Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1998, Qupperneq 19
18
ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998
ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998
23
Iþróttir
Bland í poka
Mótanefnd KSÍ hefur ákveðið leik-
staði og leiktíma fyrir leikina í und-
anúrslitum deildabikarkeppni karla í
knattspymu.
FH og Valur leika á Ásvöllum klukk-
an 18.30 í kvöld og KR og ÍA mætast
á Tungubakkavelli klukkan 19 á
fimmtudaginn. Úrslitaleikurinn fer
svo fram þann 12. maí.
Inter og Lazio mætast í úrslitum
Evrópukeppni bikarhafa í París ann-
að kvöld.
Inter, sem tvívegis hefur unnið
UEFÁ-bikarinn, er taliö sigurstrang-
legra liðið.
Inter vann bikarinn 1991 og 1994.
Lazio hefur hins vegar aldrei unnið
Evróputitil. Liðið er samt sem áður
í mikilli sókn og til alls liklegt í leikn-
um í París.
Áhangendur beggja liða hafa verið
að streyma til Parísar en búist er við
nokkrum tugmn þúsunda áhorfenda
yfir landamærin.
Josep Luis Nunes, foresti Barcelona,
segir miklar breytingar í vændum
varðandi liðið fyrir næsta tímabil.
Hann sagói að samningur við
nokkra leikmenn yrði ekki endumýj-
aður. Óvíst er hvort Louis van Gaal
verður áfram þjálfari liðsins en hann
hefur stýrt því til sigurs í deild
og bikar á þessu tímabili.
Gengiö hefur verið frá kaupum á
hollenska landsliðsmanninum Philip
Cocu frá PSV í Hollandi. Þetta er að-
eins byijunin og fleiri stórkaup líta
dagsins ljós á næstu vikum.
Fernando Correa skoraði 50.000
deildarmarkið á Spáni um helgina.
Correa, sem leikur með Racing Sant-
ander, gerði jöfnunarmarkið gegn
Espanyol.
Radomir Antic hættir störfum sem
þjálfari spænska 1. deildar liðsins At-
letico Madrid eftir tímabilið og segir
Jesus Gil, forseti félagsins, að Arrico
Sacchi, fyrrum þjálfari ítalska lands-
liðsins og ACMilan, taki við starfi
hans.
Einar Steinarsson, SFK, varð Is-
landsmeistari í þriþraut í 50 riffil-
skotfimi sem fram fór á dögunum.
Einar hlaut samtals 1096 stig. Carl J.
Eiríksson, UMFB, varð annar með
1026 stig og í þriöja sæti var Arnfinn-
ur Jónsson, SFK, meö 1025 stig.
Einar er mikið efni í þessari iþrótt
enda aðeins 19 ára gamaU. Gamail
refm' í íþróttinni segir að Einar hafi
alla buröi til aö ná mjög langt í
greininni.
Nýr heimsmeistari í snóker var
krýndur í gær. Þá sigraði Skotinn
John Higgins írann Ken Doherty í úr-
slitum um titilinn, 18-12. Higgins er
aðeins 23 ára gamall og tók viö
heimsmeistaratitlinum af John
Hendry.
Landslió Jamaíka og Sádi-Arabíu
skildu jöfn í markalausum vináttu-
landsleik í knattspyrnu í gær. Bæði
lið búa sig undir HM í Frakklandi.
Leikiö var i Cannes í Frakklandi en
þar dvelja Sádi-Arabar í æfingabúð-
um. Þeir taka einmitt á móti Islend-
ingum f vináttuleik í Cannes í næstu
viku.
Dennis Bergkamp sagði í viötali i
gær að hann væri ekki bjartsýnn að
geta leikiö með Arsenal úrslitaleik-
inn gegn Newcastle í bikarkeppninni.
Hollendingurinn er meiddur á hásin
og lék ekki með Arsenal gegn Ever-
ton um helgina. Hann hlaut meiðslin
i leik gegn Derby í síðustu viku.
Þaö er Arsenal í mun að Bergkamp
nái sér fyrir úrslitaleikinn 16. maí og
eins fyrir hollenska landsliðið sem
keppir á HM í Frakklandi i sumar.
Brann og Rosenborg gerðu 0-0 jafn-
tefli í norsku úrvalsdeildinni í knatt-
spymu í gærkvöld. Rosenborg tapaði
þama fyrstu stigum sínum en liðið
vann fyrstu fjóra leiki sína í deild-
inni.
Ágúst Gylfason lék með Brann en
Ámi Gautur Arason var varamark-
vörður hjá Rosenborg.
