Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1998, Síða 4
Fréttir
Dræm viöbrögö viö skothríð Sverris:
Samsæri
þagnarinnar
Viðbrögð þeirra sem Sverrir Her-
mannsson hefur skotið fostum skotnm
að undanfama daga í greinum í Morg-
unblaðinu eru furðu daufleg, svo dauf-
leg að nokkra furðu vekur. Davíð Odds-
son forsætisráðherra lýsti því yfir við
Bylgjuna í gær að hann hefði ekkert
um úrsögn Sverris úr Sjálfstæðis-
flokknum að segja opinberlega og að
hann myndi svara opnu bréfi Sverris
til sín með lokuðu bréfi.
Helgi S. Guðmundsson, formaður
bankaráðsins, viil engu svara efnislega
um ásakanir Sverris á hendur honum
öðru en því að þær séu rangar. Finnur
Ingólfsson viðskiptaráðherra vill held-
ur engu svara um ásakanir Sverris á
hendur honum. Kjartan Gunnarsson,
fyrrverandi formaður bankaráðs
Landsbankans og framkvæmdastjóri
Sjálfstæðisflokksins, vill ekkert segja
um ásakanir Sverris um að hann sé
jafnvel heilinn á bak við það sem Sverr-
ir segir vera aðfór að sér, æru stnni og
starfi. Það eina sem Kjartan vill láta eft-
ir sér hafa er að það sé eftirsjá að
Sverri úr Sjálfstæðisflokknum.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson pró-
fessor er sá eini, sem Sverrir hefur þru-
mað yfir, sem eitthvað hefúr borið það
við að svara ásök-
unum sem á hann
eru bomar. Þær _______________________jg
sakir era þó harla
lítilvægar og raun-
ar ekki aðrar en
þær að hann sé
refshali og
Chicago-speking-
ur.
Það er því ekki
að ófyrirsynju að tala um samsæri
þagnarinnar, menn hafi ákveðið að
þegja Sverri í hel og láta sem þar fari
óður maður fram sem sjáist ekki fyrir
sakir reiði. Slíkum manni sé ekki
ástæða til aö svara.
En er Sverrir bara óður eða era
óvenjulega haröorð og á köflum grófyrt
skrif hans aðferö til að vekja kirfilega
athygli á málum? Lítum aðeins á helstu
Stefán
ásakanir
sem Sverrir
hefur látið
falla í grein-
um sínum í
Morgunblað-
inu að und-
anfomu:
Finnur
Ingólfsson
viðskipta-
ráðherra
Sverrir
sakar Finn
um að hafa
stjómað bak
við tjöldin
vinnu Sig-
urðar Þórð-
arsonar rík-
isendurskoð-
anda við út-
tekt á risnu-
og laxveiðimálum bankans. Finnur hafi
mælt fyrir um hvemig athugunin
skyldi vinnast með það fyrir augum að
fá fram fyrirfram gefha niðurstöðu sem
kæmi Sverri sem allra verst. „Finnur á
allan heiður af aðferðinni," segir Sverr-
ir í grein sinni í Morg-
unblaðinu 1. maí.
_______________ í 1. maí-greininni
rekur Sverrir Her-
mannsson feril Finns
Ingólfssonar í stjóm-
málalífinu út frá sín-
um sjónarhóli og með
- sinni aðferð. Hann
segir Finn hafa verið
fjármálalegan ráðgjafa
Þórðar Ingva Guðmundssonar, fram-
kvæmdastjóra fjármögnunarfyrirtækis-
ins Lindar, sem fór kirfilega á hausinn
og Landsbankinn tapaöi á áttunda
hundrað milljónum króna á. Lands-
bankinn eignaðist Lind við uppgjör
Sambandsins. Halldór Guðbjamason
bankastjóri var stjómarformaöur Lind-
ar þegar fyrirtækið varð gjaldþrota árið
1984.
sson
Sverrir Hermannsson. Bardaginn er rétt að byrja segja menn sem
kunnugir eru Sverri.
