Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1998, Side 10
FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1998
*ZL
32 tónlist
ísland
t
f
i
♦
»
»
i*
I
*
§
|
i
I
1(1) Pottþétt 11
Ýmsir flytjcndur
2(4) All Saints
All Saints
3(3) Titanic
Úr kvikmynd
4(5) Left of the Middle
Natalie Imbruglia
5(2) Pilgrim
Eric Clapton
6(6) Madonna
Ray of Light
7(7) Urban Hymns
The Verve
8 (Al) Fat Of The Land
The Prodigy
9(8) Drumsanddecksandrockandroll
Propellerheads
10(1) Let’s Talk About Love
Celine Dion
11(9) Moon Safari
Air
12(10) Aquarium
Aqua
13(12) Yield
Pearl Jam
14 (- ) The Pillage
Cappadonna
15(13) Together Alone
Anouk
16(14) OK Computer
Radiohead
17 (17) Simply the Best
Tina Turner
18(16) BestOf
Eros Ramazotti
19 (Al) Rússibanar
Rússibanar
20 ( - ) Velvet Rope
JanetJackson
London
-lög-
§ 1. ( 1 ) It's Like that
Run DMC Vs Jason Nevins
| 2. ( 2 ) My Heart will go on
Celine Dion
f 3. ( - ) La Primavera
Sashl
| 4. (_ ) All I Want Is You
911
t 5. (- ) I Get Lonely
Janet Jackson
| 6. ( 3 ) Let Me Entertain You
Robbie Williams
| 7. ( 4 ) Stop
Spice Girls
t 8. ( 9 ) Truely Madly Deeply
Savage Garden
f 9. ( 5 ) No No No
Destiny's Child
| 10. ( 7 ) Here's Where The Story Ends
Tin Tin Out & Shelley Nelson
New York
-lög-
t 1. (-) AIIMyLife
K-Ci & Jojo
| 2. ( 5 ) Frozen
Madonna
I 3. ( 2 ) Nice and Slow
Usher
f 4. ( 4 ) My Heart Will Go On
Celine Dion
| 5. ( 3 ) No, No, No
Destiny's Child
f 6. ( 7 ) Let's Ride
Montell Jordan
f 7. ( 6 ) Truely Madly Deeply
Savage Garden
| 8. (1 ) Gettin' Jiggy Wit it
Will Smith
( 9. ( 8 ) Gone Tíll November
Wyclef Jean
t 10. (- ) Too Close
Next
Bretland
t 1. ( -) The Best Of
James
f Z ( 2 ) Titanic
Úr kvikmynd
f 3. ( 1 ) Let's Talk About Love
Celine Dion
f 4. ( 4 ) Life Thru a Lens
Robbie Williams
| 5. ( 3 ) Ray of Light
Madonna
t 6. (-) InMyLife
George Martin/Ýmsir
1 7. ( 6 ) Urban Hymns
The Verve
t 8. ( -) Fresco
M People
| 9. ( 7 ) Left of the Middle
Natalio Imbruglia
f 10. ( -) Kylie Minoguo
Kylie Minogue
Bandaríkin
— plötur og diskar—
f 1. (1 ) Titanic
Úr kvikmynd
f Z ( 2 ) Let's Talk About Love
Celine Dion
t 3. (- ) Life Or Death
C-Murder
f 4. (- ) Van Halen 3
Van Halen
| 5. ( 2 ) Ray of Light
Madonna
4 6. ( 5 ) Savage Gardon
Savage Garden
| 7. ( 4 ) Pilgrim
Eric Clapton
f 8. ( 8 ) Backstreet Boys
Backstreet Boys
| 9. ( 6 ) Love Always
K-ci & Jojo
tlO. (-) The Player's Club
I.......Úr kvikmynd
Hvað er „Big Beat“?
tilað
stíft við
Fátt hefur veriö jafn vinsælt síð-
ustu mánuði meðal ungra Eng-
lendinga og „Big Beat“-tónlistin
svokallaða. Sérstaklega nýtist
þessi tónlist þegar á að djamma og
dansa, enda takturinn stór og mik-
U1 og botninn breiður eins og nafn-
ið bendir til. Tónlistin fer heldur
ekki í manngreinarálit; bæði dans-
fíklar og rokkarar sameinast um
að hafa gaman að big bítinu enda
má segja að i tónlistinni blandist
saman danstaktur og rokk svo úr
verði einstaklega kraftmikil dans-
gólfastuðmúsik.
Hljómsveitimar Chemical Brot-
hers og Propellerheads em báðar
tengdar stefnunni, en það sem
kemur frá hljómplötufyrirtækinu
Skint er big bít í sinni hreinrækt-
uðustu mynd, eða eins hreinrækt-
aðri og stefnan verður á annað
borð því hún er í eðli sínu blend-
ingur. Big bítið hefur tekið við af
britpoppinu sem “það heitasta" í
Englandi. Fram að þessu hafa for-
sprakkar rafdanstónlistarinnar
starfað neðanjarðar og ekki talið
mikilvægt að hafa andlit út á við
en með big bítinu eru „stjömurn-
ar“ komnar aftur, leiðtogarnir
spila á tónleikum og tala óhikað
um sukkævintýri sín við press-
una. Og krakkarnir fíla dæmið.
Reifararnir geta enn tekið dópið
sitt og dansað eins og brjálæðing-
ar og rokkararnir geta lesið um
svall stjamanna og fyrir þeim er
tónlistin ekki of framúrstefnuleg
eða „of svört“ til að hægt sé að fíla
hana.