-JKS/GH/SK/VS
G0LFVERSLUN
LEIKFANGAVERSLUN GOLFARANS
Nethyl 2, Reykjavik • Simi: S77-2S25
DV DV
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Englandsmeistara Arsenal:
I dýrlingatölu
Frakkinn Arsene Wenger,
knattspymustjóri hjá Arsenal,
er kominn í dýrlingatölu hjá
stuðningsmönnum liðsins um
allan heim eftir að hann stýrði
liðinu til sigurs í ensku úr-
valsdeildinni í knattspymu í
fyrradag.
Wenger, sem kom til Ars-
enal í septembermánuði 1996,
braut blað í 109 ára sögu
ensku knattspymunnar með
því að verða fýrsti útlending-
urinn til að leiða lið til sigurs
í deildinni.
Farinn aö efast um aö
viö næöum ööru sætinu
„Fyrir tveimur mánuðum
síðan hélt ég að við gætum
þetta ekki. Við vorum þá 11
stigum á eftir Manchester
United og ég var farinn að ef-
ast um að við gætum náð 2.
sætinu og hvað þá því 1. sem
mig óraði ekki fyrir á þessum
tímapunkti að gæti gerst.
Þetta er einn besti dagur í lífi
mínu,“ sagði hinn 48 ára
gamli Frakki þegar titillinn á
Highbury var í höfn.
Leikmannakaupin
gengu upp
Margir vom efins þegar
Wenger var ráðinn í stöðu
knattspymustjóra hjá Arsenal
um að honum tækist að rétta
gengi liðsins við. Mikil aga-
vandamál voru klúbbnum og
hvert hneykslismálið af öðm
hjá leikmönnum félagsins
kom upp á yfirborðið. En
Wenger tók til hendinni. Hann
hjálpaði mönnum sem áttu í
erflðleikum utan vallar og
leikmannakaupin sem hann
gerði gengu svo sannarlega
upp. Hann keypti Frakkana
Emmanuel Petit og Nicolas
Anelka, hollensku rakettuna
Marc Overmars, Líberíum-
anninn Christopher Wreh og
hinn unga austurríska mark-
vörð Alex Manninger fyrir
þetta tímabil.
Allir þessir leikmenn hafa
leikið stórt hlutverk hjá
Arsenal á tímabilinu og Wen-
ger hefur náð því besta út úr
hverjum einasta leikmanni.
Hollendingarnir Bergkamp og
Overmars hafa leikið frábær-
lega, miðjumennirnir Petit,
Parlour og Vieira skipa einu
bestu miðjuna í Evrópu og
hinn ungi Anelka hefur sýnt
og sannað að hann er framtíð-
arleikmaður.
Adams mikilvægasti
hlekkurinn
Leiðtogi liðsins og mikilvæg-
asti hlekkurinn í ógnarsterkri
keðju Arsenal-liðsins verður að
teljast fyrirliðinn Tony Adams.
Án hans er ekki víst að Arsenal
stæði í þeim sporum sem það
er nú. Það kom glögglega í ljós
hve mikilvægur Adams er fyrir
Arsene Wenger hefur snúið
Arsenal á rétta braut á ný.
liðið því þegar hann var
meiddur tapaði liðið þremur af
fjórum leikjum sínum í deild-
inni.
„Ég man ekkert sérstaklega
eftir titlinum sem við unnum
1989 og 1991 en ég á aldrei eftir
að gleyma þessum. Wenger hef-
ur breytt miklu héma frá því
hann tók við liðinu. Hann fékk
menn til að bera meiri ábyrgð í
liðinu og hjálpaði mönnum sem
áttu í erfiðleikum," segir Ad-
ams, sem sjálfur var langt
leiddur í klóm Bakkusar og i
desembermánuði var hann al-
varlega að hugsa um að hætta
vegna þrálátra bakmeiðsla.
Úrslitin réðust á Old
Trafford
Arsene Wenger er þeirrar
skoðunar eins og margir að úr-
slitin í deildinni hafi ráðist
laugardaginn 14. mars þegar
Arsenal sótti Manchester
United heim á Old Trafford og
sigraði, 0-1.
„Með þessum sigri urðu
kaflaskipti og þá fyrst trúði ég
að við gætum farið alla leið. En
við þurftum að hafa fyrir hlut-
unum og ef við hefðum ekki
unnið 10 leiki í röð eins og við
höfum nú gert er ekki víst að
meistaratitilinn væri okkar,“
segir Wenger.
