Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1998, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1998, Qupperneq 30
34 ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998 Afmæli Guðmundur K. Jónsson Guðmundur Kristinn Jónsson rafiðnfræðingur, Skriðustekk 22, Reykjavík, er sjötugur í dag. Starfsferill Guðmundur fæddist í Reykjavík og ólst þar upp auk þess sem hann var í sveit á sumrin frá sjö ára aldri og þar til hann varð þrettán ára. Guðmundur stundaði nám við Iðnskólann í Reykjavík, lærði raf- virkjun hjá Jóni Ólafssyni raf- virkjameistara, lauk sveinsprófi í þeirri grein, stundaði nám við raf- magnsdeild Vélskólans og lauk það- an prófum sem rafiðnfræðingur 1951. Jón öðlaðist landslöggildingu við lágspennu 1951, löggildingu við háspennu 1962 og meistararéttindi 1962. Guðmundur hóf störf hjá Raf- magnsveitu Reykjavikur 1951, vann fyrst á háspennuverkstæði Raf- magnsveitunnar í tvö ár en var síð- an verkstjóri við jarðkapaltenging- ar í sautján ár. Guðmundur vann í fimmtán ár við uppsetningu og tengingar á spennustöðvum og að- veitustöðvum og hefur unnið á verkstæði Rafmagnsveitu Reykja- víkur síðustu þrettán ár við við- gerðir á spennubreytum og við ým- iss konar smíði viðvíkjandi rafbún- að. Guðmundur hefur verið félagi í reglu Musterisriddara í áratugi. Þá starfaði hann í KFUM á sínum yngri árum. Fjölskylda Guðmundur kvæntist 3.3. 1948, Sesselju G. Sig- urðardóttur, f. 4.9. 1930, húsmóður. Foreldrar Sesselju voru Sigurður Sigurðs- son bátsmaður og Helga Kristin Guðmundsdóttir húsmóðir. Börn Guðmundar og Sesselju eru Helgi S. Guðmundsson, f. 19.12. 1948, sölustjóri hjá VÍS, kvæntur Sigrúnu Sjöfn Helgadóttur, þjónustufulltrúa í tölvudeild Lands- bankans, og eru böm þeirra Anna María, f. 8.3. 1968, ráðgjafi við Bún- aðarbankann, gift Benedikt Hálf- dánarsyni markaðsfræðingi og er sonur þeirra Benedikt, Eva Rakel, f. 9.12. 1969, starfsmaður við Lands- bankann, gift Höskuldi Ólafssyni flugvirkja og em böm þeirra Daníel Helgi Ingason og Agnes Líf Hösk- uldsdóttir, Guðmundur Anton, f. 7.11. 1977, nemi; Stefanía G. Guð- mundsdóttir, f. 19.9.1951, húsmóðir, var gift Amóri Hannessyni en böm þeirra em Guðlaug Amórsdóttir, f. 25.2. 1977, nemi, og Hannes Amórs- son, f. 24.11. 1983, nemi; Kristín Guömundsdóttir, f. 16.10. 1953, tölvukennari, gift Vilhjálmi Siggeirssyni viðskiptafræðingi og era böm þeirra Siggeir Vilhjálms- son, f. 4.12.1975, kerfisfræðingur en kona hans er Jóhanna Margrét Guðmundur Kristinn Jónsson. Sveinsdóttir, hjúkranar- fræðinemi, Sesselja G. Vilhjálmsdóttir, f. 30.6. 1985, og Melkorka Þöll Vilhjálmsdóttir, f. 17.12. 1990; Sigríður Guðmunds- dóttir f. 2.7. 1963, sóknar- prestur i Hvanneyrar- prestakalli, búsett á Hvanneyri; Jón Ólafúr Guðmundsson, f. 17.4. 1972, d. 1.6. 