennan 31 árs gamla varnarjaxl og þar hefur nafn Glasgow Rangers oftast verið nefnt. -GH Michael Owen, táningurinn snjalli hjá Liverpool, geysist hér fram hjá Dave Watson, gamla manninum í liöi Everton, í leik liöanna á Anfield Road í gær. Reuter NBA-deildin í nótt: Chicago er að koma til Fjórir leikir fóru fram í NBA- deildinni í körfuknattleik i nótt og urðu úrslitin þessi: Detroit-Sacramento.............111-85 Chicago-Cleveland ..............97-75 Denver-Charlotte ..............98-118 LA Clippers-Seattle...........100-101 Michael Jordan hafði frekar hægt um sig í nótt og skoraði 17 stig gegn Cleveland. Luc Longley skoraði 16 stig og Scottie Pippen 13, öll í fyrsta leikhluta. Zydrunas Ilgauskas var stigahæstur hjá Cleveland með 15 stig. Knicks malaöi Houston Úrslit leikja í NBA-deildinni aðferanótt mánudags: NY Knicks-Houston...........92-74 Starks 24, Johnson 16, - Drexler 16, Olajuwon 13. Milwaukee-Cleveland ........79-71 Robinson 29, Allen 20 - Kemp 20, Hgauskas 15, Sura 12. Toronto-Vancouver ........113-105 Billups 27, Wallace 22, Christie 18, - Rahim 22, Chilcutt 17, Lynch 13. Minnesota-Sacramento.......115-95 Mitchell 17, Peeler 16, Roberts 15, Garnett 14, Porter 14, - Richmond 32, Williamson 21, Funderburke 10. Orlando-Lakers..............96-94 Anderson 30, Harper 18, - O'Neal 20, Jones 19, Bryant 18 Fox 15. 76ers-Indiana................92-97 Iverson 33, Coleman 20, Thomas 14, - Miller 25, Smits 18, Muilin 15. Golden State-Miami...........82-90 Marshall 28, Dampier 22, Jackson 10, - Hardaway 24, Mouming 21, Brown 20. Phoenix-SA Spurs ............97-79 Manning 17, Robinson 15, McDuess 14, Chapman 14, - Duncan 17, Perdue 16, Jackson 13. Seattle-Denver...............88-68 Payton 17, Williams 15, Anthony 15, Baker 12 - Goldwire 18, Newman 13. Portland-Boston.............125-98 Sabonis 23, Stoudamire 17, Augmon 16, -Mercer 28, Waiker 17, Anderson 14. -SK Michael Jordan var rólegur í nótt og skoraði „aðeins“ 17 stig. Stangarstökkvararnir Vala Flosadóttir og Þórey Edda Elísdóttir: Yfirlýsing frá FH-ingum DVbarst í gærkvöldi yfirlýsing frá hand- knattleiksdeild FH og í henni kemur þetta fram meðal annars: „í samræmi við samkomulag stjóma hkd. FH og Hauka, sem gert var í kjölfar atburða sem áttu sér stað í lok leiks félaganna sl. mið- vikudag, hefur stjóm hkd. FH verið treg til að tjá sig um atvik málsins. Vegna yfirlýsingar Hauka í DV í gær, þar sem stjóm FH er sök- uð um siöleysi og að hafa rofið samkomulag félaganna, vill FH koma eftirfarandi athuga- semdiun á framfæri: 1. Ákveðið var að formenn deildanna færa á fund með leikmönnum liðanna og kæmu þar á beiðni afsökun á framferði félagsmanna sinna. Af því gat ekki orðið þar sem Haukar æfðu ekki á fimmtudag, formaður FH átti ekki heimangengt á iostudag og í gær æfðu Hauk- ar ekki vegna landsliðsæfingar. Það hefði ver- ið vilji okkar að hitta Haukastúlkur sem fyrst eftir þessi leiðinlegu atvik en af framan- greindum ástæðum hefur það ekki tekist. 