Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1998, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1998, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1998 Fréttir Rannsóknardeild HÍ komst að rangri niðurstöðu i faðernismáli: DNA stóöst ekki Liðlega þritugur Keflvíkingur hefur höfðað dómsmál til ógilding- ar á faðemisviðurkenningu í kjöl- far þess að fmmurannsóknardeild Háskóla íslands upplýsti hann um að upphafleg rannsókn hennar, sem nefnd var DNA-rannsókn, hefði ekki staðist. Meintur faðir hefur af þessum sökum höfðað dómsmál. í kjölfar málsóknarinn- ar, þar sem byggt er á yflrlýsingu fmmurannsóknardeildar HÍ um að umræddur maður sé útilokaður frá því að vera faðir barnsins, heldur móðirin því samt enn fram að hann sé faðirinn. Hún segir hann hafa sent fyrir sig annan mann í blóð- rannsókn. Málavextir eru þeir að um mitt ár 1995 fæddi konan barn. Konan hélt því fram að umræddur maður væri faðirinn. Hann vildi ekki trúa því en féllst á að fara í blóðrann- sókn. í árslok 1995 varð niðurstaða frumulíffræðideildar Háskóla ís- lands á þá leið að meira en 99 pró- senta líkur væm á að maðurinn væri faðir bamsins. „Þegar þetta kom upp á yfirborðið var skjól- stæðingur minn ekki í þeirri stöðu að vefengja rannsóknina og skrif- aði undir faðernisviðurkenningu," sagði Ásgeir Jónsson hdl., lögmað- ur mannsins. Á árinu 1996 tók frumurannsókn- ardeildin hjá HÍ það upp að eigin frumkvæði að rannsaka frekar blóð- sýnið úr umræddum manni. Undir lok árs 1996 lágu síðan allt aðrar nið- urstöður fyrir í máli hins meinta foð- ur. Nú var talið óyggjandi að maður- inn gæti ekki verið faðir bamsins. í ársbyrjun 1997 var annað blóð- sýni tekið úr manninum til að fá frek- ari staðfestingu. Niðurstaða þeirrar rannsóknar var sú sama og „nýja rannsóknin" hafði leitt í ljós - maður- inn gat ekki verið faðir bamsins. Móðirin gefur sig samt ekki Þar sem enginn reki hefur ver- ið gerður að því af hálfu móður að „finna annan foður“ hefur fram- angreindur maður höfðað dóms- mál þar sem hann krefst ógilding- ar á faðernisviðurkenningunni frá árinu 1995. Samkvæmt heim- ildum DV hefur móðirin mótmælt kröfu mannsins á þeim forsend- um að hann hafi sent annan mann fyrir sig í blóðsýnatöku. Málið verður til lykta leitt fyrir Héraðsdómi Reykjaness á næstu mánuðum. -Ótt Formaöur íbúasamtaka Grafarvogs á borgarafundi meö þingmönnum: Viö erum gleymdu börnin ibúasamtök Grafarvogs héldu op- inn borgarafúnd með þingmönnum Reykjavíkur og formanni samgöngu- nefndar Alþingis í Fjörgyn í gær- kvöldi. Á fundinum voru samgöngu- mál hverfisins til umræðu auk lög- gæslumála, kirkjumála o.fl. Friðrik Hansen Guömundsson, formaður íbúasamtaka Grafarvogs, var harð- orður í garð þingmanna Reykjavíkm- í framsöguræðu sinni. Þeir hefðu staðið sig afar slælega við að gæta hagsmuna kjósenda sinna í Grafar- vogi sem væru gleymdu börnin. Þjónustustigið í hverfinu væri það slakt orðið að búiö væri aö gera það að annars flokks hverfi og stefndi í að verða þriðja flokks hverfi sem væri athlægi annarra. Slæmar samgöngur Friðrik sagði að samgöngur við hverflð, sem væri mjög afmarkað landfræðilega, væru afleitar og þrátt fyrir tíu ára baráttu íbúanna hefði ekki tekist að þoka fram breikkun á Gullinbrú, né öðrum samgöngubótum allan þann tíma. Enda þótt breikkun Gullinbrúar kostaði ekki nema um 200 milljónir þá sæju þingmenn meiri ástæðu til að ausa milljörðum í fáfama heiöa- vegi og fjarðabrýr þar sem örfáir bílar færu um daglega. Það stæði hins vegar í þeim að koma 