Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1998, Side 4
4
MIÐVTKUDAGUR 4. MARS 1998
Fréttir
Free Willy-menn ánægðir með fund sinn og forsætisráðherra:
Heimsathygli
ef Keikó kemur
„Ef okkur verður gert kleift að
flytja Keikó yfir Bandaríkin og alla
leið aftur til heimkynna sinna í
Norður-Atlantshafmu á seinni hluta
árs 1998 verður það einn vinsælasti
og mest umfjallaði atburður á ári
hafsins. Þetta mun meðal annars
þýða mikinn efnivið í fréttir um all-
an heim og hafa mikla þýöingu fyr-
ir ísland,“ sagði David Phillips,
einn talsmanna samtakanna Free
Willy á Hótel Borg í gær að loknum
fundi þeirra með forsætisráðherra.
„Ég hefði aldrei trúað því fyrir
fram hve mikla athygli flutningur
Keikós frá Mexíkó tíl Oregon hafði
áriö 1996. Þess vegna held ég að eng-
inn geti í raun ímyndað sér hvaða
athygli flutningurinn til íslands
muni hafa,“ sagði Phillips.
Robert Ratcliffe, aðstoðarforstjóri
samtakanna, sagðist vera yflr sig
ánægöur með fundinn með Davíð
Oddssyni í gærmorgun. Ráðherra
hefði verið jákvæður og tekið erindi
um flutning Keikós til íslands með
sérstaklega opnum hug.
Ratcliffe sagði aö Bandaríkja-
mennimir hefðu getað svarað öllum
þeim spumingum sem fyrir þá vom
lagðar með ráöherra og fleiri spum-
ingum ætti enn eftir að svara þegar
málið yrði unniö frekar á næstu
mánuðum.
Dr. Lanny Cornel dýralæknir
lagði, ásamt Ratcliffe og Phillips,
ríka áherslu á að heilsa Keikós væri
eins og best væri á kosið. Sennilega
hefði heilsufar fárra dýra í heimin-
um veriö eins vel rannsakað.
Þegar og ef Keikó verður fluttur
til íslands mun hann að líklega
verða fluttur með 747 flutningavél
frá vesturströnd Bandaríkjanna yfir
til austurstrandarinnar. Þar verður
hann fluttur yfir í aðra vél sem fer
með hann til íslands, væntanlega
Keflavikurflugvallar. Þó er ekki
talið fullkannaö hvort hægt sé að
nota Egilsstaöaflugvöll ef til þess
kæmi aö Eskifjörður yröi sá bær
Robert Ratcliffe heilsar Davíb Oddssyni. Á milli þeirra er David Phillips sem
segir að væntanlegur flutningur Keikós til íslands muni hafa mikla þýöingu
fyrir (sland. DV-mynd ÞÖK
sem tæki við Keikó.
Bandarikjamennimir sögðu að ís-
lendingar mundu m.a. njóta góðs af
því með fræðslu í skólum þegar
Keikó yrði fluttur til landsins. Þeir
sögðu einnig að íslendingar mundu
á engan hátt koma til með aö bera
kostnaö af flutningnum eða því þeg-
ar hann yrði hafður í sérsmíðaðri
kvi áður en honum yrði sleppt. Á
hinn bóginn mundu íslendingar
njóta góðs af vísindarannsóknum
auk atvinnutækifæra þessu tengdu.
Ljóst er að einungis flutningurinn
frá Bandaríkjunum til íslands mun
kosta vel á annað hundrað milljónir
króna. -ótt
Áhrif Hvalíjarðarganga á Akranes:
Hafnfirskir kratar:
Bæði góð og óæskileg
- telur Gísli Gíslason bæjarstjóri
Bæjaryflrvöld á Akranesi kynna í
dag stefnumótun sem þau hafa látið
vinna vegna þeirra breytinga sem
væntanlega verða á Akranesi við
tilkomu Hvalfjarðarganga.
Gísli Gíslason, bæjarstjóri á
Akranesi, telur aö áhrifm af stytt-
ingu leiðarinnar til höfuðborgar-
svæðisins veröi bæði jákvæð og
óæskileg áhrif. Það stærsta sem
nefnt er sem neikvæð áhrif er að
siglingar Akraborgarinnar leggist
af og það hafi áhrif á atvinnulíf og
ímynd Akraness. Menn þurfl einnig
að vera vakandi á sviöi verslunar.
Hann segir aö Akranes komist aö
minnsta kosti nær hringveginum en
þaö velti mjög á Akumesingum
sjálfum aö laöa fólk að. Hann nefhir
í þvl tilliti aö stefnt sé aö því að á
næsta ári verði tekinn í notkun 18
holu golfvöllur. -sm
Lel&ln frá Akranesi til Reykjavfkur styttist um 60 km og tfminn sem fer&in
tekur styttist um u.þ.b. 40 mfnútur me& tilkomu ganga undfr Hvalfjörö.
