Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1998, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1998, Page 10
lenmng MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1998 Grallarar í Langholti Fyrsta íslenska sálmasöngsbókin var gef- in út hér árið 1594. Hún bar, eins og sam- bærilegar bækur í nágrannalöndum okkar, heitið Graduale en var i daglegu tali kölluð Grallarinn. Þó að orðið Graduale vísi til sálmasöngs þá voru viðfangsefni Gradu- alekórs Langholtskirkju fjölbreytt á tón- leikum þeirra á sunnudaginn. Yfir fjörutíu ungmenni sungu og undirleikur og ein- söngur voru líka í höndum Grallara, en svo kallar Jón Stefánsson kórstjóri þá sem tek- ið hafa þátt í starfi hans með kómum. Um undirleikinn sá í flestum tilfellum Lára Bryndís Eggertsdóttir og einsöng Árný Ingvarsdóttir. Efnisskráin skiptist i tvo hluta, þann fyrri íslenskan og þann síðari erlendan. Það er á engan hallað sem til heyrir þó fuO- yrt sé hér að fyrri hluti tónleikanna hafi verið hvað verkefni varðar mun athyglis- verðari að flestu leyti þó að blandan hafi heyrðist til dæmis skýrt í Maríuversi Páls ísólfssonar og annar sópran skilaði sinu mikilvæga hlutverki í fyllingu hljómanna oft sérlega vel. Ungmennin sungu verkefni af mörgum þyngdarstigum og mörg a capeUa eða án undirleiks. Þau fóru afar vel með stórgóöri útsetningu Jóns Ásgeirsson- ar á laginu Móðir mín í kví kví. Ég bið að Tónlist Sigfríður Bjömsdóttir heilsa eftir Inga T. Lárusson fékk nýja merkingu í flutningi þeirra, önnur hending lagsins alveg sérlega vel mótuð og eins og sköpuð fyrir barnakóralitinn. Að frumflytja nýja Ave Maríu er ekki metnaðarlaus verknaður. Ave María Oli- Gradualekór Langholtskirkju - mynd úr safni kórsins. verið góð líka. Uppbyggingin var markviss. Þama hljómuðu útsetningar af þjóðlögum, ættjarðarlög útsett fyrir raddskipan kórs- ins og sönglög auk trúarlegra verka bæði íslenskra og erlendra. Gradualekórinn er lifandi dæmi um það hvert hægt er að stefna í metnaðarfuUu tón- listarstarfi með bömum. Hljómurinn er hreinn og mjög bjartur, sópranar einstak- lega glitrandi eins og mátti heyra í lagi Sig- fúsar Einarssonar, Þú álfu vorrar yngsta land. Altraddir höfðu mjúkan hljóm sem vers Kentish fyrir bamakór og orgel er tU- einkuð kómum sem bætti upp örlítið ör- yggisleysi með mikiUi einbeitingu. Þetta er hægt og seiðandi línulegt ferðalag gegnum skylda hljóma og áhrifin sumpart eins og tíminn hafi staðið kyrr á meðan. Salutatio Marie eftir Jón Nordal geymir aUt önnur áhrif. Þar er ferðast hratt í tilfmningaríku ákaUi. Flutningur var góður og minningin um yfirtóna hinna björtu radda titrandi og dansandi við hlustirnar lifir lengi í hug- skotinu. Hógværð undirleikarans kom í nokkmm verkum óvenjufaUega út, píanóið eins og meira litaði raddimar, var undir- leikur í orðsins bókstaflegu merkingu. Kaflar úr bamamessu eftir Einojuhani Rautavaara vöktu hjá undirritaðri hvað mesta forvitni. Af Kyrie og Gloria að dæma er þama á ferðinni stórgott verk sem nauð- synlegt er að fá að heyra í heUd sinni. Ein- söngsstrófurnar vom sérstakar og vel flutt- ar. Dögun atvinnumennsku! Þó svo að á þessum tónleikum hafi flotið með verkefni sem ekki kannski telst til viðburða að flutt séu þá voru þarna nógu mörg ný og metnaðarfuU verkefni til þess að fuUyrða að þama hafi verið um mikUvægan tónlistarvið- burð að ræða. Atvinnumennska ungra söngvara þekktist hér á öldum áður og margir mestu snillingar vestrænnar tónlistarsögu unnu einmitt fyrir sér sem kórsöngvarar í æsku. Hér bera böm út blöð og sendast og þiggja fyrir laun. Að halda uppi starfi sem fýlgir eftir metnaði af því tagi sem þama var er mikU vinna. MikU vinna fyrir kór- stjórann en líka mikil vinna fyrir börnin. Það er spuming hvort kannski sé kominn tími til að líta aftur á böm sem mik- Uvæga tónlist- arflytjendur og stofha kór fyrir böm sem vflja sinna þessu sem slíku. Bamaraddir geyma sérstaka birtu og listrænan yl sem ekki er