20 þús- und manna hverfi í bærilegt vega- samband við næsta umhverfi þess. Friðrik sagði að einnig væri lög- gæsla í hverfínu vanrækt af hálfu hins opinbera, húsnæðis- og aðstöðu- leysi stæði íþrótta-, tómstunda- og fé- lagsstarfl fyrir þrifum og kirkja hverfisins væri vart hálfbyggð enn. Af þessum ástæöum öllum væri hverfið, sem var óskabarn þegar það var stofnað fyrir 15 árum síðan, orðið homreka. Fasteignaverð sem var hið hæsta á Reykjavíkursvæð- inu fyrir áratug væri nú orðið eitt hið lægsta. „Nú hlæja menn að Grafarvogi og horfa til Kópavogs." Friðrik sagði aö það væri ský- laus krafa Grafarvogsbúa að þegar í stað yrði hafist handa við breikkun brúarinnar og vegarins að henni beggja vegna og að verkinu yrði lok- ið strax næsta haust. Jafhframt yrði að endurbæta gatnamót Víkurvegar og Vesturlandsvegar sem varla anna núverandi umferö. Þingmenn ókátir Þeir alþingismenn sem til máls tóku eftir framsöguræðu Friðriks vom flestir heldur óhressir með ádrepu formanns íbúasamtakanna. Þeir kváðust allir vinna að heill hverfisins og Reykvíkinga. Hvað varðaði kirkjulegt starf og íþrótta- starf þá væri það einfaldlega ekki á valdi þingmanna á nokkum hátt. Svavar Gestsson sagði að ádrepa Friðriks Hansen hefði verið þörf áminning til þingmanna um að þeir héldu vöku sinni. Hann taldi fund- inn óvenjulegt framtak og mjög þarft og gæti orðið upphaf að hverfahreyfingu þar sem íbúar tækju sjálfir á málum sem snertu þá beint. Hann minnti á að íbúar Graf- arvogs væm jafhmargir og saman- lögð íbúatala tveggja kjördæma noröur af Reykjavík og það væri umhugsunarefni hvort skipta ætti Reykjavík upp í fleiri en eitt kjör- dæmi. Á fundinum talaði einnig Stefán Hermannsson borgarverkfræðingur. Hann sagði að framkvæmdir við veg- inn beggja vegna Gullinbrúar gætu hafist strax í maí og þeim lyki í haust. Hins vegar yrði að bíða næsta vors þar á eftir til að Ijúka við að breikka sjálfa brúna þannig að fram- kvæmdinni yrði að fullu lokið vorið 1999. Miðað við allar aðstæður og umferðarþunga þá mætti þetta telj- ast boðleg lausn á málinu. -SÁ Úrskurður Kjaranefndar um starfskjör heilsugæslulækna: Byltingarkennd breyting á kjörum Læknar kynntu í gær niðurstöðu Kjaradóms varðandi launakjör heilsugæslulækna. DV-myndir Pjetur Kjaradómur birti í gær niður- stöðu sína í kjaramálum lækna. Niðurstaðan felur aö mati heilsu- gæslulækna í sér mikla breytingu á kjömm og starfsumhverfi lækna. Stærstu þættir úrskurðarins em þeir að vægi fastra launa er aukið á kostnað verktakagreiðslna, mánað- £u:laun lækna verða miðuð við að þeir þjóni allt að 1500 manns og auk þess era laun heilsugæslu- og hér- aðslækna, í úrskurði Kjaranefndar, miðuð við laun sjúkrahúslækna og verða vaktagreiðslur svipaðar og á sjúkrahúsum. Gunnar Ingi Gunnarsson, sem hefur farið fyrir viðræðunefnd lækna, telur að úrskurðurinn muni hafa það i for með sér að hjá þeim læknum sem búið hafa við undir- mönnun og mikið álag muni tekjur lækka verulega. Hann telur hins vegar að vaktakjör dreifbýlislækna muni batna og að flestir dreifbýlis- lækna fái töluverðar kjarabætur út úr þessum úrskurði. Gunnar sagði að úrskurðurinn myndi hafa ófyrir- sjáanlegar afleiðing- ar fyrir mönnun í heilsugæslunni. Hann sagði einnig í samtali við DV í gær að hann teldi að úrskurðurinn myndi gera „gamla og mikla þörf fyrir tilvísanakerfi aö al- gjörri nauðsyn". Katrín Fjeldsted, formaður Félags ís- lenskra heimilis- lækna, var ekki sátt við að laun sumra lækna myndu lækka. Hún telur að nær hefði verið að miða laun