Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1998, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1998, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998 Neytendur Verðkönnun á garðsláttuvélum: Fjölbreytt úrval Nú er sumarið komið og því fylgir alls kyns útivera hjá stórum sem smá- um. Á meðan börnin leika sér úti í góða veðrinu ræktar fullorðna fólkið garðinn sinn og þá er nauðsynlegt að eiga góða sláttuvél. Neytendasíða DV fór á stúfana og kannaði verð á sláttuvélum hjá sex fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu. Fyrirtækin sem voru könnuð eru: Hvellur á Smiðjuvegi 4c í Kópavogi, Ellingsen á Grandagarði 2, Þór hf. í Ármúla 11, Húsasmiðjan Skútuvogi 16, G.Á. Pétursson hf. Faxafeni 14 og BYKO. Skýrt skal tekið fram að hér er ekki um gæðakönnun að ræða því vélarnar eru mjög ólíkar og því er rétt að kanna hverja vél fyrir sig áður en nokkuð er keypt. Handafl, rafmagn eða bens- ín Eins og gefur að skilja eru sláttu- vélar knúnar handafli yfirleitt ódýrastar í könnuninni. Þar á eftir koma yfirleitt rafmagnssláttuvélarn- ar, síðan bensínsláttuvélar og fyrir þá sem vilja eiga sem náðugasta daga koma síðan bensínknúnar sláttuvélar sem setið er á, eins konar sláttubílar. Ódýrasta sláttuvélin í könnuninni var þýsk Gardena-handaflssláttuvél á 7.513 krónur. Sú vél er 40 sentímetrar vél. Allar vélarnar frá Gardena sem Húsasmiðjan selur eru mjög léttar, hraðskreiðar og með tannhjóli sem tvöfaldar afl manns. Næst í verðröðinni kom handafls- sláttuvél frá Hvelli sem heitir Sun- line. Sú vél hefur safnkassa og kostar 9.900 krónur. Þar á eftir koma tvær Gardena- handaflsvélar frá Húsasmiðjunni. Þær kosta 10.421 krónu og 13.585 krónur. Sú ódýrari er 45 sentímetra breið og sú dýrari 60 sentímetra breið. Gott úrval hjá Hvelli Mesta úrvalið i könnuninni var að finna hjá versluninni Hvelli í Kópa- vogi. Þar á bæ fékkst m.a. Sunline- handaflsvél með safnkassa á 14.900 krónur. Næst í verðröðinni kemur ódýrasta bensínsláttuvélin. Hún heitir MTD, fæst hjá G.Á. Péturssyni og kostar 16.000 krónur. Sú vél er 3,5 hestöfl, með Briggs-Straton mótor og nokkr- um hæðarstillingum. Aðalfundur Aðalfundur SameinaSa lífeyrissjóSsins verður haldinn mánudaginn 18. maí 1998 kl. 16.00. að Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38. 1998 Dagskrá: D Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins. 0|Kynning á nýju lífeyriskerfi. Bjlillögur til breytinga á reglugerS sjóðsins. Ojönnur mál löglega upp borin. | Aðildarfélögum sjóðsins hefur verið sent fundarboð og eru þau beðin að tilkynna skrifstofu sjóðsins fyrir 11. maí n.k. hverjir verða fulltrúar þeirra á fundinum. Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á fundinum með tillögu og málfrelsi. Þeir sjóðfélagar sem hyggjast nýta sér þennan rétt eru beðnir að tilkynna bað skrifstofu sjóðsins eigi síðar en 15. maí n.k. og munu peir joá fá fundargögn við setningu fundarins. I Tillögur til breytinga á reglugerð liggja frammi á skrifstofu sjóðsins frá 22. apríl 1998 og geta þeir sjóðfélagar sem áhuga hafa á að kynna sér joær fyrir fundinn, fengið (oær á skrifstofu sjóðsins eða sendar í pósti. Einnig er hægt að nálgast tillögurnar á veraldarvefnum. Slóð sjóðsins er www.lifeyrir.rl.is. Frá og með 27. apríl munu reikningar