Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1998, Side 10
FÖSTUDAGUR 6. MARS 1998 jL>"V
w *
*l
28
k
wlist
wam
erðlaunahafar
Enginn getin- efast um geysilega fæmi Bjarkar Guðmundsdóttur í beit-
ingu sinnar einstöku raddar. Röddin skipaði jafnvel stærri sess á
Homogenic en fyrri plötum söngkonunnar og naut sín sem aldrei fyrr.
Björk hefur tvisvar áður unnið til þessarar nafnbótar. Aðrar söngkonur
sem tilnefningu fengu voru Elísabet Ólafsdóttir, Emiiíana Torrini, Ragna
Kjartansdóttir og Sigríður Beinteinsdóttir.
Söngvari ársins:
Daníel Ágúst
Haraldsson
Bassaleikari ársins:
Jakob Smári Magn-
ússon
Flytjandi ársins: Bjötk
Björk Guðmundsdóttir er óumdeilanlega stjama íslensku tónlistar-
verðlaunanna í ár. Flytjandi ársins er valinn úr þeim hópi tónlistar-
manna sem kjósa að gefa tónlist sína út undir eigin nafni, gefa m.ö.o. út
sólóplötur. Aðrir sem fengu tilnefningu í þennan flokk vora Berglind
Ágústsdóttir, Bubbi Morthens, Dr. Gunni og Megas.
Daníel Ágúst hefur gert garðinn
frægan að imdanfornu með söng í
fjöllistahópnum Gus Gus. Þar hefur
hann þanið raddböndin af mikilli
fæmi en hliðarverkefni hans á síð-
asta ári var að endurvekja hljóm-
sveitina Nýdönsk. Aðrir sem vora
tilnefndir sem besti söngvarinn
. vora Birgir Öm Steinarsson, %
Bubbi Morthens, Jón Þór Birk- ^
JJ isson og Stefán Hilmarsson.
Jakob Smári Magnússon varð fyr-
ir valinu sem bassaleikari ársins.
Hann er margreyndur bassaplokk-
ari og spilaði m.a. á árinu með SS-
Sól og Bubba Morthens. Aðrir sem
tilnefningu fengu vora Bogi Reynis-
.^son, Eggert Gíslason, Gunnar
SV Tynes og Haraldur Þorsteinsson.
Hljómplata ársins: Homogenic - Björk
Platan Homogenic varð fyrir valinu sem hljómplata ársins 1998. Þama
er á ferðinni meistarastykki sem unnið er af einstakri natni og alúð höf-
imdarins sem aldrei bregst. Hljómplatan Post fékk sömu nafnbót árið
1995. Aðrar tiinefningar til plötu ársins fengu Andhéri fyrir Fallega
ósigra, Dr. Gunni og vinir hans fyrir barnaplötuna Abbababb, Maus 'Í
fyrir plötuna Lof mér aö falla að þínu eyra og Quarashi fyrir samnefnda
plötu.
Blásturshljóðfæra-
leikari ársins: Óskar
Guðjónsson
Lagahöfundur ársins: Björk
Björk Guðmundsdóttir fór á kostum í lagagerö á plötunni Homogenic
og náði þar nýjum hæðum sem erfitt er að ímynda sér að annar íslend-
ingur hafi nokkum tímann náð. Björk hefúr einu sinni áður fengiö þessa
nafhbót. Aðrir sem tilnefningar fengu vora Bjöm Jr. Friðbjömsson,
Bubbi Morthens, Gunnar Hjálmarsson og Maus.
Saxófónleikarinn Óskar Guðjóns-
son fær útnefninguna blásturshljóð-
færaleikari ársins. Hann gaf út sóló-
plötuna Far á síðasta ári þar sem
honum tekst geysivel að skapa
magnþrungna stemningu með fanta-
góðum leik. Óskar hefur unnið
þessi verðlaun í öll skiptin þrjú sem
þau hafa verið veitt hingað til. Aðr-
ir sem útnefhingu fengu vora þeir
Guðni Franzson, Jóel Pálsson, Sig-
urður Flosason og Veigar Margeirs-
son.
Björk þótti eiga besta lag ársins, Yoga, sem var fyrsta smáskífúlagið af
plötimni Homogenic. Þar lýsir hún landslagi tilfinninganna á magnaðan
hátt og ekki skemmdi bráðgott myndband við lagið fyrir velgengni þess.
Björk vann sömu verðlaun fyrir lagið Army of Me árið 1995. Önnur lög
sem tilnefhingu fengu vora Bachelorette, einnig með Björk, Égímeilaðig
með Maus, Flókið einfalt með Vínyl og Friður með Sóldögg.
Jazzleikari ársins:
Óskar Guðjónsson
Grtarleikari ársins:
Friðrik Karisson
Jón Ólafsson, píanó- og hljóm-
borðsleikari, hefur löngum glatt
landann með flinku spili sínu. Hann
er m.a. meðlimur í hljómsveitinni
Nýdönsk, sem reist var upp frá
dauðum á árinu, og spilaði í fjöl-
mörgum leiksýningum, auk margs
annars. Hann hefur unnið þennan
titil einu siimi áður, árið 1994. Aðr-
ir tilnefndir til þessara verðlauna
vora Eyþór Gunnarsson, Fríða Rós
Valdimarsdóttir, Guðfinna Mjöll
Magnúsdóttir og Þórhallur Berg-
mann.
Óskar Guðjóns er auk þess að
vera blásturshljóðfæraleikari ársins
útnefndur jazzleikari ársins. Hann
gaf út hljómplötuna Far á síðasta
ári þar sem honum tókst að vanda
að skapa kynngimagnaða stemn-
ingu. Aðrir sem tilnefndir vora era
Bjöm Thoroddsen, Eyþór Gunnars-
son, Pétur Östlund og Siguröur
Flosason.
Sá gítarleikar sem fremst þótti
standa á síðasta ári var Friðrik
Karlsson sem flestir þekkja úr
hljómsveitinni Mezzoforte. Hann er
nú með fasta búsetu í London þar
sem hann spilar daglega með fær-
ustu hljóðfæraleikurum í heimi við
ýmis tilfallandi verkeftii. Friðrik
heldur því þessum titli en hann
vann hann einnig 1 fyrra. Aðrir gít-
arleikarar sem tilnefningu fengu
vora þeir Ásgeir Ásgeirsson, Guð-
mundur Pétursson, Gunnar Óskars-
son og Páll R. Pálsson.
Meistari Megas fær íslensku tón-
listarverðlaunin sem textahöfúndur
ársins að þessu sinni. Hann gaf út
plötuna Fláa veröld á síðasta ári og
fór þar á kostum í textagerð þar
sem hann lét smáborgarana finna
til tevatnsins sem aldrei fyrr. Aðrir
sem tilnefningu fengu voru Birgir
Öm Steinarsson, Björk, Bubbi
Morthens og Stefán Hilmarsson.