„Ég hef verið undir mikilli
pressu og ef við heföum ekki
náð að vinna í ár hefði fólk ör-
ugglega kennt því um aö ég
væri útlendingur.“
Tapaði síðast
13. desember
Arsenal tapaði síðast leik
þann 13. desember þegar liðið
lá fyrir Blackburn en síðan
hefur liðið unnið 15 leiki i
deildinni og gert 3 jafntefli.
Arsenal hefur unnið 10 leiki í
röð, skorað 23 mörk í þeim
leikjum og fengið aðeins á sig 2
og það þarf því þarf enginn að
efast um að Arsenal á enska
meistaratitilinn svo sannarlega
skilið. Arsene Wenger hefur
búið til öflugt lið sem spilar
skemmtilega og árangursríka
knattspymu og hann hefur tek-
ið stefnuna á að fara langt með
liðið í meistaradeild Evrópu á
næstu leiktíð.
Fyrsti titillinn
af mörgum
Dennis Hill stjórnarformað-
ur Arsenal er í sjöunda himni
eins og gefur að skilja og hann
segir að Arsene Wenger eigi
stærstan þátt í velgengni liðs-
ins.
„Wenger á enn tvö ár eftir af
samningi sínum við Arsenal.
Eins og mér er innanbrjóst
núna segi ég að Wenger getur
verið hjá okkur eins lengi og
hann vill og ég er viss um að
þetta er fyrsti titilinn af mörg-
um sem hann á eftir að færa fé-
laginu," segir Hill.
-GH
Marc Overmars er einn hinna snjöllu leikmanna af meginlandinu sem Arsene Wenger flutti yfir Erm-
arsundiö og hafa fært Arsenal enska meistaratitilinn. Mynd Reuter
Peter Schmeichel, fyrirliði Man.Utd:
Lærum af
mistökunum
Peter Schmeichel, markvörður og
fyrirliði Manchester United, segir að
leikmenn United verði að læra af mis-
tökunum sem þeir gerðu á tímabilinu
sem leiddu til þess að Arsenal hampaði
Englandsmeistaratitlinum og kom
þannig í veg fyrir að Manchester United yrði meistari þriðja
árið í röð.
„Við verðum samt að líta á jákvæöu hliðamar og nýta okk-
ur mistökin sem við gerðum á næsta tímabili. Við höfum alls
ekki leikið vel á undanfömum vikum og það er mikill munur
á okkar leik frá því fyrr á tímabilinu. Eftir að spila mjög vel
framan af mótinu hefur liðið dottið mikið niður og þaö em
ýmsar ástæður fyrir því. Við getum ekki þrætt fýrir þaö að
Arsenal er vel að titlinum komið. Lið Arsenal hefur unnið 10
leiki í röð í úrvalsdeildinni sem er hreint frábær árangur og
undirstrikar enn frekar hversu liðið er sterkt," segir Peter
Schmeichel. -GH
Netfang Draumaliðs DV
Netfang Draumaliðs DV sem kynnt var í blaðinu í gær virk-
aði ekki sem skyldi til að byrja með. Það á að vera komið í
lag núna en þeir sem sendu draumaliðið sitt í tölvupósti í gær
þurfa að endurtaka það. Netfangið er draumur@ff.is og gæta
þarf þess að senda allar upplýsingar sem beðið er um á þátt-
tökuseðlinum sem birtist í blaðinu í gær.
LEK-golfmót í Grindavík:
Steinar
sló best
Fyrsta LEK-golfmót ársins var haldiö á Húsa-
tóftavelli við Grindavík um síðustu helgi.
Steinar Skarphéðinsson, GSS, sigraði i karla-
flokki 55 ára og eldri á 79 höggum. Guðmundur
Jónsson, GR, varð í öðra sæti á 80 höggum og í
3.-5. sæti urðu þeir Sverrir Einarsson, NK, Gísli
Sigurðsson, GK, og Sveinbjörn Björnsson, GK,
allir á 81 höggi.
Með forgjöf sigraði Steinar Skarphéðinsson,
GSS, á 67 höggum. Guðmundur Jónsson, GR,
varð annar á 67 höggum og í þriðja sæti varð
Sverrir Einarsson, NK, á 68 höggum.
í A-flokki kvenna 50 ára og eldri með forgjöf
sigraði Sigrún Ragnarsdóttir, GKG, á 75 högg-
um. Gerða Halldórsdóttir, GS, varð önnur á 78
höggum og Kristjana Eiðsdóttir þriðja á 81 högg-
um.