Sverrir lofar því að ekki séu öll kurl
til grafar komin í Lindarmálinu og seg-
ir að skuldadægur fyrirtækisins færist
óðfluga nær. Hann hafi ekki sagt sitt
síðasta orð þar.
Loks sakar Sverrir Finn um að hafa
rekist í því að gjaldþrota framsóknar-
manni, sem samkvæmt heimildum DV
er byggingameistari, var seld lóð í eigu
Landsbankans á 30 milljónir. Sverrir
kveðst hafa rift þessum kaupum, látið
fara ffarn úboð og selt lóðina á 70 millj-
ónir. Þessi lóð er viö Sæbraut, skammt
frá byggingu íslandsbanka á Kirkjus-
andi, og er kaupandi lóðarinnar úr út-
boðinu, Ármannsfell hf., að byggja fjöl-
býlishús á henni um þessar mundir.
Sverrir heitir því að segja betur síðar
frá því máli.
Helgi S. Guðmundsson
Helga S. Guðmundsson, núverandi
formann bankaráðs Landsbankans,
sakar Sverrir um að hafa reynt að færa
allar tryggingar Landsbankans yfir til
VÍS þar sem Helgi er tryggingasölu-
stjóri. Þar hafi Helgi verið að hygla
vinnuveitanda sinum og sjálfum sér,
því hann hefði fengið sölulaun fyrir
viðvikið.
Þessu vísar Helgi á bug í samtali við
DV. Hann sé ekki á prósentum hjá VÍS
og hann hafi ekki reynt að reka slíkt er-
indi. Að öðra leyti vildi hann ekkert
um ásakanir Sverris á hendur sér
segja.
Á hausinn með Samskip
í Morgimblaðsgrein 23. apríl heldur
Sverrir því fram að stjómarformaður
og forstjóri Eimskips, þeir Indriði Páls-
son og Hörður Sigurgestsson, hafi sótt
það fast viö sig og Kjartan Gunnarsson,
þáverandi bankaráðsformann, aö þeir
gerðu Samskip gjaldþrota. Þar með
hefði Eimskip orðið eitt á sjóflutninga-
markaði á íslandi.
Flestir fjölmiðlar landsins hafa spurt
þá Eimskipsmenn um málið en þeir
svarað því einu til að þetta sé ekki
svaravert.
Æpandi þögn
Þögn þeirra manna sem Sverrir sak-
ar um bolabrögö, undirferli og jafhvel
lögbrot er orðin æpandi. Menn sem
þekkja Sverri vel ftdlyrtu við blaða-
menn DV í gær að hann væri hvergi
búinn að tæma þá brunna sem hann
hefur ausið af að undanfómu. Hann
hafi frá upphafi gert sér grein fyrir að
málsmetandi menn myndu reyna að
þegja sig í hel og þess vegna hafi hann
tekið það til bragðs að draga hvergi úr
stóryrðum og fúkyrðum, ekki bara af
því honum væri það svo mjög lagið,
heldur ekki síður til þess aö kalla fram
hörð viðbrögð, gjaman meiðyrðamál.
Ef það gerðist væri Sverrir þar með bú-
inn að skapa sér opinberan vettvang,
eða bardagavöll, þar sem hann gæti lagt
ffam nauðsynleg og tiltæk gögn sem
hann sannarlega hafi undir höndum. Og
þau gögn muni velgja mörgum illa und-
ir uggum. Bardaginn sé rétt að byrja.
Ekki tókst, þrátt fyrir itrekaðar til-
raunir, að ná samtali við Sverri Her-
mannsson í gær.
Til fyrirheitna iandsins
Það styttist mjög í borgarstjómarkosning-
amar f Reykjavík. Þess vegna kanna fjölmiðl-
amir ótt og títt fylgi framboðslista í höfuð-
borginni, hinu forna vígi Sjálfstæðisflokksins.
