Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1998, Side 12
46
tyndbönd
*
tr-
*v
\
Hr
Hér segir frá Paz, sem hættir í skóla og fer að keyra leigubíl foður
síns. Hún kynnist strák og verður ástfangin en á erfitt með að sætta sig
við föður sinn og starfsfélaga hans sem hafa mjög fasískar skoðanir.
Þeirra á meðal er einmitt móðir Dani, kærasta hennar, og svo virðist
sem hann sé að dragast inn í þennan félagsskap. Hún kemst síðan að því
að þessir leigubílsstjórar stunda eins konar „hreinsun“„ á næturnar og
losa heiðvirða Spánverja við ýmiss konar ósóma. Fyrir barðinu á þeim
verða helst hommar, eiturlyfjaneytendur og fólk af öðrum kynstofni.
Leigubílstjóramir og Paz berjast um hollustu Dani og að lokum kemur
til uppgjörs því að Paz veit of mikið. Hrátt raunsæi gerir dramatíkina í
myndinni mjög sterka. Persónusköpun er mjög vönduð og við fáum að
kynnast fasistunum sem manneskjum, ekki aðeins voðaverkum þeirra.
Hún minnir nokkuð á enn betri mynd um svipað efni, ástralska mynd
að nafni Romper Stomper. Leikararnir eru misgóðir en Ingrid Rubio ber
myndina auðveldlega uppi í aðalhlutverkinu. Undir lokin tekur Taxi á
sig form spennumyndar og endirinn er leiðinlega fyrirsjáanlegur og
melódramatiskur. Með því að halda raunsæinu allt til enda hefði mynd-
in getað krækt í hálfa stjömu í viðbót hjá mér.
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Carlos Saura. Aðalhlutverk: Ingrid
Rubio, Carlos Fuentes, Agata Lys og Angel Oe Andres Lopez. Spænsk,
1997. Lengd: 112 mín. Bönnuð innan 16 ára.
The Winter Guest:
Ekki fýrír óþolinmóða
Myndin gerist á einum köldum vetrardegi í frið-
sælu skosku sjávarþorpi. Emma Thompson leikur
ekkju sem syrgir látinn eiginmann sinn og hugleiðir
búferlaflutninga. Hún eyðir deginum með móður
sinni sem getur ekki hugsað sér að dóttir sín flytji
frá sér. Á meðan er sonur hennar að dúlla sér með
nýlega aðfluttri stelpu. Við fáum einnig að fylgjast
með tveimur strákum sem eru að skrópa í skólanum
og tveimur öldruðum konum sem sækja jarðarfarir
sér til dægrastyttingar. Þessi fjögur pör velta fyrir
sér líflnu og tilverunni og ekki síst dauðanum. Per-
sónumar virka þroskaðri en eðlilegt má teljast og pælingar þeirra svo-
lítið hástemmdar og tilgerðarlegar. Það er samt allt í lagi því að tempó-
ið i myndinni gefur áhorfendanum nægan tíma til að mynda sér eigin
skoðanir. Myndin líður afar rólega áfram í gegnum þessa fallegu og ljóð-
rænu vetrarveröld. Fyrst og fremst er þetta þægileg mynd og afslapp-
andi en óþolinmóðir áhorfendur verða væntanlega búnir að slökkva á
henni eftir hálftíma.
The Winter Guest. Útgefandi Myndform. Leikstjóri Alan Rickman. Aðal-
hlutverk: Phyllida Law og Emma Thompson. Bresk, 1997. Lengd 110 mín.
Öllum leyfð. -PJ
Barbara:
Færeyjablús
Barbara er lausgyrt færeysk kona sem gengið hef-
ur í gegnum tvö hjónabönd með prestum sóknarinn-
ar og er því tvöföld prestsekkja. Sagan hefst á því
þegar þriðji presturinn kemur frá Danmörku en
hann heillast strax af henni þrátt fyrir viðveu’anir
eyjaskeggja. Hjónabandið gengur vel rnn skeið og
Barbara er manni sínum trú þangað til spjátrungs-
sonur dómarans kemur heim eftir háskólanám í Kaupmannahöfn. Þeg-
ar prestm-inn veðurteppist á afskekktri eyju stenst Barbara ekki freist-
inguna og stingur af til Þórshafnar til að verma ból spjátrungsins. Ann-
eke von der Lippe stendur sig mjög vel í aðalhlutverkinu og aðrir leik-
arar standa einnig fyrir sínu, en þá eru líka kostir myndarinnar upp
taldir. Fallegt landslagið nýtur sín ekki nógu vel í hugmyndasnauðri
kvikmyndatöku en stærstu gallamir liggja í ógeðfelldri persónusköpun
og afkáralegri melódramatík í söguþræðinum. Eftir það sem ég hafði
heyrt um þessa mynd kom hún mér mjög á óvart og er að mínu mati ljót
mynd. Heimskur lúði og skeytingarlaus sjálfselskupúki stefna hvert
öðru í ógæfu og mér á að finnast það voða rómó? Sorrý, Stína.
