Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1998, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1998, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1998 25 Safnhaugar: gróðurmold ári liðnu Safnhaugar hafa mjög verið að ryðja sér rúms hér á landi undan- farin ár og margir garðeigendur eru búnir að koma sér upp kössum til þess að geyma lífrænan úrgang. Það er ekki bara að safnhaugamir séu umhverfisvænir heldur eru þeir til aukinna þæginda fyrir garðeigend- ur því þeir losna til dæmis við það vandamál sem fylgir því að losa sig við gras eftir slátt og annað sem til fellur við umhirðu garða. „Að safna lifrænum úrgangi á einn stað er sem betur fer vaxandi iðja hérlendis þótt við séum enn talsvert á eftir nágrannaþjóðunum hvað varðar flokkun á sorpi,“ segir Bjöm Gunnlaugsson, garð- yrkjukandídat við Garðyrkjuskóla ríkisins og tæknilegur ráðgjafi hjá Gróðurvörum. Bjöm segir æ algengara að fólk leiti ráða um safnhauga. En hvað ráðleggur hann fólki sem vili byija að safna lífrænum úrgangi? „Það er nauðsynlegt að koma sér upp góðum kassa og velja honum hentugan stað í garðinum. Þá er bara að byrja að henda grasi, trjá- greinum, mold og lífrænum afgöng- um úr eldhúsinu," segir Bjöm. Grasið getur reyndar orðið vandamál á miðju sumri þegar vöxt- ur þess er sem hraðastur og Bjöm bendir einnig á að trjágreinar séu upplagðar í safiihauginn að því til- skildu að þær séu kurlaðar áður. „Kurlaðar greinar era mjög góðar fyrir hauginn því hann verður léttari og loftmeiri fyrir vikið. Aðrar jurta- leifar úr garðinum eru gjaldgengar en betra er að sleppa húsapunti og skrið- sóley alveg,“ segir Björn. Grænmetis- og ávaxtaafgangar úr eldhúsinu eru vel til þess fallnir að gera hauginn kraftmikinn og Bjöm mælir gjama með því við fólk að það komi sér upp tvöfoldu kerfi í eldhús- inu þannig að lífræni afgangurinn fari ávallt í sértunnu. Það er upp og ofan hvort fólk hendir fisk- og kjötaf- göngmn en að mati Bjöms hefur það bæði kosti og galla. Kjötið á það til að úldna og eins geta mýs og rottur farið að heimsækja safnhauginn en hins vegar er þetta að sjálfsögðu lífrænn úrgangur. Haugurinn sigtaður Þeir sem ætla að koma sér upp safnhaug ættu að velja vorið til þess að byrja. Þá hafa menn sumarið til Allur lífrænn úrgangur úr eldhúsi þess- arar ungu konu ratar beina leið í safn- hauginn. DV-mynd E. Ól. þess að safiia og vorið eftir þegar kassanum er lyft af ætti að vera kom- ið nokkurt magn af góðri gróðurmold. Þá er mælt með því að haugurinn sé sigtaður en þannig er í raun auðveld- ast að ná sem bestri mold. Það sem verður eftir I sigtinu er síðan einfald- lega sett aftur í kassann. Margir halda að það sé mikil vinna fólgin i að halda safnhaugnum við en í raun er þetta aðallega fólgið í breytt- um venjum. Það þarf hvort er að henda þessum úrgangi með einum eða öðrum hætti. Það er því ekki ýkja mikil vinna að halda safnhaugnum við en Bjöm segir þó mikilvægt að reynt sé að hafa hann lagskiptan. Þá er átt við að grasið sé sett í einu og síðan til dæmis greinakurl ofan á og þannig koll af kolli. Til þess að efla niðurbrot er nauð- synlegt að setja kalk um það bil viku- lega í hauginn og eins þarf að vökva hann annað slagið því niðurbrotið gengur hraðar ef hann er rakur. Svo er hægt að kaupa svokallaðan safn- haugshvata sem inniheldur þurrkað- ar örverur og þykja mjög góðar í hauginn. -aþ 19 sm 23 sm 27 sm kr 349 kr 519 Mikið úrval, gott verð Undur □q -V stnrmerkl... * \) * ■n mm m#iri#irm#ir»mr ■ s ^wwr.m* s FYRSTUR MEÐ FR ÉTTI RNAR ðtóVÍ® fíi\ð seuðan,-ncrat- ^ „iiste«esu0' _eráVeVttV,_vieru^e 32tu icva'\at* tei a su sétstj-r0 .dí nlWi,ra:?lto'0as'ie,a -»v,.tó83,°' ■l5AAS700* yoQ' VCópa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.