Meginniðurstaðan, við athugun á hinum
ýmsu könnunum, er sú að R-listinn bætir við
sig manni nánast í hverri könnun. Árni getur
því hrósaö happi að nú eru innan við þrjá vik-
ur til kosninga.
Mönnum er það í fersku minni að staðan
var ekki björguleg hjá Sjálfstæðisflokknum
þegar leið að síðustu borgarstjómarkosning-
um. Markús Öm hætti sem útvarpsstjóri til
þess að verða borgarstjóri eftir að Davíð gerð-
ist landsfaðir. Aðrir í borgarstjórnarflokki
Sjálfstæðisflokksins komu sér ekki saman um
arftakann. Vilhálmur, Ámi og Katrín Fjeld-
sted vildu öll en fengu ekki. Vandinn var bara
sá að Markús Öm trekkti ekki þegar nær dró
kosningum. Vinstra liðið hafði tekið sig sam-
an í andlitinu og brætt saman lista sem Ingi-
björg Sólrún leiddi úr 8. sætinu.
Það voru því góð ráð dýr. Helsta djásn
flokksins var að tapast, sjálf höfuðborgin.
Borgin sem Sjálfstæðisflokkurinn hafði stjóm-
aö nær alla tíð ef frá er skilið vandræðatímabilið
þegar Sigurjón forseti Pétursson flutti inn Ikaras-
ana og fyrirhugaði að byggja á sprungunum við
Rauðavatn.
Því varð að grípa til örþrifaráða. Markús Öm
gafst upp á endasprettinum og var móður þá er
hann afhenti Árna Sigfússyni keflið. Ámi sat því
sem borgarstjóri síðustu daga kjörtímabilsins. Þaö
má hann eiga að hann dró veralega á frúna i 8. sæt-
inu þótt ekki dygði til. Hann mátti því gera sér að
góðu að afhenda þeirri sömu frú lyklana aö ný-
byggðu ráðhúsi Davíðs.
Það er ekki fyrirséð að sú ráðríka ffú ætli sér að
skila ráðhúslyklunum að þessu sinni. Það veit Ámi
þótt hann reyni að bera sig karlmannlega.
Hann gat nýtt sér ýmis rök áður þegar illa
gekk í skoðanakönnunum. Þá hafði R-listinn
annaðhvort fengiö athygli vegna nýlegs próf-
kjörs eða Sverrir Hermannsson skemmt fyrir
Sjálfstæðisflokknum. Nú verður því vart kennt
um lengur enda er Sverrir genginn úr flokkn-
um.
Hvað er þá til ráða? Það er væntanlega orð-
ið of seint að skipta um borgarstjóraefni. Þau
liggja heldur ekki á lausu. Það er trúlega fúll-
reynt með Markús Öm enda er hann orðinn út-
varpsstjóri á ný.
Ef allt fer sem horfir situr Ámi enn eftir
með sárt ennið og Ingibjörg Sólrún mun ráða
borginni allt þar til hún skefiir sér i landsmála-
slaginn við Davíð. Hvað geta gegnir íhalds-
menn í borginni við sundin gert í þeirri stöðu?
Bræðingur Ingibjargar er kominn til að vera.
Þeirra leið er sú sem svo margir hafa gripið til
á kjörtímabilinu. Þeir flytja til Kópavogs. Þar
er fyrir traustur hægri meirihluti og litlar lík-
ur á breytingu á næstunni. Þangað streymir
söfnuðurinn enda fólksfjölgun með ólíkindum.
Þeir sem eitt snm sáu rautt þegar þeir heyrðu
Kópavog nefndan safnast nú saman í fyrirheitna
landinu hjá þeim fóstbræðram Sigurði Geirdal og
Gunnari Birgissyni. í því húsi era margar vistar-
verar.
