Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1998, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1998, Blaðsíða 16
(Slípirokkur 900) 33.695, BOSCH umboðið aðkeyrsla frá Háaleitisbraut Lágmúla 9 • Sími: 533 2800 • Fax: 533 2820 Garðeigendur Trjáplöntur, runnar og sumarblóm í úrvali. Gróðrastöðin Skuld Lynghvammi 4 - Hafnarfirði Sími 565 1242 n 45.591 24.739,- |GWS 21-180 J Slípirokkur 2100w GBm Borvel 1050w 14.609 GWS 125 30.769, GFZ16-35 AC Trésverðsög GBH 2-24 DSR Lofthöggborvél 26.550, GSR 12 VES-2 Borvél í tösku með hleðslutæk húsoggarðar MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998 JUj'V Segðu það með blómum - um táknmál bláma og lita 4 SOLARMEGIN I LIFINU Það er hlýtt og notalegt innan við tvöfalt Plexiglerið. Nýja RESIST PLEXIGLERIÐ er grimmsterkt og ótnjlega höggþolið. Piexigler fyrir garðstofuna. Makrolon fyrir gróðurhúsið og svalirnar. akron Síðumúla 31, sími 55-33706. Hvað þýðir það ef einhver gef- ur manni blóm? Hvernig er hægt að tjá sig með blómum? Getur maður sjálfkrafa hrósað happi þegar blóm eru rétt manni eða býr kannski stundum eitthvað neikvætt að baki? Allir vita til dæmis að rauðar rósir þýða bara eitt: Ég elska þig ... hreint og klárt. Hvitar nellikur munu einnig tákna hreina og ákafa ást, sem og rauðir túlípan- ar. Fresíur, liljur og hvítar sýrenur eru tákn um hreinleika og sak- leysi. Ef þér eru send slík blóm gæti verið áhugavert að spá í hvort það er þitt sakleysi eða sendandans sem verið er að lýsa yfir. Rósin hefur oft verið kölluð drottning blómanna. Hún er sterk og ber að mörgu leyti höfuð og herðar yfir önnur blóm. Hún táknar þó ekki alltaf hreina ást því það fer líka eftir lit rósarinn- ar hvað hún segir okkur. Gul rós táknar til dæmis afneitun. í til- hugalifinu þýðir gul rós því: „Ég elska annan/aðra!“ Það er þvi eins gott að senda ekki gular rós- ir nema vera með á hreinu hvað þær þýða svo maður gefi ekki frá sér misvísandi skilaboð. Ef ætlunin er að sýna einhverj- um hlýhug þá ku blandaður blóm- vöndur vera best til þess fallinn. Bleikar nellikur tákna móðurást og hvítasunnuliljur velvild, svo aðeins örfá dæmi séu tekin. Flestir vita líka að það er ekki sama hve mörg blóm eru gefm. Þannig er til dæmis ljómandi fínt að gefa eina rós en ekki eins gott að hafa þær tvær. Sumir segja að það sé vegna þess að þegar við erum með tvö blóm togist þau á um athyglina. Við kaupum odda- töluíjölda af blómum þangað til við erum komin með tíu, þá hætt- ir það að skipta máli. Aðra skýr- ingu má líka fínna á þessu en hún er sú að slétt tala á blómum var al- geng í altarisvösum, t.d. þegar lík stóðu uppi. Því forðaðist fólk að gefa tvær, fjórar og sex rósir þegar tilefnið var gleðilegt. Eitt blóm merkir vináttu og styrk, þrjú merkja trú, von og kærleika. Sjö er svo hin heilaga tala. Allir vita hvað það táknar. -þhs Vönduð garðhúsgögn ÍBENHOLTehf. Alhliða trésmíðaþjónusta Samtún 2 • Sími 561 3044 • 896 0211

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.