Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1998, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1998, Qupperneq 36
> o □ K O txi 5 o ■3 S LO < s ■s. O hLT3 ■> s o FRÉTTAS KOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá f síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið I hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. .550 5555 FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ1998 Hrossasóttin: hverfur á fjór- , um vikum - segir dýralæknir „Við framkvæmdum rannsóknir fyrir nokkrum vikum. Þá voru sex hestar fluttir af sýktu svæði yfir á ósýkta bæi og sex ósýktir hestar fluttir yfir á sýkta svæðið. Við vorum að athuga hvort það væri hestur- inn eða umhverfið sem bæri smitið. Niðurstöðurnar voru þær að hest- arnir sem voru veikir fyrir tveim- ur vikum smituðu út frá sér en þeir , m sem voru veikir fyrir þremur og fjórum vikum gerðu það ekki. Hins vegar veiktust allir hestamir sem voru fluttir í sýkta umhverfið," seg- ir Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma. „Nú fyrir helgi gerðum við nýj- ustu tilraunina. Við létum flytja Qóra ósýkta hesta yfir á svæði þar sem veikin hafði verið en gengið yfir. Annað parið fór í hesthús þar sem veikin gekk yfir fyrir 5 vikum og hitt parið fór í hesthús þar sem veikin gekk yfir fyrir sex vikum. " **- Þessar upplýsingar eru nauðsynleg- ar fyrir okkar framtíðar útflutn- ing,“ segir Sigríður. -RR Hálendisfrumvarp: Úlfaldi úr mýflugu - segir félagsmálaráöherra „Ég hef ekki trú á að mótmæli úti- vistarsamtakanna breyti einhverju um afgreiðslu frumvarpsins á Al- þingi. Niðurstaða x fundarins á Hótel Borg í gær sýnist mér vera að menn eru að gera úlfalda úr mýflugu og eru með óþarfa áhyggj- ur út af skipulagsmálum. Það er ákveðið að þetta frumvarp verður af- greitt á þessu þingi. Síðan verður skipulags- og byggingarlögum breytt á haustþingi þannig að girt er fyrir að ósamræmi geti orðið milli aðal- skipulags einstakra sveitarfélaga og svæðisskipulags hálendisins,“ sagði Páll Pétursson félagsmálaráðherra í morgun. Fjölmörg útivistarsamtök héldu fund á Hótel Borg í gærkvöld til að mótmæla frumvarpi sem leggur • ♦ til skiptingu hálendisins milli 42 sveitarstjóma. -phh Páll Pétursson. félagsmálará&herra. Kristján Jóhannsson var á æfingu í Tblisi í Georgíu þannig að ekki náði Halldór Blöndal samgönguráðherra sam- bandi við hann þangað í fyrsta farsímasímtalinu á vegum Tals hf. sem var formlega opnaö í morgun. Dagtaxti fyrir GSM-símtal hjá Tali hf. er á bilinu 18,50 kr. til 21 króna á mínútu. Kvöld- og helgartaxtinn verður 11,50 kr. til 14 krón- ur á mínútu. Dreifingin nær til höfuðborgarsvæöisins, Akraness, Reykjanesbæjar, Selfoss og Hverageröis. DV-mynd S Leedsari fékk guUpottinn: Varð 6 millj- ónum ríkari - úr kassa sem nefndur er Davíð DV, Akranesi: Leikur Man. Utd og Leeds í ensku knattspyrnunni hófst kl. 16 i gær - frídagur á Englandi - og var Ölver í Glæsibæ með leikinn í beinni út- sendingu. Smá truflun varð í út- sendingu og skrapp þá einn aðdá- andi Leeds í gullnámuna og hafði heldur betur heppnina með sér með- an lið hans var að tapa. Nældi hann sér í gullpottinn að upphæð 6.059.905 krónur og það var einmitt kassi nefndur í höfuðið á Davíð forsætisráðherra sem gaf þessa upphæð. Leedsarinn vildi ekki gefa upp nafn en hann eignað- ist i lok apríl sitt fimmta barn svo peningarnir koma sér vel. Þetta er sjöundi gullpotturinn sem fellur í Ölveri. Heildarupphæð- in í gulli þar er nú orðin 47.703.780 krónur og meðaltal pottanna er 6.814.825 krónur. -DVÓ Leigjanda hjá Félagsmálastofnun ber að greiða helmingi meira: Félagsbústaðir hóta útburði Sonja Guðrúnardóttir, sem hefúr leigt íbúð hjá Reykjavíkurborg í gegn- um Félagsmálastofnun, neitar að gera nýjan