2. Grein Helgu Magnúsdóttur í Morgrm- blaðinu sl. laugardag var ætluð til að leiðrétta þaö sem ranglega hafði verið sagt i grein blaðamanns um leikinn. Varðandi þá fullyrð- ingu Hauka að Helga hefði með þessu rofið samkomulag félaganna skal á það bent að for- maður hkd. Hauka veitti viðtöl i útvarpi og sjónvarpi þrátt fyrir áskorun FH um að gera það ekki. 3. Ásökunum Hauka um siöleysi FH við framkvæmd og umgjörð leiks FH og ÍBV er al- farið vísað á bug. 4. Forráðamenn FH taka mjög alvarlega ásakanir um að þeir standi fyrir óhróöri í garð eins leikmanns Hauka. Ásakanir þessar era rangar og meiðandi og engum til sóma. Handknattleiksdeild FH harmar mjög þá at- burði sem þarna áttu sér stað og biður alla hlutaðeigandi afsökunar á hlut okkar félags- manna i þessu máli. Handknattleiksdeild FH mun ekki tjá sig frekar um þetta mál og bíður úrskurðar aganefnar HSÍ.“ Wuppertal og Eisenach með Valdimar í sigtinu Valdimar Grimsson, landsliðsmaður í handknattleik, þjálfari og leikmaður Stjömunnar, hefur dvalið í Þýskalandi síðustu daga en samkvæmt heimildum DV hafa Wuppertal og Eisenach lýst yfir áhuga á að fá Valdimar í sínar raðir. Það mun að öllum líkindum koma í ljós fljótlega hvort Valdimar söðlar um og leikur i Þýskalandi á næsta tímabili en hann hefur allan sinn feril leikið hér heima. Viggó Sigurðsson þjálfar sem kunnugt er Wuppertal og Dagur Sigurðsson end- umýjaöi á dögunum samning við félagið. Geir Sveinsson er einnig á mála hjá Wuppertal en Ólafur Stefánsson er á fomm til Magdeburg. Landsliðsmaðurinn Róbert Duranona hefur hins vegar leikið með Eisenach í vetur og hefur liðið staðið vel en það kom upp úr 2. deild í fyrra. -JKS Ölafur Gottskálksson hjá Hibernian: Var neitað um að fara - vildi veröa lánaöur til annars félags Ólafi Gottskálkssyni, landsliðs- markverði hjá skoska liðinu Hi- bernian, var í síðustu viku neitað um að fara til annars liðs að láni tímabundið. Ólafur missti sætið sitt aftur í byrjunarliðinu þegar liðið mætti Glasgow Rangers um helgina en í síðustu viku var Bri- an Gunn, varamarkvörður Norwich, fenginn að láni út þetta tímabil og stóð hann í markinu gegn Rangers um helgina. Þess má geta að Chris Reid óskaði eftir því fyrir helgina að fara frá félaginu og fékk frjálsa sölu. Ólafur missti sætið sitt í liðinu í hendur Chris Reid í nokkrar vikur en endurheimti það að nýju í leik gegn Aberdeen fyrir tiu dögum. Hibernian tápaði leiknum, 2-0, en Ólafur þótti eiga góðan leik og var útnefndur maður leiksins. í byrjun síðustu viku tilkynnti Alex McLeish, ffamkvæmdastjóri Hibemian, Ólafi það að hann ætl- aði að nota Brian Gunn í markinu gegn Rangers. Ólafur sagði í sam- Bland í polca Arnar Grétarsson og félagar hans i AEK gerðu 1-1 jafntefli á útivelli gegn Ionikos í grisku 1. deildinni í knattspyrnu í gær. Amar lék allan tímann á miðjunni hjá AEK en hvorki Páll Guðmundsson né Krist- inn Tómasson voru í leikmannahópi Ionikos. AEKer í þriðja sæti deildarinnar með 53 stig en efst og jöfn era Olymp- iakos og Panathinaikos með 58 stig. Um næstu helgi mætir AEK liði Pan- athinaikos. Grindvíkingar sigruðu ÍS, 44-37, í 1. deild kvenna i körfuknattleik i gær- kvöldi. Staðan í hálíleik var 14-10 