Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1998, Page 11
FÖSTUDAGUR 6. MARS 1998
nlist
Hljómsveit ársins: Maus
Klassísk hljómplata ársins: Ljóð án orða
- Bryndís Halla Gylfadóttir og Steinunn
Islensku tónlistarverðlaunin:
Heiðursverðlauna-
hafi ársins:
Jón Múli Ámason
Jón Múli Árnason er svo sann-
arlega vel að heiðursverðlaun-
unum kominn. Hann hefur á síð-
ustu áratugum samið hverja
perluna af annarri og hefur sam-
starf hans og bróður hans, Jónas-
ar Árnasonar, gefið mikið af sér
í formi söngleikja. ! umfjöllun
um verk Jóns hefur verið sagt að
ef hann hefði ekki verið íslensk-
ur þá væri hann heimsfrægur
nú.
Rokksveitin unga, Maus, sem orðin er margreynd þrátt fyrir aldurinn, hlýtur þennan titil í
ár. Síðustu mánuöir hafa verið geysilega spennandi fyrir hljómsveitina. Hún gaf út eina albestu
plötu síðasta árs, hélt sína 100. tónleika og tókst loks að koma íslensku þjóðinni I skilning um
að hún væri flottasta rokkbandið á landinu. Aðrar hljómsveitir sem tilnefningu fengu voru
Sigur Rós, Sóldögg, Subterranean og Quarashi.
Birna Ragnarsdóttir
Þær Bryndís Halla Gylfadóttir og Steimmn Bima Ragnarsdóttir
gáfu út kostagripinn Ljóð án orða. Aðrir sem fengu tilnefningu
voru Hljómeyki og Mótettukór Hallgrímskirkju fyrir plötuna Sól ég
sá, Kristinn Ámason fyrir Guitar: Johann Sebastian Bach, Krist-
inn Sigmundsson og SÍ fyrir plötuna Óperaaríur, Rannveig Fríða
Bragadóttir og Gerrit Schuil fyrir plötuna Franz Schubert, söng-
ljóð, og Sinfóníuhljómsveit Islands fyrir útgáfú á Geysi og öðrum
hljómsveitarverkum eftir Jón Leifs.
Tónlistarviðburður árs-
ins: Endurkoma
Nýdanskrar
Það er endurkoma hljómsveitar-
innar Nýdönsk sem er tónlistar-
viðburður ársins. Nýdönsk lagði
upp laupana fyrir nokkrum árum
en var þá ein af vinsælustu sveit-
um landsins og hafði gefið út plöt-
ur eins og Hunang og Deluxe auk
þess sem sveitin sá um tónlistina í
hinum vinsæla söngleik Gaura-
gangi. Á síðasta ári reis sveitin
upp að nýju með tónleikum i Há-
skólabíói í byrjun vetrar.
Trommuleikari
ársins:
Gunnlaugur Briem
Gunnlaugur Briem fær í ár útnefn-
inguna trommuleikari ársins. Þetta er
í fimmta skiptið sem Gunnlaugur hef-
ur verið útnefndur trommuleikari
ársins og hefur hann unnið titilinn öll
þau ár sem titillinn hefur staðið til
boða. Hann er einn reyndasti
trommuleikari landsins og stóð með
öðrum meðlimum Mezzoforte á barmi
heimsfrægðar. Aðrir sem vom til-
nefndir eru Daníel Þorsteinsson, Jó-
hann Hjörleifsson, Númi Þorkell
Thomasson, Ólafur Hólm og Sölvi
Blöndal.
Bjartasta vonin: Subterranean
Rapp- og hip hop-sveitin Subterranean var kosin bjartasta vonin á verð-
launahátíðinni i gær. Hún gaf út plötuna Central magnetizm á síðasta ári
sem reyndist vera prýðisgott byrjendaverk og nutu mörg laga plötunnar
talsverðra vinsælda, auk þess sem platan sjálf seldist mjög vel. Aðrar til-
nefningar til þessara verðlauna fengu hljómsveitimar Á túr, Sigur Rós, Soð-
in fiðla og VínyU.
Björk er best
Björk Guðmundsdóttir sópaði til sín verðlaunun-
um þegar íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent á
Hótel Sögu í gærkvöldi. Hún hlaut alls fimm verð-
laun af þeim sex sem hún var tilnefnd til. Það er al-
veg ljóst að drottning íslenskrar tónlistar ber höfuð
og herðar yfir aðra íslenska tónhstarmenn.
Þeir sem lutu í lægra haldi fyrir Björk að þessu
sinni geta með sanni sagst hafa faUið með sæmd því
nær vonlaust er að ætla að skáka þeirri leikni sem
Björk hefur nú yfir að ráða í tónlistarsköpun. Hún
hefur fyrir löngu sannað sig sem tónhstarmaður á al-
þjóðlegum vettvangi og tekst með hverri plötunni að
þróa tónlist sína og gera hana persónulegri. Hún
vinnur tU hverrar alþjóðlegu viðurkenningarinnar á
fætur annarri i hvert sinn sem plata hefur komið frá
henni. Nú síðast vann hún Brit-verðlaunin sem besta
söngkonan á alþjóðavettvangi og því ætti að vera
Ijóst að fáir hér á landi komast með tærnar þar sem
hún hefur hælana. íslenskt tónlistarlíf má því vera
stolt af því að eiga örlitið tilkaU til Bjarkar Guðmundsdóttur og veitt henni þessi heið-
ursverðlaun íslenskrar dægurtónlistar.
Homogenic
Það er að sjálfsögðu nýjasta hljómplata Bjarkar, Homogenic, sem lyftir henni á þennan
staU íslensks tónlistarlífs í ár. Fyrir hana fær hún titlana lagahöfundur ársins, söngkona
ársins, lag ársins, hljómplata ársins og flytjandi ársins.
Útgáfa plöhmnar markar tímamót í tónlist Bjarkar að eigin sögn. Með fyrri tveimur
plötum sínum, Debut og Post, var hún að klára efni sem hún hafði verið að vinna að í
mörg ár og átti í sarpi. Þegar því var lokið gat hún loksins byrjað með hreint borð og byrj-
að að semja plötu nákvæmlega eins og hún vUdi.
Ákveðið var að Homogenic yrði unnin innan ákveðins ramma, einungis ætti að notast
við rödd, strengjahljóðfæri og takt. Með þetta þrennt sem aðalatriði var platan gerð og
möguleikar hins afmarkaða ramma skoðaðir út í ystu æsar. Niðurstaðan varð gífurlega
faUeg en krefjandi plata sem kemur þeim sem hlusta sífeUt á óvart.
-KJA
1 ★ -