Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1998, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1998, Side 11
DV ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998 Djassað í Amsterdam í borg eins og Amsterdam er úr miklu að moða, jafnvej í stuttri heimsókn, og tónlistaráhugamenn geta flestir fundið þar eitthvað við sitt hæfi. Það sama virðist gilda um ýmsar listgreinar aðrar, að ekki sé minnst á þær lystir sem ritaðar eru með ypsiloni. En mað- ur á mínum aldri leitar ekki eftir hasskögglum fremur en heyböggl- um og afþakkar pent e-pillur sem boðnar eru til sölu á götuhomi. Og aðeins fyrir forvitni sakir er kíkt inn á hasskaffihús og siija þá þar ekki síðhærðir menn í muss- um og stara í tómið og maður gæti haldið að ártalið væri 1972 ef andlit gestanna væm ekki svona ellileg. Á ferð með eiginkonu er gengið hröðum skrefum gegnum Rauða hverfið og hvergi staldrað við, rétt til að geta sagst hafa komið þar. En tilvera túristans í Amsterdam er ekki eingöngu fólgin í því að rölta um gamla bæinn með grænu bókina hans Jónasar rit- stjóra DV í hendinni (Ævintýralega Amster- dam, Fjölvi 1992). Að vísu var Nýja kirkja skoð- uð að innan ásamt Van Gogh-safninu, Stedelijk Museum, Kattasafninu (Catcabinet) og fleiri byggingum og ótal margar aðrar utan frá, einnig voru bragðlaukamir kitlaðir með óvenju- legum mat, brjálæðislegum tertum, konfekti og góðu kaffi. Og svo var farið á tónleika. Fyrir mann í helgarferð í stórborg sem búinn er að gleyma hvemig er að vera nátthrafn var aldeilis ágætt að geta komist á tónleika í sér- stökum hljómleikasal en þurfa ekki að sitja fram í rauða býtið á reykmettaðri búllu. Slík em svo oft örlög þeirra sem ekki sækjast eftir klassískri tónlist. Hijómsveitin Rumbatá er gerð út frá Amsterdam en hana skipa tónlistarmenn frá Kólumbíu (hljómsveitarstjórinn Jaime Rodrigues), Panama, Puerto Rico, Argentínu, Bandaríkjunum og Hollandi. Þessi tíu manna hljómsveit flytur salsa- tónlist eins og hún getur best orðið. Söngur, píanó, bassi, trompet, bás- úna, saxófónn, kongatrommur, bongótrommur, timbales, maracas og fleiri ásláttarhljóð- færi sjá um íjörið sem er mikið. Söngv- arinn, Miguel Montenegro, og aðal- bakraddarinn og maracasspilarinn stóðu tveir fremstir á sviðinu og sungu og dönsuðu. Sá síðar- nefndi leiddi montu- no-söngiim sem fellst í síendurtekningu stutts viðlags um miðbik lags og/eða undir lok þess. Ef ekki er sungið er sami háttur hafður á með hljóðfæraspili. Sérstaklega var gam- an að þeim félögum í sam(h)æfðum danssporum svo að minnti á gamla bandaríska soulsöngvara nema þess- ir voru öllu hressilegri. Sólóum var skipt nokkuð bróður- lega á milli manna. Flest voru þau stutt nema hjá píanóleikaranum unga, Mark Bishop, sem sýndi að hann hefur ekki bara hlustað mikið á einn snjallasta salsa-píanista ver- aldar, Chucho Valdés úr kúbönsku hijómsveitinni Irakere, heldur líka lært heilmikið af honum. Og svo bætt við frá sjálfum sér. Básúnuleik- arinn, David Rotchild, átti lika frá- bært sóló og fór auk þess á kostum í kynningu hljómsveitarmanna. Þetta var allt ekta salsa með mátulega miklum djassblæ, aðallega frá blás- aradeildinni. Djassinn var bara not- aður sem krydd en að öðru leyti inn- limaður í cha-cha-cha, merengue, ýmsar gerðir af rúmbu og guð má vita hvað. Tónleikar þessir voru haldnir