Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1998, Page 23
ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998
27 r-
Spurt í Borgarbyggð
Hver veröa úrslit kosning-
anna í Borgarbyggð?
Karl Rúnar Þórsson safnvöröur:
„Borgarbyggðarlistinn verður sig-
urvegciri kosninganna. Það verður
bylting í sveitarfélaginu."
Hanna Proppé afgreiðslukona:
„Ég segi bara þrisvar sinnum þrír
eru níu. Ég spái því að allir listarn-
ir verði jafnir og fái þrjá menn.
Þetta verða hnífjafnar kosningar.
Ég set það út á nýja listann að það
er of óreynt fólk í efstu sætunum."
Gunnar Sigurðsson ellilífeyris-
þegi: „Ég held að Framsókn geti
unnið í sveitunum en annars finnst
mér ómögulegt að spá um úrslitin."
Guðrún Þórðardóttir verslunar-
maður: „Ég spái því og vona að
sjálfstæðismenn vinni. Þeir gætu
náð meirihluta ef allt gengur upp.“
Guðjón Karl Þórisson verslunar-
maður: „Framsókn verður sigur-
vegari í þessum kosningum."
Heba Magnúsdóttir bóndi: „Ég
spái því að þetta verði mjög jafnar
kosningar. Ég held að þetta skiptist
jafnt á milii flokkanna þannig að
hver fær þrjá menn.“
Sveitarstjórnarkosmngar 1998
Sveitarstjórnarkosningar í Borgarbyggð:
Ber á milli í
skipulagsmálum
Þrír listar bjóða sig fram til sveit-
arstjórnarkosninganna í Borg-
arbyggð.
Sjálfstæðisflokkim og Framsókn-
arflokkur eru í framboði ásamt nýj-
rnn lista sem nefnist Borgarbyggð-
arlistinn. Þar sameina krafta sína
einstaklingar m.a. úr Alþýðuflokki,
Alþýðubandalagi, Kvennalista og
óflokksbundið fólk vfða að úr sveit-
arfélaginu. Málefni listanna þriggja
eru í heildina á svipuðum nótum.
Þrír listar bjóöa sig fram í Borgarbyggö: sjálfstæöismenn, framsóknarmenn og nýi
Borgarbyggöarlistinn. DV-mynd Brynjar Gauti
Áhersluatriði ber þó auðvit-
að í milli og þá helst í skipu-
lagsmálum.
Framsóknarflokkur og
Alþýðubandalag mynduðu
meirihluta í síðustu kosn-
ingum en samstarf þeirra
sprakk 1996. Sjálfstæðis-
menn komu þá inn í meiri-
hlutasamstarf með Fram-
sóknarflokknum.
Miklar breytingar hafa
orðið á sveitarfé-
lögum í Mýrasýslu
á síðustu fjórum
árum. Sameining-
armál hafa verið í
fullum gangi í
Borgarbyggð á
undanfórnu kjör-
timabili. Borgar-
nes sameinaðist
þremur hreppum
1994. Nú hafa þrír
hreppar til viðbótar, Borg-
arhreppur, Álftaneshrepp-
ur og Þverárhlíðarhrepp-
ur, sameinast Borgar-
byggð.
Miklar framkvæmdir hafa
verið í íþróttamannvirkj-
um í sveitarfélaginu, m.a. í tengsl-
um við landsmótið sem haldið var í
Borgamesi í fyrra. Þá hafa orku-
málin verið leyst. Eignar- og skipu-
lagsbreytingar urðu á hitaveitunni
og rafveitan var seld til RARIK.
Óli Jón Gunnarsson hefur verið
bæjarstjóri síðan 1987. Athygli vek-
ur að Óli Jón leiðir nú lista sjálf-
stæðismanna en áður hefur hann
ávallt verið utan við framboðslista.
Framboð bæjarstjórans þykir mjög
umdeilt í Borgarbyggð.
-RR
BORGARNES
- úrslit kosninga '94
A: 17,2% D: 28,5%
B: 41,8% G: 12,4%
D
k
Peningastaða Borgarbyggðar góð
Óli Jón Gunnars-
son, bæjarstjóri
og oddviti D-lista.
