Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1998, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998
í verðlaun eru 100 FUJIFILM Quicksnap einnota
myndavélar, 10 Borrowers bakpokar, 30 Borrowers
bolir og 100 bíómiðar sem gilda fyrir tvo.
1 .-10. verðlaun Kolbrún J. Ólafsdóttir
Bakpoki, bolur, myndavél Fanney Vigfúsdóttir
og 2 bíómiðar Ernir Magnússon
Steinlaug Högnadóttir Inga Ósk og Jón Þór
Ragnhildur og Hans Siguröur Helgi Magnússon
Jóhannesarbörn Aníta Rut Erlendsdóttir
Fjóla Dóra Sæmundsdóttir Guðbjörg Björgvinsdóttir
Tinna Dröfn Þórarinsdóttir Hólmfríður G. Magnúsdóttir
Friðrik Örn Eyjólfsson Hinrik Wöhler
RósmundurJóhannsson Fanney Ósk
Hjördís Pétursdóttir og Bylgja Björk
Birkir Örn Jónsson Jón Ingi Þórðarson
Tryggvi og Arnar Auður Ákadóttir
Guðnasynir Elsa I. Egilsdóttir
Don A. White
11.-30. verðlaun Berglind, Ingibjörg
Boiur, myndavél og Skúli
og 2 bíómiðar Hafþór Magnús Kristinsson
Hákon Freyr Jónsson Ástgeir R. Sigmarsson
Helena Svava Hjaltadóttir Ágúst Ingvar Magnússon
Tanja G. Jóhannsdóttir Halldóra Hafsteinsdóttir
Örn Ingi Arnarsson Þorsteinn Björn Einarsson
Sveinn Ingi Ástvaldsson Tómas Rizzo
Dagný Hermannsdóttir og Ólafur Jón
Ástríður Jónsdóttir Bjarni Freyr Björgvinsson
Valdís Guðrún Erla Sigurðardóttir
Ingibjörg S. Hjartardóttir Sóley Bjarnadóttir
Sigurvin Ellert Jensson Arnar Þór Egilsson
Eva og Júlía Elfarsdætur Karen Ösp Birgisdóttir
Tanja Georgsdóttir Siguröur Kári Kristinsson
Kjartan Orri Sóley Óskarsdóttir
Bjarki Dagur Layfey Inga Stefánsdóttir
Kristín Björg Þórsteinsdóttir Bjarki Þór Gunnarsson
Kristinn Sævar Magnússon Daníel Örn Einarsson
Jóhannes A. Logason íris Hildur Birgisdóttir
Jónas Freyr Haraldur Lúðvík Haraldsson
Arnar Hólm Bjarnason Harpa Guðjónsdóttir
Hjördís Anna Jónsdóttir Sveinn Hólmar
Guðmundsson
31 .-100. verðlaun Vignir Jóhannesson
Myndavél og 2 bíómiöar Andri Þór Ólafsson
Berglind Guðmundsdóttir Sindri Snær Kolbeinsson
Helena Margrét Guðni Már og Benedikt R.
Friðriksdóttir Karen Eva Sæmundsdóttir
Brynjar Jónsson Guðmundur G. Birgisson
Helga Dís Jakobsdóttir Valdís María Einarsdóttir
Lilja Rut Traustadóttir Friðrik Gunnarsson
íris Björk Björnsdóttir Halldór Hólm Kristinsson
Daníel Brynjar Sigurðsson Kristrún Einarsdóttir
Björgvin Páll Rúnarsson Ragnar Magnússon
Friðjón Pálsson Arnar Þór Halldórsson
Snævar Dagur Pétursson Guðrún Þóra og Ágúst Þór
Gunnar Þórir Þjóðólfsson Ása Magnea Vigfúsdóttir
Erlendur og Björg Anna María Lárusdóttir
Vigfúsarbörn Laufey Steinsdóttir
Elvar Freyr Pálsson Birgir Þór Þorbjörnsson
Ingvar Haukur Sandra Kristinsdóttir
Guðmundsson Einar Freyr Þorleifsson
Gunnar Hannesson
Fjóla Hrund Björnsdóttir
Elías Jóhann Jónsson
DVog Háskólabíó óska vinningshöfum til
hamingju og þakka fyrir þátttökuna.
Vinningar verða sendir til vinningshafa.
r.~. * ;...^
HÁSKOLABIÓ
Utlönd
Tvöfalt morð
í páfagarði
Nýr yfirmaður svissneska lífvarð-
arins í Vatikaninu, AIois Estermann,
var skotinn til bana í gærkvöld ásamt
eiginkonu sinni. Alois Estermann
var myrtur aðeins 10 klukkustundum
eftir að Jóhannes Páll páfl skipaði
hann í embætti yfirmanns litla hers-
ins í páfagarði. Að sögn talsmanns
páfagarðs bendir allt til að undirfor-
inginn Cedric Tomay hafi myrt
Estermann og konu hans, Gladys
Meza Romero, í stundarbrjálæði og
síðan svipt sig lífí. Byssa Tomays
fannst undir líkama hans.