1984. Hálfsystkini Guðmundar, sammæðra: Stefán Svan- ur Ólafsson, dó í bam- æsku; ísleifúr Ólafsson, f. 13.11. 1909, stýrimaður í Reykjavík; Vil- borg Ólafsdóttir, f. 20.6.1912, d. 16.4. 1991, húsmóðir í Reykjavík; Auður Svava Ólafsdóttir Pjeturss, f. 24.8. 1914, d. 16.1. 1993, húsmóðir í Reykjavík; Guðríður Stefanía Ólafs- dóttir, f. 24.12.1918, dó ung úr berkl- um; Guðmundur Steinar Ólafsson, f. 1920, dó ungur af slysforum; Ólafúr ísleifs Ólafsson, f. 20.2. 1924, d. 6.10. 1973, vélvirki í Reykjavík. Hálfsystkini Guðmundar, sam- feðra: Viggó Jónsson, f. 27.12. 1908, bóndi, Rauðanesi á Mýram; Ragn- hildur Ágústa Jónsdóttir f. 1.8. 1912, d. 28.8. 1989, verslunarstjóri og hús- móðir í Reykjavík; Ingibjörg Jóns- dóttir, f. 8.10. 1913, d. 20.3. 1966, vef- ari og húsmóðir; Ólafur Þórir Jóns- son, 28.10. 1914, d. 30.3. 1996, raf- virkjameistari. Foreldrar Guðmundar vora Jón Ólafsson, f. á Syðri-Hömrum í Ása- hreppi í Rangárvallasýslu 17.4.1886, d. 3.11. 1957, rafvirkjameistari í Reykjavík, og k.h., Stefanía Páls- dóttir, f. í Neðradal í Biskups- tungnahreppi í Árneshreppi 1.6. 1886, d. 28.4.1953, húsmóðir. Ætt Jón var sonur Ólafs, b. á Efri- Hömram, Einarssonar. Móðir Jóns var Ragnhildur, systir Bjarna í Sandhólaferju, afa Gunnars Felix- sonar hjá Tryggingamiðstöðinni. Ragnhildur var dóttir Filippusar, b. í Sandhólaferju, Jónssonar, b. í Sandhólaferju, Gunnarssonar, b. þar, hróður Rannveigar, langömmu Magdalenu, langömmu Jónasar Kristjánssonar, ritstjóra DV. Stefanía var systir Önnu, ömmu Bjöms Bjamasonar menntamála- ráðherra og Markúar Amar út- varpsstjóra. Stefanía var dóttir Páls, b. í Neðradal, bróður Egils, afa Thorarensen, kaupfélagsstjóra á Selfossi. Páll var sonur Stefáns, b. í Múla, Pálssonar, b. í Neðradal, Þor- steinssonar. Móðir Stefáns var Guð- rún Guðmundsdóttir, ættföður Kóp- vatnsættarinnar, Þorsteinssonar. Móðir Páls Stefánssonar var Vigdís Diðriksdóttir. Móðir Vigdísar var Guðrún, systir Böðvars í Holtaþing- um, afa Þuríðar, langömmu Vigdís- ar Finnbogadóttur. Guðrún var dóttir Presta-Högna Sigurðssonar. Guðmundur og Sesselja verða að heiman á afmælisdaginn. Guðmundur E. Jóelsson Guðmimdur Eyjólfur Jóelsson hlaðmaður, Heiðarholti 26b, Kefla- vík, er fertugur í dag. Starfsferill Guðmundur fæddist í Vest- mannaeyjum og ólst þar upp. Hann stundaði nám við Bændaskólann á Hvanneyri og lauk þaðan búfræði- prófi 1976. Þá sótti hann námskeið fyrir norræna ungbændur á vegum Nordisk Landboskole í Óðinsvé og námskeið í ferðafræðum á vegum Málaskólans Mimis og Fjölbrauta- skólans í Kópavogi. Guðmundur stundaði landbúnað- arstörf á áranum 1977-85 og var þá m.a. bústjóri við unglingaheimilið í Breiðuvík, fjósameistari að Hólum í Hjaltadal og afleysingarmaður hjá Búnaðarsambandi Suðurlands. Guðmundur var langferðabíl- stjóri hjá Helga Péturssyni hf. 1987-95 og hefúr stundað ýmis önn- ur almenn störf. Guðmundur sat i stjóm Bifreiða- félagsins Sleipnis í nokkur ár. Hann hefúr skrifað kjallara- greinar I DV um ýmis þjóðmál. Fjölskylda Systkini Guðmundar era Sævar Ingi Jóelsson, f. 19.11. 