fyr- ir Grindavík. Anna Dís Sveinbjörnsdóttir skoraöi 14 stig fyrir Grindavík og Penny Peppas 10 stig. Alda Leif Jónsdóttir skoraöi 15 stig fyrir ÍS og Signý Her- mannsdóttir 7. Miguel Angel Martin, þjálfari spænska körfuknattleiksliðsins Real Madrid, var i gær rekinn frá félaginu. Madridarliðinu hefur vegnað illa og komst til að mynda ekki í 16-liða úr- slitin í Evrópukeppninni. -GH/JKS tali við DV í gærkvöld að hann hefði fengið þá skýringu að með þessari ákvörðun yrði tekin öll pressa af honum. Ólafur sagðist enn í dag ekkert botna í þessari skýringu framkvæmdastjórans. „Þegar ég sá framvindu mála óskaði ég eftir því að verða lánað- ur til annars lið. Alex Mcleish neitaði mér um það og þar við sit- ur.“ Framhaldið verður bara að koma í Ijós „Eftir leikinn gegn Aberdeen var ég viss um að hafa gulltryggt mér sæti í byrjunarliðinu. Það kom mér því mjög á óvart þegar Brian Gunn var fenginn að láni og hann síðan tekinn beint í liðið á minn kostnað. Mcleish sagði mér að það væri gott að hafa sam- keppni um stöður og ég fengi tæki- færið að nýju ef Gunn stæði sig ekki í markinu. Þetta er pirrandi ástand en það verður bara að koma í ljós hvert framhaldið verð- ur,“ sagði Ólafur Gottskálksson í samtali við DV í gærkvöld. Ólafur lék með varaliði Hibemi- an í gær gegn Rangers og átti mjög góðan leik en Hibernian tapaði leiknum, 1-0. Ástandið í herbúðum Hibernian versnar með hverjum leik og er liðið sem fyrr í neðsta sæti með 18 stig, fimm stigum á eftir Motherwell. -JKS Ólafur Gottskálksson. Blancl i poka Bjarki Sigurósson skoraði 7 mörk og var markahæstur í liði Drammen sem sigraði Elverum á útivelli, 16-28, í norsku 1. deildinni i handknattleik á sunnudagskvöldið. Þetta var fyrsti leikur Drammen und- ir stjóm Bent Dahls sem tók við lið- inu af Gunnari Gunnarssyni. Drammen er í 4. sæti í deildinni með 20 stig. Viking er efst með 30 stig og í 2.-3. sæti era Sandefiörd og Runar með 29 stig. Enzo Scifo, lykilleikmaður belgíska landsliðsins i knattspyrnu til margra ára, sagði i gær að hann myndi ekki leika fleiri landsleiki fyrir Belgíu eft- ir að hann var ekki valinn í landslið- ið sem mætir Bandaríkjamönnum í vináttuleik annað kvöld. Scifo hefur leikið 79 landsleiki. Hann lék fyrsta landsleikinn árið 1984 og hefur leikið á þremur HM-keppnum. Hann leikur nú meö Anderlecht í Belgíu en hefur áður leikið með Int- er Milan, Bordaux, Auxerre, Torino og Monaco. Moussa Saib, landsliðsmaður Alsir í knattspyrnu, er á leið til Tottenham frá spænska liðinu Valencia. Spurs greiðir 240 milljónir fyrir Saib sem er miðjumaður og leikur hann lík- lega sinn fyrsta leik gegn Bolton um næstu helgi. íslendingaliöiö BK Odense steinlá fyrir Sisu í dönsku 1. deildinni i körfuknattleik i fyrradag. Lokatölur urðu 102-63. Þetta var síðasta um- feröin í deildarkeppninni og þrátt fýrir tapið er Odense komið I úrslita- keppni 6 efstu liða. -GH Yfiriýsing frá Aroni DV barst í gær yfirlýsing frá Aroni Kristjánssyni, leikmanni Hauka og sam- býlismanni Huldu Bjarnadóttur, vegna „Viðarsmálsins" svokallaða: „Þar sem Viðari hefur fundist tilefni