Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1998, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1998
39,
Knattspyrnan 1998
Guöjón Þóröarson:
Gæti orðið
spennandi
„Mér sýnist svona í upphafi
móts töluverð óvissa um hvernig
hutimir komi tO með að ganga.
Samt sem
áður
koma þrjú
lið upp í
hugann
sem mað-
ur sér
berjast um
íslands-
meistara-
titilinn og
þar á ég
viö ÍBV,
KR og ÍA.
Við verðum að hafa í huga að
miklar breytingar hafa átt sér
stað í mörgum liðum og ekki
hvað síst hjá Skagamönnum.
Auðvitað geta fleiri liö blandað
sér í slaginn um titilinn með
góðum og vönduðum vinnu-
brögðum. Keflvíkingar komu
mjög á óvart í fyrra en döluðu
síðan. Spumingin er hvort þeir
hafa lært það sem til þarf. Mað-
ur veit ekki alveg hvað býr í hin-
um liðunum því þar er mikið af
ungum og óreyndum strákum.
Þeir gætu hiklaust látið gott af
sér leiða,“ sagði Guðjón Þórðar-
son, landsliðsþjálfari í knatt-
spymu.
Mótið gæti að mínu mati orðið
mjög spennandi. Ég held það
verði mikiö um óvænta hluti og
við munum sjá hasar og fjör
áöur en lýkur. Aðstæöur, sem
mönnum hafa staðið til boða í
vor, hafa ekki verið góðar.
Styrkur liðanna verður ekki
marktækur fyrr en leikimir em
komnir inn á alvöravelli.
Ég hef fulla ástæðu til að trúa
því að mótið verði skemmtilegt.
Það verður athyglisvert hvemig
þróimin kemur til með að verða.
Óvissan er töluverð en umfram
allt sé ég að fram undan er
skemmtilegt fótboltasumar,"
sagði Guðjón.
Valtýr Björn Valtýsson:
ÍBVog
ÍA líkleg
„Það setrn- svip sinn á mótið 1
sumar að nýir og yngri menn
eru teknir
við af
mönnum
sem fariö
hafa í at-
vinnu-
mennsku
erlendis.
Meðalald
urinn hjá
Valsmönn-
mn er 21 ár
en samt
sem áður
keppti liðið
til úrslita á tvenniun vígstöðvum
í vor. Þó svo aö holskefla hafl átt
sér stað í útflutningi á leikmönn-
um þá verða eftir sem áður
krýndir meistarar. Þitt gamla fé-
lagseðli veröur alltaf til staðar
þó einhverjir hafi horfið á braut.
Ég er ekki svo viss um að þessi
breyting komi niður á gæðum
knattspyrnunnar í sumar. Yngri
leikmennimir eiga vonandi eftir
að setja skemmtilegan svip á
deildina í sumar,“ sagði Valtýr.
Eyjamenn og Skaginn era afar
líklegir í sumar. Valsmenn era
að gera fina hluti en hafa verður
í huga að þeir eru með ungt lið.
Keflvíkingar ætla sér eflaust í
toppbaráttuna en Leiftur er svo-
lítiö spumingarmerki í mínum
huga. Ekki megrnn við gleyma
KR-ingum en þeir hafa komið
sterkir frá vorleikjunum.
Guðjón Þórðarson
landsliðsþjálfari.
Ásgeir Sigurvinsson ræðir við DV um deildina og íslenska knattspymu:
Yngri leikmönnum
gefast tækifærin .
- boltinn byrjar að rúlla í Landssímadeildinni 18. maí
Ásgeir Sigurvinsson þarf víst
varla að kynna fyrir íslenskum
knattspymuáhugamönnum. Ásgeir
var um árabil okkar fremsti knatt-
spymumaður, fór ungur utan í at-
vinnumenskuna og lék erlendis hátt
í tvo áratugi við góðan orðstír. Ás-
geir er fluttur heim og hefur fylgst
með undirbúningi íslenskra knatt-
spymumanna en keppnin í Lands-
símadeildinni hefst 18. maí. Ásgeir
er tæknilegur ráðgjafi hjá KSÍ og
má telja víst að reynsla hans nýtist
íslenskri knattspymu í framtiðinni.
