Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1998, Side 5
ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998
5
Fréttir
Fyrirspum Kristins H. Gunnarssonar alþingismanns um Æsuslysið:
Saumað að samgönguráðherra
„Viðbrögð stjómvalda í kjölfar
Æsuslyssins mörkuðust mjög af mik-
iili vantrú á því að unnt væri að kafa
niður að skipinu og jafhvel ná því upp
af hafsbotni. Engu að síður komu upp-
lýsingar frá fagmönnum, m.a. reynd-
um köfurum, um að þetta væri gerlegt
og jafhvel hægur vandi,“ sagði Krist-
inn H. Gunnarsson, þingmaður á Al-
þingi, í gær. Þá bar Kristinn fram fyr-
irspumir til samgönguráðherra vegna
Æsuslyssins.
Kristinn spurði ráðherra um heild-
arkostnað við köfun niður að Æsu,
hvaða íslenskir aðilar hefðu boðist til
að taka að sér verkið og hvers vegna
þeim hefði verið hafnað og af hverju
verkið hefði ekki verið boðið út.
Halldór Blöndal samgönguráðherra
sagði að kostnaður Siglingastofhunar
væri um 13,7 mifljónir, Kristinn yrði
að spyrja dómsmálaráðherra um
kostnað vegna varðskips og lögreglu
og Siglingstofnun hefði ekki borist til-
boð frá íslenskum aðilum. Hann sagði
ennfremur að ástæða hefði verið talin
til að kafa eins fljótt og mögulegt hefði
verið. Af þeim sökum hefði verið geng-
ið til samninga við bresku kafarana.
Ofullnægjandi
svör
„Svör ráðherra
eru ófullnægjandi
þar sem ekki barst
svar við spuming-
unni um heildar-
kostnað köfunar-
innar. Það er slæ-
lega að verki stað-
ið þar sem ráð-
herra hefur haft
margar vikur til að afla gagna en hef-
ur enn ekki fengið svör dómsmálaráð-
herra við spumingum um þann kostn-
að sem laut að því ráðuneyti. Ég átel
stjómvöld fyrir að hafa ekki látið kafa
niður að flakinu og taka það upp af
hafsbotni. 22 mánuðir em síðan skipið
fórst og málið er enn í rannsókn hjá
Rannsóknamefnd sjóslysa. Var m.a.
lögð áhersla á að ná upp plógi skipsins
og tókst það 16. maí sl. Fram kom að
þar væri mikilvægu markmiði náð til
að rannsaka ástæður slyssins. Nú er
liðið eitt ár síðan og enn ekki komin
niðurstaða," sagði Kristinn.
Hann spurði ráðherra ennfremur
hvenær væri að
vænta niðurstöðu
rannsóknamefnda
sjóslysa og af
hverju í tvígang
hefði verið skipt
um formann
nefhdarinnar í
þeirra rannsókn.
Kristinn sagði það
gefa augaleið að
mannaskipti í
nefndinni á rann-
sóknarstigi væm ekki til að greiða fyr-
ir störfum hennar.
Ráðherra sagðist gera sér vonir um
að svar nefndarinnar mundi liggja fyr-
ir um miðjan júní. Ástæðuna fyrir síð-
ari formannaskiptunum sagði hann
vera þá að hann hefði talið rétt að for-
maður nefiidarinnar viki sæti vegna
skyldleika við sig. Hann sagðist ekki
telja að formannaskipti hefðu tafið
rannsókn málsins.
Ekki góð stjórnsýsla
Kristinn svaraði ummælum ráð-
herra þannig að það væri ekki góð
stjómsýsla að skipa mann formann í
nefndinni sem kynni að vera vanhæf-
ui að einhverju leyti.
„Ráðherra hefur sagt að umræddur
formaður nefhdarinnar hafi verið van-
hæfur og því átti ekki að skipa hann í
upphafi. Við getum dregið þann lær-
dóm af þessu máli að augljóst sé að
skýringar á slysinu fáist ekki nema
skipið náist upp og það sé hægt. Það er
fjárhagslega og vel hægt. Stjómvöld
eiga að sjáifsögðu að gera það,“ sagði
Kristinn H. Gunnarsson.
Kristján Pálsson alþingismaður
sagðist furða sig á því að ekki hefði
verið gengið strax í að ná skipinu upp
til að rannsaka orsakir slyssins.
„í mínum huga væri eðlilegt að
samgönguráðherra beitti sér fyrir
breytingum á siglingalögum og trygg-
ingum skipa þannig að ákveðinn kafli
þar gerði ráð fyrir að trygging næði
einnig yfir að ná skipum af hafsbotni
undir eðlilegum kringumstæðum,"
sagði Kristján. -RR
rti m
Framleiðum brettakanta, sólskyggni og boddýhluti á flestar
gerðir jeppa, einnig boddýhluti í vörubíla og vanbíla.
Sérsmíði og viðgerðir.
ALLT PLAST
Kænuvogi 17 • Sími 588 6740 CED
Halldór Blöndal
samgönguráð-
herra.