Það var Estermann sem kastaði sér
yfir páfa á Péturstorginu I Róm fyrir
17 árum til að vernda hann fyrir frek-
ari árásum aðeins nokkrum sekúnd-
um eftir að tyrkneskur tilræðismaður
hafði skotið á páfann.
Lík þremenninganna fundust í
íbúð í páfagarði. Nágranni hafði
heyrt læti frá íbúðinni og gert við-
vart. Estermann, sem vanalega var í
gráum jakkafotum þegar hann var
við störf, bjó til hægri við Péturstorg-
ið. Flestir íbúa páfagarðs eru kard-
ínálar, biskupar, prestar og nunnur.
Einnig búa þar aðrir starfsmenn páfa-
garðs og fjölskyldur þeirra. Flestir
þeirra em yfirmenn í svissneska líf-
verðinum. í lífverðinum, sem stofnað-
ur var árið 1506, em aðeins róm-
versk-kaþólskir Svisslendingar. Þeir
mega ekki vera undir 180 sentímetrar
á hæð. Þess er einnig krafist nú á
dögum að þeir séu vel menntaðir. í
hemum eru 100 menn. Erfitt er að fá
hæfa menn til starfans þar sem laun-
in em ekki nema um 200 þúsund ís-
lenskar krónur á mánuði.
Svissneski lífvörðurinn klæðist lit-
ríkum fatnaði viö ýmsa viðhafn-
eirsiði. Ferðamönnum þykir gaman
að taka myndir af hermönnunum þar
sem þeir marsera eða standa vörð við
hlið páfagarðs með hjálma á höfði og
sverð í hendi.
Hermaöur í svissneska lífverðinum lokar hliöi aö páfagaröi eftir aö yfirmaöur lífvaröanna og eiginkona hans voru
skotin til bana í gærkvöld. Undirforingi er talinn hafa skotiö hjónin og síöan svipt sjálfan sig lífi.
Símamynd Reuter
Þungar horfur í Lundúnaviðræðum:
Þrýst á Netanyahu
í morgunverðinum
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, bauð Benjamin Netanyahu,
forsætisráðherra ísraels,
enn einu sinni til morg-
unverðar í morgun til að
reyna að þoka friðarmál-
um fyrir botni Miðjarð-
arhafsins áleiðis.
Mjög er nú þrýst á
Netanyahu að skila
Palestinumönnum
meiru af herteknu landi
á Vesturbakkanum.
Til stóð að Madeleine
Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna,
hitti Netanyahu að máli í þriðja sinn
á einum sólarhring síðar í morgun.
Hún hafði leyft honum að sofa á til-
lögu bandariskra stjómvalda um að
ísraelar afhentu palestínsku heima-
stjóminni þrettán prósent Vestur-
bakkans til viðbótar. ísraelar hafa
hins vegar verið mjög tregir í taumi.
Albright mun einnig eiga annan
fund með Yasser Arafat, forseta
Palestínumanna. Hann segist þegar
hafa fallist á tillögu Bandaríkja-
stjómar og var hreint
ekkert ánægður með að
þurfa að dvelja eina nótt
enn í Lundúnum.
David Bar-Illan, tals-
maður Netanyahus, sagði
viö upphaf morgunverð-
arfundarins í morgun að
miðað hefði áleiðis í við-
ræðunum í gær þar sem
Albright ræddi við leið-
togana hvom í sínu lagi.
Talsmaðurinn spáði því
að viðræðurnar fæm ekki
út um þúfur.
James Rubin, talsmaður banda-
ríska utanríkisráðuneytisins, sagði í
gær að mikið lægi á og að mikil
hætta væri á ofbeldisverkum ef ekki
tækist að koma friðarviðræðum aftur
af stað. Viðræður ísraela og Palest-
inumanna hafa legið niðri í fjórtán
mánuði.
Reuter
Benjamin Netanyahu.
Dönsku verka-
lýðsfélögin
boða til mót-
mælaaðgerða
Verkalýðsfélögin i Danmörku
hafa boðað til mótmælaaðgerða í
Kaupmannahöfn og átta öðmm
borgum og bæjum í dag, níunda
dag verkfallsins, til að krefjast
fleiri orlofsdaga.
Samningaviðræður milli
verkalýösfélaganna og atvinnu-
rekenda í nótt fóru út um þúfur.
Að sögn samningamanna er enn
breitt bil á milli aðila.
Deilendur vom þó sammála
um að hafna tilmælum Pouls
Nyrups Rasmussens forsætisráð-
herra í gær um að leita eftir að-
stoð ríkissáttasemjara við að
leysa deiluna. Samningafundur
hefúr verið boðaður aftur í dag.
Aðalkrafa verkalýðsfélaganna
er um aukið orlof sem atvinnu-
rekendur segja að muni leiða til
aukins kostnaðar og erfiðari
stöðu danskra fyrirtækja. Talið
er að Danir verði af um sjö millj-
örðum íslenskra króna í útflutn-
ingstekjur á dag. Reuter