til að draga nafn mitt inn í hans leiðinda- mál þá get ég ekki lengur orða bundist og svara yfirlýsingu hans. Ihenni kemur fram að Hulda hafi sagt í viðtali á Stöð 2, sunnudagskvöldið 22. febrúar, að Viðar hafi ekki beðið hana afsökunar. En þeir sem fylgdust með féttum Stöðv- ar 2 þetta kvöld vita að þar talaði Hulda um að forráðamenn FH hefðu ekki haft samband og beðið hana afsökunar. Síðar í fréttum kom það skýrt og greinilega fram að Hulda vildi koma því á framfæri að Viðar hefði beðið hana afsökunar í vikunni. „Viðar, er dagskrá Stöðvar 2 öðruvísi hjá þér en öðrum? Ég veit aö Hulda bað fyrirliða FH um að bera Dagnýju Skúladóttur kveðju sína , f þar sem hún fékk ekki tækifæri til þess i !' leiknum vegna óvæntrar innáskiptingar Viðars þegar hann ákvað að taka þátt í leiknum af fullum krafti. Að einhver árásaraðili skuli ætlast til þess að fórnarlamb hans biöji hann af- sökunar á því að reyna að verja sig hlýt- ur að segja þaö sem segja þarf. Ég bara spyr „Er þetta stórmennskan, Við- ar? Ef það væri til myndbandsupptaka af atburðinum þá hefði ég ekki þurft að skrifa þessa grein. Ég bið hér með alla viðkomandi að ljúka þessu leiðindamáli á hreinlegan hátt þvi það er engum til framdráttar, hvorki iþróttinni, félögun- um né öðrum.“ Met hjá Eydísi - og gull í Qórum greinum á Jótlandi Eydís Konráðsdóttir bætti íslandsmetið í 400 metra fjórsundi kvenna á jóska meistaramótinu í sundi um helgina. Eydís synti á 5:01,38 mínútum og bætti met Láru Hrundar Bjargardóttur frá því í janúar um 15/100 úr sekúndu. Eydís varð í öðru sæti í sundinu en hún sigraði í 50 metra flugsundi á 29,06 sekúndum, í 100 metra flugsundi á 1:03,68 mín., og í 200 metra flug- dundi á 2:22,25 mínútum. Að auki var hún í sigursveit Esbjerg í 4x100 metra skriðsundi. Eydís hefur æft í Esbjerg frá því í haust. Hún keppir á heimsbikarmót- um í Malmö og París í næsta mánuði.. -VS Eydís Konráösdóttir, til vinstri, sló íslandsmetiö 1400 metra fjórsundi. Til alls liklegar - setur Vala heimsmet í Höllinni 5. mars? Þær Vala Flosadóttir, ÍR, og Þórey Edda Elíasdóttir, FH, eru báðar að undirbúa sig fyrir Evr- ópumeistaramótið í Valencia sem hefst á föstudaginn. Þær hafa báðar verið aö standa sig mjög vel á æfingum undanfarið, Vala stökk 4,28 metra sem er hennar besti árangur hing- að til á æfingum en Þórey hefur verið að stökkva vel yfir 4,00 m. Þá hæð hefur hún aldrei stokkið í keppni. Það er því ljóst að þær eru báöar í feiknaformi og til alls lík- legar. Nú er frágengið að frjálsíþrótta- deild ÍR mun standa fyrir alþjóð- legu stangarstökksmóti í Laugar- dalshöll fimmtudagskvöldið 5. mars. Af því tilefni mun Vala Flosadóttir koma hingað til lands í boði menntamálaráðherra þann 3. mars nk. og verður heima í eina viku. Mótiö er sérstaklega sett upp fyrir Völu til að gera atlögu að heimsmetinu í stangarstökki inn- anhúss á heimavelli fyrir framan íslenska áhorfendur. Auk hennar munu tvær heimsþekktar erlendar stangarstökkskonur koma. Einar Karl Hjartarson, ÍR, mun á sama móti gera atlögu aö ísl- andsmetinu i hástökki karla Um helgina fór fram