Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.1998, Síða 4
FÖSTUDAGUR 17. APRÍL 1998 DV
■mn helgina
★ ★
Tunglið:
í kvöld veröa haldnir rokktónleikar í
Tunglinu þar sem nokkrar af okkar helstu
rokksveitum munu leika frá klukkan 22 til
3. Hljómsveitimar sem fram munu koma
eru Quarashi, Botnleðja, Maus, Stolía,
Vínyll og Spitsign.
Sveitimar þekkja flestir sem eitthvað
hafa fylgst með íslenska tónlistarvorinu
sem nú er í algleymingi. Botnleðja hefur
Risa-rokktónleikar
verið vinsælasta hljómsveit landsins þar
til fyrir jól að hún fékk harða samkeppni
frá öðrum ungsveitum, eins og t.d. Quar-
ashi og Maus. Síðastnefnda sveitin var síð-
an valin besta hljómsveit síðasta árs á ís-
lensku tónlistarverðlaunahátíðinni fyrir
stuttu.
Tónleikamir eru haldnir á spennandi
tíma þar sem hljómsveitirnar hafa ekki
látið mikið í sér heyra undanfarið. Flestar
standa þær i hljóðversvinnu ýmiss konar
eða hafa verið að undirbúa tónleikaferðir
og því ættu þær að koma geysilega ferskar
til leiks að nýju. Sem dæmi má nefna að
Botnleðja er nýkomin úr tónleikaferð um
Evrópu og er nú að undirbúa tónleikafór
um Ameríku.
Kirkjuhvoll:
Gítartónleikar
Sjöttu og síðustu tón-
leikarnir í styrktartón-
leikaröð kennara við
Tónlistarskóla Garða-
bæjar verða haldnir í
Kirkjuhvoli við Vidalínskirkju
á sunnudaginn, kl. 16. Umsjón
tónleikanna er i höndum Pét-
urs Jónassonar gítarleikara og
honum til aðstoðar verður
Hrafnhildur Hagalín. Á efnis-
skránni em einleiks- og sam-
leiksverk fyrir gítar eftir John
Dowland, Francisco Tárrega,
Erik Satje og Mauro Guilani.
í vetur hafa kennarar Tón-
listarskóla Garðabæjar staðið
fyrir tónleikum til að lýsa á
táknrænan hátt yfir stuðningi
við byggingu nýs húsnæðis
fyrir skólann. Kennararnir og
gestir þeirra gefa vinnu sína
við tónleikana og rennur að-
gangseyririnn óskertur í sjóð
sem nýttur verður til tækja-
kaupa fyrir skólann.
Pétur Jónasson gítarleikari mun leika til
styrktar tækjakaupasjóði Tónlistarskóla
Garöabæjar á sunnudag.
Vortónleikar Stefnis
Heiðar og félagar
rokksveitinni Botnleöju
munu ábyggilega veröa á
útopnuöu f kvöld, enda
vel æföir eftir tónleikaferö
um Evrópu. DV-mynd Hari
Karlakórinn Stefnir heldur fyrstu
vortónleika sína á þessu ári í Hafn-
arborg í Hafnarfirði á sunnudaginn
kl. 20.30. Þá gefst velunnurum kórs-
ins og öðrum áhugamönnum um
söng tækifæri til að at-
huga hvernig kórinn
kemur undan vetri.
Á sl. sumri fór kór-
inn í söngferð til Aust-
urríkis, Ungverjalands og
Tékkóslóvakíu og flutti þá m.a.
messu eftir Franz Liszt.
Að þessu sinni em smærri verk á
dagskrá en söngskráin er blönduð
og fjölbreytt. Auk hefðbundinna
karlakórslaga eftir innlenda og er-
lenda höfunda má nefna íslensk og
erlend lög af léttara tagi, nýjar út-
setningar á þekktum lögum auk
laga sem ekki munu hafa verið flutt
hérlendis áður.
Sum þessara laga era við erlenda
texta en kórmenn reyna þó að stiila
því í hóf með því að þýða erlenda
texta eftir fóngum. Einsöngvarar
em að þessu sinni allir úr röðum
kórmanna, alls sjö. Stjómandi kórs-
ins er Lárus Sveinsson og undirleik-
ari Sigurður Marteinsson. Tónleik-
arnir verða endurteknir í Varmár-
skóla í Mosfellsbæ á þriðjudag.
Listasafn íslands:
Fimm verk
Karólínu
Á simnudagskvöldið, kl. 20, verða
haldnir tónleikar í Listasafni ís-
lands. Þar verða flutt fimm tónverk
eftir Karólínu Eiríksdóttur. Þrjú
verkanna hafa verið flutt áður en
tvö verða fmmflutt.
„Ég valdi þessi verk saman af því
að þau hafa öll verið samin fyrir
viðkomandi listamenn," sagði Kar-
ólina í samtali við DV. En em ein-
hver sérkenni á nýju verkunum?
„Annað verkið er Flautuspil sem ég
samdi fyrir Martial Nardeau og ég
er ekki frá því að það sé nokkuð
öðruvfsi en það sem ég hef gert
áður. Hitt er svo við ljóðaflokkinn
Heimkynni við sjó fyrir sópran og
píanó sem er saminn við níu ljóð úr
samnefndri ljóðabók Hannesar Pét-
urssonar. Það er alltaf sérstakt að
semja lag við ljóð því þá er það ljóð-
ið sem ræður ferðinni og gefur hug-
myndir. Maður er aö túlka ljóðið,“
segir Karólína. Það em Ingibjörg
Guðjónsdóttir og Tinna Þorsteins-
dóttir sem flytja ljóðaflokkinn.
Hin verkin era öll samin á þess-
um áratug. Þau eru Spil, sem Guð-
rún S. Birgisdóttir og Martial Nar-
deau leika, Hvaðan kemur lognið?
sem er gítareinleikur, fluttur af Ein-
ari Kristjáni Einarssyni, og Skýin
sem Gunnar Kvaran sellóleikari
flytur.
Pimm verk eftir Karólínu Eiríksdóttir
veröa flutt á sunnudagskvöldiö, þar
af tvö frumflutt. DV-mynd GVA
Frumsýningargestir eru sjálfsagt vanir ööru en aö setjast upp í strætó f upphafi sýningar en þeir virtust láta
sér þaö vel lynda. DV-mynd S
Leikhús í strætó
Fyrir skömmu var framsýnt
leikritið Nóttin skömmu fyrir
skógana eftir Bernard-Marie
Koltés. Þetta er samvinnuverkefni
Nætur og dags, Loftkastalans og
Allrahanda. Leikritiö er sýnt í
talsvert óvanalegu leikhúsi því
það fer fram í strætisvagni sem
keyrir vítt og breitt um Reykja-
víkurborg. í þessu umhverfi nær
leikarinn mun meira sambandi
við áhorfendur en í venjulegu
leikhúsi og þar af leiðandi verða
áhorfendumir hluti sjálfrar leik-
sýningarinnar.
Þetta er einleikur og fer Ólafur
Darri Ólafsson með hlutverk er-
lends utangarðsmanns sem tekur
yfir strætisvagn og messar yfir
nærstöddum um aum kjör sín.
Ólafúr Darri er í útskriftarár-
gangi Leiklistarskóla íslands
þetta árið og ættu margir að
kannast við hann úr kvikmynd
Óskars Jónassonar, Perlum og
svínum, þar sem hann lék eitt að-
alhlutverkið. Hann hefur að auki
tekið þátt í fjölda leiksýninga.
Leikstjóri er Stephen Hutton.