Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1998, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1998, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 6. MARS 1998 Kevin Costner leikstýrir og leiktn- aðalhlutverkið í The Postman og er hún mynd númer tvö sem hann leikstýrir. Mönnum er í fersku minni Dances with Wolves, sem hann leikstýrði og fékk óskarsverð- laun fýrir sem besti leikstjóri. í Dönsunum var hann á söguslóðum í villta vestrinu, í The Postman er það framtíðin. Árið er 2013. Jörðin er í sárum eftir heimsstyijöld sem hefur eytt öllu nema mann- kyninu. Öll tækni er horfin og hið vana- bundna líf sem við þekkjum svo vel úr nútíman- um er ekki leng- ur til. Þeir sem lifðu af helforina er skipt í smáþjóðfé- lög sem eiga í erf- iðleikum með að halda sambandi og af minnsta til- efni brýst út ófriöur þeirra á milli. Þetta ástand hefur leitt af sér her af ill- mennum sem ráða því sem þeir vilja ráða í krafti styrks síns og ill- mennsku. Hafa þeir komið á ástandi þar sem þeir ráða og aðrir eru þrælar. Inn í þessa veröld kemur Pósturinn með von fyrir þá kúguðu. Hans boð til fólksins er von um betra líf og brátt verð- ur hann tákn fólksins og sá sem það treystir á í baráttunni gegn því illa. Almenningur kýs hann sem foringja gegn vilja hans og hann verður að gera það upp við sig hvort Kevin Costner leikur titilhlutverkið, Póstinn sem ber góð tíðindi. Olivia Brown leikur stúlkuna sem Pósturinn hrífst af. hann á að vera það sem fólk heldur að hann sé eða láta sig hverfa. Auk Kevins Costners sem leikur Póstinn eru f stórum hlutverkum Will Patton, Olivia Williams, Larenz Tate, James Russo og söngvarinn góðkunni Tom Petty. The Postman er gerð eftir skáld- sögu sem kom út árið 1985. Fram- leiðandinn Steve Tisch keypti þá kvikmyndaréttinn á bókinni og var í mörg ár með hana í sinni vörslu áður en hann ákvað að fá Kevin Costner til liðs við sig. Fyrst var það ætlun Tisch að fá Costner ein- göngu til að leika í myndinni, en eft- ir sigurför Dances With Wolves var upplagt að fá Costner til að leik- stýra einnig. Tisch er ekki óvanur að bfða með bækur sem hann hefur keypt réttinn á. Það tók hann níu ár frá því hann keypti réttinn á Forrest Gump að koma henni á koppinn. The Postman er löng kvikmynd, hátt í þrír klukkutímar, og hafa við- tökur verið misjafnar. Myndin var óhemjudýr, kostaði vel yfir eitt hundrað milljónir dollara og þykir víst að hún muni ekki ná kostnaðin- um til baka en aðsókn í Bandaríkj- unum var dræm. -HK Svartur húmor frá Norðmönnum Háskólabíó hefur í dag sýningar á norsku kvikmyndinni Budbrin- geren, sem eins og segir í kynn- ingu er svört kómedía um ást, pen- inga sem enginn vill, dósaspagettí, karaoke, óviljandi góðverk og ánægjuna af að vera í dauðadái. Aðalpersónan er Roy, mislukkað- ur póstberi sem er rekinn áfram af forvitni og einstaklega fúndvís á að vera á röngum stað á röngum tíma. Hann ber enga virðingu fyr- ir einkalífi annarra eða því sem aðrir eiga og hefrn- ekki samúð með neinum, hann stelur póstin- um þegar það hentar honum, móögar þá fáu vini sem hann á, býr í sóðalegri einstaklingsíbúð og fer í taugamar á nágranna sínum. Dag einn kemur hann að póst- boxi þar sem lyklar eru fyrir. Hann kemst að