hægt að nálgast með öðmm hætti og tónskáld víða greinUega farin að semja fyrir þau vegleg verk. Áhugamennska í listum hefur fleytt okk- ur ótrúlega langt en henni eru sett mörk og við erum komin að þeim mörkum á sorg- lega mörgum sviðum listalífs okkar. Látum þetta ekki verða enn eitt svið vonbrigða og stöðnunar heldur nýtum slagkraft mikUs vaxtar, færum okkur inn á næsta svið og sköpum nýja hugsun og ný tækifæri. Hugleiðingar um heimstónlist Fábreytni í tónlistarvali útvarpsstöðva hérlendis er aUt of mikU þó að þær gefi sig út fyrir að leggja áherslu á mismunandi tónlistarflutning. En sem betur fer era ýmsir möguleikar tU handa þeim sem kjósa að láta ekki útvarpsstöðvar og misgott dag- skrárgerðarfólk matreiða ofan í sig músík. Margir hafa sínar eigin leiðir tU að út- vega sér músík á geisladiskum eða hljóm- plötum sem ekki er hægt að nálgast í plötu- verslunum og þeir sem hafa aðgang að Net- inu eiga þess kost að komast inn á síður sem bjóða upp á tónlist af ýmsu tagi - suma þess eðlis að ekki er hægt að komast í tæri Tónlist Ingvi Þór Kormáksson við hana á annan hátt. Ekki er þar með sagt að hún sé öU merkUeg. Hægt er að kaupa þessa músík, bæði í gegnum póst- kröfur og með greiðslukortanúmerum og fá hana senda í pósti. Einnig er að verða mögulegt að kaupa stök lög, eitt eða fleiri, gegnum Netið og hlaða niður hjá sér. í þeim tilvikum þarf ekki að kaupa heUan disk, plötu eða snældu. í plötuverslunum má líka finna eitt og annað athyglisvert. TU að mynda hefur framboð á heimstónlist vaxið á síðustu árum. Þar er að nokkra leyti plægður akur fyrir þá sem era orönir þreyttir á vestrænu síbyljupoppi en hafa ekki geð í sér til að fara yfir í klassík, djass eða blús. Vilja eitthvað annað spennandi Hluti þeirrar tónlistar sem einu sinni var köUuö þjóðlagamúsík nefnist nú heims- tónlist. Innan þeirrar kategoriu rúmast bæði framsamin tónlist, sem er að ein- hverju leyti einkennandi fyrir þjóðir, þjóðabrot eða landsvæði, og einnig upp- ranaleg þjóðlög. Þegar heimstónlist er annars vegar dett- ur manni kannski fyrst í hug panflaututón- list frá Perú, seiðandi afrískur trambuslátt- ur, sítartónlist frá Indlandi eða eitthvað í þeim dúr - fjarlægt og kannski svolítið framandi. En við getum litið okkur nær. Annar tveggja hljómdiska sem snúast mest í spflaranum hjá mér um þessar mundir inniheldur músik með grískum söngvara og lagasmið, George Dalaras. Hann er ein- hver alvinsælasti tónlistarmaður Grikk- lands undanfarin 30 ár og er þá Þeódorakis meðtalinn, en þeir hafa reyndar unnið sam- an. Dalaris hefur sent frá sér 48 breiðskífur og hljómdiska sem selst hafa í meira en sjö mUljónum eintaka. Tónlist hans er mjög persónuleg en jafnframt hefðbundin grísk blanda flutt með nútimahljóðfærum eins og rafbassa í bland við klassískari hljóðfæri á borð við búsúkí. Sterk áhrif er að finna frá Norður-Afríku, Litlu-Asíu og Balkanlönd- um, einnig býsönsk áhrif blönduð austur- lenskum hefðum og gríski blúsinn, rem- betiko. Þetta er seiðmögnuð tónlist, Dalaris er finn söngvari og flutningur er góður. Helmingur laganna 18 er tekinn upp á tón- leikum. Hinn diskurinn er með músík frá Portú- gal og ekki síöur áhugaverður. Þetta er safndiskur, einnig með 18 lögum sem flutt eru af 12 hljómsveitum og einstaklingum. Músíkin er frá ýsmum tímum og lista- mennirnir á ýmsum aldri. Upp- tökumar eru þó flestar ný- legar. Sum lögin eru sungin, önnur ein- ungis leik- in og hljóð- færaskipan er af ýmsu tagi. Ekki er þetta eingöngu fadotónlist þótt fado komi auð- vitað við sögu held- ur líka kammermúsík, nútímatónlist og jafnvel popp. Þetta er fjölbreytt og oft ein- staklega sterk og áhrifamikil tónlist. Báðir þessir diskar era gefhir út af Hemisphere sem er ein af þeim mörgu útgáfum sem sér- hæfa sig í heimstónlist. Hvað varð annars um þáttinn „Tengja" á rás 2? Var hann aftengdur? George Dalaris: A Portrait EMI Hemisphere 1997 Music from the Edge of Europe EMI Hemisphere 1997 