leigusamning um íbúðina sem hún býr í við Félagsbústaði hf. Reykja- víkurborg hefur stofnað fyrirtækið Fé- lagsbústaði sem hefur yfirtekið leigu- húsnæði borgarinnar og hefur leigu- tökum verið gert að gera nýja leigu- samninga við hinn nýja eiganda íbúð- anna. Flestallir hafa gengið frá nýjum samningum við Félagsbústaði en Sonja hefur ekki ljáð máls á því. Við breytinguna hækkar húsaleigan um helming og Sonja, sem er öryrki vegna gigtarsjúkdóms, segir í samtali við DV að sér detti ekki í hug að gera leigusamning við hinn nýja aðila upp á slíka hækkun. Hún hafi leigt íbúðina á sínum tíma af Félagsmálastofnun og kveðst tilbúin að endurnýja leigusamn- inginn við þá stofnun. Hún borgar nú 24 þúsund krónur í húsaleigu á mánuði og kveðst ekki hafa efni á að greiða helmingi hærri leigu til Félagsbústaða, eða 48 þúsund krónur. Einu tekjur hennar eru ör- orkubætur, 49 þúsund krónur á mán- uði, og enda þótt hún fái húsaleigubæt- ur upp í hluta af mismuninum þá sé um óyfirstíganlega kjaraskerðingu fyr- ir hana að ræða. Lokafrestur Viðbrögð stjómenda Félagsbústaða við neitun Sonju við því að gera leigu- samning hafa orðið þau að hóta því að láta bera hana út úr íbúðinni. Var henni gefinn lokafrestur til að rýma íbúðina i síðasta lagi 30. apríl, ella yrði hún borin út með fógetavaldi. í gær- kvöld hafði þó ekki enn verið gripið til neinna aðgerða. Sigurður Helgi Guðjónsson, hæsta- réttarlögmaður og formaður Húseig- endafélagsins, sagði að húseigendur hefðu samkvæmt húsaleigulögunum rétt til að selja húsnæði sem er í leigu og framselja með því réttindi og skyld- ur gagnvart leigjendum til nýs eig- anda. Almennt hefðu leigjendur ekkert um það að segja. Á hinn bóginn megi leigutaki ekki framselja leigusamning sinn eða framleigja húsnæði án sam- þykkis leigusala. Sigurður sagði það ekki mögulegt að hækka húsaleigu samkvæmt leigu- samningi sem i gildi er. Til þess yrði að segja samningnum upp og gera nýj- an á nýjum grunni. „Inn í þetta mál kemur einnig félagslegi þáthu'inn og spumingin um hvort yfirtaka Félags- bústaða á félagslegu leiguhúsnæði Reykjavíkurborgar fari á einhvern hátt í bága við lög og reglur,“ sagði Sigurður Helgi. Sigurður Friðriksson, framkvæmda- stjóri Félagsbústaða ehf., staðfesti í morgun við DV að einn leigjandi fé- lagslegs húsnæðis borgarinnar, Sonja Guðrúnardóttir, hefði neitað að gera nýjan leigusamning um íbúð sína við Veðrið á morgun: Hvasst ogkalt Á morgun verður norðaustan- átt um allt land, allhvasst eða hvasst á Vestfjörðum, stinnings- kaldi á Norðurlandi, en yfirleitt kaldi annars staðar. Éljagangur um norðanvert landið, en þurrt og víðast léttskýjað syðra. Hiti verður á bilinu 0 til 7 stig, hlýjast á Suðausturlandi. Veðrið í dag er á bls. 37 Félagsbústaði. Þessum leigjanda hefði verið gert Ijóst að án leigusamnings gæti enginn búið í húsnæði Félagsbú- staða. Sonju hefði verið gefinn frestur til 30. aprfl að ganga frá samningi. Að öðr- um kosti yrði gripið til aðgerða. Að- spurður hvaða aðgerðir það væru sagði Sigurður að reynt yrði að forðast útburðaraðgerðir í lengstu lög. „Við viljum fyrst skýra málið út, því það kann að vera að þessi kona haldi að leiga hennar hækki um helming. Við ætlum að skýra út fyrir bæði henni og öðrum leigutökum að eingöngu þeir sem eru í of stórum íbúðum miðað við íjölskyldustærð og eru með of háar tekjur hækki í leigu vegna skertra húsaleigubóta. Ef hún þverskallast við að gera leigusamning og telur Félags- bústaði ólöglegt fyrirtæki höfum við ekki aðrar leiðir en að visa henni á dyr,“ sagði Sigurður Friðriksson. -SÁ SKEMMTISKIPIÐ ÁRNES SKEMMTIFERÐ AÐ PINNI UPPSKRIFT PAR SEM PU RÆÐUR FERÐINNI SIMI 581 1010 SPENNANDI KOSTUR FYRIR HÓPA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.