í B-flokki sigraði Þyri Þorvaldsdóttir, GA, á 77
höggum. Lucinda Grimsdóttir, GKG, var önnur
á 77 höggum og Bylgja Guömundsdóttir, GG,
þriðja á 78 höggum. Besta skor á konunum átti
Sigrún Ragnarsdóttir, GKG, alls 90 högg.
______________________________-JKS
Úrslitakeppnin í NBA:
Seattle skellti
LA í fyrsta leik
Seattle SuperSonics og Los Angeles
Lakers mættust í fyrsta leik liðanna í
8-liða úrslitum á vesturströndinni í nótt.
Leikið var í Seattle og urðu lokatölur
leiksins, 106-92, fyrir Seattle sem hafði
lengst af framkvæðið í leiknum.
Seattle byrjaði af mkilum krafti og
var vamarleikurinn liðsins sterkur. í
hálfleik var staðan, 62-50, fyrir Seattle.
Liðsmenn Lakers tóku sig saman í
andlitinu í byrjun þriðja leikhluta og
minnkuðu bilið jafnt og þétt. Þegar flaut-
að var til loka þriðja leikhluta var
Lakers búið að ná forystunni, 68-69.
Seattle náði á nýjan leik yfirhöndinni
og sigraði að lokum sannfærandi fyrsta
leikinn. Það lið sem fyrr vinnur fjórar
viðureignir kemst áfram í keppninni.
Annar leikurinn verður aðfaranótt
fimmtudagsins.
Gary Payton skoraði 25 stig fyrir
Seatttle en Hersey Hawkins skoraði 20
og Detlef Schrempf 19 stig. Shaquille
O’Neal skoraði 27 stig fyrir Lakers, Nick
Van Exel og Fox skoraðu 14 stig hvor.
Jordan tók til sinna ráöa
Chicago Bulls og Charlotte Homets
hófu rimmu sína í undanúrslitum aust-
urdeildar í fyrrinótt. Chicago hafði bet-
ur, 83-70, en sá sigur var ekki átakalaus
því Charlotte barðist vel og hékk lengi
vel í Chicago. Það var ekki fyrr en Mich-
ael Jordan tók til sinna ráða að Chicago
sigldi fram úr og tryggði sér að lokum
öraggan sigur.
Michael Jordan skoraði 35 stig fyrir
Chicago og tók 11 fráköst. Scottie Pippen
skoraði 25 stig og Dennis Rodman hirti
14 fráköst. Glen Rice veir stigahæstur hjá
Charlotte með 25 stig. -JKS
íþróttir
Bland í poka
Forráöamenn sænska skiðasam-
bandsins voru byrjaðir að ræða við
norska skíðasambandið um samstarf
þegar Islendingar settu sig i samband
við þá og óskuðu eítir samstarfi.
Þaö tók Sviana ekki nema tvo daga
að koma með ákveðið og jákvætt
svar. Þeir töldu það mun betri kost
fyrir sig að æfa með íslendingum en
Norðmönnum.
Samningur SKÍ og FILA hefur vak-
ið mikla athygli erlendis enda ekki á
hverjum degi sem ítalimir hjá FILA
gera samning við erlendan aðila.
Kristinn Björnsson sagöi á blaða-
mannafundi í gær að hann væri þess
fullviss að ítalinn Alberto Tomba
myndi taka fram skíðin á ný og
keppa í heimsbikamum næsta vetur
Haukur Bjarnason, nýráðinn þjálf-
ari Kristins, er mjög vel menntaður
og hefur að baki nám i þekktum
skíðamenntaskóla í Noregi. Þar hefur
hann meðal annars lokið D-áfanga.
Ekki er hœgt fyrir þjálfara að sækja
um að fá að taka umræddan áfanga.
Þeim sem reyna við þetta æðsta stig
er boðin þátttaka.
Kristinn Björnsson sleit hásin fyrir
þremur árum og hafa þau meiðsli háð
honum þar til nú. Kristinn sagðist í
gær vera heill heilsu og geta tekist á
við strangar þrekæfmgar sem fram
undan væm.
Spœnski kylfingurinn Severiano
Ballesteros er einnig laus við
langvarandi meiðsli, i baki. Ballester-
os hefur byrjað keppni á evrópsku
mótaröðinni betur en mörg undanfar-
in ár.
-SK
Ryan Giggs
Ryan Giggs skoraði 50. mark
sitt fyrir Man. Utd á ferlinum er
United sigraði Leeds á Old
Trafford í gær, 3-0.
