Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1998, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1998, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998 Fréttir 16 ára verkamaður í Garði lenti í öflugri fiskvinnsluvél: Sá inn í bein og kjöt - segir Jón Ásgeir Harðarson - öryggisbúnaður vélarinnar í ólagi DV, Reykjanesbæ: „Mér brá rosalega mikið. Þetta var hræðileg sjón. Það blæddi mikið og ég sá inn í bein og kjöt,“ sagði Jón Ásgeir Harðarson, 16 ára verkamað- ur í Garði, sem fór með hægri hönd- ina í fésvél, fiskhausingavél sem klýfur fiskhausa í tvennt, 27. apríl sl. Fósturfaðir Jóns Ásgeirs, Krist- inn Sveinn Sigurðsson, þekkir vel til vélarinnar sem um ræðir. Hann segir hársbreidd hafa munað að enn verr færi þegar slysið varð. „Þetta var spurning um sekúndu- brot - ef hann hefði farið undir keðjudrifið hefði hann misst hönd- ina. Vélin greip fyrst í hanskann, togaði síðan áfram og í gallann og dró hönd hans inn í vélina. Vélar- blaðið tók fyrst liðinn á vísiflngri og fór síðan á kaf inn í miðliðinn á löngutöng og upp eftir handarbak- inu. Svo náði hnífurinn honum aft- ur og þá fór hann inn í efsta liðinn á vísifmgri og djúpt inn í mitt hand- arbak og risti allt þar í sundur. Það sást í gegnum höndina á honum. Ef hann hefði skekkt höndina eitthvað til vinstri meðan á þessu stóð hefði hann farið undir keðjudrifið. Það er í raun ótrúlegt að það skyldi ekki gerast. Jón var kominn með alla höndina inn í vélina og alveg að öxl þegar hann náði að sveifla vinstri hendinni yflr hægri hliðina og á ótrúlegan hátt tókst honum að teygja sig í rofann og slökkva á vél- inni,“ segir Kristinn Hann segir öryggisbúnað vélar- innar hafa verið í ólagi og því hafi slysið orðið. „Það er öryggisslá á vélinni og hún var ekki í sambandi. Rofinn Jón Ásgeir Harðarson verkamaður stórslasaðist þegar hann fór með hönd- ina í fiskvinnsluvél sem ekki var með öryggisbúnað í lagi. Hér er hann ásamt unnustu sinni, Sigurborgu Hlöðversdóttur DV-mynd Ægir Már vélina, eins og Jón, rekur maður sig í slána og það drepst strax sjálfkrafa á vélinni. Ef sláin hefði verið í lagi hefði vélin stöðvast í tæka tíð og þetta ekki gerst," segir hann. Jón Ásgeir segir að atvikið hafi átt sér stað þar sem hann var að teygja sig inn í vélina þegar einn hausinn festist. Hann hafi siðan ætl- að að ýta honum betin- inn í vélina en runnið til. Hann segir að eftir að hann hafi náð að slökkva á vélinni hafi félagi hans hjálpað honum að losna úr henni. Móðir hans, Sóley Kristinsdóttir, sagði það hafa verið hrikalega sjón þegar hún sá hönd sonar sins. „Ég sá ekki fyrir mér hvernig hægt væri að púsla þessu saman, miðað við hvernig sárið leit út og beinin. Ég gat ekki ímyndað mér að þetta yrði heil hönd aftur.“ „Læknar búast við því að hann fái að minnsta kosti staurfmgur á vísifingri og kannski á löngutöng einnig þar sem liðurinn fór illa. Tíminn einn verður að leiða í ljós hvemig þetta fer og það er bara að vona það besta um að hann nái bata, en hann nær sér aldrei full- komlega. Hann er með spelkur og vísifingur og löngutöng eru víraðir saman,“ sagði Kristinn Sveinn. Jón Ásgeir gaf skýrslu um atvik- ið í gær hjá lögreglunni í Keflavík. Vinnueftirlitið hefur skoðað um- rædda vél og gefið skýrslu. Eigend- ur fyrirtækisins hafa nú komið ör- yggisslánni í lag. Jón Ásgeir, sem verður 17 ára í júlí, stefnir á að fara í skóla í haust og ætlaði að læra bif- vélavirkjun en vegna slyssins verð- var bilaður en