Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1998, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1998, Side 20
32 MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1998 Fréttir Samtök iðnaðarins: Vilja leyfa yfirtöku Myllunnar - telja aö afnema beri 18. grein samkeppnislaga. Samtök iðnaðarins hafa kynnt greinargerð sína vegna úrskurðar samkeppnisráðs um yfirtöku Myllunnar-Brauðs hf. á Samsölu- bakaríi. Þar kemur fram hörð gagnrýni á úrskurð Samkeppnis- ráðs og er það álit Samtaka iðnað- arins að breyta eigi niðurstöðu > ráðsins. Auk þess er lagt til að 18. grein samkeppnislaga verði af- numin til að koma í veg fyrir að „mistök" af þessu tagi endurtaki sig. í greinargerðinni kemur fram að Samtök iðnaðarins telja að ís- lensk samkeppnisyfirvöld geti ekki vísað til evrópskra hlið- stæðna við lögin og að niðurstaða samkeppnisráðs gangi þvert á það sem tíðkast í nágrannalöndunum. Forsvarsmenn SI bentu einnig á að það væri ekki nýtt sjónarmið heldur hafi það komið fram í um- sögn VSÍ og fyrirrennara SI, Landssambands iðnaðarmanna og Félags íslenskra iðnrekenda, um frumvarp til samkeppnislaga árið 1992. Strax þá hafi verið lagt til að 18. greinin yrði felld niður. Samtök iðnaðarins telja að úr- skurðurinn muni hafa mikil áhrif og fordæmi í öllum iðnaði. Ákvörðun samkeppnisráðs fjalli um stöðu íslenskra framleiðenda gagnvart smásöluverslun. Sam- keppnisráð gefi sér það fyrir fram að á brauðmarkaði ríki óumbreyt- anlegt ástand og enginn muni reyna að bregðast við breyttum markaði. Markaðurinn sé hins vegar virkur og það komi vel í ljós í því að Bónus og Hagkaup séu að íhuga að setja upp eigin brauð- gerð. Að mati SI þá ættu samkeppnis- yfirvöld ekki að skipta sér af stærð fyrirtækja og ekki gera fyr- ir fram ráð fyrir því að stórt fyrir- tæki komi til með að misnota að- stöðu sína. Þess væri krafist að is- lensk iðnfyrirtæki hösluðu sér völl á erlendum mörkuðum en smæð fyrirtækjanna kæmi sér illa á þeim vettvangi. Fyrirtæki þurfi einnig að hugsa um afkomu sína og það fái engan veginn staðist að samkeppnisráð geti neytt eigend- ur fyrirtækja til að reka fyrirtæki með tapi. -sm Örn Jóhannsson, varaformaður Samtaka iönaöarins, kynnti greinargerð samtakanna um ákvörðun samkeppnisráðs í máli Myllunnar og Samsölubakarís. í greinargerð Sl kemur fram hörð gagnrýni á niðurstöðuna og 18. grein samkeppnislaga. DV-mynd E.ÓI. Eiríkur Jónsson, formaður Kl', Elna Katrín Jónsdóttir, formaður HÍK, og Björn Bjarnason menntamálaráðherra und- irrita samkomulag vegna tölvunáms kennara við Guðmund Gunnarsson, formann Rafiðnaðarsamband íslands, og Jón Árna Rúnarsson, skólastjóra Rafiðnaðarskólans og Viðskipta- og tölvuskólans. 