sjóðsins liggja frammi á skrifstofu hans fyrir joá sjóðfélaga, sem vilja kynna sér joá. Reykjavík, 22. apríl 1998 Stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins. Suðurlandsbraut 30 108 Reykjavík Sími 510 5000 Fax 510 5010 Grænt númer 800 Ó865 Heimasíða: lifeyrir.rl.is Netfang: mottaka@lifeyrir.rl.is imeinaði lífeyrissjóÖurinn Græddur er geymdur lifeyrir Rafmagnssláttuvélar Sláttubílar 50.000 kr. 45.000 40.000 35.000 30.000 25.000 20.000 15.000 10.000 5.000 0 49.900 24.990 18.800 19.900 Alko Alko Alko Alko Hvellur Hvellur Hvellur Hvellur 500.000 kr. 450.000 400.000 350.000 300.000 250.000 200.000 150.000 100.000 50.000 0 475.000 315.000 199943 220.000 1 « 8 | 3 2 Á ^ 4 s Hvelll r Hvellur 1 Ham íláftuvélar 18.000 kr. 16.000 14.000 12.000 10.000 8.000 6.000 4.000 2.000 0 Ö % i 9.900 } 10.421 7.513 Gardena I Sunline Gardena Húsa- smiðjan Húsa- án 80.000 kr. 70.000 60.000 50.000 40.000 30.000 20.000 10.000 16.633 Mr 14.900 13.585 Gardena Sunline Gardena Hvellur Húsa- smiöjan sláttuvélar 77500 71000 69.000 59.900 60.000 35.895 38.000 í A:' 39^00 4U0° 4L8!7 24990 0 16.000 Q t— 5 Q t _______ G.Á.P.Hvell-Byko G.Á.P. Hvell-Elling-Hvell- Hvell-Hvell- > ur ur sen ur ur ur z ; S. S 5 13_ Þór G.Á.P. Hvell-Hvell- Þór ur ur Næst í verðröðinni kemur Gar- dena- handaflsvél frá Húsasmiðj- unni á 16.633 krónur. Sú vél er 80 sentímetra breið. Hvellur býður einnig nokkrar gerðir af rafmagnsvélum. Þær heita Alko og eru þýskar. Ódýrasta Alko-vélin kostar 18.800 krónur, sú næst ódýrasta 19.900 krónur, þar á eftir kemur vél á 24.990 krónur og að síðust vél á 49.900 krónur. Allar Alko vélarnar hafa safnkassa til að hirða upp grasið en verðmunurinn felst m.a. í sláttubreiddinni sem er frá 32 sentímetrum upp i 46 sentímetra. Bandarískar vélar Hvellur býður bandarískar bensín- sláttuvélar sem heita Murray. Ódýrasta Murray-vélin kostar 24.990 krónur. Sú vél er 3,5 hestöfl og hefur Briggs-Straton mótor, hækkunarbún- að og poka. Næst í verðröðinni kemur vél frá BYKO sem kostar 35.895 krónur. Sú vél er amerísk, með drifi og Briggs- Straton mótor. Þar á eftir kemur síðan MTD-vél frá G.Á. Péturssyni á 38.000 krónur. Sú vél er 4 hestöfl, með poka, Briggs- Straton mótor og hæðarstillingum. Næst kemur síðan bandarísk Murray-vél frá Hvelli á 39.900 krónur. Sú vél er 3,75 hestöfl, með poka, drifi, afturblæstri, hækkunarbúnaði og Briggs-Straton mótor. Bæði Ellingsen og Hveliur selja flögurra hestafla Murray vélar. Hjá Ellingsen kostar vélin 41.600 krónur en hjá Hvelli kostar hún 41.887 krón- ur. Sú vél er með Briggs-Straton mót- or, hækkunarbúnaði og poka. Mismikið hestafl Næst í verðröðinni kemur Hvellur með fimm hestafla Murray- vél á 51000 krónur. Sú vél hefur Briggs-Straton mótor, hækkunarbúnað og drif. Þar á eftir kemur verslunin Þór hf. með bandaríska Lawnboy-vél á 59.900 krónur. Lawnboy-vélarnar eru svo- kallaðar tvigengisvélar þar sem olíu og þensíni er blandað saman. Þá er hægt að slá í miklum halla. Lawnboy-vélin er úr áli, með 60 lítra grassafnara og hæðarstiflingum. Þór hf. selur einnig Lawnboy-vélar með drifl á 77.500 krónur. G.