hann sló alltaf út raf- bara úr sambandi. Öryggissláin er ur hann líklega að velja annað fag. magninu þannig að þeir tóku hann fyrir gatinu og þegar maður fer í -ÆMK Tveir Tálknfirðingar dæmdir til að greiða Mengunarvarnasjóði fyrir brot sín: 3,5 milljóna sekt fýrir að sökkva Þrym - hroki og virðingarleysi gagnvart náttúrunni og landslögum, segir dómurinn „Hann skirrðist einskis við að hrinda verkinu í framkvæmd og sýndi með framferði sínu næstu daga eftir að skipið sökk hroka og virðingarleysi gagnvart náttúru is- lands, yfirvöldum og landslögum. Bendir greind háttsemi ákærða ein- dregið til þess að hann hafi litið á þetta sem sitt einkamál sem engum öðrum hafi komið við.“ Þetta segu m.a. í niðurstöðu fjöl- skipaðs Héraðsdóms Vestfjarða í gær í máli tveggja Tálknfirðinga sem stóðu að því að draga vélskipið Þrym út á Tálknafjörð í nóvember sl. Afleið- ingarnar urðu þær að Þrymur, 200 brúttólesta skip, sökk. Mennimir voru dæmdir til að greiða samtals 3,5 milljónir króna til Mengunarvarna- sjóðs. Álit dómsins var að háttsemi mannanna benti eindregið til þess að þetta hefði átt að fara leynt. í dóminum er það rakið að þaö hefði kostað eigandann, Bjarna Andrésson, á þriðju milljón króna að láta farga skipinu í Garðabæ. Auk þess átti hann yfir höfði sér málsókn fyrir að fjarlægja Þrym sem hafði staðið ónotaður í átta ár í fjörunni á Tálknafirði. í skjóli myrkurs Dómurinn benti á 8 atriði til stuðnings því að verknaðurinn hefði átt að fara leynt: Engin vitni fundust að flotun skipsins. Bjarni og Tryggvi Ársælsson, sá sem að- stoðaði hann við að draga Þrym á flot á farþegafleyinu Lindu, til- kynntu yfirvöldum ekki um fyrir- hugaðan drátt. Þrymur var dreginn ljóslaus á brott í myrkri. Bjarni neitaði ítrekað fyrir lögreglu að upplýsa um afdrif skipsins áður en kafarar voru sendir af stað með varðskipi til að finna flakið. Engar merkingar voru settar þar sem skip- ið sökk. Ekki vora gerðar ráðstafan- ir til að taka við Þrym á meintum áætlunarstað í landi. Skýring Bjama um að koma skipinu þar í geymslu þótti ótrúverðug. Engin grein var gerð fyrir þvi hvemig Bjami ætlaði síðan að farga skip- inu, enda hefði bráðabirgðageymsla þess annars staðar verið skýlaust brot á lögum um náttúruvernd. „Verður atvikið ekki rakið til slyss eöa óhappatilviljunar heldur til gáleysis ákærðu beggja, sem telja verður vítavert," segir í dóminum. Greiði sakborningarnir ekki sektir sínar - Bjarni 3 milljónir og Tryggvi 500 þúsund krónur - innan 4ra vikna er Bjama gert að sæta varðhaldi í 6 mánuði en Tryggva 2 mánuði. Dómsformaður var Jónas Jó- hannsson, héraösdómari Vestfjarða. Meðdómendur vora Finnur Torfi Hjörleifsson, héraðsdómari á Reykjanesi, og Agnar Erlingsson skipaverkfræðingur. -Ótt www.visir.is: Eridurbættur kosningavefur Gestir Netmiöilsins Vísis eiga frá og með deginum í dag kost á að fylgjst með aðdraganda sveitar- stjómarkosninganna á endurbætt- um kosningavef. Kosningavefur- inn hefur reyndar verið opinn á Netinu frá því i haust þar sem Vís- ir tók frumkvæðið í umfjöllun um kosningabaráttuna strax í október. Á þessum tíma hefur orðið til mjög myndarlegt safn frétta og greina er varöa prófkjörin og kosningabar- áttuna í sveitarfélögum landsins. Á kosningavef Vísis má lesa lesa nýjustu fréttir af framgangi kosn- ingabaráttunnar. Einnig gefst les- endum kost á aö skoða eldri fréttir og greinar og leita í gagnabanka þar sem er að finna þúsundir frétta er varöa sveitarstjómarmál. Á Vísi verða