Útgefandi Háskólabíó. Leikstjóri Nils Malmros. Aðalhlutverk: Anneke von der
Lippe og Lars Simonsen. Dönsk, 1997. Lengd 140 mín. Öllum leyfð. -PJ
Killing Time:
Flagð undir fögru skinni **
Ung og falleg ítölsk kona, sem starfar sem leigu-
morðingi, á að ráða enskan glæpaforingja af dögum.
Sá er ekki á staðnum þegar hún kemur í heimsókn
svo hún plaffar niður alla hans starfskrafta og held-
ur heim á hótel. Sá sem réð hana vill ekki borga upp-
sett verð og hefur því fengið nokkra smáglæpamenn
til að drepa hana að verki loknu. Persónur myndar-
innar samanstanda af ca 20 körlum og einni konu.
Söguþráðurinn er ekkert sérstaklega vandaður, en
þjónar sínum tilgangi - að koma því þannig fyrir að
eina konan í myndinni káli öllum körlunum (á mjög
glæsilegan og þokkafullan hátt auðvitað). Það skemmtilegasta við þessa
mynd er eiginlega að velta fyrir sér hvaða duldu hvatir ráði þarna ferð.
Myndræn kvikmyndataka og grípandi tónlist hjálpast að við að skapa
letilega kynþokkafullt andrúmsloft. Áhersla er á stemmninguna á kostn-
að persónusköpunar, sem er í lágmarki. Þetta er mynd sem hefði getað
orðið mjög athyglisverð, en veikburða söguþráður, slöpp persónusköpun
og lélegir leikarar draga hana niður í meðalmennskuna.
Útgefandi Skífan. Leikstjóri Bharat Nalluri. Aðalhlutverk: Craig Fairbrass
og Kendra Torgan. Bresk, 1996. Lengd 93 mín. Bönnuð innan 16 ára.
PJ
FÖSTUDAGUR 22. MAf 1998 T>V
Myndbandalisti vikunnar
sæti; J FYRRI; VIKA i j VÍKÚR \ Á LISTAj j TITILL J ÚTGEF. J ’j j TEG.
1 i 1 i s ; Face/Off J Sam-myndbönd Spenna
2 í J 2 í j 4 ! ) Peacemaker, The j j CIC- Myndbönd j j Spenna
3 i 9 i 2 1 L j Event Horizon ClC-myndbönd Spenna
j 4 ,í ... j 3 > j j 5 J j My Best Friends Wedding j j > Skrfan > J J Gaman
5 i 4 i 4 i G.l. Jane i Myndfoim j Spenna
6 í •» 9 1 1 : 2 i • ‘■>''5 'ur. r Life Less Ordinary j j Skífan i 1 Gaman
l 7 i J 6 ) 6 ) Nothing To Lose J J J’ Sam-Myndbönd Gaman
8 | j ÉttM) 7 i , .T' MVj 3 I J Excess Baggage J J Skrfan J J ' ' -j í ' Gaman
9 i Ný J 1 i Mortal Combat: Annihilation J Myndform J Spenna
10 i j . i wmm J 5 j j Shooting Rsh j J Stjömubíó J ) J Gaman
11 i ný i 1 i Blackjack j Bergvík j Spenna
12 J j 9 » i j 9 J j Full Monty, The J j Skffan > J t Gaman
13 i 13 1 6 i Money Talks J i j Myndform j Gaman
14 ! 1 u j j 3 1 0 ) Fire Down Below i J WamerMyndir Spenna
15 ' 1 Ný i J 1 ! Chasing Amy J J Skrfan > Gaman
i,! wmm 12 ) i 8 i SSsffiwlili AirForceOne J J J Sam-Myndbönd j j Spenna
17 i 14 J 3 1 J j Sling Blade Skrfan J Spenna
18 í j 19 i :Ui j 8 > j Beverly Hills Ninja J ’ J: J Skrfan J j j Gaman
19 i 15 J 7 i Volcano Skrfan j Spenna
j 20 ; O ! j u !: Conspiracy Theory J J J WameMyndir •' Spenna
L.A. Confidental, sem stekkur beint inn í efsta sæti mynd-
bandalistans, er einhver rómaðasta kvikmynd síöasta árs
og eru flestir á því að þess veröi ekki langt að bíða að hún
veröi talin meðal klassískra sakamálamynda. Oft hefur það
heyrst og verið skrifað að L.A. Confidental sé besta saka-
málamynd frá því Roman Polanski sendi frá sér Chinatown
fyrir um það bil 25 árum. Óhætt er að mæla með L.A. Con-
fidental fyrir alla þá sem hafa gaman af vönduöum og vel
gerðum kvikmyndum, auk þess sem hún veitir spennufíkl-
um örugglega alla þá innspýtingu sem þeir þurfa á aö
halda. Á myndinni er Kevin Spacey í hlutverki sínu, en auk
hans fara með stór hlutverk í myndinni Russell Crowe og
Kim Basinger sem fékk óskarsverðlaun fyrir leik sinn.
