Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1998, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1998, Side 16
16 tilveran ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998 /góðviðrinu í síðustu viku brá Til- veran sér í hesthúsabyggðir í Reykjavík. Við hesthús- in í Víðidal og Faxabóli voru ungir og efnilegir hestamenn að viðra hesta sína í veðurblíðunni. Til- veran tók nokkra þeirra tali. Bára Jónsdóttir, 15 ára: Tekur hestinn með í sumarvinnuna hesta dellu IVíðidal var Bára Jónsdóttir, 15 ára, að viðra sig og hestinn sinn á sólríkum degi í síðustu viku. Hestamennskan er lif og yndi Báru og hún sagði blaðamanni að síðustu tvö árin hefði hún verið með hesta í Víðidal. „Ég er sú eina í fjölskyldunni sem er í hestamennsku. Amma mín var reyndar hestakona en hún er því miður hætt. Ég hef því verið meira og minna ein í þessu en ég á orðið góða félaga í hesthúsinu. Það er meira að segja oftast búið að moka undan mínum hestum þegar ég kem á staðinn," segir Bára. Lærir líka frönsku Hestar eru að sögn Báru stóra áhugamálið hennar en frönskunám kemur þar á eftir. „Ég er að klára 9. bekkinn en auk þess hef ég verið í aukatímum í frönsku þannig að það er ekki mikill tími afgangs. Hún vildi geta eytt miklum meiri tíma í hestamennskuna og viöurkennir að stundum sitji heimanámið á hakanum. „Ég kem hingað næstum daglega en ekkert endilega til þess að fara í reiðtúr. Það er bara svo gott að koma hingað upp eftir,“ segir Bára. Háð útiverunni Bára segist vera orðin háð útiverunni og henni finnst mest gaman að ríða út í Heiðmörkinni eða við Rauðavatn. „Það hljómar kannski undarlega en ég vel oft að fara í hesthúsið ffekar en að fara með vinum minum niður í bæ. Magni er nefnilega ekki nema hálftaminn og ég hef sjálf verið að temja hann. Tamningin er einhver alskemmtilegasti þáttur hestamennskunnar að mínu mati og rosalega gaman þegar maður nær góðum árangri i þeim efnum,“ segir hún. Þegar Bára er spurð um fyrirætlanir sinar í sumar þegar skóla lýkur segist hún vonast til að komast í sveit. „Það væri auðvitað gott að geta einbeitt sér að hestamennskunni einni saman en ég ætla að vinna mér inn peninga og hef sótt um vinnu á sveitabæ. Mér líður hvergi betur en í sveitinni enda hef ég verið öll sumur frá því ég man eftir mér í sveit á sumrin. Þar sem Magni er aðeins hálftaminn væri frábært ef ég gæti tekið hann með mér en um það á ég eftir að spyija verðandi vinnuveitendur mína. Ef svo fer þá verður sumarið stórkostlegt,“ segir hin unga og kappsfulla hestakona að lokum. -aþ Bára á hestinum Magna sem hún temur í tómstundum sínum. DV-mynd S. Feðgar í hestamennsku: Góð fjölskylduíþrótt Ragnar Eyþórsson læröi aö sitja hest fyrir löngu þótt hann sé aöeins fjög- urra ára gamall. Þaö er faöir hans, Eyþór Ragnarsson, sem heldur í taum- inn. Hann var ekki hár í loftinu knapinn sem næstur varð á vegi blaðamanns. Þegar betur var að gáð kom í ljós að snáð- inn var aðeins fjögurra ára og sagð- ist heita Ragnar Eyþórsson. Með Ragnari var faðir hans, Ey- þór Ragnarsson, sem sagðist jafnan teyma undir drengnum þegar þeir væru utan girðingar. „Hesta- mennskan er afar góð fjölskyldu- íþrótt, ég hef komið með Ragnar hingað frá því hann var tveggja ára og við höfum átt margar notalegar stundir hér. Ég er sannfærður um að það er ómetanlegt fyrir krakka að læra að umgangast dýr frá unga aldri,“ segir Eyþór. En hvernig skyldi knapanum unga líka hestamennskan? „Mér fmnst gaman á hestbaki, sérstak- lega þegar hesturinn labbar hægt. Ég get orðið hræddur þegar ég fer niður brekku," segir hinn ungi og efnilegi knapi og er greinilega orð- inn óþolinmóður og vill halda ferð- inni áfram. -aþ Með

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.