Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1998, Side 4
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998 JLlV
hús og garðar
Garöastál • Bárustál • Garðapanill
GÆDAMOLD
f GARÐINN
Grjóthreinsuð
mold, blönduð
áburði, skeljakalki
og sandi. Þú sækir
eða viðsendum.
Afgreiðslaágömlu
sorphaugunum í
Gufunesi.
GÆÐAMOLD
MOLDARBLANDAN - GÆÐAMOLD HF.
Pöntunarsími 567-4988
Bárustál, sigilt form á þök og veggi, hefur
sannað yfirburði sína við íslenskar aðstæður.
Garöastál, 4 gerðir á þök og veggi.
Garöapanil, glæsileg vegg- og loftaklæðning.
Allar gerðir til í lituöu og A-L-C Alúsink.
Til notkunar jafnt úti sem inni.
Möguleikar eru á ýmsum frágangsaðferðum,
með tilliti til útlits og hagkvæmni.
ÓKEYPIS KOSTNAÐARÁÆTLANIR
GARÐASTÁL
Stórási 4-210 Garöabæ - Sími 565 2000 - Fax 565 2570
garðinn
Blákom
Plöntur á leiðum
- ráðleggingar garðyrkjustjóra
Stór trá flutt milli staða
Það er vandaverk að flytja stór
tré milli staða og misjafnt eftir
tegundum hvort það er yfirhöfuð
hægt.
Tré eru ekki flutt á einum
degi, heldur þarf að huga að trjá-
flutningum að hausti ef flytja á
þau fyrir næsta sumar.
Að haustinu þarf að rótstinga
trén en það er fólgið í því að
skera með beittri og langri skóflu
allar rætur af trénu, sem ná út
fyrir vissan hring umhverfis
stofn trésins.
Eftir að tréð hefur verið rót-
stungið myndar það nýjar rætur
nær stofninum, sem kemur því
að notum eftir flutninginn. Þá á
að grafa rás umhverfis tréð að
hausti utan við rótskurðinn og
fylla hana með laufi, lyngi eða
öðru léttu efni og biða þess að
frost nái hæfilega djúpt í jörð. Þá
má lyfta rótarkekkinum heilum
upp án þess að rætur haggist. Þá
þarf einnig að vera til hola frá
sumrinu áður fyrir kökkinn, þar
sem tréð á að vaxa í framtíðinni.
Raunar hafa menn ekki alltaf
skilning á að þetta þurfi að gera
og verður þá kylfa að ráða kasti
hvernig tekst til með flutninginn.
Ef trén eru ekki mjög hávaxin
getur flutningurinn tekist vel en
þá verður myndarlegur rótar-
haus að fylgja, og þá ríður á að
ekki líði langur tími frá upptöku
til gróðursetningar. Annars er
best að hafa samband við garð-
yrkjumann áður en menn ætla
að flytja stór tré milli staða og fá
upplýsingar hjá honum hvaða
tegundir sé hægt að flytja og
hvenær sé heppilegasti tíminn til
þess.
(Heimild: Ræktaðu garðinn
þinn, Hákon Bjarnason.)
Öll lendum við í því einhvern
tíma á ævinni að missa ástvin.
Flestir vilja búa sínum nánustu fall-
egt og líflegt skjól í kirkjugörðum og
vanda sig því við allan aðbúnað, svo
sem gróður á leiðunum. Margir eru
þá að koma nálægt gróðri i fyrsta
skipti og vita ef til vill ekki hvemig
þeir eiga að snúa sér. Hvaða plöntur
eru harðgerar, þola það að vera ekki
vökvaðar mjög oft o.s.frv. Einnig
leikur fólki forvitni á að vita hvaða
þjónustu Kirkjugarðar Reykjavíkur
veita í þeim tiifellum þegar fjöl-
skyldan flytur á brott og getur ekki
heimsótt íeiði ástvina sinna nema
tvisvar á ári eða því um líkt.
Við höfðum samband við Karl Guð-
jónsson, sem er garðyrkjustjóri
Kirkjugarða Reykjavíkurprófasts-
dæmis, og spurðum hann fyrst að því
hvort hann ráðlegði fólki eitthvað
sérstakt varðandi plöntur á leiði.
Karl segir að fólk setji gjarnan
sumarblóm á leiði. Þau hjá kirkju-
görðunum hafi notað stjúpur og fjól-
ur mikið undanfarin ár. Þó segir
Karl að hin síðari ár hafi stjúpur og
fjólur staðið illa sem sennilega stafi
af því að sveppur sé í jarðveginum.
Því hefur Karl ráðlagt fólki að hvíla
jarðveginn í tvö til þrjú ár og gróð-
ursetja ekki stjúpur og fjólur heldur
aðrar tegundir þann tíma.
Karl segir enn fremur að fólk
velji oft fjölærar plöntur til þess að
setja á leiði en þá sé meginreglan að
Marglitur gróður er ævinlega til prýöi
velja plöntur sem ekki skjóta rótum
sínum í allar áttir. Einnig er bann-
að að setja tré á leiði því það vildi
brenna við að rætumar yrðu svo
umfangsmiklar að erfitt væri um
vik að taka graflr í næsta nágrenni.
Karl segir að það bann nái einnig til
runna en sjálfum finnist honum það
úrelt regla og hann mæli gjarnan
með lágvöxnum runnum á leiði.
Varðandi íjölæm blómin segir
Karl að flölbreytnin sé mikil. Hinir
ýmsu lyklar, bæði háir og lágir, séu
til dæmis mjög vinsælir en megin-
reglan sé sú að litadýrðin verði að
vera töluverð. Vinsælust eru þó, að
sögn Karls, sumarblómin sem fólk
kemur jafnt með í pottum og plant-
ar beint í jarðveginn á leiðinu.
Aðspurður segir Karl að þjónust-
an sem Kirkjugarðar Reykjavikur
veiti sé sú að setja niður blóm fyrir
fólk og jafnframt að hirða öll leiðin
í garðinum, reyta illgresi og annað,
jafnvel sé reynt að vökva líka í mik-
illi þurrkatíð, en stundum sé ekki
hægt að komast yfir allt þó að vilj-
inn sé fyrir hendi.
Þegar spurt er um verð á þeirri
þjónustu að láta setja niður fyrir sig
blóm á leiði svarar hann því til að
tíu blóm á leiði kosti með vinnu
2.607 kr. og tuttugu blóm kosti 3.177
kr. Mjög algengt er að fólk taki tutt-
ugu blóm. Hér er átt við sumar-
blóm. Ef fólk vill planta fjölærum
blómum eða runnum á leiði er sú
þjónusta ekki fyrir hendi.
Blákornið er áhrifaríkt við plöntun á
litlum trjám og gott fyrir sumarblóm
og skrautrunna.
Fáðu upplýsingabœkling á nœsta
sölustað.
i i \
ABURÐARVERKSMIÐJAM HF