-HK
L.A.
Confidental
Kevin Spacey og
Russell Crowe.
Hrottalegt morð er
tramið inni á litlum
veitingastað og í ljós
kemur aö einn hiima
myrtu er lögreglumað-
ur. Hvað hann var að
gera þarna er félaga
hans í lögreglunni, Bud
White, hulin ráðgáta,
enda bendir allt til þess
að hann hafi verið
flæktur i eitthvert
glæpsamlegt athæfi.
Bud ákveður því að
heQa rannsókn á mál-
inu upp á eigin spýtur
og kemst fljótlega að
því að þar með er hann
búinn að stinga sér út í
lífshættulegt hyldýpi
svika og morða þar
sem enginn er óhultur.
i.iuunrr niuntAAt
mCÍMMR
... trsfesr
HSMj&ys;
The Peace-
maker
George Clooney og
Nicole Kidman
Þegar rússnesk lest,
sem flytur kjamaodda,
ferst við afar grunsam-
legar aðstæður er
kjameðlisfræðingurinn
dr. Julia Kelly (Kidm-
an) fyrst alira að átta
sig á þvi að „slysið“ var
sett á svið til að hylma
yfir djöfúllegar ráöa-
geröir hryðjuverka-
manna. Sérsveitarmað-
urinn Thomas Devonc
(Clooney) er settur í
málið en harðneskjuleg-
ar aðferðir hans i bar-
áttunni við glæpamenn
og hryðjuverkasamtök
samrýmast engan veg-
inn aðferðum og skoð-
unum Juliu sem vill
frekar semja en skjóta.
Þau verða þó að leggja
ágreining sinn til hliðar
þvi fram undan er gifur-
legt kapphlaup við tím-
ann og niðurtalningu
sprengjunnar.
Face/Off
John Travolta og
Nlcolas Cage.
Sean Archer (Tra-
volta) stjórnar úrvals-
sveit manna sem berst
við hættulegustu
glæpamenn í heimi.
Einn þeirra er Castor
Troy (Cage). t mörg ár
hefur Sean reynt að
handsama Castor en
án árangurs. Nú er
komið að því að hand-
sama Castor og mann-
skæðum bardaga lýk-
ur með því að Castor
slasast lífshættulega. t
ljós kemur að Castor
hafði áður komið fyrir
öflugri sprengju sem
var ætlað að valda
miklum mannskaða.
Eina leiðin til að fá
upplýsingar um hvar
sprengjan er niður-
komin er að fá bróður
Castors til aö upplýsa
um það. Og til að fá
hann til aö tala er
brugðið á það ráð að
græða andlit Castors á
Sean.
E VErtT
HDRIZDn
f
Event Horizon
Sam Neill og
Laurence Fishburne.
Árið er 2047.
Nokkrum árum áður
hafði eitt fullkomnasta
geimskip sögunnar,
könnunarskipið Event
Horizon, horfið spor-
laust úti 1 geimnum.
Skyndilega höfðu öll
samskipti rofnað en
rétt áður tókst að
hljóðrita afar ein-
kennileg skilaboð sem
virtust koma frá skip-
inu. Nú hefur geim-
ferðastofnun Banda-
rikjanna á ný numið
hljóðmerki sem geta
ekki verið frá öðru
geimskipi en Event
Horizon. Ákveðið er að
senda björgunarleið-
angtu til þess staðar
sem hljóðmerkin eiga
upptök sín á. Þvi sem
hópurinn finnur verð-
ur ekki með orðum
lýst.
My Best Fri-
end s Wedding
Julia Roberts og
Dermont Mulroney.
Fyrir níu árum gerðu
þau Julianne og Michael
með sér samning. Þau
ákváðu að hætta að vera
elskendur en vera þess í
stað „bara vinir". En
samningur Julianne og
Michaels innihélt svolit-
ið meira. Þau hétu því
nefhilega að ef þau yrðu
ekki gengin út þegar
þau næðu 28 ára aldri
myndu þau giftast hvort
öðru. Og nú eru þau al-
veg að verða 28 ára. En
nú er skyndilega komin
upp ný staða. Michael
hefur nefhilega ákveðið
að bera upp bónorð.
Vandamálið er bara það
að hann bað annarrar
konu (Cameron Diaz).
Þegar hún sér fram á að
missa Michael til ann-
arrar konu áttar hún sig
á því að hann er í raun
maðurinn sem hún hef-
ur alltaf ætlað að eiga.