Giggs skoraði með skalla eftir
6 mínútur og Dennis Irwin bætti
öðra marki við úr vítaspymu á
32. mínútu eftir brott á Teddy
Sheringham. David Beckham
skoraði þriðja mark United á 60.
mínútu og þremur mínútum
síðar var Gunnari Halle, Leeds,
vikið af leikvelli. Arsenal er nú
með 78 stig og tvo leiki eftir og
United 74 stig og einn leik eftir.
-SK
Einn „heimamaður"
50. markið hjá
Kristinn Björnsson og SKI sööla um:
Snúa sér
að Svíum
- Haukur Bjarnason þjálfar Kristin sem
mun æfa með Martin Hanson
Skíðasamband Islands
er hætt samstarfi við
finnska skíðasambandið
og hefur gert samstarfs-
samning við sænska
skíðasambandið hvað
varðar þjálfun heimsbik-
arliða þjóðanna í svigi
næsta vetur.
Þjálfarar í scimstcirfinu
verða Haukur Bjarna-
son, sem mun þjálfa
Kristin Björnsson og
Joakim Wallner, sem
mun þjálfa Martin Han-
son, sem er í 19. sæti á
heimslistanum í svigi.
Aðeins Kristinn og Han-
son verða undir hand-
leiðslu þessara snjöllu
þjálfara.
„Mér list mjög vel á
þetta samstarf við Sví-
ana og ég er mjög ánægð-
ur með að það mál skuli
komið í höfn. Það var
mín ósk að fá Hauk
Bjarnason sem þjálfara.
Hann er mjög snjall þjálf-
ari,“ sagði Kristinn
Björnsson, skíðakappi í
gær og bætti við:
„Það er mun meira ör-
yggi að æfa með Svíun-
um. Um er að ræða betri
aðstöðu allan tímann og
allar æfingar eiga að
geta gengið betur.“
Skíðascunband íslands
hefur
ekki und-
an neinu
að kvarta
hvað
varðar
samstarf-
ið við
Finna
undanfar-
in ár.
Hins veg-
ar kom
fram á
blaða-
manna-
fundi með
sam-
bands-
mönnum
í gær að
ýmsir kostir fylgja sam-
starfinu við Svía. Þar má
nefna fleiri aðstoðar-
menn á æfingum og
tryggari aðstoð, styttri
vegalengd frá íslandi og
samskipti á sviði tungu-
mála.
Svíarnir ánægöir
Ulf Emilsson, aðal-
þjálfari sænska karla-
Kristinn Björnsson er í 16.
sæti á spánnýjum lista yfir
bestu svigmenn heims.
Hann er því ekki sem stend-
ur í fyrsta ráshóp.
landsliðsins er mjög
ánægður með samstarfs-
samninginn við Skíða-
samband
Islands:
„Sem að-
alþjálfari
sænska
karla-
landsliðs-
ins lít ég á
það sem
styrk fyrir
okkur að
fá svona
góðan
skíða-
mann
(Kristin
Bjömsson)
til að æfa
með. Þetta
kemur til
með að
auka gæðin á æfingum
hjá báðum liðum og ger-
ir okkar möguleika á
góðum árangri mun
betri.“
Kristinn í 16. sæti
Á nýjum afrekalista al-
þjóða skíðasambandsins,
frá 1. maí, er Kristinn
Bjömsson í 16. sæti í
svigi. Arnór Gunnarsson
er í 182. sæti og Haukur
Amórsson í 259. sæti.
„Mér líst vel á næsta
keppnistímabil og er
staðráðinn i að standa
mig vel. Markmiðið hjá
mér er að komast i fyrsta
ráshóp og tryggja mig í
sessi þar. Einnig að
komast í gegnum fleiri
mót. Það verður ekkert
mál eftir þennan samn-
ing við Svíana," sagði
Kristinn Björnsson í
gær.
Risasamningur
Gengið hefur verið frá
samningi til eins árs á
milli Skíðasambands ís-
lands og ítalska íþrótta-
vörufyrirtækisins FILA.
Að sögn forsvarsmanna
Skiðasambandsins er
samningurinn metinn á
rúmar fjórar milljónir
króna. Um er að ræða
tímamótasamning hjá
sambandinu og ljóst að
hann er sambandinu
mjög mikilvægur.
Þess má geta að FILA
hefur aldrei áður gert
samning við aðila utan
Ítalíu í skíðaíþróttinni.