heilsugæslulækna við sjúkrahúslækna með svokallað helgunarálag, þ.e. fá sérstaka þókn- un fyrir að starfa eingöngu hjá sjúkrahúsinu en ekki á eigin veg- um. Gísli Baldursson, sem starfað hefur á Heilsugæslustöðinni á Egils- stöðum, var mjög óánægður með þau kjör sem læknum var boðið upp á og fullyrti að stór hluti lækna myndi lækka í launum við þennan úrskurð. Valþór Stefánsson, heilsugæslu- læknir á Akureyri, sagði að það væri að mörgu leyti fagnaðarefni að hækka fóst laun lækna og það væri hið besta mál. Hins vegar tæki þessi úrskurður ekki á því að vinnuálag- ið væri meira en vinnuvikan segði til um. I úrskurðinum væri gengiö út frá því að mönnun væri nægileg og því kæmi tvennt til: annaðhvort minnki þjónustan eða læknar vinni án greiðslu, en samkvæmt úrskurð- inum er ekki greitt fyrir vinnu eftir venjulega dagvinnu. -sm Stuttar fréttir dv Aðalfundur SH 277 milljóna hagnaður var hjá SH í fyrra. Tilboðum í 5% hlutabréfa í fyrirtækinu var hafnað í gær. Rakel 01- sen fór i stjórn SH í stað Kristjáns Jóakimssonar sem gaf eftir sæti sitt. RÚV og Stöð 2 sögðu frá. Fjórar systur ákærðar Fjórar systur hafa verið ákærðar fyrir þjófhaö, fjársvik og fleiri brot. Ein systranna er einnig ákærð í öðm máli fyrir stuld úr 24 búðum. Hún er eig- andi íbúðar í Meðalholti sem kvartað hefúr verið yfir. Dagur greindi frá. Níels skipaður Níels Einarsson mannfræð- ingur hefur verið skipaður for- stöðumaður Stofnunar Stefáns Vilhjálmssonar á Akureyri. Sex umsækjendur vora um stöðuna og mælti stjóm stofnunarinnar einróma með Níelsi í stööuna. Áhugafélag í gær var stofnað áhugafélag um Sundabraut. Flestir í hópn- um koma úr röðum sjálfstæðis- manna. Talið er að heildarkostn- aður við Sundabraut geti numið allt að 8-10 milljörðum króna. Dagur greindi frá. Arthur Treacher’s vex Arthurs Treacher’s Inc. hefúr gert tilboð um kaup á Miami Subs Corp. en það rekur 192 veit- ingastaði. Fyrir á AT yfir 200 veitingastaði. Tilboðið kemur til athugunar, að mati Miami Subs. Morgunblaðið greindi frá. Heimilislæknar Stjórn Félags íslenskra heim- ilislækna fór í morgun á fund heilbrigðisráð- herra til að at- huga afdrif samkomulags- ins sem nefnt hefur verið 21 punktur. Sam- komulagið var gert í deilu heilsugæslulækna sumarið 1996 og kveður á um miklar umbæt- ur í heilsugæslukerfínu. Minningarteppi Alnæmissamtökin á íslandi hafa ákveðið að gefa eftirlifandi aðstandendum þeirra sem látist hafa úr alnæmi kost á að taka þátt 1 gerð minningarteppa sem eigi annars vegar að minna á sjúkdóminn og hins vegar aö heiðra minningu þeirra sem lát- ist hafa úr sjúkdómnum. Jóhann ekki í framboð Jóhann G. Bergþórsson býður ekki fram tU bæjarstjómarkosn- inga í vor. Aðrir í flokksbroti Jó- hanns munu hafa fúllan hug á framboði en ákvörðunar um það bíður næstu vikna. Stöð 2 sagði frá. Áfrýjun kortafyrirtækja Áfrýjunarnefnd samkeppnis- mála staðfesti í gær úrskurð Samkeppnisráðs í máli kortafyr- irtækja og kaupmanna. GUdis- tökunni var frestað tU 1. októ- ber. Einn nefndarmanna skUaði séráliti. RÚV greindi frá. Grunur um hestaveiki Eitt tUfelli hefur komið upp í Eyjafirði þar sem hross veiktist. Ekki er vitað hvort um sömu veiki er að ræða og þá sem greinst hefur á Suðvesturfandi. Morgunblaðið greindi frá. Eyþór ræðismaður Eyþór Amalds, tónhstarmaður og margmiðlun- aifrömuður, hef- ur fengið viður- kenningu sem kjörræðismaður Áfríkuríkisins Botswana. Ní- gería og Egypta- land stóðu honum einnig tU boða. Dagur greindi frá. -sm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.