Damian og Norman
Fyrstu sprotar big bitsins
spruttu í litlum klúbbi í London,
Heavenly Social, þar sem plötu-
snúðar með Tom og Ed úr Chem-
ical Brothers í farabroddi tóku að
blanda óvæntar stuðblöndur.
Skint-plötufyrirtækið hóf starf-
semi 1995 í strand- og stúdenta-
bænum Brighton. Bærinn varð
nokkurs konar höfuðborg big bíts-
ins og þar er hinn frægi klúbbur
Big Beat Boutique. Plötusnúður-
inn Damian Harris sér um stjórn-
ina hjá Skint og býr einnig til tón-
list undir nafninu Midfíeld Gen-
eral. „Þegar ég er plötusnúður
spila ég allt,“ segir hann. „Big bít-1
plötusnúður verður að vera hálf-
gerður glymskratti frekar en að
búa til jafnt taktfast flæði eins og
tíðkaðist í gömlu reifunum. Ég
vann í plötubúð til margra ára og
þar sá maður að svona 25 prósent
af hverri tónlistarstefnu er góð. Ég
spila bara góðu partana. Það eina
sem er sameiginlegt með tónlist-
inni er að hún verður að hafa feit-
an takt og vera „dýnamísk“.“
Plötusnúðurinn og hljóðstjórn-
andinn Norman Cook er ókrýndur
konungur big bítsins. Á miðjum
síðasta áratugi var hann bassa-
leikari í gítarpoppsveitinni The
Housemartins en snéri sér svo að
danstónlist, fyrst með Beats
International. Hann hefur starfað
undir ýmsum nöfnum; Freak-
power, Pizzaman, Mighty Dub
Katz, en Fatboy Slim virðist vera
það nafn sem hann ætlar að halda
sig við. Hann kann að kreista fram
það besta þegar hann tekur að sér
að mixa lög; „því minni tími sem
fer í að mixa, því betra,“ segir
hann. „Ég reyni alltaf að fanga
augnablikið og geri mín mix aldrei
of flókin.“ Norman hefur átt tvö
vinsæl mix á síðustu mánuðum,
Cornershop-lagið „Brimful of
Asha“ og „Renegade Master" með
Wildchild. Einfalt stuð er boðorð
Normans; „Ég geri tónlist fyrir
kvenfólk," segir hann. „Strákamir
eru alltaf að pæla í sándi og ein-
hverjum smáatriðum en stelpur
vilja bara gott lag. Þar til nýlega
bjó ég með þremur konum. Ef þær
komu ekki þegar ég var að vinna í
stúdíóinu og spurðu: „Hvað er
þetta?“ þá henti ég laginu. Þetta er
munurinn á poppi og neðanjarðar-
tónlist."
„Nýi strákurinn"
Mikið sukk fylgir tónlistinni og
oft eru plötusnúðamir miklu fyllri
og dópaðri en áheyrendurnir.
..Þetta er gamla rokk og rólið - þú
vilt að stjömurnar séu stórfeng-
legri og miklu verr farnar en þú
sjálfur," segir Norman. Big bítið
er í fullu samræmi við menningar-
fyrirbærið „nýi strákurinn" (New
Lad), sem persónugervist í hörð-
um verkamannastrákum eins og
Gallagher- bræðrum og er í æp-
andi andstöðu við „mjúka mann-
inn“, sem fjölmiðlar bjuggu til á
síðasta áratugi. „Nýi strákurinn“
er auðvitað eins mikil uppfinning
fíölmiðla en það er sem sagt opin-
berlega svalt að hafa áhuga á fót-
bolta og klámi, djamma stíft um
allar helgar og vera dálítið svín.
Lo-Fidelity Allstars - bjartasta
von Skint fyrir þetta ár - er hljóm-
sveit sem smellpassar í „nýja
stráks“- ímyndina; fimm ungir
slarksamir fótboltaáhugamenn og
söngvarinn ber sig nákvæmlega
eins á sviði og Liam Gallagher. Þeir
látast vera hljómsveit þegar þeir
koma fram þótt megnið af tónlist-
inni sé á bandi en áhorfendum er
sama og taka þeim eins og hverju
öðru rokkbandi og slamma stíft við
tónlistina. Komnar eru tvær smá-
skífur með sveitinni en fyrsta
breiðskífan er væntanleg seinna i
þessum mánuði og ætti að verða at-
hyglisverð miðað við smáskífumar.
Peningalykt
Skint byrjaði sem sjálfstætt fyr-
irtæki en stórfyrirtækin runnu
auðvitað á peningalyktina og Sony
gerði risasamning við fyrirtækið.
Þetta hefur þó lítil áhrif á framtíð
tónlistarinnar því Skint og tónlist-
armennirnir halda sínu listræna
frelsi. Fyrsta útgáfan eftir að
samningurinn var í höfn er safn-
platan „Brassic Beats Vol. 3“. Það
er verulega góð kynning á big bit-
inu; fyrir utan þá Skint-listamenn
sem nefndir hafa verið í þessari
grein eru á plötunni íslandsvinim-
ir Bentley Rhythm Ace, Cut La
Roc, Hardknox og margir fleiri.
Útbreiðsla big bítsins ætti að
margfaldast þegar kynningardeild
Sony fer á skrið því þótt tónlistin
sé vinsæl í Bretlandi og Evrópu
eru Ameríkanar t.d. ekki komnir á
bragðið enn. Svo er bara að sjá
hvert big bítið þróast, hvort það
staðni eins og hver önnur gömul
æla á dansgólfi eða þróist í nýjár
víddir. Sjáumst á dansgólfmu!
- glh
Damian Harris: Glaður eftir góðan samning við Sony.
Lo-Fidelity Allstars: Passa við ímyndina.