DV fékk Ásgeir til að ræða um
komandi mót í sumar og annað
tengt íslenskri knattspymu.
Mikilvægt aö umgjöröin sé í
lagi
„Ég er mjög bjartsýnn á skemmti-
legt sumar í fótboltanum. Menn era
að reyna að koma þessu þannig fyr-
ir að bæði umfjöllun og allt í kring-
um þetta veröi þannig uppsett aö
fólk fari að fá verulegan áhuga á
boltanum. Það er mikilvægt að
ramminn sé góður í kringum allt
ferlið hjá félögunum. Þegar það er í
lagi er aðeins eftir að sjá hvemig
liðið sjálft spjarar sig.
Við erum búnir að missa marga
knattspyrnumenn úr landi en um
leið gefast tækifæri fyrir yngri
menn og aðra að komast inn og
sýna hvað í þeim býr. Það verður
spennandi og fróölegt að sjá hvort
það skilar sér eitthvað," sagði Ás-
geir Sigurvinsson.
- Heldur þú að knattspyman
liði fyrir það hve margir menm
eru famir úr landi?
„Að sjálfsögðu er mjög sárt að sjá
á eftir okkar bestu mönnum. Það
fóra einir 15-20 leikmenn utan eftir
að mótinu lauk á sl. tímabili sem
auðvitað er stór biti að kyngja. Það
er hins vegar gott til þess að vita að
efhiviðurinn er nægur hér á landi
og ungir menn fá fyrr tækifæri en
ella og kannski koma ffam nýjar
stjömur fýrir þær gömlu.“
- Það er ný staða fyrir þig að
fylgjast með knattspymunni frá
byrjun hér á landi. Hvemig
finnst þér málum vera háttað?
„Já, þú segir nokkuð. Það er mjög
skrýtið fyrir mig eftir veruna í
Þýskalandi að vera kominn inn í
bolta sem liggur niðri sex mánuði á
ári. Þetta gerir það að verkum að
fótboltinn fer í gang án þess að fara
í gang fyrir alvöra. Það tekur lang-
an tíma fyrir knattspymuáhuga-
menn að byrja aftur að fylgjast með
íslenska boltanum. Þetta virkar
þannig á mann að það þyrfti að gera
átak tU að fá fólkið tU að vera kom-
ið í startholumar þegar fyrsti leik-
urinn fer fram.“
Laugardalsvöllurinn ætti aö
vera tilbúinn í byrjun
Það eru ýmsir hlutir alveg nýir
fyrir mér eins og gefur að skUja.
Mér finnst að aðaUeikvangurinn,
LaugardalsvöUurinn í þessu dæmi,
ætti að vera tUbúinn þegar fyrsti al-
vöruleikurinn fer fram og á ég þar
við leikinn í Meistarakeppninni.
Auðvitað á vöUurinn að vera búinn
græjum tU að mæta þessu verkefni
með upphitun og þess háttar. Leik-
ur í meistarakeppninni er stór hátíð
fyrir knattspymuna enda opnun á
sjálfu tímabUinu."
- Hverju spáir þú um gang
i 1
Tryggvi Guömundsson úr ÍBV, besti og markahæsti leikmaöur íslandsmótsins 1997, f baráttu víö Gest Gylfason,
Keflvíking, f fyrra. ÍBV og Keflavík unnu stóru titlana á sföasta tímabili.
mála í Landssímadeildinni í sum-
ar?
„Þetta verða 3-4 lið sem berjast
um sigurinn. Þar á ég við Eyja-
menn, Skagann og KR-ingar koma
tU með að blanda sér í þá baráttu.