Þau vildu Kaffi Sýningu Þjóðleikhússins á Kaffi sem Bjami Jónsson samdi og Viðar Eggertsson leikstýrði hefur verið boðið á leiklistarhátíðina í Bonn í júni í sumar. Þetta er mikill heiður, ekki aðeins fyrir Kaffi og aðstandendur þess heldur fyrir ís- lenska leiklist yfir höfuð. Hátíðin er haldin ann- að hvert ár og þangað er boðið nýjum verkum, nýrri evrópskri leiklist. Evrópulöndin eru nú 39 en til Bonn er aðeins boðið 22-24 sýningum í hvert skipti þannig að mörg lönd verða útundan. Hátíðin er í sumar haldin í fjórða sinn og þetta er í þriðja skipti sem okkur er boðið að vera með. Áður fóra til Bonn sýning Þjóðleikhússins á Haf- inu eftir Ólaf Hauk Símonarson og sýning Hafn- arfjarðarleikhússins Hermóðs og Háð- varar á Himnariki eftir Áma Ibsen. Það er þrekvirki út af fyrir sig að komast að strax með þriðju sýningu á þessa merku hátíð. Enn þá skemmti- legra er þó að þýska leikhúsfólkið sem kom hingað fyrir tiu dögum til að sjá sýningar var alveg dolfailið yfir gæðum sýninganna sem það sá. Þetta voru tvö þekkt leikskáld, Ursula Ehler og Tan- kred Dorst - en hann er einn frægasti rithöfund- ur samtímans í sínu heimalandi. Þau sáu fimm ný íslensk verk hér á aðeins tveim dögum - Kaffi, Grandaveg 7, Ástarsögu 3, Meiri gauragang og Siðasta bæinn í dalnum - og tilkynntu að ekkert Evrópuland annað státaði af annarri eins grósku. Meira um Dorst Og úr því farið var að minnast á Tankred Dorst er freistandi að minna á að eitt verk eftir hann hefur verið sýnt hér á landi, Sannur karlmaður sem Þjóðleikhúsið setti upp fyrir fáeinum árum undir leikstjóm Maríu Kristjánsdóttur. Hann hefur skrifað nokkur menningarpólitísk (og beinlínis pólitísk) leikrit um skáld og rithöf- unda og örlög þeirra, til dæmis fjallar hann í verkinu ísöldinni um samskipti Knuts Hamsuns við nasista á stríðsárunum. Um- sjónarmaður menningarsíðu átti því láni að fagna í nóvember sl. að sjá sýningu á einu nýjasta verki hans í Hamborg sem fjallar líka um skáld á viðsjárverðum tímum. Það heitir Harrys Kopf eða Höfuð Harrýs og sýnir líf og tíma ljóð- skáldsins Heinrichs Heine í sterk- um svipmyndum með afdráttar- lausri skírskotun til samtímans. Þetta verk og fleiri skrifaði hann í samvinnu við Ursulu Ehler sem var með honum hér. Harrys Kopf er magnað verk, vitsmunalegt og pólitískt; einhver ætti að semja slíkt verk um samtímamenn Heines og aðdáendur hans, Fjölnismenn. Tankred Dorst er jafngamafl Thor Vilhjálms- syni, fæddur 1925, og næstum því alveg jafn sprækur. Hann er leikhúsmaður af lífi og sál og í leikskrá með Sönnum karlmanni er haft eftir honum að leikhúsið sé merkasta uppgötvun mannsandans - ásamt hjólinu og eldinum. Sýnt inn í himnaríki og helvíti Og meira um leikhús. Haukur Gunnarsson er leikhússtjóri Háloga- landsleikhússins í Tromsö í Noregi og þar gerði hann fyrstu tiiraun sina á laugardaginn til að kynna íslensk leikrit í Norður- Noregi, segir ffétta- ritari DV í Osló. Verkið sem hann valdi var Himna- ríki eftir Árna Ibsen og er skemmst frá því að segja að sýningunni er tekið með kostum og kynjum, bæöi af staðarblöðum og Oslóarblöðum. „Brjálæð- islega fyndinn gamanleikur - en kannski of mikill hamagangur fyrir áhorf- endur af eldri kynslóð," segir einn gagnrýnandi. „Góð leiksýning með al- varlegum undh-tóni,“ segir annar, „mikiö er vissulega gert til að fá fólk til að hlæja en um leið hefur leikrjtið mikil- vægan boðskap fram að færa.“ Og stærsta blað Noregs, Verdens gang, gefur sýningunni fjórar stjörnur af sex möguleg- um, segir að bygging verksins sé snjöll, leikm-- inn fyndinn og áhorfend- um sé sýnt bæði inn í himnaríki og helvíti. Athygli hefur vakið í Noregi að þýðandi verks- ins er tvítug stúlka sem Úr rómaðri sýningu Hafn- kann enga jsiensku en ■Hssrss*.,„j «'■ ®-ku tllBonnésínumtíma. 'neð hltðsjon af fntnt- texta. Hún fær mikið hrós í umsögnum fyrir að hafa komið verkinu yfir á eðlilegt unglingamál. Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.