lands- keppni innanhúss í Malmö milli Svíþjóðar, Finnlands og Balkan- landanna. Þar voru unnin mörg góð afrek, eins og fram kom í DV í gær, og má þar nefna aö flnnska stúlkan Teija Saari setti finnskt met í stangarstökki er hún stökk 4,00 metra. Auk þess settu sænsku stúlkumar Liza Jörnung og Alissa White sænskt met þegar þær stukku 3,63 metra. Um síðustu helgi setti danska stúlkan Marie Rasmussen danskt met þegar hún stökk 4,03 metra. Þess má geta að Svíar heiðruðu Völu við þetta tækifæri og leystu hana út með gjöfum við mikinn fögnuð áhorfenda í Malmö. -BIÓ Nathan Blake um Arnar Gunnlaugsson: „Arnar gerði útslagið" Nathan Blake, miðherji enska knattspyrnufé- lagsins Bolton, hrósaði Arnari Gunnlaugssyni mjög í viðtali við blaðið Bolton Ev- ening News í gær. Eins og fram kom í DV í gær kom Amar inn á sem vara- maður gegn West Ham 16 mínútum fyrir leikslok og lagði upp jöfnun- armark Bolton fyrir Blake. „Ég skora ekki mörkin upp á eigin spýtur. Það getur enginn," sagði Blake sem hefur skor- að 9 af 23 deildamörkum Bolton í vetur og oft verið ansi einmana í framlinunni. „Það er gaman að skora en ef Arnar hefði ekki leikið á vamarmanninn og sent boltann fyrir markið hefði ég ekkert gert. Ég þarf hjálp og við þurfum að fá fleiri fyrirgjafir. Amar gerði útslagið fyrir okkur. Hann hefur þennan aukahraða sem oft vantar í liðið. Hann er með góða boltameðferð og á auðvelt með að plata varnarmenn. Fyrirgjöfin hans var frábær," sagði Blake. Vekur undrun hve fá tækifæri Arnar hefur fengiö í umfjöllun enskra fjölmiðla hefur að undan- fömu gætt nokkurrar undrunar yfir því hve fá tækifæri Amar hefur fengið með Bolton í vet- ur. Hann er yfirleitt ekki í byrjunarliðinu og hefur sjaldan spilað meira en 15-20 mínútur í leik. -VS íslenskir knattspyrnumenn 4 Borás í sænsku úrvalsdeildinni Haraldur Ingólfsson Orebro Stokkhólmur Borás Norrköplng • Helsingborg Helsingborg Hilmar Björnsson Jakob Jónharósson • Örebro Orebro Arnór Guöjohnsen Gunnlaugur Jónsson Hlynur Blrgisson • Vaxjö Oster Stefán Þ. Þóröarson Þorvaldur M. Slgbjörnsson • Stokkhólmur Hammarby Þétur Martelnsson Pétur BJörn Jónsson VáxJö • Helsingborg * Malmö • Malmö lyialmö ,FF Olafur Om Bjarnason Sverrlr Sverrlsson Guömundur Mete Omar Jóhannsson • Norrköpfng Norrköping Blrklr Krlstinsson Sænska knattspyrnan: Fimmtán íslenskir í úr- valsdeildinni Sverrir Sverrisson gekk til liðs við Malmö FF á sunnu- daginn, eins og fram kom í DV í gær, og þar með em ís- lenskir knattspyrnumenn í sænsku úrvalsdeildinni orðnir 15 talsins. Þetta er „íslandsmet." Aldrei áður hafa jafnmargir íslenskir leikmenn í nokk- urri íþróttagrein spilað í sömu deildinni erlendis. Svíþjóð hefur siglt fram úr Noregi hvað fjölda íslend- inga varðar en þeir eru nú 12 hjá norskum úrvalsdeildarfé- lögum. Ekki er loku fyrir það skotið aö þessar tölur eigi, eftir að hækka því deilda- keppni hefst ekki fyrr en í apríl í þessum löndum. Á meðfylgjandi korti sést hverjir þessir 15 íslendingar í sænsku úrvalsdeildinni eru og með hvaða félögum þeir leika. -VS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.