1963, búsettur i Hveragerði; Lilja Jóels- dóttir, f. 27.7. 1965, versl- unarmaður í Keflavík; Sigrún Jóelsdóttir, f. 7.7. 1969, verslunarmaður í Guðmundur Eyjólfur Jóelsson. Keflavík. Foreldrar Guðmundar: Jóel Guðmundsson, f. 1.7. 1936, d. 4.3. 1982, sjómað- ur í Garði, og k.h., Guð- rún Rannveig Pétursdótt- ir, f. 10.12. 1939, fulltrúi. Guðmundur tekur á móti vinum og ættingjum á Eyjaholti 7 í Garði, milli kl. 15.00 og 19.00, laugar- daginn 9.5. n.k. Þorfinnur Bjarnason Þorfinnur Bjamason, fyrrv. útgerðarstjóri, odd- viti og sveitarstjóri, til heimilis að Boðagranda 7, Reykjavík, er áttræður i dag. Starfsferill Þorfinnur fæddist í Glaumbæ í Langadal í Austur-Húnavatnssýslu en ólst upp á Blönduósi. Hann stundaði nám við Verslunarskóla islands og lauk þaðan prófum 1938. Þorfinnur var skrifstofústjóri hjá Verslun Sigurðar Ágústssonar í Stykkishólmi 1943-46, framkvæmdastjóri hjá Útgerðarfélagi Höfða- kaupstaðar á Skaga- strönd 1946-49 og jafn- framt gjaldkeri hjá Síld- arverksmiðjum ríkisins á Skagaströnd. Hann var oddviti og sveitarstjóri á Skagaströnd 1954-72. Þorfinnur flutti suður til Reykjavíkur 1972 og hef- ur síðan búið á Seltjam- amesi og i Reykjavík. Hann var síðan lengi stjómarráðsfulltrúi hjá Ríkisendur- skoðun í Reykjavík frá 1972. Þorfinnur var formaður sjálfstæð- isfélagsins Þróttar á Skagaströnd 1948-54, sat í hreppsnefnd Höfða- hrepps 1950-72, og var stjómarráðs- fulltrúi hjá Ríkisendurskoðun 1972-91. Fjölskylda Kona Þorfinns er Hulda Pálsdótt- ir, f. 4.8. 1923, húsmóðir. Hulda er dóttir Páls Péturssonar, vinnu- manns á Holtastöðum í Engihlíðar- hreppi í Austur-Húnavatnssýslu, og k.h., Önnu Sölvadóttur húsfreyju. Þorfinnur og Hulda eiga tvö böm. Þau eru Ingþór, f. 5.3. 1950, bifvéla- virki í Reykjavík og á hann einn son; Ingibjörg, f. 30.7. 1952, banka- starfsmaður í Reykjavík, gift Guð- mundi Þorbjömssyni húsgagnasmið og eiga þau þrjú böm. Systkini Þorfinns: Bjami, dó tveggja ára; Bjami, dó um tvítugt; Kristín, nú látin, var húsmóðir á Blðnduósi, gift Baldri Sigurðssyni, afgreiðslumanni hjá Kaupfélagi Húnvetninga; Hulda, húsmóðir og ekkja á Blönduósi eftir Pál Stefáns- son bifreiðarstjóra. Foreldrar Þorfinns: Bjami Bjamason og k.h., Ingibjörg Þor- finnsdóttir. Þorfinnur er aö heiman á afmæl- isdaginn. Þorfinnur Bjarna- son. Fréttir Hattafólk á Þórshöfn Hattafélag Þórshafnar og ná- grennis var stofnað á Þórshöfn ný- verið. Megintilgangur þess er að auka hattaburð félagsmanna við öll möguleg og ómöguleg tækifæri. Á myndinni era