„Við leggjum áherslu á einsetn-
ingu gmnnskólans. Það er stefnt að
því að byggja fjölnota sal við grunn-
skólann. Við stefnum auk þess að
því að laga aðstöðu í Varmalandi í
sambandi við sundlaugamannvirki.
Þá verður áframhaldandi vinna við
lausn á umhverfismálum. Þá á ég
við sorpeyðingu og annað slíkt.
Stefnan er líka að markaðssetja
Borgarbyggð
betur. Það hefur
verið mikil
vinna við sam-
einingarmálin
og við viljum ná
fram frekari
sameiningu í
Borgarfjarðar-
héraði," segir
Óli Jón Gunn-
arsson, bæjar-
stjóri og oddviti
sjálfstæðis-
manna í Borgarbyggð. Óli Jón hefur
nú ákveðið að leiða lista sjálfstæðis-
manna en hann hefur ekki verið á
framboðslista áður.
„Það voru samstarfserfiðleikar á
fyrri hluta þessa kjörtímabils sem
ollu ákvörðun minni. Ég tel heppi-
legra að vera fyrirliði í pólitísku
afli. Þegar var skorað á mig að fara
fram tók ég þá ákvörðun," segir Óli
Jón, aðspurður.
Óli Jón segir að peningastaða
sveitarfélagsins sé góð. „Við höfum
verið með miklar framkvæmdir á
íþróttamannvirkjum og við höfum
náð því án þess að setja sveitarfélag-
ið i óhóflegar skuldir. Við verðum
að gæta þess að halda vel á spilun-
um í þeim efnum. Þar verður skyn-
semin að ráða fram yfir gylliboð.
Við höfum leyst vel úr orkumálum.
Búiö er að leysa það mál með eign-
ar- og skipulagsbreytingum á hita-
veitunni og sölu rafveitunnar til
RARIK,“ segir Óli Jón.
Halda áfram uppbyggingu
„Helstu áherslumál B-listans eru
að halda áfram uppbyggingu í sveit-
arfélaginu. Við höfum byggt upp
geysimikið íþróttasvæði hér og
sinnt orkumálum mjög vel. Á næstu
fjórum árum geri ég ráð fyrir að
einsetningu grunnskólans beri
hæst. Þar þarf að taka skólahúsnæð-
ið til endurskoðunar með tilliti til
einsetningar, tónlistarfræðslu,
mötuneytisaðstöðu fyrir nemendur
og skólaskjóls," segir Guðmundur
Guðmarsson, oddviti framsóknar-
manna.
„Skólamálin verða án efa fjárfrek-
ust á næsta kjörtímabili. Af öðrum
málum sem við leggjum áherslu á
má nefna skipu-
lagsmál, sem
við höfum unn-
ið að allt yfir-
standandi kjör-
timabil. Sam-
hliða því viljum
við skoða veitu-
mál. Við viljum
athuga mögu-
leika á hitaveitu
annars staðar í
sveitarfélaginu.
Ljóst er að hol-
ræsamál þarf að vinna áfram. Það
hefur verið unnið á hverju ári í
þessu stóra verkefni okkar sem er
að koma holræsakerfmu í gott horf.
Annað mál sem hefur verið mikið
rætt og töluvert unnið í eru sorp-
mál. Þar erum við með ákveðnar
hugmyndir um að hér verði komið
upp flokkun á sorpi. Allur lífrænn
úrgangur verði tekinn frá og notað-
ur í jarðvegsgerð. Urðun á sorpi
verði lágmörkuð eftir því sem kost-
ur er. Með því eigum við að fá hag-
kvæma lausn sem á að vera framtíð-
arlausn. Við viljum fá í lið með okk-
ur öll önnur sveitarfélög í Borg-
arfirði. Atvinnumálin skipa stóran
sess og uppbygging hefur verið
mjög mikil hjá mörgum fyrirtækj-
um. Við leggjum áherslu á að fyrir-
tæki sem bjóða upp á heilsársstörf
eflist og við munum beita okkur fyr-
ir því sem kostur er. Þá er ferða-
mannaiðnaður að verða mikilvæg-
ari og honum verður að sinna vel,“
segir Guðmundur.
