Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1998, Síða 17
17
F
MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1998
Fréttir
Vestfirðir:
Ætlum að uti-
loka vímuefni
- segir Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra
Forsvarsmenn ísaljarðarbæjar,
Bolungarvíkurkaupstaðar og Súða-
víkur skrifuðu nýverið undir samn-
ing um forvamarstarf í fíkniefna-
málum við SÁA og heilbrigðisráðu-
neytið sem verður stýrt af fram-
kvæmdahópnum VÁ-VEST.
Fór undirskriftin fram í fundar-
Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Útflutningsráös, útskýrir hér ýmsa
þætti varðandi heimssýninguna í Lissabon. DV-mynd S
Heimssýningin 1998 í Lissabon:
Hugmynd um að
kynna ísland á
víðtækan hátt
Starfsmenn Útflutningsráðs
hafa sett fram hugmynd um hvem-
ig nota megi Heimssýninguna
EXPO 1998 í Lissabon í Portúgal
sem lið í víðtækri kynningu á ís-
landi og sjálfbærri nýtingu auð-
linda.
Þetta var kynnt á blaðamanna-
fundi sem haldinn var í tilefni
kynningar á heimssýningunni. Jón
Ásbergsson, framkvæmdastjóri Út-
flutningsráðs, sagði að þema sýn-
ingarinnar, nýting og varðveisla
hafsins, höfðaði mjög til íslend-
inga. Þarna gæfist gott tækifæri til
að kynna hvernig íslendingar
nýttu auðlindir hafsins. Jón sagði
að í þeim efnum hefðu íslendingar
margt fram að færa á alþjóðavett-
vangi. Einnig gætu íslendingar
notað þetta tækifæri til að kynna
gæði íslenskra sjávarafurða og
mikilvægi sjávarútvegs fyrir ís-
lendinga.
Hugmyndin er að nota efni sýn-
ingarinnar í Lissabon á minni sýn-
ingum, t.d. sjávarútvegssýningum
óg ferðamálasýningum og ekki síst
heimssýningunni árið 2000 í
Hannover í Þýskalandi. Hugmynd
þessi hefur verið kynnt nokkram
íslenskum fyrirtækjum sem rætt
hefur verið við vegna sýningarinn-
ar í Lissabon. Hefur hugmyndinni
verið almennt vel tekið.
Útflutningsráð áætlar heildar-
kostnað við sýningarþátttöku ís-
lendinga nær 75 milljónir króna.
Þar af er áætlað að hönnun og
smíði sýningarkerfisins verði 30
milljónir. Ljóst er að ríkið verður
að standa undir verulegum kostn-
aði vegna sýningarþátttökunnar.
-RR
sal Stjórnsýsluhússins á ísafirði
sem var þétt setinn af þeim sem
málið snertir. Eftir undirritun
samningsins var haldin námstefna
með þátttöku rúmlega 60 lykilaðila í
samfélaginu.
Heilbrigðisráðherra, Ingibjörg
Pálmadóttir, undirritaði samning-
inn fyrir hönd ríkisins og sagði að
samningur rikisins og Samtaka
áhugamanna um áfengisvamir
gerði ráð fyrir að farið yrði í sem
flest sveitarfélög til að efla forvarn-
ir í tóbaks- og vímuefnamálum. Ráð-
herra sagði að það væri mikið gleði-
efni að vita hversu sveitarfélög, for-
eldrafélög, lögregla, heilsugæsla og
skólar hefðu tekið vel við sér varð-
andi þetta mál.
„Við ætlum að útiloka vímuefni
Ingibjörg Pálmadóttir heiibrigðisráöherra og Einar Gylfi Jónsson frá SÁÁ
skrifa undir samninginn. DV-mynd Hörður
sem steðja hér að ungu fólki. Við
erum að berjast gegn miklu afli,
gegn þeim sem eru að selja börnum
okkar í dag ýmiss konar efni sem
slævir þau og deyfir og jafnvel drep-
ur. Ég vona að þetta átak megi góð-
an ávöxt bera,“ sagði Ingibjörg ráð-
herra.
Samingurinn, sem gildir í eitt ár,
gerir ráð fyrir að sveitarfélögin
greiði samtals 450 þúsund krónur til
verkefnisins auk framlags ráðuneyt-
isins. Renna þeir fjármunir til SÁÁ
sem í staðinn leggur til sérfræðiað-
stoð. Hlynur Snorrasön, lögreglu-
fulltrúi á ísaflrði, er verkefnisstjóri
átaksins. í samtali sagði hann að
verkefnið væri mjög mikilvægt í
baráttu við fíkniefnavandann. Ráð-
gert er að vinna að verkinu samfellt
í að minnsta kosti eitt ár og er m.a.
ætlunin að halda námskeið og ráð-
stefnur fyrir heimamenn.
- HKr.
Ml IwMgfe* g§6 mMMi yti|l i
£ \íic (c Lullu. líéX\ t LALC.Iím.
föST
m
9 S*öðvar 2 » ***
X&'*'
ÁSKi%IFTARSÍIVII 515 6100
http://www.fjolnet.is/fostbraedur
á Netinu eða í næsta Lottó kassa
þú velur einhverja 3,4, 5 eða 6 ieiki af 60 og
getur þér til um úrslit þeirra, hafir þú rétt fyrir
þér margfaldast upphæðin sem þú spilaðir fyrir
Tinnaðn á Lenninn:
|
I
1