Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1998, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1998, Síða 28
32 ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 1998 Sviðsljós Naomi lét ekki tælast á Kúbu Ofurfyrirsætumar Naomi Campbell og Kate Moss heim- sóttu Fidel Castro Kúbuforseta um helgina. Þær voru heillaðar af manninum en létu þó ekki tælast, eins og þær komust að orði. Stúlkumar ræddu lengi við byltingarforingjann í lok vinnu- ferðar til eyjar hans. Stúlkumar sátu fyrir á myndum fyrir tíma- ritiö Harper’s Bazar. Jackson kominn til Suður-Kóreu Ameríski popparinn Michael Jackson lætur sér ekkert mann- legt óviðkomandi. Hann er nú kominn til Suður-Kóreu til að vera viöstaddur embættistöku nýs forseta. Vinkona hans, ilm- vatnsdrottningin Elizabeth Taylor, varð að aflýsa vegna heilsubrests. Michael ætlar að nota tímann og ræða einnig við kaupahéðna um fjárfestingar. Robert De Niro galopnar sig í Berlín: Alveg brjálaður út í franska dómarann Bandaríska stórleikaranum Ro- bert De Niro er ekki hlátur í huga þessa dagana. „Ég er alveg brjálaður út í þenn- an dómara í París. Það sem hann gerði er gjörsamlega ótækt,“ segir leikarinn í viðtali við sænska blað- ið Aftonbladet. Hann á að sjálfsögðu við dómar- ann sem er að rannsaka lúxusvænd- ishring og kallaði De Niro til að bera vitni. Aðfarimar vom ekki beint fallegar. „Átta lögregluþjónar mddust inn á hótelherbergið mitt. Ég var á baðsloppnum, enda hafði ég verið úti við kvikmyndatökur alla nótt- ina. Þetta var fúllkomlega ónauð- synlegt. Ég ætla að fara í mál við franska dómarann,“ segir De Niro. Franski rannsóknardómarinn Robert De Niro hellir úr skálum reiði sinnar í garð franska dómarans. hefúr haldið því fram að De Niro hafi stungið af frá Frakklandi vegna vændismálsins. Því er leikarinn ekki sammála. „Algjört bull,“ segir hann. „Ég var eina helgi í New York en er bú- inn að vera marga mánuði í Frakk- landi. Ég hafði sagst ætla að mæta til yfirheyrslu en þess í stað sigar hann á mig lögregluþjónum. Mér var haldiö í níu klukkutíma, án þess að hafa lögfræðing með mér,“ segir De Niro. Nomaveiðar og ekkert annað, segir leikarinn um atburðina. Hann segir franskt réttarkerfi vera þannig að maður sé sekur þar til maður geti sannað sakleysi sitt. Hann er aö velta því fyrir sér að kæra þetta til mannréttindasamtak- anna Amnesti Intemational. En þótt svona hafi farið í þetta sinn, hefúr stórleikarinn ekki misst endanlega trúna á Frakklandi og þeim sem þar búa, sjálfúm Frökkun- um. Hann er enn hrifinn af bæði landi og þjóð og hefúr það bara fjári gott í París. Þá segir hann aö fjöl- margir Frakkar hafi beðið hann af- sökunar á framferði dómarans og lögreglunnar. „Ég er svo rosalega reiður," segir Robert. Annars var leikarinn á kvik- myndahátíðinni í Berlín í síðustu viku til að kynna myndina Wag the Dog. Sú mynd hefur vakið óvænta athygli fyrir þær sakir aö í henni er fjallað um kynlífshneyksli í Hvita húsinu þar sem forsetinn er í aðal- hlutverkinu. De Niro kemur þá bara af stað stríði. Kærasti Streisand í vondum málum: Lamdi æsiljós- myndara í fésið Hvers eiga aumingja æsiljós- myndaramir að gjalda, paparazz- amir sem við dýrkum og dáum í öðm orðinu en fordæmum i hinu? Einn slíkur ljósmyndari lenti um daginn í klónum á skeggjaða leikar- anum James Brolin sem um þessar mundir er sennilega þekktastur fyr- ir að verma bólið hennar Barbra Streisand, söngkonunnar, leikkon- unnar og leikstýrunnar sjálfhverfu. Atburðurinn varð með þeim hætti að ljósmyndarinn Richard Corkery ætlaði að taka mynd af þeim James og Barbra þegar þau komu úr bíói í New York. Eitthvað mun James hafa mislíkað aðfarir ljósmyndarans því hann gaf honum einn á lúðurinn. Svo þungt var höggið að fés myndasmiðsins kram- bóleraðist. „Ég bara trúi ekki að þessi óþverri hafl lamið mig,“ sagði Cor- kery við aðra ljósmyndara eftir slagsmálin. Ljósmyndarinn segir í viðtali við æsiblað í New York aö hann ætli í mál við kærasta leikstýrannar. Blaðafúlltrúi James gerði lítið úr málinu þegar hann var spurður álits. Bara smávegis misskilningur, segir hann. Löggan rannsakar kýl- inguna en leikarinn hefúr ekki enn verið ákærður. Aukablað um hljómtæki mun fylgja DV miðvikudaginn 4. mars. Fjallað verður um allt það nyjasta á hljómtækjamark- aðinum í dag. Umsjón efnis: Haukur Lárus Hauksson í síma 550-5000 Umsjón auglýsinga: Sigurður Hannesson í síma 550-5000 /550-5728 Síðasti pöntunardagur auglýsinga er fimmtudagurinn 26. febrúar. Tískuhelmurínn í Lundúnum stendur á öndinni þessa dagana. Tilefnið er að sjálfsögðu tískuvikan sem hófst þar um helgina. Meðal þess sem þá var sýnt var þessi kjóll, svartur með málmlitu bróderíl, eftlr Matthew Willlamson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.