36 kennarar í tölvunám Kennarafélag Islands, Hið íslenska kennarafélag og menntamálaráðu- neytið hafa undirritað samning við Rafiðnaðarskóla íslands og Við- skipta- og tölvuskólann um tilrauna- kennslu i tölvufræðum fyrir 36 kenn- ara. Að sögn Jóns Árna Rúnarsson- ar, skólastjóra Rafiðnaðarskólans og Viðskipta- og tölvuskólans, er þetta í fyrsta skipti sem slíkt samkomulag er gert án þess að kveðið sé á um það í kjarasamningum. Kennararnir munu taka stöðupróf og fara í faggreiningu áður en tölvu- námið hefst. Námskeiðið tekur til 160 kennslustunda fyrir hvern kenn- ara. Jón Árni segir það einnig með ólíkindum hversu skamman tíma það tók að ná samkomulagi milli þessara aðila þvi fyrsti fundurinn þar sem þessi hugmynd var viðruð var haldinn 12. janúar síðastliðinn og er þetta vafalaust einsdæmi í kerf- inu. -Sól. Hundasýning Hundaræktarfélags íslands: Þýskur fjárhundur valinn bestur Frá sýningunni um síöustu helgi. DV-mynd S Alþjóðleg hundasýnng Hundaræktarfé- lagsins fór fram í Kópavogi um siðustu helgi. Besti hundur sýningarinnar var valinn Gild- ewangens Ara- mis, þýskur flárhundur. Ræktandi er Hilde Wang- berg en eigend- ur eru Hjördís Ágústsdóttir og Eiríkur Guð- mundsson. Annar besti hundur sýning- arinnar var valinn Ardbraccan Famous Grouse, írskur setter. Ræktandi er Trudy Walsh og eig- andi Jóna Th. Viðarsdóttir. Þriðji besti hundurinn var valinn Bonus Pater, enskur bulldog. Ræktandi er Inga Lís Hauksdóttir og eigandi Sig- urður Helgi Guðjónsson. Besti hvolpur sýningóirinnar var valinn Tandra-Mirra, írskur setter. Ræktandi er Tryggvi Þór Jóhanns- son og eigandi er Guðrún Hreið- arsdóttir. Besti afkvæmahópur var valinn Gildiwangens Joop, þýskur fjárhundur sem sýndur var með 5 afkvæmum. Eigendur eru Hjördís Ágústsdóttir og Eiríkur Guð- mundsson, þeir sömu og áttu besta hundinn. 280 hundar tóku þátt í sýning- unni. Dómarar á sýningunni voru þau Birgitha Runmarker frá Svíþjóð og Tore Edmund frá Noregi. Hús- fyllir var báða dagana og mikil stemning meðal áhorfenda. -RR Flugleiðir í Leifsstöð: Stækkun vegna þrengsla DV, Suðurnesjum: Flugleiðir hafa opnað betri stofu, > Saga Business Class Lounge, í Flug- stöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkur- flugvelli. Nýja stofan tekur um 80 manns i sæti og er 200 m2 eða helm- ingi stærri en sú sem fyrir var. Hún er á því svæði sem veitingasala Flugleiða fyrir almenna flugfarþega var. „Það var orðið þröngt á vegna mikillar fjölgunar farþega á Saga Class hjá félaginu. Með tilkomu nýju setustofunnar gefst tækifæri til að bjóða gestum aukna þjónustu. Farþegar sem einungis ferðast með handfarangur geta innritað sig við móttökuborð í stofunni. Þar eru af- mörkuð svæði með síma, faxtæki og tölvutengjum fyrir þá sem vilja nýta tímann til vinnu. Þægileg sæti eru fýrir þá sem vilja slappa af fyrir flugferð. Á sjálfsafgreiðsluborði er boðið upp á léttar veitingar og fjöl- breytt drykkjarföng," sagði Hólm- friður Árnadóttir, forstöðumaður Saga Class Business hjá Flugleið- um. Sérsvæði er fyrir reykingamenn en stærsti hluti stofunnar er reyk- laus. Einnig er snyrting og sturtuað- staða. Innréttingar teiknaði Björg- vin Sveinbjörnsson arkitekt í sam- starfi við Teiknistofu Garðars Hall- dórssonar. -ÆMK Saga Class Business stofa Flugleiöa. Siguröur Helgason, forstjóri Flugleiða, er fjóröi frá hægri. DV-mynd Ægir Már

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.