Kannski Ámi fari líka?
Dagfari
DV
Verkstjórar gefa fé
Verkstjórasamband ís-
lands hefur í tilefhi af 60 ára
afmæli sínu gefið sex milljón-
ir króna til eflingar heúsu-
gæslu og forvamamála. Með-
al þeirra sem njóta era
Bamaspítalasjóður Hringsins
og Landspítali.
Landar í Sviss
Dr. Jóhannes Sigfússon var
nýlega kjörinn forseti íslend-
ingafélagsins í Sviss í stað dr.
Hauks Kristinssonar. Aðrir í
stjóm eru Bima
Hjaltadóttir, Helga
Kemp, Anna B.
Michelsen, Boris
A. Specker, Dirk
Strohmann og
Bjarki Zóponíasson. Um 200
manns eru í félaginu og þriðj-
ungur íslendingar.
Landssöfnun
Landssamtök hjartasjúkl-
inga era að hefja landssöfti-
un. Átaksfundur verður í
Perlunni í dag og í gær tók
forseti íslands viö fyrsta
merki söfnunarinnar úr
hendi tveggja ára hjartasjúk-
lings á Bessastöðum.
Toyotaumboðið efst
Toyotaumboðið, P. Samú-
elsson kemur best út í könn-
un sem Félagsvísindastofhun
gerði fyrir Verslunarmanna-
félag Reykjavíkur á því
hvemig starfsfólk metur
vinnustað sinn. Strengur
varð í öðra sæti og Daniel
Ólafsson ehf. í þriðja. Flug-
leiðir eru í þriðja neðsta sæt-
inu, Samsölubakarí er í
næstneðsta og Flugfélag ís-
lands í því neðsta. Könnunin
náði til 126 fyrirtækja.
Ragnar til Eurocard
Ragnar Önundarson, ffarn-
kvæmdastjóri hjá
íslandsbanka,
hefur verið ráð-
inn fram-
kvæmdastjóri
Kreditkorta hf„
sem m.a. gefúr út Eurocard-
greiðslukortin. Fráfarandi
framkvæmdastjóri er Gunnar
Bæringsson.
30 þúsund i sjónum
Síldveiðiskipin neyðast til
þess að skilja eftir um 30 þús-
und tonn í sjónum af 200 þús-
und tonna heildarkvóta árs-
ins. Bylgjan segir þetta vegna
ráðleysis stjómvalda.
Meiri sektir
Útlit er fyrir að tekjur rík-
issjóðs af innheimtu lögreglu-
sekta hækki um minnst 100
milljónir króna á árinu mið-
að við árið í fyrra, ef marka
má fyrstu þrjá mánuði ársins.
RÚV sagði frá.
Kærunefnd tölvumála
Þorsteinn Pálsson dóms-
málaráðherra
sagöi á Alþingi
að kannað verði
hvort ástæða sé
til að koma á fót
sérstakri kæru-
nefnd sem úrskurðar um
ágreining vegna niðurstaðna
Tölvuneftidar. RÚV sagði frá.
Aukin veröbréfaútgáfa
Útgáfa verðbréfa hefur auk-
ist gífurlega hjá viðskipta-
bönkunum fyrstu þijá mánuði
ársins, eða um 51% miðað við
sama tima í fýrra. Gefin hafa
verið út verðbréf fyrir 38,16
milljónir króna á þessu ári.
Viðskiptavefur Vísis sagði frá.
Evran hefur áhrif
Viöskiptavefur Vísis segir
að tilkoma Evrópugjaldmið-
ilsins evru muni hafa áhrif
hér á landi til að auka vaxta-
mun og draga úr viðskipta-
kostnaði í utanríkisviöskipt-
um. Fækkun gjaldmiðla í
Evrópu mmii þýða erfiðari
samkeppnisstöðu íslenskra
fyrirtækja við erlend innan
evrusvæðisins. -SÁ