í hátiðasal Tropen Museum sem er geysistór bygging til- einkuð rannsóknum og sýningum á alls konar efni sem tengist Þriðja heiminum. Þarna var allt í gullslegnum marmara og útskomum viði. Þetta var einstaklega ánægjuleg upplifun, bæði tónleikarnir og húsnæðið. Djass Ingvi Þór Kormáksson Kvöldið eftir var þrátt fyrir allt steðjað á ofur- litla djassbúllu sem heitir Alto í aðalskemmt- anahverfinu við Leidsepleis. Þar lék kvartett bandaríska trommuleikarans Steve Altenberg ásamt ástralska píanóleikaranum Walter Lampe og tveimur mönnum í fremstu röð hollenskra djassleikara í dag: altósaxófónleikaranum Jasper Blom og kontrabassaleikaranum Sven Schuster. Þeir fluttu eðalgræna standarða með bop- bragði listavel. Á eftir þurfti eins og venju- lega að biða eftir sporvagni. - Það sem maður minnist helst frá Ámsterdam eru sporvagnar, gömul hús og' síki og mann dreymir þetta fyrstu dagana eftir að komið er heim. Þessi borg orkar sterkt á mann. Þeir sem áhuga hafa á geisladisk með Rumbatá skulu panta: RUMBATÁ - ENCUENTROS (CHR 70032) - Challenge Records, PO Box 540, 6800 AM Arnheim, Holland. Steve Altenberg, Jasper Blom, Sven Schuster og Walter Lampe fluttu eðal- græna standaröa. Leyfið börnunum að fara til þeirra Undanfarin ár hafa áhrif sjón- varps á böm verið rannsökuð. Fundin hafa verið mörkin milli neyslu og ofneyslu og amerískum bömum á kafi í neyslu verið lýst. Námsárangur þeirra er slæmur, almannatengslin í núlli, augnstarf- semin ekki í lagi, hreyfigeta skert og veruleikaskyn þeirra alvarlega brenglað. Allt vegna vágests nú- tímans, sjónvarpsins. Það var ekkert sjónvarp þegar ég var lítiL Við höfðmn annan vá- gest. Það tók bara enginn eftir honum, sökum útbreidds áhuga- leysis á líðan bama. Vágesturinn ógnaði námsárangri, augnstarf- semi var einhæf og almanna- tengslin vora 0,5, því um leið og ég lærði að lesa tók ég bók fram yfir að sitja á gangstéttinni og telja bíla með jafhingjum mínum. Mamma hefði skrifað undir aö hreyfigetan væri skert, við hreyfð- umst ekki þegar hún kallaði, held- ur héldum áfram að lesa. Veru- pau ^afa fe leikaskynið má mæla á því að eft- ir töluvert magn ævintýra að við- bættum dönsku blöðunum með myndum af prinsessum af holdi og blóði, var ég reiðubúin að afneita lúðaiegum lágstéttarfor- eldrum minum. Á undan bókixmi var bamavinnan. Hvaða mynd hafa börn af stóra veruleikanum sem hnýta teppi allan daginn? Er hreyfigeta þeirra skert af að krjúpa í fjórtán stundir? Hvemig era almannatengsl þeirra við vefstólinn? Bandaríska spumingin var mögulega röng. liö sína eigin rás. Hún átti ekki að vera hvort það hefði slæm áhrif á böm að horfa á sjónvarp í sjö til tólf stundir á dag heldur hvort það væri vont fyrir böm að vera ekki sinnt af fullorðnum daglangt, njóta hvorki leiðbeiningar né ritskoðunar, né heldur að einhver eða eitthvað í umhverfinu vekti áhuga þeirra á fleira en fjórtán stunda ein- hæfu atferli. Til skamms tíma bauðst íslenskum bömum ekki sólarhringsdagskrá til að skemma sig á en þau gátu gomsað i sig talsverðu ofbeldi af skerminum. Seint og um síðir datt okkur í hug að það gæti haft áhrif á þau. Allt, sem böm neyta, hefur áhrif. Fjölmiðlar Auður Haralds Foreldrar geta ekki hangið niðr- um hálsmálið á börnunum allan sól- arhringinn. Þeir geta ekki flett með þeim hverri bók eða fylgst með öllu