Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1998, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1998, Blaðsíða 6
26 ^úsoggarðar MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998 JL>"V eiturúðun? Margir garðeigendur hafa velt því fyrir sér hvort sú gegndarlausa úðun eiturefna á tré og runna sem við- gengst til dæmis hér á höfuðborgar- svæðinu sé í lagi frá sjónarhóli um- hverfisvemdarsinna. Spurningar eins og hvað það þýði fyrir lífkeðjuna ef skordýr era drepin á eitri, hvað hendi þá fugla sem éta eitruð skordýr og svo framvegis, hafa til dæmis ver- ið algengar. Blaðið ræddi við Þórð Halldórsson, bónda á Akri í Biskupstungum, en hann er formaður samtaka sem nefna sig Verndun og ræktun (VOR) og einskorða sig við lífræna ræktun. Hann segist að visu þekkja annars konar málefni betur þar sem hann standi í svokallaðri ylræktun og ræktun í gróðurhúsum en segist þó hafa spjallað við fólk sem vill ekki sjá eitur í görðum sínum. Þar nefnir hann konu eina sem fékk eiturúðara í heimsókn og lét hann setja sápu- vatn í tankinn og úða allan garðinn hátt og lágt. „Þetta hefur góð áhrif á skordýr,“ segir Þórður „drepur smá- dýrin og fælir í burtu þau sem era stærri. í minni ræktun, ylrækt og gróðurhúsaræktun, er auðvitað heil- mikið af alls konar pöddum, sem er landlægt. Þar era mikið notaðar svo- kallaðar náttúralegar varnir, svo sem pöddur sem éta aðrar pöddur og útrýma þeim. Þegar það dugar ekki nota ég sápuvatnið, enda lífrænum ræktendum ekki leyfilegt að nota til- búin eiturefni af neinu tæi. Lífrænar vamir hafa þó ekki verið notaðar í venjulegum görðum og maríuhænum var til dæmis útrýmt í allri eiturgleð- inni fyrir þó nokkuð mörgum árum. Maríuhænur áttu mikinn þátt í því að halda lúsunum niðri á lífrænan hátt.“ Þegar Þórður er spurður að því hvort það sé í lagi að setja sápuvatn á viðkvæma runna svarar hann því umsvifalaust játandi. „Styrkleikinn getur verið alveg upp í þrjú prósent, þ.e. þrír lítrar af sápu settir í hundr- að lítra af vatni eða minna. Ekki er Ny sending væntanleg Glæsilegt úrval Nýjar gerðir af gosbrunnum, úti og inni, styttum, dælum og Ijósum, garðdvergum fuglum o.fl. til garðskreytinga jlIÉlPÉÉillÍIIiÍÉ Vörufell hf. v/Suðurlandsveg, Hellu Sími 487 5470 Þóröur Halldórsson, bóndi á Akri, un. #s»Sláttuvélin Rafmagns- garðsláttuvél með grassafnara. Laus við mengun og hávaða. Þrjár stærðir. Verð frá kr. 19.900 SINDRI - V E R S L U N Borgartúni 3 7 - Sími 575 OOOO - Bréfasími 575 0010 - Veffang sindri.is notar engin tilbúin eiturefni í sinni rækt- DV-mynd Sesselja nóg með að plönturnar þoli þetta heldur kemur alveg yndisleg lykt í garðinn, sannkölluð vorhreingern- ingalykt! Eins og ég sagði áðan þá notum við þetta í okkar lífrænu ræktun með góðum árangri. Smá- pöddur eru ekki lengur vandamál." Þórður var því næst spurður hvers vegna eiturúðarar segjast úða skað- lausum efnum en setja þó upp miða þar sem fólk er varað við því að vera í námunda við úðaða runna. „Þetta er nú svolítið blandað," segir Þórður. „Nú eru þeir farnir að vera með þessa svokölluðu vetrarúðun og úða þá tjöruefni sem hylur lúsareggin og kemur í veg fyrir að þau klekist út. Það er skaðlaust efni. Svo er vita- skuld búið að þróa efni sem brotna hratt niður, leysast upp í frumefni og verða skaðlaus fyrir umhverfið. En þau era samt sem áður eitruð þegar þeim er dælt í garðinn. Vistvæna þróunin er orðin þannig að efnin era betur úr garði gerð en samt sem áður eru menn enn að nota eiturefni sem eru klassísk. En kröfurnar eru strangari, það er ekki hægt að nota hvað sem er.