því að það er ung stúlka sem á lyklana. Af sinni vanalegu illgimi fer hann upp f íbúðina. Um leið og hann stígur inn fýrir þröskuldinn verður breyting á lífi hans. Og eftir því sem hann skoðar íbúðina og það sem er innandyra, því meira flæk- ist hann inn í atburðarás sem er mun hættulegri en að opna ann- arra manna póst. Leikstjóri Budbringeren er Pál Sletaune og hann segir um mynd sína: „Roy er einn af þessum mönnum sem em ósýnilegir, er óheppinn í lífinu sem stafar mest Robert Skjærstad leikur hinn lánlausa póstbera Roy. af hans eigin sökum. Hann er í raun náungi sem þú tekur ekki eft- ir fýrr en hann sest við hliðina á þér í strætó og þótt hann æli f fangið á þér á meðan hann reynir að stela veskinu þínu þá er eitt- hvað við hann sem þér líkar. Um persónumar í heild í myndinni má segja að þær séu sjálfum sér verstar og húmorinn snýst um það óvenjulega í hinu daglega lífi.“ í hlutverki Roys er Robert Skjær- stad, ungur leikari sem er að leika í sinni fýrstu kvik- mynd en hefur leikið f mörgum leikritum í Noregi. í öðm aðalhlut- verkinu er Andrine Sæther, ung leikkona sem útskrifaðist úr leik- listarskóla í Noregi 1995, þá þrítug að aldri. Budbrin- geren er einnig hennar fýrsta kvik- mynd. Léikstjórinn Pál Sletaune byrjaði að vinna fýrir sér sem ljósmyndari eftir að hann lauk námi frá háskólanum í Ósló. Budbrin- geren er hans fýrsta kvikmynd í fullri lengd en hann hefur gert þrjár stuttmyndir sem vakið hafa athygli og verið verðlaunaðar á kvikmyndahátíðum. -HK Jfírikmyndir,, Tomorrow Mover Dies ★★★★ Bond þarf hér aö fást við athyglissjúkan fjöl- miðlamógúl með hjálp kínverskrar súperplu. Brosnan er snillingur í því að halda hárfínu jafnvægi milli sjálfsháðs og alvöru og þaö er að stórum hluta honum að þakka hve Tomorrow gengur vel upp, bæði sem grln og hágæðahasar. Myndin er ómissandi skemmtun í skammdeginu og Brosnan er hér með yfirlýstur besti Bondinn. -úd L.A. Confidental ★★★★ Skuggahliðar Los Angeles sjötta áratugar- ins eru sögusviðið í ðvenju innihaldsríkri og spennandi sakamálamynd sem enginn ætti að missa af. Spilltar löggur, ósvífnir æsifréttamenn, melludólgar og glæsilegar vændiskonur eru á hverju strái. -HK Titanic ★★★* Stórbrotin og ákaflega gefandi kvikmynd. Af miklum fítonskrafti tókst James Cameron að koma heilli í höfn dýrustu kvikmynd sem gerð hefur veriö. Fullkomnunarárátta Camerons skilar sér í eðlilegri sviðsetningu sem hefur á sér mikinn raunsæisblæ. Leon- ardo DiCaprio og Kate Winslet eru eftir- minnileg í hlutverkum elskendanna. -HK Alien: Resurrection ★★★< Myndin er langt i frá gallalaus en að mínu mati nær hún að hefja sig upp yfir gallana. Handritshöfundurinn Joss Whedon gerir góða hluti en það er fyrst og fremst hinn myndræni samruni Borgar týndu barnanna og Alien sem gerir þessa mynd að sannri ánægju. Eins og alltaf er það Sigourney Weaver sjálf, drottning geimveranna, sem stendur upp úr. -úd Barbara ★★★* Vel upp byggð og vel leikin mynd i alla staði, sérstaklega vakti þaö ánægju hversu allar aukapersðnur og smáatvik voru vel og fmv lega útfærð. Myndatakan er áferðarfalleg og aldrei of uppskrúfuö í landslagsyfirliti og dramatískum veðurlýsingum en nýtti jafn- framt vel náttúrufegurö eyjanna. -úd Welcome to