DV-mynd ÞÖK
Prófkjörsframbjóð-
endur sögðu nei
Sfjóm fulltrúaráðs Alþýöu-
flokksins í Hafiiarfirði samþykkti
á fúndi í fyrradag tillögu þar sem
mælt var meö aö prófkjöri yrði
frestað um viku. Tillagan var
hins vegar tengd því aö einhugur
næðist um tillöguna meöal þeirra
14 prófkjörsframbjóðenda sem
höfðu sett nöfh sín á lista. í lok
fundarins vom prófkjörsfram-
bjóðendur boðaðir til fúndar og
reyndíst þá meirihluti þieirra
mótfallinn hugmyndum stjómar
fulltrúaráös um frestun. „Ég get
alveg tekiö undir það að á fundin-
um vom umræður þess efiiis aö
menn ættu aö fresta prófkjörinu
um eina viku til þess að geta met-
iö þennan nýja vettvang sem
grasrótarsamtökin eru. Viku-
frestun á prófkjöri hefði gefiö
okkur meira svigrúm og það var
auövitað uppi á boröinu að fresta
þessu. Frambjóðendumir komu
síðan í hús klukkan níu og eftir
aö farið hafði verið yfir stöðuna
með þeim var alveg ljóst aö flokk-
urinn myndi standa við fyrri
ákvörðun um aö fara í opið próf-
kjör og halda sig við þegar
ákveönar tímasetningar. Meiri-
hluti þeirra var á móti freshm,“
sagöi Gunnar Svavarsson, vara-
formaður fulltrúaráös Alþýöu-
flokksins í Hafnarfiröi, í samtali
viö DV í gær. „Hins vegar tel ég
víst að við munum taka þátt i
þessum nýja vettvangi, aö svo
miklu leyti sem okkur er þaö
kleift af þeirra hálfu, því eins og
viö höfúm sagt er mjög lítill mál-
efiialegur ágreiningur milli Al-
þýðubandalags og Alþýðuflokks,"
sagði Gunnar Svavarsson. -phh
Dagfari
Tækjalaus þjóð
Já, við íslendingar erum alltaf
að græða. Þegar ELKO var opnað
um síðustu helgi varð aldeilis
handagangur í öskjunni. Ekki
bara það að örtröð myndaðist í
hinni nýju stórverslun, þar sem
starfsmenn þurftu að hleypa inn í
„hollum“, heldur jók þessi nýja
samkeppni stórlega aðsókn og
umsvif hjá öðrum raftækjaversl-
unum á höfuðborgarsvæðinu og
var þar uppi fótur og fit. Gróðinn
flaut út um allt.
Ef einhver hefur efast um það
fyrir fram að markaöurinn væri
mettaður og nóg væri af raftækja-
verslunum hurfu þær efasemdir
eins og dögg fyrir sólu. Þvert á
móti færði þetta heim sanninn
um að hér var brýn þörf fyrir
nýja verslun og veitti ekki af.
Það kom nefnilega í ljós um
helgina að íslendinga vantaði sár-
lega þessi tæki sem raftækjaversl-
anir hafa á boðstólum og ástand-
ið minnti einna helst á eftirstríðs-
árin þegar skömmtunarleyfi voru
gefin út fyrir skófatnaði. Þá vant-
aði íslendinga stórlega skóbúnað
vegna innflutningshafta I kjölfar-
ið á gjaldeyrisskortinum og það
mynduðust biðraðir við allar skó-
verslanir í bænum þegar birgðir
bárust samkvæmt skömmtuðum
leyfúm og kvótum.
Nú er þessu að vísu öðruvísi
farið, enda verslun að mestu leyti
frjáls, en það segir nokkuð um
frelsiö að þegar ELKO er opnað
og býður nýja prísa verður allt
vitlaust i bænum og fjölskyldu-
feður og jafnvel heilu fjölskyld-
urnar ryðjast inn í búðirnar til að
ná sér í tæki. Sem sýnir að frels-
ið í viðskiptum er ekki allt og það
er mikill skortur á margvíslegum
nauðsynjatækjum og nýjar versl-
anir og ný þjónusta og nýtt verð-
lag hleyptu lífi í þessi viðskipti.
Fólk bókstaflega braust áfram í
biðrööunum og keypti allt sem
hönd á festi og maður getur
ímyndað sér að svona hafi fólk
hagað sér í Albaníu þegar dymar
til frjálsræðisins opnuðust upp á
gátt og svona var umhorfs í
Moskvu hér um árið þegar
kommúnisminn laut í lægra haldi
fyrir neysluþjóðfélaginu.
Það var þess vegna mikil guðs-
blessun að ELKO skyldi opnað.
Annars hefðu íslendingar enn þá
verið á Albaníustiginu, allslausir
og tækjalausir. Það er að minnsta
kosti ekki annað að merkja við
eftirvæntinguna, aösóknina og
kaupin en að loksins hafi þjóðin
geta eignast þau raftæki sem sið-
menntaðar þjóðir nú til dag
brúka til heimilisstarfa og afnota.
Sjónvörp, útvörp, ryksugur, ör-
bylgjuofhar, frystigræjur, geisla-
diskar og jafhvel brauðristar, allt
rann þetta út eins og heitar
lummur.
Og allt í einu gátu allar aðrar
raftækjaverslanir snarlækkað
prísana hjá sér og sumir lofa því
meira að segja að gefa meiri af-
slátt ef viðskiptavinurinn getur
sýnt fram á að viðkomandi tæki
fáist ódýrara annars staðar.
Allt hlýtur þetta að vera finn
bisness og maður spyr forviða
hvers vegna skyldi verslunareig-
endum ekki hafi dottið þetta fyrr
í hug að lækka verð úr því þeir
gátu það núna, ekki síst þegar eft-
irspurnin er slík að sölufólkið
hefur ekki undan.
Allavega getur maður ekki ann-
að en fagnað þeim íslendingum
sem komust fyrstir í biðraðirnar
til að ná sér loksins í þau tæki
sem skorti inn á heimili þeirra.
Menn eru alltaf að græða.
Dagfari