Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1998, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1998, Page 32
44 MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1998 DV L ' onn Ummæli i Sameining vinstri manna „Menn veröa aö minnast þess að samein- ing vinstri manna gegn um áratugina hefur verið vöröuð flestu öðru en einingu." Guðmundur Árni Stefáns- son, í DV. Kæri félagi „Ég trúi því enn og treysti að það sé hægt að segja sig úr Alþýðubandalaginu, að minnsta kosti þangað til ég fæ næst póst þar sem ég er ávarpaður Kæri félagi.“ Guðmundur Andri Thors- son rithöfundur, í Degi. Náum ekki saman „Það er borin von að LÍÚ sætti sig við eitt- hvað í verð- myndunarmál- unum sem mun virka og við sættum okkur við.“ Helgi Laxdal, formaður Vél- stjórafélags íslands, i DV. Líður eins og Sinfóníuhljómsveit „Það tók mig tuttugu ár að nema tvær línur úr „Er ég kem heim í Búðardal..." Nú, þökk sé klassík FM, get ég raulað heilt tónverk með flók- inni hljóðfæraskipan og eng- ar tvær línur eins. Sex mín- útna langt. Mér líður eins og Sinfóníuhljómsveit.“ Auður Haralds sem hlustaði á sama tónverkið spilað nokkrum sinnum í röð, í DV. Leiðtogadýrkunin „Þegar leiðtogadýrkun Hrannars Björns Amarssonar kemst á al- mennilegt kosningaflug gætihannbætt f um betur og ávarpað mis- litan söfnuð R-listans að hætti Hjálp- > ræðishersins: Kæra vinir í Ingibjörgu." Magnús Óskarsson lög- fræðingur, í Morgunblaðinu. Skuldastaðan „Meö ólíkindum er að meirihlutinn í borgarstjóm skuli leggjast svo lágt að níð- ast á þeim sem minnst mega sín til að geta falsað skulda- stöðu borgarsjóðs." Árni Sigfússon borgarfull- trúi, í DV. imm o MfiLJM ERUKEIKO; MMNVIP KðNI STÖRW. && L0K5 HEÍL' HRKBISM&L HEILBRMS MBL KEIKÖSt BPSTflLF-yj 5ÖGÐÖ A Bjarni Haukur Þórsson leikstjóri: Sýningin á eftir vekja sterk viðbrögð „Munurinn á Trainspotting-kvik- myndinni og svo leikritinu er að leikritið fylgir betur bókinni, sem bæði verkin eru unnin upp úr, og svo eru persónumar mun nær í leikritinu og orka sterkar á áhorf- andann. Með þessu er ég alls ekki að gera lítið úr myndinni, hún var stór- kostleg og hafði mikil áhrif. Það gerir leikritið einnig en er að- eins öðruvísi," segir Bjarni Haukur Þórsson, leikstjóri Trainspotting sem frumsýnt er í Loftkastalanum i kvöld. Bjami er ekki bara leikstjóri verksins heldur er hann upphafs- maður þess að setja það á svið hér á landi, fyrstu Norðurlanda, og er framkvæmdastjóri verksins. „Ég á von á því að leikritið veki sterk viðbrögð hjá áhorfendum enda lýsir verkið lifi persónanna, sem eru háðar eiturlyfjum, á skýran og opinskáan en um leið kómískan hátt svo þetta er ekki bara drama heldur stendur maður sjálfan sig að því að brosa i gegnum tárin. Leikar- amir hafa verið frábærir allan æf- ingatímann og eiga eftir að vega þungt í sýningunni. Það koma auð- vitað margir til að sjá sum atriði í leikritinu sem voru í myndinni en þau era færri heldur en mætti halda fyrir fram.“ Bjami Haukur er ungur leikstjóri sem vakti athygli með frumraun sinni hér heima, Master Class, í íslensku óper- unni. Hlaut sú sýning mjög góðar viðtökur áhorfenda, sem og gagn- rýnenda. Áður hafði Bjarni starfað í New York: „Ég var við nám í New York og lék dálítið með náminu og eftir að útskrift lauk. Fyrir þremur árum kom ég svo með gestaleik frá Amer- íku í Loftkastalann sem við sýndum þrisvar sinnum og fengum góðar við- tökur. Eftir að ég kom heim hef ég verið að þreifa mig áfram í leikhúsun- um og eft- ir Mast- er Class fór ég fljót- lega að undir- búa Train- spott- ing. Nú er ég með ann- að verk í undirbúningi sem ég ætla að setja upp á þessu ári, mjög líklega í sam- starfi við aðra.