Á. Pétursson býður fjögurra hest- afla MTD-vélar með drifi og poka á 60.000 krónur og Hvellur býður fimm hestafla Murray-vél með poka, hækk- unarbúnaði og Briggs-Straton mótor á 68.000 krónur. Lestin hjá hefðbundnum bensínvél- um rekur síðan fimm og hálfs hestafla Murray-vél frá Hvelli sem kostar 73.000 krónur. Sú vél er með drifi, poka, rafstarti, hækkunarbúnaði og Briggs-Straton mótor. Sláttubílar Fyrir þá sem vilja eiga virkilega náðuga daga í garðinum býður Hvell- ur fjórar gerðir af sláttuvélum með sæti, þ.e. nokkurs konar sláttubílum. Ódýrasti sláttubíllinn kostar 199.843 krónur. Hann er 10 hestöfl og fimm gíra. Þar á eftir kemur 12,5 hest- afla bíll á 220.000 krónur. Hann er einnig fimm gíra. Þrettán hestafla bill með sex gírum og poka kostar síðan 335.000 krónur og átján hestafla sjálf- skiptur sex gíra sláttubill kostar 475.000 krónur. Það er því ljóst að úrvalið af sláttu- vélum er nóg og þvi ættu flestir að geta fundið eitthvað sem hæfir þeirra fjárhag fyrir sumarið. -glm Sönglar af ánægju Heyrst hefur að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir söngli títt lagið Ó borg, mín borg, svo ánægð er hún um þessar mund- ir. Hún lætur ekki þar við sitja því nú hefur hún látið hljóðrita söng sinn á geisladisk. Ekki er vitað til þess að borgarstjór- inn sé fagur- óma kona en hins vegar eru tæknimenn í hljóðverum famir að geta mixað ótrúlegustu hluti. Prýðilegan söng geta þeir gert úr hvers kyns hljóðum. Þrátt fyrir þessi undur tækninnar er ekki vitað hvernig tókst til með þessa nýjustu söngstjörnu ... Kynlegur kvistur Ragnar Bjamason heldur úti ágætum viðtalsþætti á Aðal- stöðinni. Sl. sunnudag ræddi hann við Ólaf Hannibalsson, blaðamann og fyrrum bónda í Selárdal. Ólafur sagði þar frá kynnum sínum af Gísla á Upp- sölum sem þjóöþekktur varð í rneðför- um Ómars Ragnarssonar, fréttamanns á Sjónvarpinu. Það var þó ekki Ómar sem varð fyrstur til að kynna einbúann til sögunnar heldur sagði Ólafur að Árni Johnsen hefði fyrstur fjöl- miölamanna náð til Gísla. Þegar Gísli sagði Ólafi nágranna sín- um frá heimsókn Vestmannaey- ingsins knáa lét hann fylgja að gesturinn hefði verið „kynlegur kvistur"... Tíkarsynirnir Sverrir Hermannsson, laxa- bóndi af Hrútafjarðará og fyrr- um bankastjóri, hefur að undan- fórnu farið mikinn í Mogganum. Blaðið, sem virk- ar orðið sem einkamálgagn bankastjórans fallna, hefur m.a. birt at- hugasemda- laust að nafn- greindir fjöl- miðlamenn séu „tíkarsynir". Stefán Jón Hafstein, ritstjóri Dags, og Birgir Guðmundsson, aðstoðarritstjóri sama blaðs, hafa hlotið þessa einkunn bankastjórans. Nú munu ein- hverjir þeirra sem Sverrir hegg- ur til vera að skoða alvarlega að stefna hinum allt um faðmandi Mogga fyrir að útbreiða róg ... Gegn sægreifum í herferð Sverris Hermanns- sonar í Mogganum gegn útvöld- um einstaklingum og afsögn hans úr Sjálfstæðisflokknum hefur hann jafn- framt lýst yfir að hann muni berj- ast gegn kvóta- kerfinu og sæ- greifum þessa lands. Eitt öfl- ugasta útgerð- arfyrirtæki á landinu heitir Ögurvík eftir ættaróð- ali Sverris og á tvo frystitogara. Það er Gísli Jón Hermanns- son, bróðir Sverris, sem stýrir fyrirtækinu og á það ásamt öör- um ættmennum bankastjórans fallna. Það gengur eflaust eitt- hvað á í fjölskylduboðum á næstunni þegar sægreifarnir og böðull þeirra koma saman að einu borði... Umsjón Reynir Traustason Netfang: sandkom @ff. is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.