einnig úttektir um kosninga- baráttuna í einstökum sveitarfélög- um og framboðslistar kynntir. Þá era ótaldar óstaðfestar fréttir úr kosningabaráttunni sem notið hafa vinsælda á kosningavefnum. Lesendur Vísis geta skoðað fylgi framboðslistanna samkvæmt skoð- anakönnunum DV og rifjað upp úr- slitin í sveitarstjórnarkosningun- um 1994. Þá fá lesendur Vísis tæki- færi til að taka þátt í atkvæða- greiöslu, gefa framboðslistunum atkvæði sitt, og viðra skoðanir sín- ar um stefnumál framboðslistanna í stærstu sveitarfélögum landsins. Netmiðillinn Vísir er samstarfs- verkefni DV, Dags, Viðskiptablaðs- ins og fleiri aðila og er unninn í samstarfi við vefstofu Skimu. Til að komast inn á kosningavefinn þarf að slá inn slóðina www.visir.is og smella síðan í Kosningar 98. -hlh Kosningavefur Vísis er á slóð- inni www.visir.is Stuttar fréttir i>v Óviðunandi Kristján Ragnarsson, formað- ur LÍÚ, segir óviðunandi að Alþingi sé að skella á lögum og breyta regl- um um síld- veiðar rétt áður en veið- ar hefjast. Nýjar reglugerðir þingsins eigi eftir að skaða allt þjóðfélagið verulega. Tilboðsmarkaðurinn Verðbréfaþing íslands hættir frá og með 1. júní að veita reglu- bundnar upplýsingar um viðskipti á Opna tilboðsmarkaðinum. Fíkniefni í skólum Fíkniefnasalar eru famir að beina spjótum sínum að ung- lingum í elstu bekkjum grann- skóla á íslandi samkvæmt frétt- um Stöðvar 2. Þeir nota til þess tengiliði í hópi nemenda. U'tið úrval Einn framboðslisti stendur kjósendum í Hrísey til boða en þeir voru þrír í síðustu kosning- um. Á Breiðdalsvík og I Skorra- dalshreppi er einnig aðeins einn listi í framboöi. RÚV sagði frá. Slegist um bókstafi Félag óháðra borgara í Hafnar- firði telur sig eiga rétt á hstabók- stafnum H i komandi bæjarstjóm- arkosningum. í bréfi til yfirkjör- stjómar Hafnarfjarðar segja tals- menn félagsins að þar sem Félag óháðra borgara hafi haft bókstaf- inn H á árunum 1966 til 1986 eigi það rétt á að halda honum. Komugjöld i innheimtu Komugjöld á sjúkrahús og sjúkrastofn- anir eru komin í lög- fræðiinn- heimtu. Lög- fræðings- reikningur með komu- gjaldi upp á 600 krónur og lögfræðikostnaði á áttunda þús- und krónur til viðbótar var sýndur á Alþingi í gær. HeO- brigðisráðherra fúllyrti að slík- ur reikningur væri einsdæmi. 50 miðar á Sinfóníuna Sinfóníuhljómsveit íslands býður lesendum netmiðUsins Vís- is að taka þátt í léttri getraun og vinna tvo miða á næstu tónleika hljómsveitarinnar sem fram fara fimmtudagskvöldið 7. maí. 25 heppnir lesendur munu hver vinna tvo miða á tónleikana. 15 á miðunum 15 síldveiðiskip era komin á miðin, en sUdarvertíð hófst á miðnætti. í morgun voru litlar fréttir af afla þeirra. Helmingur sáttur Helmingur landsmanna telur að þaö myndi engu breyta um netnotkun sína þótt símagjöld lækkuðu. Þeir sem mest nota Netið eru harðastir á því að gjaldskráin eigi að lækka. Bylgj- an sagöi frá. Hálendistöku mótmælt Fjölmennur fundur samtaka útivistarfólks í gærkvöld skorar á þingmenn að fresta „há- lendisfrum- varpi" félags- málaráð- herra. Yfir 20 þúsund manns eru að baki fuUtrúaráð- inu sem boðaði tU fundarins. Bylgjan sagði frá. Ólga innan R-listans Ólga er innan flokkanna sem standa að R-listanum vegna þeirr- ar ákvörðunar að kenna listann ekki lengur við flokkana heldur Reykjavíkurlistann sjálfan. Nú má líta svo á að R-listinn sé orðinn flokkur en ekki lengur kosninga- bandalag fjögurra flokka. -SÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.