Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1998, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1998, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1998 7 ÉBÉÉÉÉBM Allaballar á hvolfi MikUl skjálfti er 1 þingliöi Al- þýðubandalagsins eítir hvassa grein Guðmundar Andra Thorssonar, rithöfundar og pistlahöfundar, í Degi í fyrri viku. Þar tók Guðmund- ur Andri þá þing- menn í gegn sem harðast hafa beitt sér gegn samein- ingu vinstri manna og var óblíður á manninn við Stein- grím J. Sigfússon. Þessu svaraði Svavar Gestsson þegar í stað með heilsíðugrein og var harðorður í garð skáldsins. Guðmundur Andri er þegar búinn að svara Svavari og úr Alþýðubandalaginu fréttist að bæði Steingrímur J. Sigfússon og Hjörleifur Guttormsson hafi ritað harðorðar greinar... Útvarp Akranes Á næstunni fá Skagamenn að hlusta á sitt eigiö útvarp. TOdrög þess voru að bæjarstjómin velti fyrir sér að hefia útsendingar frá fundum sinum. Bjöm S. Lárus- son, márkaðs- og ferðamáiafúlltrúi bæjarins, stakk þá upp á að nokkrum sinn- um í viku yrði út- varpað fréttum frá Skaganum og nágrenni auk lýsinga á íþrótta- leikjum. Þetta þótti Gísla Gísla- syni bæjarstjóra þjóðráð og hafa menn ráðist í kaup á sendi sem út- varpar yfir Skagann, Melasveit og Skilmannahrepp. En sendingar munu einnig nást í vesturbænum í Reykjavík. „KR-ingamir verða að geta hlustað i beinni þegar við vinnum þá,“ er mælt að Gísli bæj- arstjóri hafi sagt en hann lék einmitt með meistaraflokki KR á yngri árum, bæði I körfú og knatt- spymu... Kristín kortleggur Aðstoðarkona Ingibjargar Sól- rúnar Gisladóttur borgarstjóra, Kristín Ámadóttir, hefur undan- fama daga farið mik- inn i símanum og hringt í stjómar- menn íbúasamtaka Grafarvogs og þrá- spurt um hverjir séu í íbúasamtök- unum, hve lengi þeir hafi verið í þeim og hversu virkir. Þá hefúr hún sóst eftir að fá allar fundasamþykktir samtak- anna sendar til sin. Félagsmáia- frömuðir í Grafarvogi em nokkuð undrandi á þessu og finnst þessi nýtilkomni áhugi heldur óþægileg- ur og grunar að verið sé að gera einhvers konar kortlagningu hins pólitíska landslags í hverfinu og að aðstoðarkonan sé að raða at- kvæðunum á rétta pólitíska bása i upphafi harðvítugs kosninga- slags... Hallarbylting Þorvaldur K. Þorsteinsson, sem var framkvæmdastjóri Skíf- unnar í rúman áratug, er ásamt Óttari Halldórs- syni hjá ísflex stór eigandi hjá Jöfri. Báðir eru þeir að- ilar að Isflex sem er umsvifamikið á sviði fjárfest- inga og inn- flutnings. Þor- valdur er jafnffamt orðinn stjórnarformaður Jöfúrs. Guðjón Ármann Jónsson er áfram stærsti hluthafinn í Jöfri en tilkoma félaganna inn í reksturinn mun vera til að bjarga fyrirtækinu sem átt hefúr i nokkrum rekstrar- erfiðleikum... Fréttir Umsjón Reynir Traustason Bensínlækkun um krónu: Minna og seinna en vænta mátti - segir framkvæmdastjóri FÍB „Runólfur Ólafsson, ffamkvæmdastjóri Félags ísl. bifreiðaeigenda, segir að einnar krónu lækkun sem varð á bensinlítranum um helgina sé bæði minni en búast hefði mátt við miðað við verðþróun á heimsmarkaði og komi auk þess mun seinna en mátt hefði vænta miðað við fyrri yfirlýsingar stjómenda olíufélaganna. „Lækkunin nú hlýtur að vera undanfari meiri lækkunar því það liggur fyrir að heimsmarkaðs- verð hefur verið að lækka frá sl. hausti um 3,50 krónur á lítr- ann. Þar sem ríkið leggur 97% vöru- gjald á bensín og síðan leggst virðis- aukaskattm- þar ofan á það og á þóknun olíufélaganna, þá er borð- leggjandi að kostnaðarverð olíufé- laganna hefúr lækkað