Áhersla á atvinnumálin
„Við teljum að það sé full þörf á
nýju afli hér í Borgarbyggð. Við ger-
um okkur miklar vonir um að fá
fjóra menn inn. Ef allt gengur upp
teljum við raunhæfa möguleika á að
ná fimmta manni og hreinum meiri-
hluta. Við teljum það æskilegustu
niðurstöðuna fyrir sveitarfélagið.
Við leggjum mjög mikla áherslu á
atvinnuumálin og að átak verði gert
í þeim. Við höfnum þeirri leið sem
farin hefur verið síðustu kjörtíma-
bil, þ.e. bein þátttaka sveitarfélags-
ins í atvinnulífinu. Það hafa verið
lagðar um 150 milljónir í atvinnulíf-
iö á síðustu 8 árum. Það er matsat-
riði hve stór hluti af þeim pening-
um hefur tapast. Við teljum að það
Guömundur Guö-
marsson, oddviti
B-lista.
hefði verið hægt að framkvæma
hluti á ákveðnari og betri hátt, m.a.
með því að nota atvinnuþróunar-
sjóð. Það þarf að gera átak í kynn-
ingarmálum sveitarfélgsins al-
mennt,“ segir Kristmar J. Ólafsson,
fjórði maður á L-lista Borgarbyggð-
arlistans.
„Skipulagsmál eru stór þáttur hér
og við teljum að þau þarfnist mun
betri skoðunar.
Við viljum að
fólk fái meira
um það að segja
hvernig framtíð-
in líti út hér,
m.a. með
ákvörðun um
hvar vegurinn
verður lagður.
Við teljum að
rétt sé að kjósa
um það mál.
Skólamál eru
mjög stór þáttur
í hverju sveitarfélagi og sérstaklega
nú þegar einsetja þarf skólana. Það
þarf að taka á húsnæðismálum
grunnskólans og tónlistarskólans og
bæta aðstöðu fyrir þau böm sem
koma úr sveitunum. Holræsismál
þarf að leysa í áfóngum og skoða
þarf nýjar lausnir. Við stefnum
einnig að enn stærri sameiningu,"
segir Kristmar. -RR
Kristmar J. Ólafs-
son, fjóröi maöur
á L-lista.
Framboðslistar í Borgarbyggð
D-listi B-listi L-listi
1. Óli Jón Gunnarsson bæjar 1. Guðmundur Guðmarsson saftt- 1. Kristín Þ. Halldórsdóttir mark-
stjóri. vörður. aðsfulltrúi.
2. Guðrún Fjeldsted bóndi. 2. Kolfinna Jóhannesdóttir bóndi. 2. Guðrún Jónsdóttir fram-
3. Andrés Konráðsson fram- 3. Guðmundur Eiríksson bygg- kvæmdastjóri.
kvæmdastjóri. ingatæknifræðingur. 3. Guðbrandur Brynjólfsson
4. Helga Halldórsdóttir skrifstofu- 4. Finnbogi Leifsson bóndi. bóndi.
maður. 5. Eygló Lind Egilsdóttir stuðn- 4. Kristmar J. Ólafsson rekstrar-
5. Bjami Helgason garðyrkju- ingsfuUtrúi. fræðingur.
bóndi. 6. Sigríður Skúladóttir starfs- 5. Runólfur Ágústsson lögffæð-
6. Guðjón Gíslason bóndi. stúlka. ingur.
7. Magnús Guðjónsson rafverk- 7. Þóröur Þorsteinsson húsa- 6. Anna Ingadóttir kennari.
taki. smíðameistari. 7. Öm Einarsson bóndi.
8. Vilhjálmur Diðriksson bóndi. 8. Edda Hauksdóttir húsfreyja. 8. Ómar Örn Ragnarsson vél-
9. Jónína Amardóttir tónmennta- 9. Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson virki.
kennari. bóndi. 9. Kristín Valgarðsdóttir fulltrúi.