Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1998, Side 17
ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998
17
Fríða Hálfdánardóttir:
Þær eru í sama hesthúsi og
með tímanum hafa þær orðið
hinar ágætustu vinkonur
þrátt fyrir að vera á ólíkum aldri
og koma hver úr sinni áttinni.
Þetta er þær Ragnheiður Ásta Sig-
urðardóttir, Ingibjörg Svavarsdótt-
ir og Dóra Elísabet Sigurjónsdóttir
sem voru að hvíla hesta sína þegar
blaðamann og ljósmyndara bar að.
„Það er ekkert kynslóðabil í hesta-
mennskunni, þar sameinast allir í
áhuganum um útreiðar og hesta,“
segir Dóra sem er fjögurra barna
móðir og aldursforseti i hópnum.
Dóra var komin á fertugsaldur
þegar hún keypti fyrsta hestinn.
„Mig hafði alla tið dreymt um að
eignast hest en ég hafði ætíð
frestað þvi. Svo er það bara eitt-
hvert skeið í lífi manns þegar mað-
ur lætur slíka drauma rætast. Ég
gerði það að minnsta kosti og hef
aldrei séð eftir því.“
I góðum félagsskap
Þær segjast æ oftar ríða út sam-
an, enda farnar að þekkjast dável.
„Það er kostur við hestamennsk-
una hversu félagsskapurinn er
góður og mikið af skemmtilegu
fólki sem stundar þetta,“ segir
Ingibjörg sem fyrir fáeinum árum
ákvað að hella sér út í hesta-
mennsku og á nú fimm hross.
Hún er í framhaldsskóla og segist
ekki hafa tíma fyrir fleiri áhuga-
mál, enda sé hestastússið hennar
Dóra Elísabet Sigurjónsdóttir og Gjafar, Ingibjörg Svavarsdóttir og Sleipnir, Ragnheiöur Ásta Siguröardóttir og Hjalti.
lif og yndi. „Það toppar ekkert til-
finninguna að vera á góðum hesti
með skemmtilegu fólki í óbyggð-
um. Mér finnst allt tilvinnandi að
komast í slíkar ferðir," segir Ingi-
björg.
Ómögulegt að vera í fýlu
Ragnheiður Ásta er þeirra yngst,
aðeins 16 ára, en hefur þó engu
minni áhuga á hestum. Hún segist
alltaf hafa haft áhuga á hestum og á
kannski ekki langt að sækja það því
báðir foreldrar hennar eru dýra-
læknar.
Aðspurð hvað henni finnist eftir-
sóknarvert í hestamennskunni seg-
ir hún: „Það er svo ótal margt og í
raun erfitt að skilgreina það. Það er
auðvitað frábært að eiga góðan hest
en eitt af því besta við hesta-
mennskuna er að hún léttir lundina
hjá fólki. Það er ekki nokkur leið að
vera í fylu á hestbaki,“ segir Ragn-
heiður Ásta og vinkonur hennar
eru henni greinilega sammála.
-aþ
Ragnheiður Ásta, Ingibjörg og Dóra Elísabet:
Ekkert kynslóðabil í hestamennskunni
Ætlar að verða góður knapi
FDEKK
CjCJ~Í&
og verðsamanburð
IFaxabóIi var Fríða Hálfdánardóttir, 16
ára, að kemba hesti sínum og sagðist
ætla í langan og góðan reiðtúr að því
loknu. Friða sagðist ætið hafa haft mikinn
áhuga á dýrum og á endanum tókst henni
að fá foreldra og systur í hestamennskuna.
„Ég var átta ára þegar ég fór fyrst á bak
og eiginlega hef ég verið á baki síðan,"
segir Fríða og brosir við.
Það er greinilegt að þrátt fyrir vmgan
aldur er Fríða þaulvön og sinnir verkum
sínum af mikilli kostgæfni.
„Ég reyni að koma daglega en stimdum
er það mikið að gera í skólanum að ég þarf
að sleppa úr degi. Það er nú sem betur fer
ekki svo oft.
Fríða er sjálfstæð i hestamennskunni og
segist oft og iðulega koma ein í hesthúsið
enda finnst henni best að ríða út einsömul.
„Mér finnst svo gott að geta ráðið ferð-
inni alveg sjálf og þá get ég betur einbeitt
mér að hestinum. Ég á mér draum um að
verða góður knapi í framtíðinni. Hjá góð-
um knapa gengur nefnilega allt vel,“ segir
Fríða.
Hestana ofar skólanum
Þegar blaðamaður hitti Fríðu hafði hún
lokið við samræmdu prófin dagipn áður
Það er stór áfangi í lífi unglings en Friða
segir blaðamanni að hún hafi farið í
sérstakan hátiðarreiðtúr til að fagna
prófúnum.
„Mér gekk ágætlega í prófunum en ég
hef ávallt sett hestana ofar skólanum. Það
gengur kannski ekki þegar ég fer í
framhaldsskóla. Hér er svo gott og
skemmtilegt fólk að það er ekki hægt að
hugsa sér betri stað,“ segir Fríða
Hálfdánardóttir að lokum.
Hestakerrur eru ekki algeng sjón hér á landi en Eggert Jóhannsson feldskeri lætur það ekki á sig fá. Nýlega bauö
hann fjölskyldunni í lautarferð í Heiömörk og aö sjálfsögöu var farkosturinn hestakerra.
Fríöa Hálfdánardóttir kembir Biesa sínum viö hesthús í Faxabóli.
BFGoodrích
All-Terrain T/A Verð stgr.
225/75R-16 11.679,-
30x9,5-15 12.191,-
245/75R-16 13.392,-
31x/10,50-15 13.627,-
33x/12,50-15 14.984,-
35x/12,50-15 17.834,-
SUÐURSTR0ND4
S: 5614110