sjónvarpsefhi. Spumir berast að þeir standi heldur ekki yfir Vefstól- unum í austurlöndum. Er það ekki síáhyggjufullum og samviskubitn- um foreldram siðferðilegur styrkur að við höfum eignast barnarás þar sem efnið er fyrirfram ritskoðað? Út- sendingartíminn er innan þeirra marka sem börn þola án þess að skerðast eða firrast. Að visu gæti stöku móðir orðið að fóma Leiðar- ljósi. Settist hún með bömunum, fengi hún í staðinn vitsmunalegt efni. Góö mælistika á efni ætlað bömum er hvort fullorðnir hafa ánægju af því. Ef þeim misbýður innihaldsleysi þess eða hugmyndasneyð, þá er það líka vanvirðing við böm eldri en tveggja ára. Með Bamarásinni erum við hætt að mis- bjóða greind fólks og þá hætt að meitla burtu skynsemina. Lásu alla nóttina Ungi maðurinn á myndinni heit- ir Jón Ingi Jónsson og þegar mynd- / in var tekin var hann að lesa úr fs- : landsklukkunni. Hann var einn úr hópi 35 nemenda í 9. bekk í Borg- amesi sem lásu úr verkum Hall- dórs Laxness í heilan sólarhring til * aö afla fjár vegna fyrirhugaðrar | Danmerkurferðar hópsins að ári. Var áheitum safnað meðal íbúa I bæjarins og í fyrirtækjum meöan á lestrinum stóð. Umsjón með uppá- ) komunni höfðu kennaramir Anna | Guðmundsdóttir og Ása Björk Stef- ;; ánsdóttir. Lesturinn hófst kl. 13 laugardag- I inn 4. apríl á bókasafni Grannskóla J Borgarness um leiö og sýning frá þemaviku skólans um umhverfis- mál var opnuð. Lesnir vora valdir kaflar úr íslandsklukkunni, Heims- ljósi, Brekkukotsannál, Kristni- j haldi undir Jökli, Atómstööinni og Sjálfstæðu fólki auk nokkurra ijóða úr Kvæðakveri. Kl. 19 um kvöldið hófst svo lestur Sölku Völku og j áttu nemendur aðeins nokkra kafla ólesna þegar lestri lauk á sunnu- dag. Gestir voru fiölmargir langt fram á kvöld en eðlilega dró úr að- Ísókn eftir að komið var fram yfir venjulegan háttatíma. Anna Guö- mundsdóttir sagði að bæjarbúar hefðu verið ánægðir með lesturinn í; og nemendur hefðu fengið bæði hrós og þakkir fyrir framtakið. Fjárhagslegur ávinningur varð nokkur en meira er um vert að áhugi unglinganna á verkum Nóbelsskáldsins glæddist til muna. Mann hef ég séð 1. maí var frumsýnd í Þýskalandi óperan Mann hef ég séð eftir Kar- ólínu Eiriksdóttur. Hún var samin ; 1988 að beiðni Vadstena óperunnar í Svíþjóð og frumflutt þar sama ár. Hér heima var hún sýnd á Hunda- dögum 1989 og i London í mars 1996. Nú er það Theater Vor- pommem sem setur verkið upp í : leikhúsinu í Greifswald. Sara Erl- ingsdotter leikstýrir en stjórnandi Fílharmoníusveitarinnar í Vor- i; pommern er Per Borin. Óperan Mann hef ég séð hefur I hvarvetna hlotið framúrskarandi dóma og vakið mikla athygli. Efn- ið er sígilt - ástin og dauðinn. í óper- unni segir frá dauðvona manni og konu hans og tilfinningunum j sem bærast með þeim síðustu daga 5 þeirra saman. Óperatextann samdi ;j Marie- Louise Ramnefalk upp úr sínu eigin ljóði. Janet Turner á íslandi j Janet Turner er einn virtasti lýs- | ingarhönnuður Evrópu og hefúr | áunnið sér heimsfrægð fyrir hönn- un sína á lýsingarbúnaði og lýsing- arkerfum. Hún starfar nú sjálfstætt I og heldur fyrirlestra og kynningar um víða veröld. Hún heldur sinn fyrsta fyrirlestur á íslandi um eig- | inleika og aöferðir lýsingarhönn- | unar á morgun, 6. maí, kl. 17-19 í samkomusal Akóges, Sóltúni 3. Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.