Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1998, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1998, Blaðsíða 2
22 %ús og garðar MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998 Að velja sér garðsláttutæki Rafmagnssláttuvélar eru að verða æ algengari en áður voru mót- orknúnar garðsláttuvélar ráðandi á markaðnum. DV hafði samband við Anton Magnússon hjá Gróðurvörum ehf. Hann sagði að þegar rafmagns- sláttuvél væri notuð í fyrsta skipti væri gott að láta hana ganga í nokkrar mínútur áður en grasið væri slegið. Það er vegna þess að legur og fleira þarf að snúast áður en slegið er. Þess má geta að bensín- vélar þurfa líka að ganga í einhvem tíma áður en slegið er í fyrsta skipti. Það er til að mótorinn smyrji sig. Gæta verður þess að slá ekki í mikilli rigningu og það er heldur ekki heppilegt að slá mjög hátt gras á lægstu stillingu en það getur of- gert mótomum. í verstu tilfellum gæti hann eyðilagst. „Á nýjustu vél- unum er vöm á rafmagnsmótornum þannig að hann slær út án þess að eyðileggjast.“ Sláttuvélamarkaðurinn stendur á Girðingar og handrið Margar gerðir af handriðum, bæöi utanhúss og innan, egg og sveppi á staura o.fl. Ýmiskonar sérsmíði. Húsgagnavinnustofan ehf Álafossvegi 18 c - Sími 566 7079, Mosfellsbæ m rr O' / / J Cá. Vt. Cá. u. V O Cj CjVjÓÍ Fegrar oe bætir garðinn Þú færð allskonar grjót hjá okkur, sand og sérstakan sand í sandkassann. Við mokum efninu á bíla eða kerrur og afgreiðum það líka í sterkum plastpokum, sem þú getur sett í skottið á bílnum þínum. Simi: 577-2000 Afgreiðslan er opin: Mánud. - fimmtud. 7.30 - l 8.30, föstud. 7.30 - 18.00, laugard. 8.00 - 16.00. Opið í hádeginu nema á laugardögum. tímamótum í dag. Þær vélar sem samþykktar eru samkvæmt Evrópu- staðlinum eru með stærra opi en áður sem þýðir að þær stíflast síður. f dag eru bæði rafmagnssláttuvélar og mótorknúnar vélar hannaðar þannig að ef sá sem er að slá slepp- ir inngjöfmni drepur vélin ósjálfrátt á sér. Það er ekki lengra síðan en í fyrra og hittifyrra sem ósamþykktar vélar voru á markaðnum en þær uppfylltu ekki allar öryggiskröfur. „Hvað varðar viðhald á rafmagns- sláttuvélum þarf aðallega að hafa í huga að halda þeim nokkuð hrein- um og gæta þess að þær séu ekki í raka. Þar sem um er að ræða raf- magnstæki má saggi ekki safnast saman í mótomum. Á haustin þarf að smyrja hjól og hnífinn." Leiðbeiningar um meðferð á mótorknúnum garðsláttuvélum: Gangsetning og stöðvun Aður en vél er gangsett þarf aö at- huga bensín og olíu og bæta á eftir þörfum. Sé um tvígengismótor að ræða verður að gæta þess að rétt blandað bensín sé notað. Vél er gangsett með því að opna fyrir bensín, bensingjöf er stillt á „start“, togað laust í startsnúru uns fyrirstaða verður, snúran þá gefin til baka rólega og síðan kippt þéttingsfast í snúruna aftur. Þetta er endurtekið uns vélin fer í gang. Athugið að sleppa ekki startsnúru þegar hún hefur verið dregin út heldur slakið henni rólega til baka. Þegar vél er komin í gang er bensíngjöf stillt eftir þörfum. umgengni við sláttuvélina. Fjarlæg- ið allt af grasflötinni áður en slegið er. Gætið þess að allir boltar og rær séu fullhertar. Stöðvið ávallt vél- ina/mótor við flutning, hreinsun, skoðun á hníf, hæðarstUlingu og ef vél er yfirgefin. Setjið aldrei vél í gang innandyra, setjið aldrei bensín á vél sem er í gangi og forðist reykingar meðan bensíni er hellt á vél. Sláttuorf Sláttuorf em tvenns konar; rafmagnsorf og bensínorf, en þau síðarnefndu em mun kraftmeiri. Sláttuorfin eru not- uð til að slá kanta og brekkur, þau Vél er stöðvuð með því að Skipta skal um olíu á mót- eru notuð þar færa bensíngjöf á „stop“ eða orknúnum sláttuvélum í sem erfitt er að nota ádrepara. fyrsta sinn eftir um þaö bil koma sláttuvél- Cn wnl trnn nnnn ‘veggja tíma notkun og síð- um að, svo sem Oc VBI IlBy I fjanij an reglulega eftir 25 tíma. . a milli trjáa, og Ef vél er treg í gang er sjálf- sagt að athuga kerti og endumýja þau eftir þörfum. Hafi vél yfirfyllst skal setja bensíngjöf á „stop“ og kippa i startsnúru þrisvar til fjórum sinnum. Bensíngjöf er síðan stillt á „start“ og vél gangsett eins og venjulega. Þetta á þó ekki við um vélar með öryggishandfang/rofa. Víðhald Skiptið um olíu í fyrsta sinn eftir um það bil tveggja tíma noktun og siðan reglulega eftir 25 tíma. Þetta á eingöngu við um fjórgengisvélar og þar sem framleiðendur gefa ekki aðrar leiðbeiningar. Notið eingöngu olíu sem framleiðandi eða umboðs- maður hans mælir með. Kerti þarf að hreinsa að minnsta kosti tvisvar á ári og endurnýja eftir þörfum. Kertabil á flestum vélum er 0,7 mm. Ráðfærið ykkur við innflytjanda eða umboðsmann. Athugið bitið í hnífnum reglulega og skiptið um hann eftir þörfum til að tryggja bestu áferð sláttar. Þegar veriö er aö slá meö sláttuorfi á enginn aö vera nálægt 10 metra radí- us. í óðagoti gæti sá, sem er aö slá, snú- iö sér viö og slegiö tækinu í næsta mann. Hreinsun og geymsla Best er að hreinsa vélina strax að lokinni notkun. Áður en það er gert verður að slökkva á vélinni. Spraut- ið ekki vatni á vél til að hreinsa heldur hreinsið með klút eða bursta. Þegar gengið er frá vél til geymslu er gott að bera oliu á hjól- öxla og alla ómálaða hluti, t.d. hníf. Geymið vél ávallt á þurrum stað. Gætið ætið fyllsta öryggis í allri þau eru notuð til að slá gras á sumarbústaðalóðum þar sem grasið er yfirleitt grófara en í görðum við heimahús. Anton hjá Gróðurvörum ehf. sagði að 99% af sláttuorfum væru með blönduðu bensíni en notaður væri einn hluti af olíu á móti 50 hlutum af bensíni. Á markaðnum er líka til þó nokkuð af sláttuorfum sem taka 1 á móti 25. Öll sláttuorf eru með gírhaus sem þarf að smyrja reglulega og í þeim eru kerti sem þarf að fylgjast með. Á sláttuorfunum eru svæði sem þarf að smyrja og fylgjast þarf með því að þráðurinn i sláttuhausnum hreinsi sig sjálfur þannig að hann skeri almennilega. „Þeim mun meira sem óhreinindi eða gras safn- ast við hausinn því erfiðara verður að slá. Og þá er meiri hætta á að menn fari með fmgurna í hausinn og slasi sig.“ Sláttuorf eru löng og á nýlegum tækjum eru stórar hlífar við haus- inn. Vegna lengdar tækisins er lítil hætta á að sá sem er aö slá geti rek- ið fótinn í hausinn. „Þegar verið er að slá með sláttuorfi á enginn að vera nálægt í 10 metra radíus. í óða- goti gæti sá sem er að slá snúið sér við og slegið tækinu í næsta mann.“ Kantklippur Kantklippur, sem notaðar eru til að snyrta kanta, eru annaðhvort með svokölluðum greiðum í eða í þeim eru tveir hnífar sem ganga á víxl. Kantklippur eru yflrleitt hleðslutæki sem ekki er mjög mikill kraftur í. Hvað varðar viðhald þarf að smyrja hnífana og það þarf að at- huga hleðslurafhlöðurnar. Ef þau fá ekki fúlla hleðslu geta þau skemmst. Það þarf líka að _ fylgjast með að spólan, sem þræðimir eru ' í, sé hrein svo þráð- ’ urinn geti gengið út. Það þarf líka að smyrja valsinn í kringum þráðarspóluna. Vakin er athygli á að börn innan 14 ára mega ekki stjórna áðumefnd- um tækjum. Það ber líka að hafa í huga að athuga hvaða blanda er á bensín- og olíutækjunum. „Sumir fá ráð frá nágrönnunum ef þeir muna ekki hvaða blanda var fyrir. En röng blanda getur stórskemmt tæk- in. Best er að hafa samband við sölumenn eða verkstæði. -S.J.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.