á um áttundu Bensínveröið lækkar rólega ef miðaö er við heimsmarkaðsverð. krónu hver lítri. Þeirrar lækkunar hafa neytendur ekki fengið að njóta nema að litliun hluta því að hér hef- ur bensín til neytenda einungis lækkað um 4,40 frá þvi að bensín hækkaði síðast í ágústmánuði," sagði Runólfur Ólafsson. -SÁ Skagaijörður: Vilja prestinn í efsta sætið DV, Sauðárkróki: Sjáifstæðismenn hafa leitað til séra Gísla Gunnarssonar um að hann gefi kost á sér í efsta sæti framboðslista flokksins fyrir sveitarstjómarkosn- ingamar í Skagafirði í vor. Séra Gísli sagði í samtali við DV að uppstilling- amefnd væri að fjalla mn málið. Enn- þá væri ekkert ákveðið í þessum efn- um. í maílok í vor rennur út sá tími sem Gísli er ráðinn í starf sóknar- prests á Sauðárkróki í leyfi séra Hjálmars Jónssonar alþingismanns. Gísli sagðist síður geta hugsað sér að gefa kost á sér í sveitarstjómarpóli- tíkina sem sitjandi prestur á Sauðár- króki. Hugur hans stefnir í Glaumbæ og eins og málin standa nú er útlit fyrir að Sauðárkróksprestakall verði aug- lýst laust til umsóknar í vor. Gísli segist ekki hafa hug á að sækja um starf sóknarprests, ekki svo að skilja að hann sé fráhverfur þvi að vera sóknarprestur Sauökrækinga heldur hitt að hann vill ekki sleppa Sjómannadeilan: Kallaðir á teppið Deiluaðilar í sjómannadeilunni gengu á fund Þorsteins Pálssonar sjávarútvegsráðherra í morgun. Talið ert að ráðherrann ætli að leggja mat á stöðu deilunnar en nú em aðeins 11 dagar þar til verkfall skellur á að nýju semjist ekki. Reiknað er með að Kvótanefndin skili tillögum sínum á morgun, fimmtudag. Næsti sáttafundur í deilunni er á fostudag. -rt Vestfirðir: Snjóflóð féll á veg Minni háttar snjóflóð féll á Sel- bólsurð í Önundarfirði á mánudag. Flóðið féll á veginn í Önundar- firði. Vegurinn lokaðist og var ófær í gær og í nótt. Vergageröarmenn mddu veginn í morgun. -RR Glaumbæ. Hvort tveggja er ekki í boði eins og prestakallamálum í hér- aði er háttað. Af framansögðu verður að telja lík- ur á að séra Gísli gefi kost á sér í efsta sæti lista Sjáifstæðisflokksins. -Þ Hverfafundir með borgarstjóra Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri heldur hverfafund með íbúum í Laugarnes-, Lækja-, Teiga-, i Langholts-, ; Sunda-, j Heima- og j t Vogahverfi ásamt Skeifunni. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 4. mars íLangholtsskóla kl. 20.00. Á fundunum mun borgarstjóri m.a. kynna áætlanir og framkvæmdir í hverfunum. Síðan verða opnar umræður og fyrirspurnir með þátttöku fundarmanna og embættismanna borgarinnar. Sýndar verða teikningar og myndir af fyrirhuguðum framkvæmdum í hverfunum ásamt öðru fróðlegu og myndrænu efni. Næsti hverfafundur með íbúum Árbæjar-, Ártúnsholts- og Seláshverfis verður haldinn mánudaginn 16. mars í Árseli kl. 20.00. Sjá hverfafundi á heimasíðu Reykjavíkurburgar: www.reykjavik.is Allir velkomnir. Skrifstofa borgarstjóra. HONDA 4 d y ra 1. 4SL 9 0 h e s t ö f 1 Traustur bíll fyrir ungt fólk á öllum aldri Innifalið í verði bílsins 1400cc 16 ventla vél með tölvustýrðri innsprautun4 Loftpúðar fyrir ökumann og farþega4 Rafdrifnar rúður og speglar4 ABS bremsukerfi4 Samlæsingart 14" dekk4 Honda teppasettí Ryðvörn og skráning4 Útvarp og kassettutæki4 Honda Civic 1.5 LSi VTEC 1.550.000,- 115 hestöfl Fjarstýrðar samlæsingar 4 hátalarar Hæðarstillanlegt ökumannssæti Sjálfskipting 100.000,- Verð á götuna: 1.455.000,- Sjálfskipting kostar 100.000,- M HONDA Sfml: 520 1100

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.