Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1998, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1998, Page 21
ÞRIÐJUDAGUR 5. MAI 1998 25 Fréttir Uppstokkun I Vesturbyggðarpólitíkinni: Múrar gömlu flokk- anna halda ekki lengur Frá Bíldudal. DV-mynd HÞG Sjálfstæðisflokkurinn í Vestur- byggð er með eina hreinræktaða flokksframboðið í sveitarfélaginu vegna kosninganna 23. maí. Tvö önnur framboð eru, Samstaða og Vesturbyggðarlistinn, sem bæði bjóða fram fólk vítt og breitt úr póli- tíkinni. Eins og á norðanverðum Vest- íjörðum hefur orðið nær algjör upp- stokkun á fólki sem nú býður fram krafta sína til að starfa að fram- gangi sveitarstjómarmála í Vestur- byggð. Þeir sem mest voru í sviðs- ljósinu eru hættir, eins og Gísli Ólafsson, fyrrverandi bæjarstjóri og oddviti sjálfstæðismanna. Hann hef- ur nú yfirgefíð sviðið. Er farinn til Reykjavíkur. í hans sæti í forystu er kominn Jón B.G.Jónsson, yfirlæknir á sjúkrahúsinu. Litlar spurnir hafa farið af pólitík hans til þessa en hann er vel metinn læknir. Trúlega eiga hann og listamenn hans ærinn starfa fyrir höndum því bæöi mót- framboðin biðla mjög til fólks sem til þessa hafa þótt tryggir kjósendur D-listans. Samstööufólk Reyndar má segja að oddviti Samstöðu, Haukur Már Sigurðar- son, hafi líkt og læknirinn lítt blandað sér í pólitíska umræðu. Alla vega ekki þá sem farið hefur fram í fjölmiðlum landsins Vesturbyggðarbúum til hrellingar síðustu árin. Þeir hafa því nokkuð hreinan skjöld gagnvart kjósendum sínum. Haukur Már hefur öðl- ast mikla þekkingu á innviðum stjómsýsl- unnar undanfarin ár sem fyrram bæjarritari. Haukur er aðalmaður- inn í Samstöðuframboð- inu og hefur tekist að afla sér trausts í öllum flokkum, líka Sjálfstæð- isflokki. Þangað hefur hann sótt menn sem gefa listanum óneitanlega meiri pólitíska breidd. Því er talið mjög líklegt að Samstöðu takist að sópa til sín vem- legu fylgi. Vesturbyggöarlistinn Um efsta mann Vesturbyggðar- listans, Guðbrand Stíg Ágústsson, skólastjóra á Patreksfirði, má nær segja sömu sögu. Hann er óskrifað blað í bæjarpólitíkinni og kemur þar inn með hreinan skjöld. Þó hafa óformlegar hugmyndir hans um uppstokkun í skólamálunum valdið miklum titringi, sérstaklega í sveit- unum. Þó hann muni jafnvel ekki halda þeim skoðunum á lofti verður hann án efa fyrir fastri skothríð frambjóðenda hinna listanna vegna málsins. Stígur hefur það hins veg- ar með sér að hann hefur verið mjög drifandi í skólastarfinu. Upp- finningasamur varðandi ráðningar- mál kennara svo eftir hefur verið tekið á landsvísu. Miðað við sam- setningu listans sækir hann at- kvæði bæði til hægri og vinstri. Þeir sem til þekkja telja nær ömggt að hann nái í það minnsta einum manni inn í bæjarstjórn. Hins vegar er talið að fylgi Vesturbyggöarlist- ans verði að langmestu leyti bundið við kjósendur á Patreksfirði þar sem flestir frambjóðendur listans eru búsettir. Víst er að ibúar Vesturbyggðar vilja gleyma vandræðagangi í stjórn- sýslu sveitarfélagsins frá því það var sameinað. Klögumál, illdeilur og kostulegt rifrildi út af félagsheimil- inu hefur farið illa i fólk - leitt til al- gjörrar uppstokkunar í pólitikinni líkt og gerðist í ísaflarðarbæ. Niðurstaðan virðist þegar upp er staðið vera nákvæmlega sú sama í Vesturbyggð og ísafjarðarbæ. Fólk vill sjá breytta hugsun í pólitíkinni. Mikill fjöldi kjósenda vill flokkspóli- tíkina með öllu út og baktjaldamakk burt úr sveitarstjómarmálunum. Sennilega eru þessi viöbrögð al- mennings mjög skiljanleg á Vest- fjörðum með tilliti tÚ þeirrar varn- arbaráttu sem hér fer fram. Menn hafa horft á hefðbundna pólitíska baráttu í sinni ljótustu mynd und- anfarin ár sem ekki hefur gert ann- að en að rífa niður í stað þess að þjappa fólki saman. Því hefur ekki verið um annað að ræða en að hreinsa út og skipa á framboðslista nýju fólki sem þarf ekki að vera í stöðugri varnarstöðu gagnvart því sem liðið er og getur því leyft sér að horfa fram á veginn. í Vesturbyggð er líkt og í ísafjarðarbæ nær ómögu- legt að draga fólk í pólitíska dilka í kosningunum eins og fyrr á ámm. Múrar gömlu flokkanna halda ein- faldlega ekki lengur og því getur allt oltið á málflutningi frambjóöenda dagana fram að kosningum. -Hörður Kr. Fylgist með kosningabarattunni! Allt um sveitarstjórnarkosningarnar I vor • daglegar fréttir af framgangi mála • eldri fréttir • kynning á öllum framboðum % úitektir www.visir.is FYRSTUR MEÐ FRETTIRNAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.