félagamir, góðborgar- ar á Þórshöfn. Frá vinstri: Halldór Halldórsson verslunarstjóri, Rein- hard Reynisson sveitarstjóri, Har- aldur Pálson, Steinar Harðarson verkstjóri, Páll Brynjarsson bókari, Pétur Bolli Jóhannesson arkitekt, Sigríður Ámadóttir og Steini Þor- valdsson framkvæmdastjóri. DV-mynd HAH Tll hamingju með afmælið 5. maí 85 ára__________________ Ása Sigríður Stefánsdóttir, Reykjavíkurvegi 35a, Hafnarfirði. Hún tekur á móti gestum að Smyrlahrauni 38, Hafnarfirði hjá dóttur sinni og tengdasyni í dag frá kl. 15.00. Soffia Vilhjálmsdóttir, Skeggagötu 12, Reykjavík. Sigurlaug Þorkelsdóttir, Bárastíg 7, Sauðárkróki. 75 ára________________________ Sigurður G. Gíslason, Hrauni, Grindavík. Eiginkona hans er Hrefna Ragnarsdóttir. Þau taka á móti gestum í húsi Verkalýðs- félags Grindavíkur að Vikur- braut 62, föstud. 8.5. kl. 17-20. Guðný Sigurðardóttir, Skipholti 21, Reykjavík. 70 ára________________________ Bjöm Þorláksson, Kaplaskjólsvegi 93, Reykjavík. Ólafur Bragi Jónasson, Árlandi 1, Reykjavík. Rögnvaldur Björnsson, Beijarima 3, Reykjavík. Steingrímur B. Bjömsson, Hlíðarvegi 16, Kópavogi. 60 ára Hrönn Haraldsdóttir, Furagrund 70, Kópavogi. Hún tekur á móti ættingjum og vinum í félagsheimili Raf- magnsveitu Reykjavíkur sunnud. 10.5. kl. 14.00-18.00. Solveig Jónsdóttir, Fálkagötu 5, Reykjavík. Hjörleifur Þórðarson, Hellulandi 5, Reykjavík. Einar Vigfússon, Hjaltabakka 28, Reykjavík. Roswitha Finnbogadóttir, Fannafold 165, Reykjavík. Bima G. Friðriksdóttir, Víðihvammi 22, Kópavogi. Guðmundur I. Guðjónsson, Klausturhv. 8, Hafnarfirði. Erla Gunnarsdóttir, Lækjargötu 9, Hafnarfirði. 50 ára________________________ Pétur Yngvi Gunnlaugsson, Fálkagötu 19, Reykjavík. Birgir R. Jensson, Háaleitisbraut 123, Reykjavík. Ólafur Sigmundsson, Holtaseli 28, Reykjavík. Magnea Einarsdóttir, Urriðakvísl 11, Reykjavik. Olga Haakonsen, Lautasmára 5, Kópavogi. Tadeusz Jón Baran, Rjúpnahæð 5, Garðabæ. Ema Magnúsdóttir, Klettagötu 10, Hafnarfirði. Þóra Sigurðardóttir, Heiðarhrauni 4, Grindavík. Sigríður Skarphéðinsdóttir, Reykhólaskóla, Króksfjarðam. Hörður Bjömsson, Vallholti 12, Selfossi. 40 ára_________________________ Guðjón Bjami Eggertsson, Efstasundi 30, Reykjavík. Friðrik Sigurðsson, Eskihlíð 18, Reykjavík. Jónas Kristjánsson, Hjarðarhaga 50, Reykjavík. Hafdis Hauksdóttir, Jórufelli 10, Reykjavík. Hlíf Halldórsdóttir, Bæjargili 69, Garðabæ. Kristlaug S. Sveinsdóttir, Krókamýri 46, Garðabæ. Guðmundur F. Friðriksson, Sunnubraut 10, Keflavík. Gunnar Már Óskarsson, Borgarvegi 13, Njarðvík. Jón Stefánsson, Borgarhóli, Varmahlíð. Björgvin Jónas Ragnarsson, Víkm-gerði, Fáskrúðsfirði. Herdís Þórðardóttir, Kambahrauni 1, Hveragerði. Sigríður Magnúsdóttir, Stóra-Heiði, Mýrdalshreppi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.