Valsmenn hafa enn fremur verið að
leika vel að undanfómu. Stundum
er ekkert að marka þessa vorleiki
sem fara að mestu fram á gervigras-
vöUum og veörið getrn- oft leikið
menn grátt. Ég er viss um að eitt lið
kemur á óvart og sogast jafnvel inn
í baráttuna um titUinn. Mótið verð-
ur í jafnari kantinum í ár. Liðin era
jafnari en oft áður og það sem ég hef
séð fram að þessu er að ekkert áber-
andi lið er á ferðinni. Þetta yrði hið
besta má fyrir deUdina ef hún verð-
ur jöfii, bæöi í efri og neðri hluta.
Þetta myndi skapa meiri áhuga og
fólk fara meira á vöUinn. Ég get í
dag ekki bent á lið og sagt að þetta
er besta liöið með öflugasta mann-
skapinn og það verður meistari.
Málið er ekki bara svona einfalt.
- Hvaða segir þú um þá aðstöðu
sem íslenskum knattspymu-
mönnum er boðið upp á í dag?
„Aðstæðurnar sem þeir búa við
era bara hræðUegar. Ástandið verð-
ur aldrei gott fyrr en búið verður að
skapa þá aðstöðu að hægt verði að
stunda fótbolta allt árið um kring.
Áður en sú aðstaða verður komin
verður aldrei hægt að tala um neina
aðstöðu í fótbolta á íslandi. DeUdar-
keppnin er keyrð á allt of stuttum
tíma. Enginn tími gefst tU að gera
úttekt á leikmönnum og gefa þeim
tíma og kost á betri þjálfun. Það er
nánast eingöngu verið að spUa leiki,
en á sama tíma á sér stað ekki mikU
þjálfun. Það er eins og ég segi að
mál þessi verða ekki komin í al
mennUegan farveg fyrr en yfirbyggð
knattspymuhús rísa hér á landi. Þá
fyrst geta menn farið yfir tæknUeg
atriði allan veturinn. Þangað tU
verður aldrei hægt að ná almenni-
legum árangri í fótbolta."
Knattspyrnuhús forsenda
alls
„í minum huga er ekki nein
spuming að innan 1-2 ára verða
Ásgeir Sigurvinsson er bjartsýnn á
skemmtilegt mót í sumar. Hann seg-
ir liöin jöfn og af þeim sökum gæti
mótiö oröiö spennandi.
komin upp hús. Mér myndi finnast
annað mjög skrýtið í stöðunni enda
löngu tímabært. Það er ekki nóg að
tala um þetta heldur verður að fara
gera eitthvað í hlutunum. Það er
búið aö láta gera útreikninga á
þessu og er aUs ekki dýr fram-
kvæmd. Þetta myndi standa undir
rekstrarkostnaði og gera okkur að
betri fótboltamönnum en við erum í
dag. Þetta er spuming hverjir verða
fyrstir og ég trúi ekki öðra en
Reykjavíkurborg ríði á vaðið í þess-
um efnum.“
- Hvað hefur komið þér mest á
óvart í íslenska boltanum síðan
að þú komst hein eftir langa veru
erlendis?
„Undirbúningstímabilið er 6-7
mánuöir og það í sjálfu sér gengur
ekki alveg upp. Menn era vegna að-
stæðna aö vinna miklu meira í lík-
amlega þættinum á kostnað tækn-
innar og þar liggur vandinn. Við ís-
lendingar höfum alltaf átt fullt af
efnilegum leikmönnum og þeir sem
hafa farið í alvörubolta erlendis
hafa staðið sig vel.
Það er grandvallaratriði fyrir
okkur að byija á granninn hér
heima og halda mönnum við efnið
allan ársins hring. í framtíðinni •
verða menn að eiga kost á því að
komast í gegnum góða undirstööu
þjálfún allt árið. Þá fyrst getum við
farið að tala um betri aðhliða knatt-
spyrnumenn," sagði Ásgeir Sigur-
vinsson í spjallinu við DV.
■4.