“ Blaðamaður hafði spurnir af manni sem ekki notar nokkurn skap- aðan hlut á tré sín og runna heldur leyfir bara ormum og pöddum að hafa sitt fram og tekur því sem Sumir leyfa einfaldlega ormum og pöddum að hafa sinn gang. Hér sjást maðkétin tré. DV-mynd bj hverju öðru hundsbiti ef tré verða ræfilsleg part úr sumri. Hann segir að ekkert hafi drepist hjá sér enn og gróðurinn hjarni við af sjálfsdáðun seinnipart sumars. Þá er ekki úr vegi að spyija: „Erum við íslendingar svona við- kvæmir fyrir útliti gróðurs? Þarf allt að vera grænt og fullkomið alla sum- armánuðina?“ Þórður segir við þessu að hann hafl ekki kynnst svo mikilli eitur- gleði þó að hann hafi víða farið er- lendis. Ekki vantar samt trén þar og heldur ekki skordýrin. Hann heldur því fram að þetta sé áróður sem rek- inn hafi verið fyrir eitrinu og að við séum bara ginnkeyptari en aðrar þjóðir. En þegar Þórður er spurður hvort mögnlegt sé að hætta alfarið að nota skordýraeitur og snúa sér að grænsápunni segist hann ekki þora að fullyrða hversu virkt sápuvatnið sé ef miðað er við eitrið en þeir sem hafl reynt það séu mjög ánægðir. „Og þar fyrir utan er fólk jafnvel bara að úða með vatni,“ segir Þórðru. „Lýs og önnur óþrif berast í garða þar sem gróður er veikur fyrir. Þar sem plönt- ur eru hraustar og heilbrigðar er jafnframt sterkari mótstaða gagnvart svona ágangi. Lýsnar velja sér tré. Þær fara ekki í allan garðinn heldru velja það veikasta. Jafnvel væri hægt að rekja það til vatnsskorts. Þegar verður vatnsskortur myndast sætu- efni í blöðunum sem aftur kallar á pöddur. Því er gott að úða vatni yfir garðinn þar sem það kemur í veg fyr- ir sykurmyndun." Þórður segir að þetta séu húsráð og hreinlega í fullu gildi, þó að plöntusérfræðingarnir hafl lýst frati á þau sem kerlingabæk- ur og rekið frekar áróðru fyrir eitr- inu. Hann segir enn fremur að hann geri sér grein fyrir því að sterk bein þurfl til þess að neita þegar manni er boðin eiturúðun og að vera eini um- hverfisvæni sérvitringurinn í göt- unni sem ekki vill úða. „En það verða umhverflsvemdarsinnar víst að þola þar til eiturgleði landans minnkar," segir Þóröur að lokum. -þhs Verðlaunagetraun Taktu þátt í auðveldum leik, svaraðu laufléttri spurningu, sendu svarið til DV, Þverholti 11,105 ReyKjavík merkt, „Villigarðurinn” fyrir 16. júní. í verðlaun er Villigarðurinn, Garðyrkjuhandbók letingjans eftir Þorstein Úlfar Björnsson. 20 heppnir lesendur verða dregnir út og verða nöfn þeirra birt í DV þriðjudaginn 23. júní. Á hvaða blaðsíðu í DV er umfjöllun um útiarin? Nafn................................................ Heimilisfang........................................ Póstnúmer...........................................

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.