“ Bjami sagði að þegar leiklistinni sleppti væru íþróttir það sem inn hefði mestan áhuga á: „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á íþrótt- um, fylgist vel með enska boltanum og stunda líkamsrækt og grip í spaða og spila skvass eða tennis þegar tími gefst tiL“ HK Bjarni Haukur Þórsson. Maður dagsins Draumur allra fjallgöngu- manna er að klífa hæsta fjall heims, Everest. Fjallgöngur ^ Ekki er hægt að rekja samfellda sögu fjallgangna sem íþróttar lengra aftur en til 1854. Einstök dæmi um fjallgöngur era til frá 13. öld. Hæsta fjall heims, Ever- est í Himalajafiöllunum, var fyrst klifið 29. maí 1953, en þá komust Edmund Percival Hillary og Tenzing Norgay á tindinn, nákvæm- lega kl. 11.30 að morgni. Alltaf er farið á Everest í leiðöngram. Undantekning- ar eru þó til og árið 1980 fór Reinhold Messner einn sins liðs á toppinn. Sá sami Messner og félagi hans, Pet- er Habeler, urðu fyrstir til Blessuð veröld að klífa Everest án súrefiiis- tækja 8. maí 1978. Reinhold Messner á enn eitt afrek sem enginn hefur leikið eft- ir honum. Þegar hann kleif Kangchenjunga árið 1982 haföi hann einn manna klif- ið öll þau fiórtán Qöll heims sem eru hærri en 8000 metr- ar án þess að nota súrefnis- grímu. Myndgátan Rennir matnum niður Myndgátan hér að ofan lýsir orðasambandi Gunnar Kvaran leikur verk eftir Brahms í Norræna húsinu. Selló og píanó Háskólatónleikar eru á hverjum miðvikudegi í Norræna húsinu og er ekki bragðið út af vananum í dag. Gunnar Kvaran, selló, og Kristinn Örn Kristinsson, píanó, flytja Sónötu í F-dúr fyrir selló og píanó op. 99 eft- ir Johannes Brahms kl. 12.30. Tónleikar T'ónlist fyrir alla Tónleikaröðin Tónlist fyrir alla heldur áfram á Vesturlandi og eru tónleikar í kvöld kl. 20.30 I Stykkis- hólmskirkju og annað kvöld í Búðar- kletti í Borgamesi á sama tíma. Um er að ræða tónleikaröð með vísnatónlist sem flutt er öllum grunnskólanemendum á Vesturlandi næstu daga. Flytjendur eru söngkon- an Anna Pálína Ámadóttir ásamt Gunnari Gunnarssyni píanóleikara, Gunnari Hrafnssyni, sem leikur á kontrabassa, og Pétri Grétarssyni slagverksleikara. Lóuþrælar í Borgarneskirkju Karlakórinn Lóuþrælar og söng- hópurinn Sandlóumar úr Vestur- Húnavatnssýslu halda söngskemmtun , í Borgameskirkju á miðvikudags- kvöld kl. 20.30. þetta er þriðja söngferð Lóuþrælanna og Sandlóanna í vetur. i ___________Bridge_______________ Meðal 16 para sem boðið var á síðasta boðsmót Macallan-tvlmenningsins í Bret- landi voru tvö kvennapör. Pörin voru bresku konumar Nicola Smith - Pat Davies og þýsku konurnar Sabine Auken - Daniela von Arnim. Kvennapörin náðu aldeilis frábæmm árangri og urðu í öðru og þriðja sæti. Sigurvegarar voru hins | vegar Norðmennirnir Tor Helness og Geir Helgemo. Helgemo - Helness og Smith - Davies mættust í tólftu umferð mótsins og þá höfðu Norðmennimir bet- ur. Nicola hefði getað unnið þessi 3 grönd í viðureign þeirra en hitti ekki á vinningsléiðina. Sagnir gengu þannig, vestur gjafari og enginn á hættu: é 652 i V G * D532 | * KG952 * DG97 2 * 10764 * 10643 * K83 * 10876543 * ÁK * 7 Vestur Norður Austur Suður Davies Helness Smith Helgemo pass pass 2 grönd pass t 3 * dobl 3 ♦ pass 3 * pass 3 grönd p/h ( Þrjú lauf var „Puppet-Stayman"; ^ spuming um 4 eða 5 spil í hálitum hjá opnara. Þrir tíglar lofuðu fiórlit í hálit og þrjú hjörtu sýndu fiórlit í spaða. Hel- gemo spilaði út hjarta í upphafi sem Smith átti á kóng. Hún spilaði tígli sem Helgemo átti á ásinn og hann ákvað að halda áfram hjartasókninni. Nicola fékk ódýran slag á hjartaníuna og spilaði tígli. Helgemo ákvað nú að spila einspili ( sínu i laufi, enda hafði Helness doblað / spurnarsögn vesturs. Nía norðurs kost- aði drottningu hjá sagnhafa og nú \ blöstu við vandamál. Ef hún spilaði tígli myndi norður spila laufkóng og ef norð- ur ætti spaðakónginn myndi það nægja vöminni til að hnekkja spilinu. Hins vegar gæti sagnhafi unnið spilið með spaðakóng hjá norðri með því að spila spaða á drottningu. (Nicola taldi að Hel- gemo hefði yfirkallað á 3 hjörtum ef hann hefði átt K í spaða, ÁK í tígli og 7 hjörtu). Hún spilaði þvi spaða að drottn- ingu í blindum sem hélt slag, svinaði síðan spaðatíu og fór einn niður. ( ísak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.