Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1998, Síða 27
MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1998
39
Sviðsljós
Alexandra prinsessa:
Cher miður sín
vegna kisulóru
Árið hefur ekki byrjað vel fyr-
ir söng- og leikkonuna Cher.
Fyrst varð hún fyrir því áfalli að
fyrrum eiginmaður hennar og
söngfélagi, Sonny Bono, lést í
hörmulegu skíðaslysi. Nú er
leikkonan aftur í öngum sínum
þar sem einn af þremur köttum
hennar hvarf sporlaust á dögun-
um. Cher leitaði og leitaði um
allt hverfið en fann ekki kisu.
Rígheldur ekki
x hana Pamelu
Tryllitrommarinn Tommy Lee
veit hvað honum er fyrir bestu.
Hann er laus úr gæsluvarðhaldi og
ætlar ekki að koma í veg fyrir að
eiginkonan, hin sílíkonvædda
Pamela Anderson, geti skilið við
hann fyrir fullt og fast.
Eins og menn rekur eflaust minni
til kærði Pamela Tommy fyrir mis-
þyrmingar á sér og barninu fyrir
stuttu. Fyrir vikið sat hann inni í
þrjá daga.
Tommy lýsti því yfir þegar hann
losnaði úr grjótinu gegn hálfrar
milljónar dollara tryggingu að sér
þætti þetta allt mjög miður, velferð
og hamingja tveggja sona hans og
Pamelu væru honum efst í huga.
„Ég er mjög hændur að Dylan og
Brandon og þar er ákaflega erfitt að
fá ekki að hitta þá,“ sagði Tommy í
yfirlýsingu sem fiölmiðlafulltrúi
hans kynnti blaðamönnum.
Dómari setti mjög ströng skilyrði
fyrir því að Tommy fengi að fara
frjáls ferða sinna. Hann má alls ekki
heimsækja konu sína og syni og
ekki einu sinni hringja í þau.
Stallone mikill
listunnandi
Sylvester Stallone er ekki all-
ur þar sem hann er séöur.
Frakkar gáfu honum orðu fyrir
mörgum árum á grundvelli þess
að þar færi viðkvæmur og list-
hneigður maður. Nú hefur kom-
ið á daginn að slagsmálaleikar-
inn á mikið og gott safn lista-
verka eftir snillinga á borð við
Leroy Neiman, Francis Bacon og
Diego Rivera.
Sharon Stone geislaði bókstaflega af hamingju þegar hún og eiginmaðurinn,
ritstjórinn Phil Bronstein, komu til frumsýningar kvikmyndarinnar Mannsins
með járngri'muna í Ziegfeld-leikhúsinu í New York. Sharon og Phil gengu í
það heilaga í febrúar og ekki annað að sjá en þeim líki vel hjónalífið.
Monthy Python
gengið saman á ný
Monthy Python-félagarnir ætla að
koma saman á ný eftir 10 ára þögn.
Ráðgert er að John Cleese, Michael
Palin, Eric Idle, Terry Jones og
Terry Gilliam skemmti í þessum
mánuði í Aspen í Colorado í Banda-
ríkjunum ásamt nokkrum banda-
riskum skemmtikröftum.
Nær þrjátíu ár eru liðin síðan
bresku grínistarnir komu fyrst
fram í sjónvarpi í Bretlandi. Öllum
hefur þeim vegnað vel eftir að leiðir
skildu. Johh Cleese hefur gert
vinsælar kvikmyndir, Michael
Palin stjórnar vinsælum ferðaþætti
í breska sjónvarþinu, Terry Giiliam
hefur stjómað niyndum eins og
Brazil og Fisher King og Eric Idle
hefur starfað sem haridritahöfúndur
í Hollywood.
Alexöndru prinsessu langaði til að
búa í íbúð eða húsi með Jóakim sín-
um langt frá hirðlífinu í Amalienborg.
Dönsk tímarit segja að þetta hafi kom-
ið fram í réttarhöldum yfir lífverði Al-
exöndru og Jóakims á dögunum. Líf-
vörðurinn var leiddur fyrir rétt vegna
ásakana um að hafa stolið frá prinsin-
um og prinsessunni.
Það voru mikil viðbrigði fyrir Al-
exöndru að koma frá venjulegu borg-
aralegu lífi i Hongkong og verða
skyndilega prinsessa í Danmörku og
búa í höll, þó svo að hún hafi verið
undirbúin. Allir tóku henni reyndar
opnum örmum en stirðir hirðsiðir
reyndust henni erfíðir.
Þegar Alexandra og Jóakim fóru að
huga að íbúðarkaupum í Kaupmanna-
höfn langaði hana gjarnan til að búa
svolítið fyrir utan bæinn og hún varð
yfir sig hrifin af Hellerup. Þar búa
einnig margir vinir Alexöndru og
Jóakims. Og þaðan er ekki nema 10
mínútna akstur til Amalienborgar.
En Alexandra fékk ekki ósk sína
uppfyllta. 1 stað þess að geta búið ná-
lægt vinum sínum þarf hún að búa í
160 fermetra íbúð sem er fyrir ofan
bílskúrana bak við höll Kristjáns VIII.
Þar búa prinsinn og prinsessan
ókeypis og þannig geta þau reyndar
sparað fyrir húsi í Hellerup. Jóakim
átti íbúð í höllinni en hún þótti ekki
nógu stór fyrir þau tvö.
Bróðir Jóakims, Friðrik krónprins,
býr einnig í höll Kristjáns. Starfs-
menn krónsprinsins eru með skrif-
stofu rétt hjá íbúð Alexöndru og
Jóakims auk annarra starfsmanna
dönsku hirðarinnar.
Það verður líklega einhver bið á því
að Alexandra geti notið einverunnar
með Jóakim í Hellerup.
Tommy Lee sættir sig við staðreyndir lífsins:
Alexandra prinsessa, eiginkona Jóakims prins af Danmörku.
Símamynd Reuter
Aukablað um vörubíla og vinnuvélar
fylgir DV 11. mars.
Meðal efnis: Kynning á vörubílum og
vinnuvélum * Nýjungar á markaðinum *
Ýmis þjónusta sem í boði er fyrir stórvirkar
vinnuvélar og vörubíla.
Umsjón efnis: Þórhallur Jósepsson, símar:
553 8321, 899 0006 fax: 568 8585. Umsjón
auglýsinga: Gústaf Kristinsson, sími: 550
5731 fax: 550 5727. Auglýsendur athugið
að síðasti dagur til móttöku auglýsinga er
fimmtudagurinn 5. mars.
Fékk ekki að búa
þar sem hún vildi