Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1998, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1998, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998 þjóðargersemar íslendingar eru sammála um að þjóðfánann eigi að með- höndla með varfæmi og virðingu. Suma hluti eigum við nefnilega að vernda og virða öðrum fremur. Það á ekki síst við um hina merku arfleifð okkar, þjóðbúningana. Þeir em dýrmætur fjársjóður sem við getum verið stolt afhvar sem við komum. Þess vegna er mikilvægt að þekkingin á búningunum glatist ekki og að þeir séu ekki notaðir með afbrigðilegum hætti. Undir leiðsögn Elsu E. Guðjónsson fer Tilveran hér ofan í saumana á fjórum aðaígerðum íslenskra þjóðbúninga kvenna. Upphlutur Peysuföt Peysufót draga nafii sitt af einkennis- flík búningsins, svartri og nærskorinni langerma peysu. Aðalhlutar peysufata eru þessir: - Peysan er úr svörtu klæði með svörtu flaueli á börmum og framan á ermum. Á peysunni neð- anverðri að aftan er mjótt, smá- og þéttfellt stykki, stakkur (stokk- ur, stigl) og peysan er stundum nefnd stakk- peysa (stokkapeysa, stigl(i)peysa) eftir því. Peysan er krækt að fram- an, nema hvað hún er höfð lítiö eitt opin yfir brjóstið og sér þar í hvítt sterkjað peysubrjóst skreytt hvítri blúndu eða útsaumi. Við hálsmál peysunnar er silkislifsi sem hnýtt er i slaufu að framan og skreytt með nælu (slifsisnælu). Undir ermamar fi’amanverðar er venjulega þrædd mjó hvít eða svört blúnda, oft orkeruð. - Pilsið er með sömu gerð og upphlutspils, úr svörtu klæði og skósítt. - Svuntan er einnig með sömu gerð og upphlutssvunta, nema hvað strengurinn er hnepptur að aftan með svuntuhnappi úr silfri eða gulli, eða kræktur með svuntupörum úr silfri. (Ekki eru notaðir smíðaðir svuntuhnappar Peysuföt samanstanda af peysu, pilsi, svuntu, skotthúfu og fleiru smálegu sem er nauðsynlegt með búningnum. DV-mynd E.ÓI. eða svuntupör ef haft er stokka- belti við peysufotin eins og nokk- uð hefur tíðkast á síðustu áratug- um; en bent skal á að engin hefð er fyrir að hafa belti við peysufót.) - Skotthúfan við peysufot er sömu gerðar og við upphlut. - Sokkar og skór. Svartir ógagnsæir sokkar og svartir lát- lausir skór eru hafðir við peysu- fotin eins og við upphlut. Slegin sjöl Sjöl, slegin sjöl, voru notuð sem yfirhafnir við bæði upphlut og peysufot. Þau voru úr mis- munandi þykkum ullarefnum; var greint á milli sumar- og vetrarsjala. Sjöl voru með ýmsu móti, köflótt, röndótt eða útofin meö samlitum rós- um og með ýmsum litum, einkum grá, brún eða svört. Viðhafnarsjöl voru alsvört kasmírsjöl með svörtu silkikögri eða frönsk sjöl (Paisley- sjöl) símunstruð eða með munstur- bekkjum utan með og svörtum grunni í miðju. Búningurinn upphlutur dregur nafn sitt af ermalausa reimaða bolnum sem er aðaleinkenni hans. Hann er nú algengastur ís- lenskra þjóðbúninga þrátt fyrir að hafa ekki náð verulegri útbreiðslu fyrr en á þriðja áratug tuttugustu ald- ar. Þess misskilnings gætir æði oft í seinni tíð að Sigurður málari Guð- mundsson (1833-1874) hafi hannað búninginn og er þá gjarnan sagt að það hafi verið um 1850. Sigurður hafði þó ekki afskipti af íslenskum búninga- málum fyrr en með grein í Nýjum fé- lagsritum árið 1857. Þar lét hann í ljós áhyggjur sínar af því að upphluturinn væri að hverfa og „í stað hans kominn ljótr leggíngalaus bolr, mylnulaus og eyðilegr". Aðalhlutar upphluts eru þessir: - Upphluturinn (bolurinn) er úr svörtu klæði. Framan á honum eru svartir flauelsborðar með hvítri eða gylltri baldýringu eða þá borða- skrauti, smíðuðu úr silfri. Átta millur eru á borðunum, fjórar á hvorum barmi ásamt reim (festi) og nál (millunál, reimanál), alit úr siifri. Reimin er fest í efstu millu og reimað í kross niður og upp. Einnig má festa reimina í neðstu millu og er þá reim- uð einfold reiming upp. Á baki eru tvær leggingar og aðrar tvær á axla- saumum, allar úr svörtum flauels- böndum og vírkniplingum. Svartar bryddingar eru um hálsmál og hand- vegi. - Skyrtan (upphlutsskyrtan) er helst hvít eða ljósleit, ógagnsæ með löngum ermum, rykktum eða felldum undir hnepptri líningu, oft með erma- hnöppum úr silfri. Hálsmál geta ver- ið með ýmsu móti, með eða án kraga, en ekki óþarflega flegin. Brjóstnál úr silfri er á skyrtunni framanverðri. - Pilsið, sem er krækt eða hneppt upp á upphlutinn, er úr svörtu klæði eins og hann, skósítt, fellt undir streng frá vinstri til hægri, þéttfellt að aftan, minna fellt á mjöðmum en slétt að framan. Pilsið er með 30 cm breiðu skófóðri. - Svuntan er með ýmsum litum, gjaman dúksvunta, þ.e. úr handofinni og lipurri ullareinskeftu, langrönd- óttri eða köflóttri, eða úr látlausu silki eða silkilíki. Hún er felld undir streng frá vinstri til hægri og strengurinn er hnepptur með tölu að aftan hægra megin. Hæfilegt er að um 15-20 cm bil sé frá svuntufaldi niður á pilsbrún. - Belti fylgir upphlutnum. Algeng- ast er að það sé úr svörtu flaueli með pörum (beltispörum) og ásaumuðum doppum úr silfri. Einnig tíðkast svört baldýruð belti með silfurpörum og stokkabelti úr silfri. Athugið að sprotabelti eru aldrei höfð viö upp- hhit. - Skotthúfan er svört, ýmist prjón- uð úr smágerðu ullarbandi eða saum- uð úr flaueli. Hún er með um 25-35 cm löngum skúf úr svörtu silki. Á mótum húfuskottsins og skúfsins er skúf- hólkur úr silfri eða gulli. Húfan er næld við háriö með svörtum títu- prjónum með samlitum glerhnúð. Húfuprjóna úr siifri má hafa aftan á húfunni. - Sokkar og skór. Svartir, ógagn- sæir sokkar og látlausir svartir skór eru hafðir við upphlutinn. - Kvensilfur, þ.e. millur, reim og nál, smíðaðir upphlutsborðar, erma- hnappar, brjóstnál, beltispör og dopp- ur, skúfhólkur og húfuprjónar, er ým- ist haft allt hvítt eða allt gyllt, og sama máli gegnir um baldýraða borða og vírkniplinga. Skúfhólkur er stundum úr gulli. - Athugið að upphlutur, pils, belti, húfa og skúfur, svo og sokkar og skór, eru svört. Upphlutur er algengastur íslenskra þjóðbúninga. DV-mynd E.ÓI.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.