Sarajevo ★ ★★ Áhrifamikil og vel gerð kvlkmynd um frétta- menn að störfum I rústum Sarajevo. Heim- ildarmyndum og sviðsettum myndum er ákaflega vel blandað saman og mynda sterk myndskeið. Mynd sem vekur upp margar spurningar um eðli mannsins í striði og kemur við kaunin á stjórnmálamönnum sem eru mislagðar hendur I að leysa vanda- mál sem þessi. -HK Taxi ★★★ Nokkur ár eru frá því kvikmynd eftir Carlos Saura hefur rekiö á fjörur okkar og Taxi veld- ur fjölmörgum aðdáendum hans engum vonbrigöum. Tilfinningaþrungin kvikmynd þar sem fram fer eins konar uppgjör við fas- ismann og þjóðerniskenndin er sýnd í sinni verstu mynd. Aðalpersónurnar eru tvö ung- menni sem sjá lifiö í öðru Ijósi en foreldrarn- ir. -HK Lína lanqsokkur ★★★ Lína langsokkur er löngu oröin klassísk og það vill stundum gleymast að hún er ekki erfð með genunum heldur lesin á bókum. Lína er hinn stjðrnlausi óskadraumur allra barna, foáls, óháð og gersamlega sjálf- stæð, því hún bæöl getur allt og leyfir sér allt. Þarna tókst vel til hvað varöaði teikn- ingar og útfærslur og það er óhætt að mæla með þessum Linu-pakka fyn'r börn á öllum aldri. -úd The Jackal ★★★ Endurgerðir á klassískum myndum hljóta oft litla náö i augum kvikmyndagagnrýnenda og er Sjakalinn þar engin undantekning. En þótt myndina skorti þá yfirveguðu byggingu og persónusköpun sem einkenndi fyrir- rennarann er hún afbragðs skemmtun. Sjakalinn kemur ekki alltaf á óvart en sem spennumynd gengur hún upp. Bygglng hennar er góð og leikurinn til fyrirmyndar. Ég mæli með henni.-GE Þú veist hvað þú gerðir ... ★★★ Handritshöfundurtnn Kevin Williamson er hér aftur búlnn að hrista þessa fínu ung- lingahrollvekju út úr erminni og er hér meö mynd sem er bæði sjálfsmeðvituð og alvöru spennandi hrollvekja, smart og vel gerð, Og það flaug popp. Það hlýtur að vera þriggja stjörnu virði. -úd Stikkfrí ★★★ Gott handrit oggóða bamaleikara þarf til aö gera góða barnamynd og þetta er að finna í kvikmynd Ara Kristinssonar sem auk þess gerir góölátlegt grin að þeim aöstæðum sem börn fráskilinna foreldra lenda í. Skemmtileg og Ijúf fyrir alla fjölskylduna.-HK Með fullri reisn ★★★ Eftir aö hafa hneykslast upp i háls (og verða léttskelkaðir líka) á hinum iturvöxnu fatafell- um The Chippendales uppgötva þeir félagar Gaz (Robert Carlyle) og Dave (Mark Addy) að það að fækka fötum uppi á sviði er hið arð- bærasta athæfi. Þaö er varla hægt að hugsa sér betri ávisun upp á skemmtun en svona sögu og svo sannarlega skilaði myndin því gríni sem hún lofaöi, meö fullri reisn. -úd Flubber ★★★ Flubber býr yfir einfaldleika sem því miöur er allt of sjaldséöur í kvikmyndum síðustu ára. Hún er barnamynd fyrir börn og ég get engan veginn séð þaö sem galla. Besti mælikvarðinn á slíkar myndir er salur fullur af ánægðum börnum. Og krakkamir voru I stuði. -ge Seven Years in Tibet ★★★ Ber með sér aö hvert einasta atriði er þraut- hugsað og raunsæið látið ráða ferðinnl, kannski um of, Myndin verður af þeim sök- um aldrei þetta mikla og spennandi drama sem efnið gefur tilefni til þótt einstaka atriöl rísi hátt. Útlit myndarinnar er óaðfinnanlegt, kvikmyndataka stórfengleg og leikur mjög góður en neistann vantar. -HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.