-SK
- í landsliðshópnum fyrir leikinn við Sádi-Arabíu í næstu viku
Aðeins einn leikmaður
frá íslensku félagi er í sext-
án manna landsliðshópi í
knattspyrnu sem Guðjón
Þórðarson landsliðsþjálfari
tilkynnti í gær. ísland mæt-
ir Sádi-Arabíu í Cannes í
Frakklandi miðvikudaginn
13. maí og Einar Þór Daní-
elsson úr KR fer einn utan
til þess leiks en hinir 15
koma frá öðram löndum.
Guðni Bergsson er í
landsliðshópnum á ný en
hann hefur ekki spilað síðan hann
gaf ekki kost á sér í leikinn í Rúm-
eníu síðasta haust.
Hann var valinn fyrir
mótið á Kýpur í vetur
en átti þá ekki heim-
angengt.
Auðun Helgason, sem
hefur leikið vel með
Viking Stavanger í
norsku úrvalsdeild-
inni í vor, er í lands-
liðshópnum í fyrsta
skipti.
Annar nýliði er Árni
Gautur Árason, mark-
vörður frá Rosenborg, en hann hef-
ur verið í hópnum áður.
Hópurinn er þannig skipaður:
Markverðir:
Birkir Kristinsson, Norrköping .... 49
Ámi Gautur Arason, Rosenborg ... 0
Aðrir leikmenn:
Guðni Bergsson, Bolton...........77
Sigurður Jónsson, Dundee Utd .... 56
Þórður Guðjónsson, Genk..........21
Helgi Sigurðsson, Stabæk ........20
Lárus Orri Sigurðsson, Stoke ....19
Ríkharður Daðason, Viking Stav. . . 15
Einar Þór Daníelsson, KR.........12
Hermann Hreiðarsson, Cr.Palace ... 11
Brynjar B. Gunnarsson, Válerenga . 10
Sverrir Sverrisson, Malmö..........6
Tryggvi Guömundsson, Tromsö .... 6
Helgi Kolviðsson, Lustenau.........5
Óskar H. Þorvaldsson, Strömsgodset 2
Auðun Helgason, Viking Stavanger . 0
ísland og Sádi-Arabía mættust í
Riyadh í desember á síöasta ári. Þá
varð markalaust jafntefli sem kom
nokkuð á óvart þ'ú mikil forfóll
voru í íslenska liðinu og Sádi-
Arabar eru Asíumeistarar og hafa
sýnt sig og sannað í alþjóðlegri
knattspymu á undanfornum áram.
-VS
Auðun Helgason er
valinn í fyrsta skipti.
Pétur var óheppinn
DV, Sviþjóð:
Pétur Marteinsson var nálægt því að skora í tvígang er lið hans
Hammarby tapaði á heimavelli fyrir Frölunda, 0-1, í sænsku úrvalsdeild-
inni í knattspymu í gærkvöld.
Pétur Björn Jónsson hóf einnig leikinn fyrir Hammarby en var skipt
út af á 56. mínútu fýrir bakvörð. Nafni hans Marteinsson var þá færður
fram á völlinn og hafði nær skorað í tvígang.
Örgryte sigraði Malmö FF á heimavelli sínum, 2-0. Sverrir Sverrisson
var slakur í liði Malmö eins og allir leikmenn liðsins.
Loks tapaöi Helsingborg á heimavelli sínum fýrir Gautaborg, 0-1.
Hilmar Bjömsson og Jakob Jónharðsson vora ekki í leikmannahópnum
hjá Helsingborg. -EH/-SK
Reynum að finna lausn
Ekki hafa enn tekist samningar milli RÚV eða Stöðvar 2 við þýska fyr-
irtækið UFA vegna sýningarréttar frá íslensku knattspymunni í sumar.
Báðar stöðvamar sendu inn ný tilboð í síðustu viku og enn virðist vera
mikil gjá á milli þess verðs sem stöðvarnar bjóða og þess sem þýska fyr-
irtækið vill fá,
„Við eram að reyna af öllum okkar mætti að reyna að finna lausn á
þessu máli íslenskum fótbolta til heilla. Það er ekki sérstaklega fyrir at-
beina KSÍ sem það gerist. Við erum í samningaviðræðum við þýska fýr-
irtækið þessa vikuna en það er ljóst að enn ber töluvert á milli. Ég vona
aö einhver tíðindi verði í þessu máli fyrir lok vikunnar enda getum við
ekki beðið lengur,“ sagði Ingólfur Hannesson, deildarstjóri íþróttadeild-
ar RÚV, við DV í gær. -GH